Vísir


Vísir - 21.07.1973, Qupperneq 7

Vísir - 21.07.1973, Qupperneq 7
Visir. Laugardagur 21. júli 1973. 7 iNN.Þar ráða nemendurnir því " Döm hvort þeir lœra eitthvað „Börn eru aö eðlisfari hávær og foreldrar verða að viðurkenna þá staðreynd og læra að sætta sig viö hana. Ef barn á að alast upp á heilbrigðan hátt, verða foreldrarnir að sýna töluvert umburðarlyndi gagnvart hávaðasömum leikjum.” — S.S. Neil. Umsjón: Edda Andrésdóttir í Summerhill-skólanum í Englandi er allt lagt upp úr einstaklingsfrelsi og lífshamingju. Stofnandi skólans er hinn frœgi skólastjóri A. S. Neill, sem meðal annars hefur sagt: „Mér er meir í mun, að barn, sem til mín kemur, verði hamingjusamur götusópari fremur en taugaveiklaður hóskólaborgari." i Suffolk i Englandi starfar sérstakur skóli, Summerhill- skólinn. Stofnandi þessa skóla er hinn frægi A.S. Neill, sem jafnframt er skólastjóri, og hef- ur helgað sig kennslu eða skóla- stjórn mest allt sitt lff. 1 skólanum er mest áherzla lögð á einstaklingsfrelsið. Börni skólanum eru á aldrinum 5-16 ára, en skólinn er einkaskóli. Hvaðan æva að úr heiminum koma börn til þess að vera við nám i skóla þessum, en fjöl- mennust eru ensk börn. bað kemur sjálfsagt flatt upp á marga, en i Summerhill- skólanum ráða nemendur þvi sjálfir hvort þeir læra eitthvað. Hafi nemendur þó ákveðið að læra eitthvað, er ætlast til að þeir sækji vissan fjölda kennslu- stunda. Þó að börnunum hafi verið rétt svo mikið sjálfræði upp i hendurnar, hefur aðeins einn nemandi, útskrifast ólæs úr skólanum öll þau ár, sem skóli þessi hefur starfað, en það var um 1921 sem fyrsti visir að þess- um skóla varð til. „Mér er meir i mun, að barn, sem til min kemur, verði ham- ingjusamur götusópari fremur en taugaveiklaður háskólaborg- ari”. bessa skemmtilegu setn- ingu sagði A.S. Neil eitt sinn, og þarna sést bezt hversu litils hann metur kreddur þjóðfélags- ins um tign og stöðu, og hið ei- lifa kapphlaup i lifsgæðin. Það er lifshamingjan, sem hann segir skipta öllu máli. En Neil segir einnig: „Við fáum tannpinu, þjáumst af ástarsorg og þurfum að vinna ýmis verk, sem okkur leiðast. Ef orðið hamingja merkir eitlhvað, er það innri tilfinning fyrir heil- brigði, andlegt jafnvægi og meðvituð tengsl við lifið. En þannig liður aðeins þeim, sem eru frjálsir.” A hverju laugardagskvöldi eru haldnir skólafundir i skólan- um, sem hafa löggjafar og dómsvald i honum. Þar hafa all- ir atkvæðarétt, jafnvel ráðskon- an. Þar eru samdar reglur og dómar kveðnir upp yfir þeim sem brotið hafa gegn skólaregl- um. Vandræðabörn brezka skóla- kerfisins voru um langan tima send i skólann. Nær undantekn- ingarlaust komu þau þó út úr þessum fyrirmyndarskóla sem nýtir þjóðfélagsþegnar og hamingjusamir einstaklingar. Við birtum nú með leyfi nokkra kafla úr „Summerhill” eftir A.S. Neil, en það skal tekiö fram, að kaflar þessir ásamt grein eru þýddir af Kjartani Gunnari Kjartanssyni, ritstjóra Stefnis, en þessi ágæta grein birtist þar i siðasta tölublaði Stefnis. Um ást og hatur: „Barniö fær sjálfsmeðvitund sina frá föður sinum, móður sinni, kennurum sinum eða al- mennt frá öllu umhverfinu. óhamingja barnsins ber að rekja til togstreitu á milli sjálfs- vitundar þess og mannlegs eölis. Eða, eins og Freud heföi sagt, milli hins æðra sjálfs og eðlisgerðarinnar.... Ast og hatur eru ekki and- stæöur. Andstæðan við ást er af- skiptaleysi.” Um refsingu og viðurkenningu: „Margir trúa þvi innst inni, að börn, sem ekkert hafi að hræð- ast, geti ekki verið góð! Góð- vild, sem byggð er á ótta við helviti eða ótta við lögregluna eða ótta við refsingu, er alls ekki góðvild, heldur hugleysi. Góðvild, sem byggð er á von um verðlaun eða von um hrós eða von um himnariki, er ekki held- ur góð vild, heldur mútuþægni. Siðfræði okkar tima gerir börn að hugleysingjum, vegna