Vísir - 21.07.1973, Blaðsíða 10

Vísir - 21.07.1973, Blaðsíða 10
LANDSKEPPNI f SÍON - KNATTSPYRNA UM ALLT LAND Það verður mikill fótboíti viða um iand um helgina,og i Sion i Sviss tekur islenzka landsliðið i sundi þátt i mikilli keppni átta þjóða. Það er i annað sinn, sem sund- landsliðið tekur þátt i slikri keppni. Hin fyrsta var á Skotlandi i fyrra. Þar sigruðu Spánverjar og Skotar voru i öðru sæti. Aðrar þjóöir i keppninni voru: Noregur, Wales, Sviss, Belgia og tsrael. Is- lenzka liðið er aðeins skipað 10 sundmönnum og konum — mun MEÐ VEIZLU í FARANGRINUM iglysii.Kj.fdeild Híttumst í haupféíagínu færri keppendur, en hjá öðrum löndum. Guðmundur Gislson er fyrirliði liðsins. Sömu lönd keppa einnig nú. Heil umferð verður i deilda- keppninni i knattspyrnu hér heima. I dag verða þrir leikir i 2. deild, Þróttur, Reykjavik, og Haukár á Melavelli, FH og Völsungar i Kaplakrika, og fall- leikurinn mikli á Selfossi milli Selfyssinga og Þróttar, Neskaup- stað. Ef að likum lætur bjargar það liðið sér, sem sigrar i leikn- um. 1 3. deild eru niu leikir — alla leið frá Suðurnesjum, vestur, norður og austur um land til Hornafjarðar. Þar veröur viða barizt af krafti i þýðingarmiklum leikjum. A sunnudag verða fjórir leikir i 1. deild á Akranesi, i Njarðvikum, Reykjavik og á Akureyri. Sá leik- urinn, sem langmesta athygli mun vekja er leikur Akraness og Keflavikur á Skaganum. Keflvik- ingar hafa enn ekki tapað stigi i deildinni, en margir telja þennan leik hættulegan'fyrir þá, þar sem leikmenn liðsins, flestir, hafa staðið i stórræðum siðustu daga — leikið fjóra leiki á átta dögum, svo þeir hljóta að vera orðnir þreyttir. Sama er einnig með bezta mann Akurnesinga, Matthias Hallgrimsson. Leikur- inn hefst kl. fjögur — einig leikur Akureyrar og Fram fyrir norðan. Leikur Vestmannaeyinga og KR i Njarðvikum hefst hins vegar kl. tvö — og Valur og Breiðablik leika á Laugardalsvelli Kl. átta um kvöldið. Þeir eru likir á velli, lands- liðsmennirnir Asgeir Elisson og Matthias Hallgrimson (til vinstri á myndinni hér að neðan, Asgeir til hægri með knöttinn) — það svo, að maður á stundum i hinum mestu erfiðleikum að þekkja þá i sundur. Bjarnleifur tók myndina i siðari landsleiknum við Austur- Þjóðverja á fimmtudagskvöld. Hvað finnst ykkur? Hinn hugrakki Indiáni ræðst að Ka-Ra Bambam....„djöfullinn sem drepur með augnaráðinu"! Basilikan Snúðu við. Nei, komdu aftur. Hann getur það ekki, hann er dáleiddur!

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.