Vísir - 23.10.1973, Blaðsíða 9
Hagkaup auglýsir
Opið til kl.
8 í kvöld
1 b*
nf/
c-'
Stórkostlegt úrval af dömublúss-
um úr jersey, polyester og ind-
verskri bómull. Einnig siðar
dömublússur, stærðir til 48.
Telpnablússur i úrvali úr jersey
og polyester.
NÝTT — NÝTT — Sið BANANA
pils fyrir ungu stúlkurnar, úr
burstuðu denim og flaueli.
ÍJrval af úlpum, buxum, og
peysum á alla fjölskylduna.
Amerisk handklæði, hagstætt
verð
Falleg, ódýr baðmottusett.
WSÍSim
Matvöruúrval — viðskiptakortin
vinsælu.
SIMI
n
SKEIFUNN115
% *«# ... ___
W&- *■* «■ *
Þessar myndir voru teknar i iandsleiknum gegn Frökkiim i Metz á sunnudag. A efri
myndinni er Legrand meö knöttinn fyrir framan fslenzku vörnina — AuOunn óskars-
son, Jón Karisson og Jón Iijaltalin sjást I vörninni. A neðri myndinni reynir einn
islenzku leikmannanna skot á mark — og knötturinn fer i gegn þrátt fyrir sterka vörn
Frakka. Auðunn og Agúst eru inn á lfnu— Einar Magnússon út á kanti.
Vestmannaeyjatölur
gegn Borussia fyrir Stuttgart
Borussia Mönchengladbach fékk á sig
hálfgerðar Vestmannaeyjatölur i 1. deild-
inni þýzku á sunnudag — eða svipaða
útreið og Vestmannaeyingar fengu hjá
þýzka liðinu í Evrópukeppni bikarhafa f
haust!
Borussia lék þá i Stuttgart og tapaði 1-6
— var leikið sundur og saman af heima-
liðinu, og við tapið missti liðið forustu sína
i deildinni — féll niður i annað sætið.
Stórar tölur voru einnig i öðrum leik i
Vestur-Þýzkalandi og þar tapaði einnig
annað stórlið. Kaiserslautern vann þá
Bayern Munchen með 7-4, og fyrirliðið
Bayern, Franz Beckenbauer, sagði eftir
leikinn, að liðið mætti taka sig heldur
betur saman ef það ætlaöi að komast
áfram i Evrópukeppninni, sem verður I
vikunni.
Eintracht, Frankfurt, vann Hertha,
Berlin, á sunnudag og komst við það i
efsta sæti i 1. deildinni. Borussia er f öðru
sæti — síðan koma Kaiserslautern og
Bayern Munchen.
Preston fékk skell
Preston North End — lið Bobby Charl-
ton i 2. deildinni — fékk slæman skell I
deiidakeppninni i gærkvöldi. Tapaði þá
illa fyrir einu neðsta liðinu, Millvall, á
leikvelli þess siðarnefnda i Lundúnum. Þá
kom á óvart, að Manch.City tókst ekki að
vinna 3. deildarliðiö Walsall á heimavelli
sinum i deildabikarnum. Jafntefli varð
aftur án marka og verða liðin nú að
mætast i þriðja sinn.
Annars uröu úrslit þessi i ensku knatt-
spyrnunni f gær.
2. deild
Blackpool-Fulham 2-0
Millvall-Preston 5-1
Orient-Bolton 3-0
3. deild
Rochdale-Plymouth 1-
Southend-OIdham 2-
Wrexham-Watford 1-
4. deild
Darlington-Exeter i-
Hartlepool-Bury i-
Mansfield-Stockport 5-
Peterbro-Lincoln i-(
Við sigurinn komst Peterbro f efsta sæt
I 4. deild.
Texaco-bikarinn
Birmingham-Ncwcastle 1-1
en þetta var leikur I annarri umferð
Birmingham sló Stoke út i þeirri fyrstu
Lið Noregs gegn Belgum
Norðmenn hafa valið landslið sitt i
knattspyrnunni, sem leikur gegn Belgum
á leikvelli Anderlecht í Brussel miðviku-
daginn 31. október. Það verður sfðasti
leikur Norðmanna í HM-riðlinum, en
island lék þar einnig sem kunnugt er.
Landsliðsþjálfarinn norskí, George
Curtis, tilkynnti lið sitt í gær og verður
það þannig: — Odd Arild Amundsen,
Strömgodset, Tore Antonsen, Hamkam.,
Jan Birkelund, Skeid, Jan Christiansen,
Rosenborg, Svein Gröndalen, Raufos
Harry Hestad, Molde, Jan Hovden, Frig;
Tor Egil Johansen, Skeid, Geir Karlsei
Rosenborg, Stein Karlsen, Hamkam
Helge Karlsen, Brann, Svein Kvij
Viking, Tom Lund, Lilleström, Pe
Pettersen, Frigg, Harald Sunde, Rosei
borg, og Sigbjörn Slinning, Viking. -
Eiginlega sama lið og lék hér i sumar.
