Vísir - 27.12.1973, Síða 4
4
Visir. Fimmtudagur 27. desember 1!)7:í.
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND j MO
Má leita á þér?
„Heyröu, þú færö ekki aö fara hér inn. Ekki nema aö ég leiti á þér fyrst,
góöi”, gæti maöur freistazt til aö halda aö öryggisvörðurinn væri aö segja
viö hanann viö innganginn i hús Sameinuöu þjóöanna i Genf. — Þar fóru
fram fundirnir vegna friöarviöræöna Araba og Gyöinga.
Bíllinn
flaug
yfir
heila
kirkju
Þegar Luis Carrero Blanco,
forsætisráöherra Spánar, var
ráöinn af dögum, þeytti
sprengjan, sem honum varö
aö aldurtila, bilnum hans yfir
kirkjuna, þar sem hann haföi
vcrið viö messu. Efri myndin
hér sýnir meö örvum, hvar
bfllinn þeyttist yfir þakiö og
kom niöur á verönd á bakhliö
inni. Ilér viö hliöina er svo
mynd, sem sýnir bflflakiö á
veröndinni, þar sem þaö kom
niöur. Veröndin er á annarri
hæö, eöa sem þvi samsvarar.
Frönsk lögregla
fann Arabagreni
Franska öryggislögregl-
an, sem handtók þrettán
félagar úr skæruliðasam-
tökum Palestínuaraba
núna rétt fyrir jólin, komst
yfir skjöl, sem sýndu, að
hópur þessi hafði í undir-
búningi árás á ísraelskt
sendiráð og einnig brott-
nám sonar sendiherra.
Þetta kom fram i fréttalestri
iranska sjónvarpsins (sem er rik-
isrekið), en fréttin hefur ekki ver-
ið staðfest opinberlega ennþá. —
En hitt er haft fyrir satt, að
öryggislögreglan hafi brotizt inn i
einbýlishús i villiers-Sur-Marne
þann 20. desember og handtekið
þar fjölda manns.
Parisarblaðið Le Figaro skrif-
aði i gær, að lögreglan hafi fundið
20 kg af sprengiefni, vopn og ann-
an útbúnað i húsinu, og hafi átt að
nota það allt til hryðjuverka.
Þjóðfrelsishreyfing Palestinu-
araba, sem hefur sendinefnd i
Paris, neitaði i gærkvöldi, að hún
væri á nokkurn hátt blönduð i
málið. Talsmaður samtakanna
sagði frönskum fréttamönnum,
að það væri stefna samtakanna,
að baráttu Palestinumanna yrði
að heyja i hinum hernumda hluta
Palestinu, en ekki erlendis.
Tiu hinna handteknu eru Tyrk-
ir, þar af tvær konur. Tveir eru
Palestinuarabar og einn er frá
Alsir.
Fréttir i morgun hermdu, að
meðal skjalanna sem fundust,
hafi lögreglan fundið visbendingu
um að skæruliðahópur þessi hafi
ráðgert árás á annan flugvöll
Rómaborgar, Ciampiso. Var
itölskum yfirvöldum gert viðvart
og hundruð lögreglumanna
flykktust til flugvallarins á jóla-
dag. Þar var allt öryggiseftirlit
hert mjög, leitað gaumgæfilega á
hverri manneskju og jafnvel i bil-
um, sem nálguðust flugvöllinn,
meðan lögreglumenn héldu vörð i
flugstöðinni með byssur á lofti.
Sléttueldar loguðu
í viku í Argentínu
Her, lögregla og slökkvi-
lið fékk loks i gær ráðið
niðurlögum mikilla elda,
sem geisað höfðu í hérað-
inu La Pampa í Argentínu.
Þar höfðu fimm milljónir
fermílna af beitilandi og
kjarrskógi eyðilagzt í
eldinum, áður en miklar
rigningar komu til liðs við
slökkviliðið og slökktu
eldana að mestu í gær.
Þó brenna ennþá tvær mjóar
ca. 25 kilómetræ langar ræmur i
vesturhluta La Pampa.
Ein manneskja fórst i eldin-
um og hundruð nautgripa og
villtra dýra. En eldarnir hafa
geisað i heila viku.
f eldinum eyðilögðust einnig
háspennulinur frá nýja Chocon-
raforkuverkinu, sem sér fyrir
raforkuþörf höfuðborgarinnar,
Buenos Aires. Leiddi það til
straumleysis i borginni og raf-
magnsskömmtunar.
Rakst það
á kafbát?
Olfufláki hefur lagzt á fjörur á Skáni, eftir að olfan fór að leka úr
norska oliuskipinu Jawachta en það hafði áður annaðhvort rekizt á
rif eða þá, eins og ýmsir halda kafbát. Eftir að stöðvaður var lekinn
I Jawachta, héldu áfram að myndast oliuflekkir, og grunar menn,
að það sé frá kafbátnum. — Mikið hefur drepizt af fugli f olfubrák-
inni, en þarna á þessum sióðum er friðlýst land vegna sérstæðs
dýrallf§. — Myndin hér er af Jawachta við akkeri á slysstaðnum.
Rússar á flugi
yfir hátíðarnar
Sovézku geimfararnir
tveir, sem voru i
Sojusgeimfarinu uppi í
geimnum um jólin sam-
tímis Bandarikjamönnun-
um þrem i Skylab, sneru
aftur til jarðar í gær, á
annan í jólum, eftir vel
heppnaöa átta daga langa
geimferö.
TASS-fréttastofan skýröi frá
þvi, að lending þeirra hefði
gengið vel og aö öll mælitæki og
annar útbúnaður Sojus 13. hafi
virkað fullkomlega meðan á
ferðinni stóð.
Geimfarið lenti með aðstoð fall-
hlifar um það bil 200 km suðvest-
ur af bændum Karaganda i Sovét-
rikjunum miðjum. en þar
skammt frá er Baikonur. sem er
miðstöð geimrannsókna i Sovét-
rikjunum. Þaðan hafði Sojus 13.
verið skotið á loft i siðustu viku.
Geimferðasérfræðingar á
Vesturlöndum höfðu leitt getum
að þvi, að Sojus 13. ætti að
tengjast öðru geimfari til undir-
búnings þvi. að tengja skal saman
Úti i geimnum sovézkt geimfar og
bandariskt, á árinu 1975.
En eftiröllum sólarmerkjum að
dæma hafa geimfararnir, Pjotr
Klimuk og Valentin Lebedev
einungis átt aö rannsaka
stjörnurnar og gera nokkrar
visindalegar mælingar.