þess að hún fær þau til að óttast lif- ið.... I hamingjusömustu fjölskyld- um sem ég þekki til, eru foreldr- ar hreinskilnir og blátt áfram án þess að troöa á börn sin sið- ferðisprédikunum. Inn á slik heimili kemur óttinn ekki. Faðir og sonur eru félagar og kærleik- ur rikir á heimilinu.” Um lygar: „Ef barn þittt venur sig á að ljúga, er þaö annað hvort hrætt við þig eða það er bara að herma eftir þér. Ef þú vilt, að barn þitt segi satt, ættir þú ekki að ljúga að þvi... Meginvandinn við að segja börnum alltaf sannleikann er sá, að enginn okkar er hreinskil- inn gagnvart sjálfum sér. Við ljúgum að sjálfum okkur, við ljúgum að- nágrönnum okkar. Hver einasta sjálfsævisaga, em rituð hefur verið, er lýgi. Við ljúgum vegna þess, að okkur hefur verið kennt að lifa sam- kvæmt óraunhæfum siðferðis- kröfum.” Um aga: „Kærleiksrikt umhverfi án föðurlegs aga mun sjá fyrir all- flestum vandamálum bernsk- unnar. Ég vil, að foreldrar geri sér grein fyrir þessu. Ef börnum er séð fyrir kærleika og viður- kenningu á heimilum sinum, mun hatur og eyðilegging aldrei sjá þar dagsins ljós.” Leikföng: „Hefði ég eitthvert viðskipta- vit, þá myndi ég opna leikfanga- búð, öll barnaherbergi eru full af brotnum og vanræktum leik- föngum. Hvert einasta barn miðstéttarforeldra fær alltof mörg leikföng. I rauninni eru öll þau leikföng, sem kosta meira en tvö til þrjúhundruð krónur, einskis nýt.” Hávaöi: „Börn eru að eðlisfari hávær og foreldrar verða að viður- kenna þá staðreynd og læra að sætta sig við hana. Ef barn á að alast upp á heilbrigðan hátt, verða foreldrarnir að sýna tölu- vert umburðarlyndi gagnvart hávaðasömum leikjum.” Um góða framkomu: „Góð framkoma felst i þvi að hugsa um náungann, nei ann- ars, — að hafa tilfinningar til náungans. Menn verða að vera félagssinnaðir, geta hæglega sett sig i spor annarra. Góð framkoma sér fyrir þvi, að eng- inn verði særður eða móðgaöur. Góð framkoma felst i öruggri og heiðarlegri afstöðu til annarra. Góða framkomu er ekki hægt að kenna, þvi að hún er ómeðvit- uð.” Um kynlíf: „Þegar dóttir min var sex ára, kom hún eitt sinn til min og sagði: „Willis hefur stærsta tittlinginn af litlu strákunum en frú X (gestur við skólann) segir, að það sé dónalegt að segja tittlingur.” Eg sagði henni strax, að það væri ekkert dóna legt. Með sjálfum mér formælti ég þessari konu fyrir fávizku hennar og skilningsleysi gagn- vart börnum. Ég gæti þolað áróður fyrir stjórnmálaskoðun eða góðri hegðan, en þegar ein- hver ræðst á barn og reynir að vekja hjá þvi sektarkennd gagnvart kynferðismálum, þá er mér að mæta.” Um siðaboðorð: „Ég er þess fullviss að það eru siðaboðorð, sem gera börn vond. Ég tek eftir þvi, að þegar ég er búinn að brjóta á bak aftur þann siðaboðskap, sem vondum dreng hefur verið innprentaður, þá verður drengurinn strax góður.” „Margra ára reynsla min i umgengni við börnin á Summerhill hefur fullvissað mig um, að það sé ekki nokkur þörf á þvi að reyna aö kenna börnum, hvernig þau eigi að hegða sér. Barn lærir á sinum tima hvað er rétt og hvað er rangt. Lærdómur er árangur af gildisöflun einstaklingsins frá umhverfi hans. Ef foreldrarnir eru sjálfir heiðarlegir munu börn þeirra á sinum tima fylgja þeirra fordæmi.” Áhrif á börn: „Foreldrar og kennargr gera oft mikið af þvi að reyna að hafa áhrif á börnin vegna þess, aö þeir fyrrnefndu halda, að þeir geti sagt börnunum til um, hvað þeim sé fyrir bezt, hvað þau eigi að læra, hvað þau eigi að verða. Ég er þess ósammála. Ég reyni aldrei að fá börnin til að aðhyll- ast skoðanir minar og hleypi- dóma. Ég treysti þvi að máttur frelsisins brynji þau gegn smán og ofstæki og gegn hvers konar altækum kennisetningum. öll skoðanaitroðsla i börn er vita- verður glæpur gagnvart þeim.” —EA

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.