Norska liðið mun leika annan landsleik
förinni— gegn Luxemborg laugardagin
3. nóvember.
GÓÐ FERÐ
— segir fararstjóri Fœrey-
inga, sem einnig er
bœjarstjóri í Tvöroyri
Sverre Midjord, fararstjóri færeyska landsliðsins i borðtennis. Sverre
er bæjarstjóri i Tvöroyri, 2500 manna kaupstað. Einnig er hann for-
maöur Borötennissambands Færeyja.
Aðalfundur Knattspyrnudeildar
Vikings verður haldinn
miðvikudag. 31. okt. 1973. i
félagsheimilinu v/Hæöargarð og
hefst hann kl. 20.00.
Ég vonaði nú alltaf
það bezta og sannleikur-
inn er sá, að færeysku
borðtennisleikararnir
eru i mun betri æfingu
núna en siðastliðið vor,
þegar íslendingar unnu
okkur”. Þetta sagði
Sverre Midjord farar-
stjóri og fyrirliði
færeyska landsliðsins í
borðtennis, sem sigraði i
keppni við það islenzka
á sunnudaginn.
„Við hófum æfingar aftur
snemma i september og þá kom
til okkar i nokkra daga Johnny
Peterson, danski landsliðsþjálf-
arinn. Þó hann væri ekki nema
nokkra daga hafði koma hans
mjög góð áhrif”.
Við spurðum Sverre Midjord
um borðtennis i Færeyjum, en
auk starfs sins sem bæjarstjóri i
Tvöroyri, sem er 2500 manna bær,
er hann formaður Borðtennis-
sambands Færeyja og formaður
borðtennisfélagsins i sinni heima-
byggð.
„Við höfum leikið borðtennis i
Færeyjum siðan 1948”, sagði
Sverre. „Fyrsta keppnin var háð
1959 og siðan hefur meistara-
keppni Færeyja farið fram ár-
lega. Fjölgun þeirra, sem æfa
borðtennis, hefur verið mjög ör
og siðan keppni hófst i borðtennis
hafa framfarir verið stöðugar.
Hér áður fyrr tók kvenfólk
einnig þátt i borðtenniskeppni en
siðan lagðist það niður en nú er
verið að vinna að þvi, að kvenna-
keppni hefjist á ný”.
Sverre Midjord sagði okkur að
samskiptin við islenzka borð-
tennismenn væru mjög ánægjuleg
og ákveðið væri að tslendingarnir
kæmu til Færeyja i febrúar á
næsta ári. Þá væri ætlunin að
reyna að stofna einnig tii keppni
kvenna og drengja auk karla og
unglingakeppni, sem fram fór á
sunnudaginn var.
„Þessi ferð okkar til Islands
hefur i alla staði verið hin
ánægjulegasta”, sagði Sverre.
„Við erum 14 sem komum i
þetta skipti, ílugum með Flug-
félaginu beint frá Færeyjum á
fimmtudaginn var og förum til
baka á fimmtudaginn. Þennan
tima búum við á einkaheimilum
og er það mjög ánægjulegt og
með þvi eignumst við fleiri vini og
kunningja”. — ÓG
Visir. Þriðjudagur 23. október 1973.
9
Geir Hallsteinsson með gegn
ítölum í kvöíd og Frökkum!
Leyfi hefur fengizt hjá þýzka liðinu Göppingen um að Geir leiki með íslenzka
landsliðinu þá leiki, sem liðið á eftir í riðlakeppni heimsmeistarakeppninnar
Frá Magnúsi Gislasyni,
Luxemborg:
íslenzku landsliðs-
mennirnir, sem ég hitti
hér á flugvellinum i
Luxemborg i gær, voru
afar glaðir, þegar sú
frétt barst, að Geir Hall-
steinsson mundi leika
með islenzka landsliðinu
i kvöld gegn ítaliu og
einnig siðari leikinn við
Frakkland, sem verður
heima á íslandi hinn 4.
nóvember næstkom-
andi. Þeir voru á förum
til Róm og voru ekki
beint ánægðir yfir úrslit-
unum gegn Frakklandi
— en fréttin um Geir
hafði komið eins og
sólargeisli.
— Við höfðum þegar samband
við Geir Hallsteinsson eftir leik-
inn við Frakka i Metz. Hann var
mjög leiður yfir úrslitunum i leik
Frakklands og íslands, og tók vel
i það, þegar við færðum i tal, að
hann léki gegn Itölum. Sagðist
þurfa að fá leyfi hjá forráða-
mönnum Göppingen, sagði Einar
Þ. Mathiesen, aðalfararstjóri is-
lenzka landsliðsins, þegar ég hitti
hann i Luxemborg.
