Vísir - 22.12.1973, Síða 11
Umsjon:
Edda
Andresdóttir
m
i
Wk
mm
Vísir. Laugardagur 22. desember 1973.
— ................................
JEr
-þá
einhver kominn í
eru hér nokkur ágœt ráð
tímaþröng?
JÓLATRÉSSKRAUTIÐ HEIMA-
TILBÚIÐ OG í EINUM LIT
Kökurnar má hengja á vegginn eða á jólatréð
Það er mjög vinsælt á þeim
heimilum, sem yngri börn fyrir-
finnast, að baka kökur, sem eru
skornar út f ýmiss kunar
mynztri, svo sem körlum,
kerlingum, jólasveinum eða
dýrum.
Yfirleitt er notað piparköku-
deig og form til þess að skera út
og mynztur fást viða. Karlana
og kerlingarnar má siðan
skreyta með hvitu marsipani,
og iiklega finnst börnunum fátt
betra á bragðið um jólin, en ein-
mitt þessar kökur.
En það má gera annað við þær
en að borða þær. Vantar ein-
hvers staðar jólaskraut eða eitt-
hvað skemmtilegt á vegginn um
jólin, t.d. i barnaherbergið?
Þetta er þá tilvalið, sem við
sjáum hér á meðfylgjandi
mynd. Karlarnir og kerlingarn-
ar eru hengd upp á vegg, eða
kannski veggteppi i böndum og
gefa þar með hinn skemmtileg-
asta svip.
Kökurnar má svo einnig
hengja i jólatréð.
—EA
AUSTURBÆJARBió er með
nýja mynd, þar sem þau Barb-
.ra Streisand og Ryan O'Neal
fara með aðalhlutverkin. Heitir
bióið þvi, að geta með þessari
mynd skemmt hverjum þeim,
sem sýningu myndarinnar sæk-
ir. Segir sagan frá doktor
nokkrum, sem kemur til San
Fransiskó og vekur strax
athygli ungrar stúlku, sem
blandar sér stöðugt i öll hans
mál, og kemur þvi jafnvel svo
fyrir, að hún verði förunautur
hans, þegar hann þiggur fin boð.
Ruglingur á ferðatöskum hleyp-
ir öllu i loft upp og enda ósköpin
fyrir dómstólunum þar sem
betra tekur ekki við.
■MMHBaaMI
Leðurblakan og Valpone
Ilér gefur að lita mynd aif einu atriði ..Leðurbiökunnar”, sem
Þjóðleikhúsiö frumsýnir á annandag jóla. I Iðnó þann dag á aö
sýna Fló á skinni, en Leikfélagið hyggst frumsýna nýtt ieikhús-
verk siðasta laugardag þessa árs. Er það „Valpone” eftir Ben
Jonson og Stefan Zweig.
Brúðuleikhús fyrir þau yngstu
Fyriryngri kynslóöina er sérstök dagskrá hjá Leikbrúðulandi.
Leikbrúðuland er brúðuleikhús, sem er til húsa að Frikirkjuvegi
11.
Leikbrúðuland sýnir meistara Jakob á hverjum degi milli jóla
og nýárs. Sýningarnar eru allar klukkan 3.
Fyrsta sýningin er á annan i jólum, og siðan eru sýningar 27.,
28., 29., og 30. des.
Sýningarnar eru sérstaklega sniðnar fyrir þau yngstu.
Vísir. Laugardagur 22. desember 1973.
----------------------------—---
HVAÐ ER AÐ SJA
í BÍÓ UM JÓLIN?
NYJA Bió sýnir aðra mynd,
þar sem Barbra Streisand fer
með eitt aðalhlutverkanna. Sú
mynd er gerð eftir þeim fræga
söngleik ,,Hello,Dolly" og hefur
farið sigurför um heiminn. Aðr-
ir i myndinni, sem eitthvað
kveður að, eru m.a. Walter
Matthau og Michael Crawford.
og svo stórstjörnurnar Louis
Armstrong og Gene Kelly.
Söngleikurinn er byggður á leik-
ritinu ,,The Matchmaker" eftir
Thornton Wilder. Segir sagan
frá ungri og opinskárri ekkju,
Dolly Levi, sem hefur gerzt eins
konar hjúskaparmiðlari, eftir
að maður hennar er fallinn frá.
Hjúskaparmiðlun hennar geng-
ur oft á afturfótunum, en Dolly
er fljót að sjá við vandanum....
