Vísir - 14.07.1973, Page 7
Hvernig má hafa
ofan af fyrir
barni á ferðalagi?
Reynið að hafa eins litið af farangri inni i bifreiðinni og hægt er segir i
einu ferðaráði. Það er þó ekki þar með sagt að svona eigi að leggja i
ferðalagið!
Visir. I.augardagur 14. júli 1973.
MIMIMl
| SÍÐAN |
Upplýsingar um
það, hvernig öryggi
barnsins i bilnum
væri bezt borgið veitt-
um við hér á Innsiðu i
gær. En það er ekki
allt búið enn. Það
getur verið erfiðleik-
um bundið að ferðast
með börn. Reyndar er
ekki erfitt að ferðast
með smábörn. Barnið
má geyma á öruggan
hátt i burðarrúmi sinu
i aftursæti bifreiðar-
innar.
En þegar barniö eldist og er
oröiö þaö gamalt,að þaö vill
standa upp og hreyfa sig, og
lætur sér ekki lengur nægja aö
liggja hreyfingarlaust, koma
upp vandamál. En allir geta
fmyndaö sér, hvaöa
afleiöingar þaö getur haft i för
meö sér aö láta barn leika
lausum hala i aftursæti bils-
ins. ■■■
Hvaöa foreldri vill hafa þaö
á samvizkunni aö hafa notaö
barniö sitt fyrir varnarvegg
fyrir sjálft sig? Sjálfsagt
ekkert. En þaö kemur fyrir að
foreldriö, sem situr i framsæt-
inu tekur þaö til bragös aö
færa barnið fram i bflinn og
sitja undir þvi þar. Ef
eitthvaö sföan kemur fyrir er
þaö barnið, sem tekur á sig
höggiö.
Viö ræddum um öryggisbelti
og barnabilstóla á Innsiöunni i
gær, og þá kom meöal annars
fram, aö hér á landi eru til
tveir stólar á markaðnum,sem
uppfylla þau skilyrði, sem
öruggisstóll þarf að uppfylla.
Annan þessara stóla má
einnig hafa i framsætinu. En
þá snýr bak stólsins i aksturs-
stefnu. Það er þvi aðeins mælt
meö þvi aö stóllinn sé i
framsæti, aö hann snúi bakinu
I aksturstefnu.
Til er sorglegt dæmi þess, aö
barn hafi hengzt i
barnabilstól. Var það stóll
talinn af lélegri gerðinni.
Barniö sat i stólnum en rann
niöur úr honum og festi
höfuðið í grindinni, sem er á
slikum stólum fyrir framan
maga barnsins. En festing sú,
sem átti að vera á milli fóta
barnsins og sem átti að varna
þvi að barnið rynni niður i
stólinn, haföi brostiö viö
áreksturinn.
Einnig eru dæmi þess að
fyrrnefnd grind hafi bognað
viö slys eða árekstur og
þrýstst aö maga barnsins og
stórskaöaö það. Grind þessi er
þvi ákaflega hættuleg.
En ekki má gleyma öðrum
þörfum barnsins i bílnum en
likamlega örygginu. Þaö þarf
aö taka tillit til þessa smáa
ferðalangs. Barn þarf mikla
hreyfingu og það er ekki hægt
að ætlast til þess aö það sitji
fest i belti eða stól langtímum
saman.
Þá er eitt til bragös að taka,
og það er að leyfa öllum aö
rétta úr sér öðru hverju,
stanza bilinn, og taka það
rólega.
Hvernig má hafa ofan
af fyrir barninu?
Og hvað er svo hægt að gera
á meðan setiö er i bifreiðinni
og ekiö eftir þjóöveginum.
Margrét Sæmundsdóttir,
fóstra, mæiir með ýmsum
leikjum. Þaö þarf ekki mikiö
svigrúm til þess aö fara 1
ýmsa spurningaleiki eöa aöra
slika, og svo er jú hægt aö
skoöa bækur eöa blöö.
Barn sem situr i stól eöa
beltum getur auöveldlega
skoðað bækur og blöö og tekiö
þátt i leikjum sem ekki krefj-
ast þes aö barnið hreyfi sig út
úr stólnum.
Aður en haldiö er i
ferðalagiö, má þvi lita inn i
einhverja bókaverzlunina og
skoða leikja- eða ferðabækur
til þess að hafa ofan af fyrir
sér og börnunum á meðan á
ökuferðinni stendur.