Og forráðamenn Göppingen
tóku strax mjög vel i þá málaleit-
un, að Geir léki með gegn ttaliu
og Frakklandi — Buchmayer,
formaður félagsins, var strax inn
á þvi, og ákvað sjálfur að aka
Geir út á flugvöllinn i Frankfurt,
þar sem hann átti að taka flugvél
til ttaliu i gær — og væntanlega
hefur hann sameinazt islenzku
landsliðsmönnunum iRómaborg i
gærkvöldi.
Einnig var farið fram á við
Göppingen, að Geir fengi leyfi til
aðleika siðari leikinn við Frakka
— leikinn, sem kemur til með að
ráða alveg úrslitum i riðlinum —
og var það einnig auðsótt mál.
Leikurinn verður sunnudaginn
fjórða nóvember og ekki vafi á
þvi, að Geir mun styrkja islenzka
liðið svo mjög, að von ætti að geta
verið i stórsigur. Hann segist
sjálfur aldrei hafa verið i betri
æfingu — eða leikið betur — en
einmitt nú.
Islenzku leikmennirnir og far-
arstjórarnir voru ekki ánægðir
með leik islenzka liðsins i Metz,
þegar ég var að spjalla við þá i
Luxemborg, þar sem við mætt-
umst á flugvellinum i gær — þeir
á.leið til ttaliu, ég heim aftur til
Islands.
Landsliðsmennirnir voru flestir
á þeirri skoðun, að Geir hefði
verið illa f jarri góðu gamni — það
hefði verið mikið áfall fyrir
Islenzka landsliðið, þegar Geir fór
til Þýzkalands og er þvi ekki til-
tækur nema af og til i þýðingar-
mestu leiki. Og það reyndist ekki
'unnt að fá hann i fyrri leikinn
gegn Frökkum — Göppingen var
þá að leika i Þýzkalandi. En
landsliðsmennirnir sögðu, að
þessi frétt um Geir hefði komið
eins og sólargeisli i heldur dapra
hugi þeirara eftir tapleikinn.
Það hefur mikið verið reiknað
og hve stórt þarf að vinna Frakka
i siðari leiknum. Jón Hjaltalin
Magnússon, verkfræðingur, sem
er mikill stærðfræðingur, var á
þeirri skoðun eftir mikil heila-
brot, að islenzka liðið þyrfti að
vinna Frakka hér heima með
þriggja marka mun til að komast
áfram i heimsmeistarakeppnina i
Austur-Þýzkalandi.. Þá hlýtur
hann að hafa reiknað með betri
úrslitum hjá islenzka liðinu i
siðari leiknum gegn þvi italska en
Frakkar eiga að ná — samkvæmt
útreikningnum.
Eins og staðan er nú — og sé
reiknað með þvi að markahlutfall
haldist óbreytt i siðari leikjum
tslands og Frakklands gegn
ttaliu, þarf islenzka liðið að vinna
það franska hér heima með fimm
marka mun — mörkin i siðari leik
landanna telja reyndar tvöfalt.
Eins og staðaner nú hafaFrakkar
23 mörk fleiri skoruð en þeir tiala
fengið á sig — islenzka liðið 14.
Munurinn er sem sagt niu mörk —
og fimm mörk þarf til að vinna
þann mun upp og um leið er þá
markatala tslands orðin aðeins
betri. Það er ef tsland vinnur
Frakkland með nokkurra marka
mun lagast staða okkar — en
Frakka versnar, svo kannski er
útlitið ekki alveg vonlaust.
Landsliðshópurinn hefur velt
mjög fyrir sér i hverju ósigurinn
gegn Frökkum lá — en niður-
staðan er einfaldlega sú, að liðið
hafi verið langt frá sinu bezta —
bardagagleði og sigurvilji
franska liðsins hafi komið á
óvart. Þeirri skoðun hefur einnig
skotið upp, að islenzka landsliðið
hafi algjörlega vanmetið mót-
herjana — talið, að vinningur
væri i húsi áður en leikurinn
hófst.
En það þýðir ekki að fást um
orðinn hlut — nú er bardagi
framundan. t kvöld þarf að vinna
ttali með miklum mun — og siðan
Frakka hér heima. Það ætti að
vera hægt, ef leikmenn verða
samhuga i þeim átökum, sem
framundan eru.
Jón Múli Arnason
°g
stórhlj ómsveit FIH
kynna úrslitalögin
í Trimmkeppni
ÍSÍ/FÍH
í Súlnasalnum
í kvöld
GLÆSILEG VERÐLAUN
4
Höfundar þriggja vinsælustu laganna hljóta glæsileg verðlaun.
1. Verðlaun: Radionette-útvarps- og hljómburðartæki frá E. Farestveit & Co.
2. Verðlaun: Pioneer-hljómburðartæki frá Karnabæ.
3. Verðlaun: Philips-hljómburðartæki frá Heimilistæki, hf.
AUKAVERÐLAUN FYRIR ALMENNING:
Dregið verður úr nöfnum þeirra, sem geta rétt um vinningslagið, 10 þeirra hljóta tvær S.G.-hljómplötur eftir eigin vali.
Félag íslenzkra hljómlistarmanna