Vísir - 23.10.1973, Blaðsíða 1
VISIR
63. árg. -Þriöjudagur 23. október 1973 — 244. tbl.
■miiiiiii miiiiWTiin—a—hm——bb
Volva Víkunnar reynist
enn sannspó — baksíðan
Ekkert hlé
ó bardögum
þrótt fyrir
vopnahléð
Herliöi israels á suöurhluta
landsvæöisins við Súezskurð
voru í morgun gefin fyrir-
mæliaöhefja á ný bardaga
„vegna stööugra vopnahlés-
brota Egypta”, segja tais-
menn israelshers. Saka
ísraelsmenn Egypta um
ákafa stórskotaárásir i .
morgun og aö þeir hafi I
sifellu rofið vopnahléð við
Súezskurðinn i nótt. Sýr-
lendingar hafa enn ekki sagt
af eða á um vopnahléö, en
saka israelsmenn um að
beita bæði flugher og stór-
skotaliði i árásum á sveita-
þorp við Hermonfjall.
Sjá bls. 5.
Aðgerðir Nixons
í segulspólumálinu
illa þokkaðar
Sjá bls. 5 og 6
KALLAÐIR
ÚTTIL
HJÁLPAR
Nefbrotinn, stálflis I hand-
legg og blóðið lagar úr
munninum. Allar varúöar-
ráðstafanir eru gerðar strax,
og særðir mennirnir eru
fluttir frá flugvélarflakinu
sökum sprengihættu. Þannig
getur það verið i raunveru-
leikanum, og eins gott er að
vera vel undir það búinn. Við
brugðum okkur á æfingu hjá
Flugbjörgunarsveitinni.
Sjá bls. 2.
ÍSlíNZKUR IÆKNIR
VEKUR HEIMSATHYGll
— hefur unnið að rannsóknum á frumu-
bundnu ónœmi — Sunday Times birtir
forsíðufregn af störfum hans
Dr, Helgi Valdimars-
son, islenzkur læknir,
sem starfar við
Hammersmith sjúkra-
húsið i London, hefur
náð sérlega merkum
árangri með nýstárlegri
læknismeðferð, sem
hann hefur beitt gegn
sjúkdómi, sem læknar
kalla Candida.
Uppgötvun dr. Helga byggist á
beitingu aðferðar, sem valdið
hefur hrifningu meðal lækna.
Dr. Helgi beitti aðferðinni i
samvinnu við samstarfsir enn
sina þá dr. J.R. Hobbs, dr. P.J.L.
Holt og C.B.S. Wood, prófessor
gegn frumusjúkdómi af sveppa-
ætt, sem kallast Candida.
Það var niu ára gamall
drengur, Gregory Scott, sem dr.
Helgi hafði til meðferðar, en
blaðið Sunday Times lýsti að-
Dr. Helgi Valdimarsson,
smith Hospital.
sérfræðingur f ónæmisfræði við ttammer-
ferðinni sem hálfgerðum
leyndardómi — leyndardómi,
sem ber góðan árangur „Gregory
Scott er næg sönnun hinnar
merku uppgötvunar”, segir
Sunday Times, „frá þvi hann var
tveggja og hálfs árs var andlit
hans hryllilega bólgið, svo sokkið
og aflagað af áhrifum þessa
svepp-sjúkdóms, að hann var
óþekkjanlegur. Móbir hans fyrir-
varð sig, er hún fór með hann út
úr húsi. Og sjúkdómurinn var
lifshættulegur. Nú litur Gregory
út eins og hvert annað heilbrigt
barn.
Erfiðleikar Gregory litla
stöfuðu af þvi, að i likama hans
skorti eðlilegt mótstöðuafl gegn
hinni lifrænu svepp-frumu, sem
Candida kallast”, segir Sunday
Times.
„Dr. Helgi og félagar hans
veittu Gregory gervi-ónæmi gegn
Candida með þvi að dæla i blóð
hans efni, sem fengið var úr
hvitum blóðkornum fólks, sem
vitað var að var fullkomlega
ónæmt fyrir sjúkdómnum. Vegna
þess að eðli þeása efnis er enn
næsta litið vitað um, kalla læknar
aðferðina aðeins „transfer
factor”, eða flutningsaðferðina.
Gregory hefur verið i þannig
meðferð i þrjú ár. Og hann er ekki
sagður „læknaður”: A tveggja
mánaða fresti er þessu
„flutningsefni” dælt i blóð hans,
hver skammtur, sem hann fær
felst i næstum tveimur pelum af
blóði, sem hann fær úr blóð-
gjöfum sinum.