TóNABióætlar að sýna eina af
nýjustu myndum þess vinsæla
kvikmyndaleikstjóra Sam
Peckingpah, sem hér á sér ófáa
aðdáendur. Þetta er einmitt
myndin, sem leiddi þau saman,
Steve McQueen og Ali
MacGraw, en það eru þau, sem
fara með aðalhlutverkin 1
myndinni. Steve fer með hlut-
Atriði úr teiknimyndinni „Hefðarkettirnir”,
verk fanga, sem brýst úl úr
fangelsinu og fremur bankarán
ásamt unnustu sinni, sem leikin
er af Ali MacGraw. Þau eru
ekki hundelt af lögreglunni
einni, heldur sömuleiðis af
illskeyttum bófum á báðar
hendur....
GAMLA Blótekur til sýningar
athyglisverða teiknimynd frá
Walt Disney, sem varð Disney-
fyrirtækinu einhver mesta
tekjulind siðustu tveggja ára.
Segir myndin frá hefðarköttum
og flækingsköttum — þeim hin-
um sömu og Mogginn er að
segja frá um þessar mundir, en
sagan af „The Aristocats" hefur
einnig komið út i bókarformi.
Má ætla, að mörgum börnunum
þyki fengur i mynd þessari og
dragi foreldra sina með sér i
Gamla bió að sjá myndina —
báðum aðilum til ánægju.
LAUGARASBtó hefur þegar
fengið góða auglýsingu fyrir
jólamynd sina i ár, en það er
glæný mynd gerð eftir söng-
leiknum „Jesus Christ Super-
star”. Óþarft ætti aö vera að
rekja efni myndarinnar, en hún
greinir frá siðustu dögum
Krists. Fékk myndin góöa dóma
hjá kvikmyndagagnrýnanda
Visis, sem skoðaði myndina hér
á dögunum.
LEIKHÚSIN
Við erum ekki i vafa
um það, að margir
segjast nú vera komnir
i timaþröng fyrir jólin.
Það á eftir að kaupa
jólagjöf handa ein-
hverri frænkunni, sem
alveg steingleymdist.
Og hvað á það nú að
vera? Sjálfsagt er
pyngjan orðin hálf litil
og létt á þessum mikla
tima kaupæðisins, og
það er orðið litið eftir
til þess að kaupa fyrir
handa þessari ónafn-
greindu frænku.
Með þessari siðustu Innsiðu
okkar fyrir jólin, ætlum við þvi
aö reyna að létta svolitið undir
með þeim, sem sjálfsagt eru
orðnir áhyggjufullir. Við birtum
hér nokkur ágæt ráð, svo sem
hvernig skreyta má jólatréð á
fallegan hátt, ef það hefur
gleymzt, hvað gefa má i jóla-
gjöf, handa þeim, sem gleymd-
ist og þar fram eftir götunum.
Það er bara vonandi að jóla-
undirbúningurinn fari ekki
þannig meö nokkurn mann, að
hann liggi sárþreyttur loks,
þegar hátiðin gengur i garð. Og
það má þá minna alla fjöl-
skyldumeðlimi á það að hjálp-
ast að i undirbúningnum og
reyna að létta hann svolitið.
—EA
Við búumst ekki við þvi, að nokkur maður gangi i gegnum jóla-
hreingerningarnar með sælubros á vör, og sjálfsagt er það mis-
jafnt, hvað fólk hreinsar mikið til og leggur á sig fyrir hátíðarn-
ar. En með þessari mynd má minna fóik á að ofþreyta sig ekki f
öilum ósköpunum, og minna fjölskylduna á að hjálpast að.
— Tilvalið fyrir börnin
Jólatréð getur veriö mjög
fallegt og skemmtilega skrcytt,
þótt ekki sé eytt i það mörgum
krónum. Kannski vantar ein-
hvern jólaskraut, það gæti jafn-
vel hafa glcymzt í öllum látun-
um. Ef til vill vilja svo einhverj-
ir breyta til og fá annað skraut á
tréö en það, sem verið hcfur i
gegnum árin.
Þetta skemmtilega tré er
skreytt á mjög ódýran hátt. Það
gæti jafnvel verið hlutverk
barnanna á heimilinu að
skreyta tréð fyrir þessi jól, og
þá er þetta góð hugmynd.
Tréð er eingöngu skreytt með
hvltum lit. Það eina, sem -þarf
að kaupa, er englahár og hvitur
pappir. Það má lika alveg eins
nota bómull i stað englahársins.
