Vísir - 24.11.1973, Síða 20
VÍSIR
Laugardagur 24. nóvember 1973.
UNNIÐ Á
NÝ HJÁ
ICELAND
PRODUCTS
Verkfalli starfsmanna Iceland
Products f Harrisburg I
Bandarikjunum hcfur nú veriö
aflýst.
Væntanlega mun starfsfólk
þessa dótturfyrirtækis SÍS hefja
vinnu á mánudaginn.
Vinnudeilan hafði staðið nokkra
hríð, og verkfallið varaði í næst-
um þrjár vikur.
Guðjón B. ólafsson, fram-
kvæmdastjóri sjávarafurðadeild-
ar SIS sagði Vísi I gærdag að fyr-
irtækið vestra hefði ekki skaðazt
neitt vegna verkfallsins, þvf
menn heföu veriö undir þaö búnir,
nægar birgöir veriö fyrir hendi,
þannig að starfsemin hélt áfram,
þótt starfsmenn heföu lagt niður
vinnu.
Skrifstofumenn, verkstjórar,
og vöruhúsamenn voru ekki i
verkfalli, og þvi var hægt aö af-
greiða pantanir.
Starfsfólk Iceiand Products
haföi samiö um kaup til þriggja
ára, og nú þegar samningurinn
rann út, vildu starfsmennirnir
bandarlsku fá kaup sitt verð-
tryggt og aðeins semja til eins
árs. Þessar kröfur þóttu
stjórnendum Iceland Products
óaðgengilegar, og ,,við vildum
sýna hörku — þaö kom ekki til
mála að veröa við þessum kröf-
um, og þvi kom til verkfalls, sem
nú hefur verið leyst”, sagði
Guöjón B. Ólafsson. — GG.
Seðlabonkinn krefst
lögreglurannsóknar ó
sprautumólinu við Oðal
„Vasapeloöldin"
rennur aftur upp í
Reykjavík - Vínlaus
böll ó Hótel Sögu
og víðar
Seðlabankinn hefur farið
fram á lögreglurannsókn á þeim
fullyrðingum verkfallsvarða
þjóna við veitingahúsiö Óðal, að
sprautað hafi veriö á þá vatni úr
húsakynnum Seölabankans,
sem eru I sama húsi og veitinga-
staðurinn.
Þetta kom fram i frétt VIsis
af atburðum við veitingahúsið
ÓÖal, og sagði Sveinbjörn
Hafliðason, lögfræðingur Seöla-
banka Islands, að stjórn bank-
ans vildi ekki una slikum á-
burði og mundi þvi krefjast lög-
reglurannsóknar til aö hið
sanna kæmi fram i málinu.
Deila þjóna og veitingamanna
er nú að komast á nýtt stig. A
hádegi i gær hættu þjónar að
veita hótelgestum þjónustu, og
er þá öll stéttin komin i verkfall.
Þetta kemur mjög misjafn-
lega niður á hótelunum. Hótel
Loftleiðir eru meö eigin mat-
stofu, sem starfrækt er með
sjálfsafgreiðslusniöi. Hótel
Borg og Hótel Esja eru nærri
stórum matsölustööum. Hótel
Holt starfrækir væntanlega sina
veitingasali með eigendur að
störfum. Þeir munu hafa til þess
öll tilskilin réttindi.
Hótel Saga er aftur á móti
verr sett. Þar er engin almenn
matsala og enginn slikur staöur
nærri.
Við ræddum viö Konráö
Guömundsson hótelstjóra og
spurðum hann, hvernig þeir
Sögumenn ætluðu að leysa sinn
vanda.
„Hér verða áfram leigö út
herbergi til gesta, en það eina,
sem við getum boöiö þeim upp á
I matsal, er morgunveröur. Um
hann munu nemar sjá eins og
verið hefur lengi og teljum viö
þaö fullkomlega löglegt.
Þjónusta á herbergjum mun
verða óbreytt eins og verið hef-
ur. Hún hefur verið I höndum ó-
faglæröra þjónustustúlkna og
getur þvi haldið áfram eins og
verið hefur.
