Vísir - 30.11.1973, Blaðsíða 13
Visir. Föstudagur 30. nóvember 1973.
13
• skop
Við háskólann i Tasjkent i
Sovétrikjunum hafa fram undir
þetta fengizt kevpt prófskirteini
— reyndar mót öllum lögum og
venjutn i Sovét — en svindlarar
finnast þar eins og annars stað-
ar.
Blað eitt, sem gefiö er út á
snærum samtaka bygginga-
verkamanna i Tasjkent, sagði
nýlega, aö þaö væri ekkert
leyndarmál lengur, aö prófskir-
teini gætu menn keypt eins og
neyzluvarning. Blaðið sagði frá
verkfræðingi einum eystra,
sem langaði i forfrömun, en
fékk ekki, þar eð próf hans var
afspyrnu vont. Þá keypti
MILLER „DUNDAR" VIÐ NÝTT LEIKRIT
maðurinn sér nýtt og betra skir-
teini og fékk stöðuna. Verðið
mun vera misjafnt á prófunum,
en yfirleitt mun hægt að fá gott
fyrstu einkunnar skirteini fyrir
svona hundrað þúsund krónur
islenzkar.
Þjónustustúlku. er starfaði á
veitingastofu við flugvöllinn I
Detroit, var um daginn sagt
upp. Og orsök uppsagnarinnar
var sú, að henni var svo fjári
kalt i vinnunni vegna
oliu-sköm m tunarinnar, að
hún klæddi sig i peysu utan yfir
einkennisbúninginn sinn. Það
hét, sögðu vinnu veitendur
hennar — að vanvirða búning-
inn.
Stéttarfélag stúlkunnar mun
hafa málið til alvarlegrar könn-
unar.
Borgarstjórnin i London var
nýlega harðlega gagnrýnd fyrir
peningaeyöslu. Og sú eyösla,
sem um var rætt, var vegna
heimsóknar borgarstjórans i
Moskvu til London.
Herma fregnir, að reikning-
urinn, sem almenningur i Lond-
on greiddi fyrir uppihald rúss-
neska borgarstjórans, hafi
numið um það bil átta milljón-
um króna. Moskvuborgarstjór-
inn var viku i London og heim-
sótti oft dýr veitingahús og
næturklúbba. Upphæð, sem
nefnd var, er sögð ámóta há og
það fé, sem venjulegur
Lundúnabúi greiðir i skatta alla
ævi.
Arthur leikritaskáld Miller ér
ekki alveg hættur að skrifa, þótt
fátt liafi af honum frétzt um
stundarsakir.
„Ameriska klukkan” heitir
hið nvja leikrit Millers og
verður frumsýnt næsta vor I
Ann Arbor í Michigan, þar sem
skáldið býr núna, en um þessar
mundir starfar Miller við há-
skólann I Michigan sem
prófessor i leikritun.
Leikritið, „Ameríska klukk-
an", er byggt á sögu eftir Stud
Terkel, sem heitir „Erfiðir
timar", en sú bók fjallar um
Arthur Miller
kreppuna ntiklu i Bandarikjun-
um á árunum upp úr 1‘KIO.
Nýja leikrilið verður aðeins
sýnt i örfá skipti i vor, þvi
skáldið scgir, að þaö sé „enn aö
þróast — mig langar að dunda
nteira við það, eftir að það hefur
kontið á sviö”.
3
B
ro
.Fjölskylda yöar getur sparaö mikiö
fé árlega, ef hún notar Jurta á brauð og
kex. Ótrulegt, en satt.
Dæmiö er einfalt.
Þér skulið sjálf reikna. 500 gr Jurta
kosta 77 krónur. En dýrasta feitmetið
kostar 156 krónur 500 gr.
Meira en helmings munur!
Jurta-neyzla landsmanna vex meö
hverjum deginum sem líður. Enda nota
þúsundir íslendinga Jurta á brauð og kex.
Viö fengum nýtt tæki inn í sjálfvirku
samstæðuna okkar, sem beinlínis fram-
leiðir betra smjörlíki. Jurta er fyllra og
þéttara, en áður.
Þess vegna er auðveldara að
smyrja með Jurta. Þannig nýtist Jurta
betur og sparar enn meira.
Jurta geymist betur.
Öll fituefnin eru úr jurtaríkinu. Jurta er
hollt og bragðgott.
!• smjörliki hf.
Ef reiknað er með að neyzla
á meðal heimili sé 6 kg. á hvern
mann á ári, má til gamans athuga eftir-
farandi dæmi:
Fimm manna fjölskylda
Jurta: 60 stk. (500 gr) x 77 kr. pr. stk.
Dýrasta feitmetið: 60 - (500 gr) x 156 - - -
SPARNAÐUR: kr: 4.740.00
Fjögurra manna fjöiskylda
Jurta: 48 stk. (500 gr) x 77 kr. pr. stk.
Dýrasta feitmetiö: 48 - (500 gr) x 156 - - -
SPARNAÐUR: kr: 3.792.00
kr: 4.620.00
- 9.360.00
kr: 3.696.00
- 7.488.00
Þriggja manna fjölskylda
Jurta: 36 stk. (500 gr) x 77 kr. pr. stk. kr: 2.772.00
Dýrasta feitmetið: 36 - (500 gr) X 156 - - - - 5.616.00
SPARNAÐUR: kr: 2.844.00
Ert þú hagsýn húsmóðir, sem tekur verð
og gæði með í reikninginn?
gott veró/gott bragó