Vísir - 23.10.1973, Blaðsíða 5

Vísir - 23.10.1973, Blaðsíða 5
Visir. Þriðjudagur 2:i. október 1973. AP/INITB ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson A neðri myndinni sést israelskur hermaður við skotpall Sam-3 eld- flaugar (til loftvarna) á vesturbakka Súe/.skurðar. A efri myndinni sjásl israelskir skriðdrekar aka hjá svæðinu, |iar sem tsraelsmenn náðu þessum skotstöðum á sitt vald — Þessi flugskeyti hafa verið israelsmönnum skeinuhættust. Kissinger sést hér á tali við Brezhnev um helgina, áður en hann átti viðræður við Gromyko utanrikisráðherra um tilraunir til þess að koma á friði i Austurlöndum nær. Af þessum fundum fór Kissinger til Tel Aviv. Kissinger frá Moskvu til Tel Aviv Barízt af hörku Jafnvel hinir hóflyndustu meðal þingmanna i Bandarikj- unum hafa þungar áhyggjur i vopnahléinu Flóð ó Spóni Suður-Spánn hefur orðið hart úti vegna flóða þar um helgina. I.ögreglan telur að 83 hafi látið lifið i flóðunum, tuga er saknað. Fjöldi hefur misst heimili sin. Þessi mynd hér að ofan var tekin i Alicante, þar sem fólk sést vcra að bjarga sér á þurrt á fleka, sem það hcfur klambrað saman i nauðum sinum —Viða hafði talsamband rofnað i Granada, Almeria og IVIurcia. Um það leyti voru tólf klukku- stundir liðnar frá þvi, að vopna- hléð skyldi taka gildi Egyptar hafa visað þessum ásökunum algerlega á bug, og svara i sömu mynt með þvi að saka ísraelsmenn um að ljúga upp átyllum til þess að halda bar- dögum áfram. Israelsmenn sögðu, að allt hefði verið tiðindalaust á sýrlenzku vigstöðvunum i nótt — Sýrlend- ingar, sem enn hafa ekkert látið frá sér heyra um, hvort þeir muni verða við áskorunum öryggisráðsins um að semja vopnahlé, segja á hinn bóginn, að israelskir herir hafi gert árásir með stórskotaliði og aðstoð flug- hers á ýmsa bæi i grennd við Hermonfjall og i Golan-hæðum. Einn stjórnarandstöðuflokk- anna i Israel gagnrýndi stjórnina i gær fyrir að verða við áskorun öryggisráðsins um að gera vopnahlé. Talsmenn Likud-- flokksins sögðu, að vopnahlé jafn- gilti þvi, að verðlaunuð væri árásarstefna Araba.- Af þeim fjórum löndum, sem sendu Sýrland liðstyrk, meðan striðið stóð sem hæst, hefur aðeins eitt gengizt inn á vopna- hléð. Jórdania. Henry Kissinger, utan- ríkisráöherra Bandaríkj- anna, kom til Tel Aviv í gær til viðræðna við Goldu Meir, forsætisráðherra israels. — Kissinger kom þangað beint frá Moskvu, þar sem hann komst að samkomulagi við leiðtoga Sovétrikjanna um sam- eiginlega áskorunartillögu þessara tveggja stórvelda, er samþykkt var í öryggis- ráði Sameinuðu þjóðanna í gær. Kissinger er ætlað að ræða við Goldu Meir um hugsanlega friðarsamninga milli tsraels- manna og Araba. Bandarikin hafa gert það kunn- ugt, að þau muni halda áfram hergagnaflutningum til tsraels, þar til ljóst verður, hvaða árangur næst af vopnahléinu. — Yfirvöld i Bandarikjunum hafa upplýst, að hergagnaflutningar til tsraels háfi byrjað fyrir viku og daglega fljúgi 20stórar flutninga- vélar þangað austureftir með vopn. Akvarðanir Nixons um að taka gilda.afsögn Richardsons dómsmálaráðherra (t.v.), reka Archibald Cox (f.m.) og ráða i staðin Ruckelhaus (t.h.) njóta aðeins stuðnings 15% i Bandarikjunum. 9% trúa Nixon vcgna afskipta Nixons forseta af rannsókn VVatergatemálsins og Ijá máls á þvi, að þingið búi sig undir aö vikja honum úr em- bætti. Fyrstu skoöanakannanir núna eftir atburði helgarinnar, þegar Nixon forseti vék Archibald Cox úr embætti saksóknara Watcr- gatemálsins, sýna, að kjósendur eru jafn áhyggjufullir vegna tiöindanna. t bráðabirgðaskoöanakönnun, sem NBC-útvarps- ogg sjón- varpsstöðin gekkst fyrir, sögðust aðeins 16% aðspurðra vera sammála Nixon f brott- rekstri Cox. 75% algerlega mót- fallin þvi. Sömuleiðis sögðu þrir fjórðu þeirra, sem spurðir voru i þessari skoðanakönnun, að þeir væru óánægðir með starf Nixons i Hvíta húsinu. Rúm fjörutiu prósent voru þeirrrar skoðunar, að hann gerði réttast i þvi að segja af sér embætti, og næstum 45% vildu, aö mál yrði höfðað á hendur honum. 42% sögðust ekki bera lengur neitt traust til hans. Otkoma skoðanakönnunar- innar er vissulega mjög neikvæð fyrir Nixon, og þó einkanlega ein niðurstaða enn, þar sem menn voru spurðir aö því, hvort þeir tryðu þvi, sem hann segði. Þá vsvöruðu aðeins 9% játandi. Þ.e.a.s. færri en tiundi hver Bandarikjamaður trúir forseta sinum. Þetta siðasta kann að friða baggamuninn, þegar þingmenn gera upp við sig, i hvorn flokkinn þeir skipa sér. Þann,' sem vill setja Nixon af og draga hann fyrir rétt. Eða hinn, sem vill halda að sér höndum. ' Það þykir vist, að dómsmála- nefnd öldungadeildarinnar — ef ekki lika fulltrúadeildarinnar — muni hefja strax eftir helgina, þegar þingið kemur saman að nýju, körinun á þvi, hvort rgrund- 'völlur sé fyrir málshöfðumn á hendur Nixon. Það yrði þá i fyrsta sinn siðan 1868. t það sinnið var Andrew Johnson sýknaður, svo að þingið mun tæpast láta til skarar skriða að þessu sinni, nema að það sé nokkuð visst i sinni sök um mála- lokin. israelskar hersveitir á landsvæöinu viö syðri hluta Súezskurðarins fengu í morgun fyrirmæli um aö hefja að nýju bardaga, „þvi aö egypzku herirnir hafa rofiö vopnahléð", sagöi talsmaður hersins í Tel Aviv i morgun snemma. 1 opinberri fréttatilkynningu, sem gefin var út kl. 7 i morgun sagði: ..Egypzkar hersveitir meðfram allri viglinunni halda stöðugt áfram að brjóta vopnahléð, og Egyptar berjast núna á suður- hluta Súezsvæðisins. Með þetta i huga hafa israelsku sveitirnar fengið fyrirmæli um að hefja bar- daga að nýju á þessum land- svæðum”. Fyrr i morgun var frá þvi skýrt i Tel Aviv, að egypzkar hersveitir hefðu i dagrenningu hafið ákafa sprengjuárás á sýrlenskar her- sveitir á vesturbakka skurðarins, aðallega miðsvæðis við skurðinn.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.