Óneitanlega hefur lokun veit-
ingasalanna mjög slæm áhrif á
rekstur hótelsins”, sagði Kon-
ráð Guðmundsson ennfremur.
„Héreru 170manns á launaskrá
og ekki veitir af að halda öllum
þáttum rekstursins gangandi,
til að endar nái saman.
Viö höfum þvi ákveðið að
stofna til almennra dansleikja i
Súlnasal um helgina og verður i
fyrsta skipti opið að nýjum hætti
i kvöld. Engar vinveitingar
verða á boðstólum, en gos-
drykkir verða seldir”.
Við spurðum Konráö
Guðmundsson að lokum að þvi,
hvaö hann vildi segja um sam-
komulagshorfur i deilunni milli
þjóna og veitingamanna.
„Viðræður eru alveg strand
og ekkert hefur verið talazt við i
nokkurn tima. Þjónar halda fast
viö kröfur sinar um prósentu-
hækkun á þjónustugjaldi. Við
veitingamenn teljum ekki fært
að fallast á það, en höfum boðizt
til að tryggja þeim þær kjara-
bætur, sem aðrir starfshópar fá
I komandi samningum”.
Almennur dansleikur verður
einnig nú um helgina i Veitinga-
húsinu að Lækjarteig 2 og jafn-
vel fleiri stöðum, sem áöur hafa
verið með vinveitingar.
t frétt i Visi i fyrradag kom
fram, að matsveinn veitinga-
hússins Óðals hefði sagt upp
störfum þar vegna aðgerða eig-
enda hússins gegn verkfalls-
vörðum. Rétt er að taka fram,
að matsveinninn haföi aðeins
starfað i þrjá daga á veitinga-
staðnum. Einnig kom fram i
viðtali við veitingamanninn, að
félagar úr Glímudeild KR hefðu
verið þar við dyravörzlu. Það
mun rétt vera, en þar koma þeir
fram sem starfandi dyraverðir
og á engan hátt á vegum Glimu-
deildar KR. —ÓG
Þjónar fá baö frá eiganda ÓOals
I vikunni.
Flestir flugmanna Cargolux eru islendingar, en innan um eru
menn frá ýmsum öðrum þjóöum. Hér eru tveir islendingar, Svli
og Kanadamaður, ein fullskipuð áhöfn hjá Cargolux. F.v.
hleösiustjóri, vélamaður, aöstoöarflugm., flugstjóri. Myndin er
tekin á flugvellinum I Singapore.
Um 100 íslenzkir flug-
menn starfandi erlendis
Um 100 islenzkir flugmenn
eru nú starfandi erlendis.
Upplýsingar þessar komu fram
á Alþingi fyrir stuttu. Að sögn
Björns Guðmundssonar, for-
manns Félags atvinnuflug-
manna, cru flcstir þessara flug-
manna starfandi hjá flug-
félaginu Cargolux, sem hefur
aðalstöðvar sinar i Luxemburg.
Nærri 300 manns eru nú bú-
settir i Luxemburg, og vinna
langflestir þeirra eitthvað i
sambandi við flug, annaðhvort
hjá Cargolux eða Loftleiðum.
Þeir 100 islenzku flugmenn,
sem starfa i Luxemburg, hafa
ekki fengið atvinnu við flug hér
á landi, og eru vist ekki þeir
einu. Björn hafði engar tölur um
þaö, hversu margir hefðu rétt-
indi atvinnuflugmanns og
fengju ekki starf, en þeir eru þó
nokkrir. Flestir hafa orðiö að
leita annarrar vinnu.
— EA.
Olían kemur illa við plastiðnaðinn:
Hœtt við samdrœtti
plastframleiðslu hér
— skortur getur orðið á plastumbúðum
I
,,Það er náttúrlega hætta
á samdrætti í plastiðnaðin-
um hér á landi, en það
verður ekki stöðvun. Það
ef ni, sem hér er mest notað
við plastiðnað, er að mestu
f ramleitt úr olíu, þannig að
olíuvandræðin gætu haft
áhrif á framleiðslu okkar
seinna meir."