Margrét mælir meö
islenzkum ferðahandbókum,
sem nokkuö er til af. Þar má
meöal annars nefna bókina
Landiö þitt, bækur Ferða-
félagsins og fleiri handbækur.
Minna úrval er af islenzkum
leikjabókum. Þó eru til að
minnsta kosti þrjár bækur.
Þær eru: Margt er sér til
gamans gert, eftir Jónas
Arnason og Ólaf Daviösson.
Kostar hún 193 krónur.
önnur bók er
Samkvæmisleikir og skemmt-
anir. Bókin er tekin saman af
Ragnari Jóhannessyni og
kostar 75 krónur. Að siöustu er
svo bókin Leikir og létt gaman
eftir Svein Viking. Bókin sú
kostar 339 krónur.
En einnig má fá erlendar
bækur, og af þeim er miklu
meira úrval i verzlununum.
Við nefnum hér nokkrar
enskar og danskar bækur.
Enskar: Games, stór bók og
kostar 1160 krónur. Games for
children. 1 vasabroti og kostar
234 kr. What there is to do
when there is nothing to do.
Krónur 36.
Danskar: Politikens inden-
dörs lege. kr. 178. Store-lege-
boken kr. 500 Börnenes trille-
pindc kr. 170.
Bangsa, bila og dúkkur er
svo sjálfsagt aö hafa með i
feröalagið fyrir yngstu börnin,
sem ekki eru orðin nógu gömul
og þroskuð til þess aö taka
þátt i hinum ýmsu leikjum.
eftir öryggisbeltunum og barnabílstólunum.
Slikt sem þetta á myndinni ætti ekki að þurfa.
Ileynið einnig að skapa gott andrúmsloft i
bilnum.
Barn verður
fljótt leitt
ó því að sitja
kyrrt og að-
gerðarlaust
í öryggis
beltinu eða
bílstólnum,
og þarf
að gera sér
eitthvað
til dundurs
Agætt er aö hafa meöferðis
leikföng úr mjúku plasti eöa
ööru efni sem börnin geta ekki
meitt sig á.
Þaö er svo sannarlega
margs aö gæta þegar farið er
meö barnið i feröalagið. Sumir
hverjir foreldrar kjósa heldur
aö eyöa þvi án barnsins og
koma þvi I fóstur á meðan,
ásamt hundinum, kettinum
eöa húsdýrinu. (Reyndar er
þaö svo meö hunda, að þeir
eiga miklu erfiðara að sætta
sig viö aö húsbændurnir fari
frá þeim i fri heldur en
ungabarn þeirra. Sagt er
meira aö segja aö hundur geti
hreinlega dáiö á einni viku úr
sorg, ef svo ber undir.)
Auðvitað er þaö hvild frá
hinu daglega striti aö skilja
barniö eftir, en þvi getur þó
auövitaö fylgt mikil ánægja aö
hafa þaö meö. Og skyldi þaö
ekki þarfnast sveitarinnar og
upplyftingarinnar talsvert
eins og aðrir.
Börn þurfa ævinlega mikið
aö drekka Þess vegna er ágætt
aö hafa meðferðis ávaxtasafa
i plastflöskum. Piastflösk-
urnar eru heppilegri, þar sem
hættulegt er aö drekka úr
glerflöskum inni i bifreiö, sem
er á fullri ferö.
Munið einnig, að gefa
barninu ekki þungan mat
kvöldið áöur en lagt er af staö i
feröalagið og ekki heldur um
morguninn.
Og hafiö þaö svo i huga aö
börnin geta oröiö þess vald-
andi að þiö kynnist fleira fólki
en annars yröi. Börn eru ekki
feimin og þau eru mjög forvit-
in. 1 gegnum þau og meö þeim
má kynnazt ýmsu, sem annars
kæmi ef til vill ekki til.
Að lokum nokkur
ágæt ferðaráð:
1. Látiö barniö alltaf sitja i
aftursætinu.
2. Hafið meðferðis púða fyrir
börnin tii þess að þau geti
lagt sig.
3. Hafið með pappfrsrúllu i
hanskahólfinu.
4. Hafið gjarnan með rakan
klút og sápu i plastpoka
fyrir kámugar hendur.
5. Hafiö eins lítið af farangri
inni I bifreiðinni og hægt er.
6. Reynið að skapa gott
andrúmsloft i bilnum.
Blótsyrði og skammir út i
aðra ökumenn ættu aldrei
að eiga sér staö i skemmti-
ferð.