Þótt mönnum virðist aðferðin
minna á bólusetningu, þá er hún i
aðalatriðum ólik henni, einkum
að þvi leyti, að hún myndar ekki
likamlegt ónæmi heldur frumu-
ónæmi. Vegna þeirrar stað-
reyndar, þá vekur þessi aðferð
miklar vonir um meðferð á sjúk-
dómum eins og holdsveiki og
krabbameini, en mjög margir
læknar hallast að þvi, að þeir
sjúkdómar valdi skemmdum á
frumum...Sir Peter Medawar,
læknirinn sem fengið hefur
Nobels-verðlaun fyrir uppgötv-
anir á sviði liffæraflutninga,
segir: „„Flutningsefnið” ræður
yfir miklum möguleikum til að
byggja afturupp frumu-ónæmi og
þar með eðiilegt ónæmi gegn
sveppa-gróðri. Það fyrirfinnast
nokkur tilfelli, sem benda til góðs
árangurs meðferöarinnar, en
enn sem komið er, þá er of
snemmt að fullyrða...”
Sunday Times lætur mikið með
uppgötvun dr. Helga, en Helgi
sjálfur er mjög varfærinn, hann
sagði aðeins við blaðamann
Sunday Times: „Enn sem komið
er hef ég aðeins tvö dæmi um
árangur af meðferðinni. Það er of
snemmt að segja, að „flutnings-
aðferðin” verði mikilsvert verk-
færi við læknismeðferð”.
Dr. Helgi Valdimarsson er
sonur Valdimars Jónssonar og
skáldkonunnar Hugrúnar.
,,Þetta tekst ekki
alltaf”. —
Vfsir náði tali af d.r. Helga i
London i morgun en Helgi hefur
starfað í Hammersmith i fimm
ár, en hann er sérfræðingur i
ónæmisfræði.
Segir Helgi, að aðferð hans
hefði ekki tekizt á öllum sjúkl-
ingum, og væru tilraunir i gangi á
vegum Sameinuðu þjóðanna.
Benti hann forvitnum á, að hann
hefði skrifað eins konar yfirlits-
grein um „Transfer factor” i
„Lanset”, timarit brezku lækna-
samtakanna þann 14. júlí i sumar.
Hann sagði Visi að aðferð sin
hefði heppnazt i tveimur
tilvikum. — „En Sunday Times
sleppir þvi að geta um, ab þetta
hefur ekki alltaf tekizt”. —GG
Tvívegis varpað
á dyr
hlaut höfuðmeiðsl er
urðu honum að bana
Banamein Skarphéðins Eiriks-
sonar, sem fannst látinn á
Sauðárkróki fyrir rúmri viku
siðan voru blæðingar inn á heila
af völdum höfuðáverka.
Maður á þrftugsaldri hefur
setið i gæzluvarðhaldi siðan lik
Skarphéðins fannst. Hann hefur
viðurkennt i yfirheyrslum að
hafa fleygt Skarphéðni tvivegis út
um bakdyr hússins að Aðalgötu
10. 1 siðari skiptið var Skarp-
héðinn rænulitill eða rænulaus og
fannst látinn morguninn eftir.
Skarphéðinn kom i húsið við
Aðalgötu 10 laust fyrir miðnætti
föstudaginn 12. október. Þar var
talsvert af fóki við drykkju. Setið
var að drykkju fram eftir nóttu.
Vitað er, að Skarphéðinn var
settur nokkrum sinnum út vegna
ónæðis, sem hann skapaði hinu
fólkinu. Engin veruleg átök urðu
þó. Skarphéðinn komst þó alltaf
aftur inn.
Seint um nóttina fór fólkið i
húsinu að sofa. Skarphéðinn
komst tvivegis inn og upp á loft,
þar sem fólkið svaf. Þar var
einnig þessi aðkomumaður. Hann
setti Skarphéðinn tvivegis út um
bakdyr hússins. I seinna skiptið
féll Skarphéðinn niður þröngan
stiga og á götuna. Þá var hann
rænulaus.
Aðkomumaðurinn er enn i
gæzluvarðhaldi og hefur þvi verið
framlengt um tvær vikur.
í dánarskýrslunni var þess
getið, að ásamt höfuðhögginu, þá
hafi kuldi einnig verið orsök að
dauða Skarphéðins.
Málið verður nú sent
saksóknara rikisins. Ekki er full-
ákveðið, hvort maðurinn verður
áfram i gæzluvarðhaldi á Sauðár-
króki, eða hvort hann verður
sendur til Reykjavikur.
—ÓH
Stefán Eiríksson og Guörún Jónsdóttir, miðill. Myndina
tók Matthias Gestsson á Akureyri I gær.
RAGNHEIÐUR SÓR
RANGAN EIÐ
i 310 ár bafa menn beðið
eftir svari. Loks eftir alda
langar vangaveltur, ákvað
Ragnhciður Brynólfsdóttir
biskups að leysa frá skjóð-
unni. Hún notaði akur-
eyrskan miðil til að skýra frá
þvi, að hún sór á sinum tima
rangan eið. Hún missti
meydóm sinn áður en hún
sór hinn fræga eið — sagðist
vera óspjölluð af karlmanns-
völdum. Stefán Eiríksson,
kaupmaður á Akureyri, sá,
er skrifaði eftir Ragnheiði
bók, sem út kemur að hluta
fyrir jól, skýrði frá hinni 310
ára gömlu frétt i samtali við
Vísis. Sjá bls. 3.
—GG