Vísir - 24.11.1973, Page 5

Vísir - 24.11.1973, Page 5
Vísir. Laugardagur 24. nóvember 1972. 5 ERLEND MYNDSJÁ Umsjón Guðmundur Pétursson AFÁVÖXTUNUM SKULUÐ ÞIÐ ÞEKKJA ÞÁ „Af ávöxtunum skuluö þið þekkja þá,” auglýstu þeir lengi hjá Silla & Valda, en hvort þeir voru með eitthvað i huga, sem hún Kathy Goldman i Houston i Texas lét sér detta i hug, þegar hún fann þetta aldin i garðinum hjá bróður sinum — það er ekki þar með sagt. Það skal tekið fram, til þess að fyrirbyggja allan misskilning, að likist söguhetjan einhverri lifandi persónu þá er það einskær til- viljun. - 4° v i FLEKARNIR KOMNIR í LAND Landafræðingurinn Gabriel Salas frá Chile fékk hlýjar viðtökur hjá Dede St. Clair-Telford, ein- um af skipuleggjurum ,,BaIsa”-Ieiðangurs- ins, þegar „Atzlan” — balsaviðarflekinn, sem Salas stýrði, var dreginn til hafnar I Ballina i Astralíu. Hinir tveir flekarnir komu þangað heilir á húfi þann 20. nóvem- ber eftir 8.500 milna langa sjóferð yfir Kyrrahafið frá Suður-Ameriku. Leiðangurinn var farinn til þess að færa sönnur á hugmynd manna um, að Huancavilca-Indiánar frá Ecuador gætu hafa fariðyfir Kyrrahafiö á flekum fyrir hundruð- um ára. Leiðangurs- flekarnir lögðu af stað 27. mai. sÆjfc 1 # |K ■- §§ F’ ‘ifctrtisjr NIXON AFLAR FYLGIS Eins og fram hefur komiö, þá hefur Nixon forseti snúizt til sóknar, eftir að hafa legið lengi undir höggi vegna Watergatemálsins. Hann fór á dögunum til Tennessee, þar sem rlkisstjórar úr Repúblikana- flokknum sátu ráðstefnu, og var honum þar vel tekið, eins og myndin ber meö sér. Belgia varð annað Evrópulandiö til þess að taka upp bann við sunnudagaakstri, en áður höfðu Hol- lendingar neyözt til þess. Siðan hafa V-Þjóðverjar tekiö upp bann við sunnudagaakstri, og gildir það fjórar helgar. Danir hafa orðið að gera ráöstafanir siðan, og Bretar horfa fram á svipaða framtlð. — Eina austantjaldsrikið, sem þurft hefur að gera ráðstafanir vegna olluskömmtunar Arabarikjanna er Rúmenía. Þar var tekin upp ströng bensin- og oliuskömmtun, lækkaður hámarkshraði ökutækja og skammtað rafmagn og hiti. MEÐ KYLFUR Á LOFTI Þetta er ein af fréttamyndum þeim, sem eftir á bárust frá Aþenu af óeirðunum þar um siðustu hclgi. Sést hér hvar öryggislögreglan ræðst tii atlögu við stúdenta tækniháskólans með kylfur á lofti. Ellefu létu lif- ið i þessum átökum og um tvö hundruð særðust.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.