Englahárinu er komið fyrir
við þau ljós, sem á trénu
verða, en stjörnur, hjörtu og
englar eru klippt úr hvitum
pappir. Agætt er að hafa pappir-
inn -dálitið þykkan, svo bann
beri sig betur.
Krakkarnir gætu dundað sér
við þetta nú um helgina og geta
þá klippt út hvers kyns hluti,
sem þeim dettur i hug.
—EA
A SIÐUSTU STUNDU
og þessi er skreytt með þvi, að á
hana eru limdar stjörnur. Henni
er lokað með köflóttum klút og
hann hefur verið bryddaður
með skábandi. Siðan er bundin
slaufa utan um krukkuna með
skábandi.
Stjörnurnar eru gular, en
klúturinn köflóttur, blár og hvit-
ur. Skábandið er blátt. Aúðvitað
má svo fylla krukkuna með ein-
hverju öðru en sælgæti, en þetta
er ágæt gjöf, t.d. handa barni.
A mynd númer tvö eru matar-
servéttur og tvö kerti. Þessi gjöf
er skreytt með bláum borða og
einhverju skemmtilegu jóla-
skrauti.
Gjöf, sem kannski er litil og
ódýr, má gera skemmtilega
með þvi að pakka henni inn á
sérstæðan hátt. Hér hefur til
dæmis verið saumaður poki ut-
an um litil ilmvatnsglös, úr
doppóttu efni. Siðan er bundið
með borða utan um.
Slfkan pi>ka má gera úr ein-
hverjum jólapappir til dæmis
og fylla svo af sælgæti, kökum
eða einhverju, sem til fellur.
—EA
HAFNARBiÓ: Chaplin-
myndin heitir „Nútiminn” og er
gerð árið 1936, eða sjö árum eft-
ir að tónninn hóf innreið sina i
kvikmyndirnar. Chaplin hafði
þó ekki gefið sig neitt að þeirri
tækni fram að þvi, að hann gerði
þá mynd, en freistaðist þó til að
syngja eitt lag i þessari mynd.
Myndin fjallar um ástandið á
meðan heimskreppan rikti og
atvinnuleysi, verkföll og hrak-
farir voru að gera út af við allt
og alla. Chaplin fer með hlut-
verk verksmiðjuþræls, sem
verður undir i haráttunni við
tæknina, sem er að gera hann
óþarfan.
IIASKÓLABK) sýnir enn eina
„Áfram "-myndina, en hinar
fyrri hafa allar notið góðrar að-
sóknar hérlendis. Þessi mynd
heitir „Carry On Round The
Bend” og er með sama sniði og
þær, sem á undan eru gengnar,
öllu fórnað fyrir sprellið og tvi-
ræða brandara, sem persónur
myndarinnar reyta af sér. Er
þess jafnan gætt, að áhorfand-
inn taki ekki að gruna einhverja
persónu myndarinnar um að
vera með vott af skynsemi.
Stöðugt færist það i vöxt, að kvikmyndahús borg-
arinnar taki til sýningar nýjar eða nýlegar myndir.
Þannig munum við um þessi jól fá að sjá þrjár
kvikmyndir, sem talizt geta glænýjar. Eru það
myndirnar „Superstar", „Getaway" og „What's
Up Doc?". Þá mun Hafnarbió sýna kvikmyndir,
sem eru að visu komnar aII verulega til ára sinna,
en hafa verið gerðar upp með ærnum tilkostnaði.
Eru það nokkrar helztu myndir Charlie meistara
Chaplin, sem nú má sjá á breiðtjaldi.
(Jr myndiniii „Supcrstar”, sein Laugarásbió mun sýna.
Stevc McQucen og Ali MacGraw
i lilutverkum siuuin i myndinni
„(íetaway” sem Tónabió mun
sýna.
Að ofan er Barbra Streisand i
lilutverki Dolly.en hértiihliðar
i myndinni „What’s Up, Doc?”,
en þar er mótleikari hennar
Ityan O’Neal.
JÓLAGJÖF
Og þá er það jólagjöf, sem
liægt er að gefa á siðustu
stundu, þvi það vill oft verða, að
einhver gleymist.
A þessum meðfylgjandi mynd
um eru nokkrar skemmtilegar
hugmyndir, en það er um að
gera að láta hugmyndaflugið
ráöa. Margir vildu kannski gefa
dýrari eða stærri gjafir, en
þessar geta verið skemmtilegar
samt, þótt litlar séu, og eru
áreiðanlega vel þegnar.
Á mynd númer eitt er krukka,
sem er fyllt af sælgæti. Þarna
"1 má til dæmis nota sultukrukkur,