Þetta sagði Árni Einarsson,
framkvæmdastjóri Reykjalundar
i viðtali við Visi i gær.
Margir hafa velt þvi fyrir sér,
hvort ekki gæti komið til
stöðvunar plastiðnaðar sökum
skorts á hráefni. Hráefni til plast-
gerðar eru einmitt framleidd úr
oliu.
„Við höfum þegar gert ramma-
samning við annaö fyrirtækið,
sem við kaupum hráefnið af. Það
er i Sviþjóð. t þeim samningi er
gert ráð fyrir óbreyttu magni
næsta ár frá þvi sem veriö hefur.
En fyrirtækið, sem við kaupum
hráefni af I Þýzkalandi hefur enn
ekki viljað gera samning. Þeir
vilja engu svara fyrr en eftir ára-
mótin. En ef einhver niðurskurð-
ur verður af þeirra hálfu, þá
verður hann varla algjör. Viö er-
um þaö gamlir viðskiptavinir
þessa fyrirtækis, að hæpiö er, aö
viö veröum settir út á gaddinn”
sagði Árni ennfremur.
Hætt er við, að samdráttur i
plastiðnaði komi niður á al-
menningi að einhverju leyti.
Plastið, sem mest er notað, er
m.a. notaöi allar plastfilmur og
umbúðaplast. Einnig er það notað
i rör.
Plastverksmiðjan Sigurplast
framleiðir mes.t af brúsum úr
svipuðu plasti, sem er einnig að
mestu unnið úr oliu.
„Það má búast við miklum
erfiðleikum i plastiðnaðinum
viðast hvar vegna þessa ástands.
En ætli við sleppum ekki sæmi-
lega vegna fastra viðskipta og
vegna þess hversu litið magn það
er hlutfallslega, sem við kaupum
af hráefnum,” sagði Arni að
lokum. -ÓH.
Mikill áhugi á kaupstaðarréttindum:
Hreppurinn vill létta
bvrðum af ríkissjóði
Hreppsnefnd Seltjarnarnes-
hrepps býðst til að taka á sig
ýmsan kostnað og veita fyrir-
greiöslu til að auðvelda, að
hreppurinn geti fengiö
kaupstaðarréttindi.
Hreppurinn er tilbúinn að
leggja fram húsnæði fyrir
bæjarfógetaembættið i húsi
sveitarstjórnar og láta i té hús-
næði vegna löggæzlu. Með þvi
mundi hreppurinn létta af rikis-
sjóöi útgjöldum sem ekki eru
undir 5 milljónum króna.
Hreppurinn býðst einnig til að
taka að sér að annast innheimtu
opinberra gjalda fyrir rikissjóð
og verði höfö hliðsjón af fyrir-
komulagi Gjaldheimtunnar i
Reykjavik. Með þvi mundu
greiðslur til rikissjóðs koma
fyrr til skila en ella. Innheimta
gjalda til sveitarsjóðs Sel-
tjarnarneshrepps, hefur verið
mjög góð, 93% á siöasta ári, og
nokkuð jafnt innheimt yfir árið.
Ibúar hreppsins munu greiða
um 120 milljónir i beinum
sköttum til ríkisins næsta árið.
Hreppsnefndin bendir á, að
vinnuálag sýslumanns-
embættisins i Hafnarfirði hafi
verið mikið og muni þvi við
stofnun bæjarfógetaembættis á
Seltjarnarnesi mega minnka
yfirvinnu og launakostnað hjá
sýslumanni og fá jafnari
innheimtu yfir árið en verið hef-
ur.
Ibúar hreppsins eru nú um
2600.1 lok næsta kjörtimabils er
áætlað, að þeir verði orðnir um
3600.
Hreppsnefnd mælir eindregið
með þvi frumvarpi, sem nú
liggur fyrir á Alþingi um
kaupstaðarréttindi. Allir þing
menn Reykjaneskjördæmis
styðja framvarpið. Það er nú i
athugun i þingnefnd.
-HH.