Vísir - 23.10.1973, Blaðsíða 7

Vísir - 23.10.1973, Blaðsíða 7
 Visir. Þriöjudagur 23. október 1!)73. 7 ekki lengur að kvarta yfir einhliða klœðnaði Minkurínn á uppleið Samtals 34 tizkuhús sýndu iatnaö sinn og vetrarfram- leiðslu i Fralikfurt á dögun- um. Þar var meöal annars sýndur fatnaöur á lægra veröi fyrir þá, sem ekki liafa fulla vasa af peningum. Á þessari sýningu, scm var einkanlega tileinkuö haust- inu og haustfatnaöinum, kom mcðal annars fram, aö minkurinn og minkaskinn i fatnaöi er á uppleiö. Meöfylgjandi fatnaöur hæfir ekki illa kiildu veörátt- unni hcrna á islandi, og hver veit ncma verzlanir bjóöi upp á slikan i vetur. Sjálf- sagt kostar hann þó skildinginn. — EA. Þá er það herraklæðnaðurinn fyrir veturinn. Geysilega skemmtilegur svipur yfir fatnaði þeim sem karlmönnun- um býðst. Nú þurfa þeir vart að kvarta yfir þvi að ekki bjóðist anuað en vanaföst jakkaföt. þvi að nú eru stakir jakkar og buxur ekki siður að verða vinsæll fatnaður. Mikiö er um köflótt efni og svo yrjótt tweedefni. Six-pensarinn, sem við sjáum á einni mynd- inni, er vinsæll. Fátt er heldur skemmtilegra en þessi húfa. Þó virðist svo sem karlmenn i Frakklandi kunni einna bezt að meta húfuna. V'esti og þverslaufur er mikið um, og dæmi um það sjá- um viö á einni myndinni. Á einni myndinni sjáum við svo tizku- hönnuðinn Pierre Cardin, sýna framleiðslu sina sjálfur, þar sem hann stendur með hendur i vösum. EA. Spara 30% af heildar- byggingarkostnaði að minnsta kosti — með nýjum veggeiningum flNN! = SÍÐAN I .= Umsjón Byggingaaðferðir breytast eins og allt annað. Útlit húsa tekur breytingum, innréttingar verða öðruvisi með hverju árinu, og keppzt er við það að koma húsi upp á sem skemmst- um tima. — Ekki verður öllu lengur haldið áfram við að slá upp tveimur timburhúsum, steypa á milli þeirra og rifa siðan aftur bæði timburhúsin og fá þá steypukassana, er pússa þarf og lagfæra á ýmsan hátt —. Svo segir i nýjasta hefti Iðnaðarmála, en þar er einmitt rætt ýtarlega um nýjung i bygg ingarmálum, þ.e. ný tegund steinsteyptra eininga frá Verk hf. sem ekki þarfnast timbur- uppsláttar. I Visi i sumar kom frásögn af 1. húsi þessarar tegundar, þegar það varð fok- helt. Veggeiningar þessar eru allar 60 cm. breiðar, en fáanlegar i hæðunum 2,67, 1,80,0.92 og 0,45 m. Stærsta einingin er full vegg- hæð, en minni einingarnar yfir og undir glugga. Við ræddum við Pál Gunnars- son sölustjóra hjá Verk hf., og forvitnuðumst um þessa nýju vöru. ,,Það er æðilangt siðan við fórum að hugsa um þessa hluti, en ýmislegt gerði það að verk- um, að við héldum að okkur höndunum. Þar til i fyrrasum- ar. Þá framleiddum við nokkur element. Þvi var svo hætt i fyrrahaust, en var tekið upp aft- ur i vor.” „Siðan hafa verið reist 24 hús með veggeiningunum hér á landi, og þrjú verða liklega til i næstu viku. Hús þessi eru um allt land, t.d. i Reykjavik, Hafnarfirði, Kópavogi, Fá- skrúðsfirði og á fleiri stöðum.” Og það er vlst óhætt að segja að veggeiningarnar eru vinsæl- ar. Þegar hefur framleiðslunni verið ráðstafað eitt ár fram i timann, en Verk hefur reist nýja verksmiðju i Kópavogi til þess að framleiða veggeiningar úr bentri steypu. Reiknað er með, að framleiðslugeta verði 80-100 hús á ári, en það fer þó eftir stærð húsanna að visu. Helzti kosturinn við þessa nýju byggingaraðferð, er sparnaðurinn. Hægt er að spara talsvert, og Páll sagði, að möguleiki væri á þvi að spara 30% af heildarbyggingar- kostnaðinum fyrir allt venjulegt fólk. Þeir, sem eru öðrum hag- sýnni, geta svo minnkað kostnaðinn enn meir. „En þetta er þungamiðjan fyrir þvi, að við erum að þessu.” „Þetta styttir byggingar- timann verulega”, sagði Páll ennfremur. „Við getum tekið sem dæmi sveitarstjórabústað- inn á Fáskrúðsfirði, sem byggð- ur var á þennan hátt. Það var byrjað á honum seinni hluta maimánaðar. Þá var byrjað á þvi að taka grunninn, en sveitarstjórinn er nýfluttur i húsið núna.” Húsið er 125 fermetrar að stærð, með tvöföldum bilskúr,. Uppkomið og með gluggatjöld- um og gólfteppum, kostaði húsið 3 milljónir. En hvernig eru þá veggein- ingarnar i Islenzkri veðráttu og svo ef til vill smávægilegum náttúruhamförum? „Það er hald okkar, að t.d. i jarðskjálftum, eigi að vera hverfandi munur á þessum hús- um samanborið við önnur. Hver veggur hefur umfram sveigjan- leika fram yfir venjulegan vegg, en i jarðskjálftum vilja oft koma sprungur i veggi og þar fram eftir götunum. Við teljum þó, að ef til þess kæmi, þyrfti ekki að skipta um nema eina til tvær plötur. En það var kærkomið, ef svo má segja, að fá þetta mikla óveður um daginn. Þá voru hús frá okkur á mismunandi bygg- ingarstigi. Sum húsin voru meö sperrum, önnur fokheld, önnur tilbúin og þar fram eftir götun- um. Þvi er ekki að neita, að bil- skúr, sem verið var að reisa, lagðist alveg saman. En i Kefla- vik eru tvö hús, sem búið var að ganga frá, en sperrur voru þó ekki komnar. 1 þeim húsum hreyfðist ekki neitt, þrátt fyrir veðrið.” Útveggjaeiningar þessar eiga að henta mjög vel þeim, sem vilja reyna að byggja sjálfir og telja sig geta það. Uppsetningin er einföld og auðskilin. Auðvelt er að læra aðferðina, jafnvei fyrir þá, sem eru alveg óvanir. Þetta krefst þó vandvirkni, svo sem allt annað. —EA Edda Andrésdóttir rwssix ER FLOGINN ÚR SUDURGÖTUNNI i Hátún 6A AUGLÝSINGASTOFA HBS < LAUGAVEGUR ‘O IWSIX HÁTÚNI 6A, SÍMI 24420

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.