Vísir - 27.12.1973, Blaðsíða 5
Visir. Kimmtudagur 27. desember 197;!.
Séð inn i ráðstefnusal hailar Sameinuðu þjóðanna I Genf, þegar friðarráðstefna Austurlanda nær hófst þar 21. des. Auðu stólarnir á vinstri hönd voru
ætlaðir Sýrlendingum, sem ekki tóku þátt I ráðstefnunni, þegar til kom.
Friðarsamningar bíða fram
yfir kosningar í ísrael
Raunverulegir friðar-
samningar og prúttið um
afturköllun herjanna frá
Súezvígstöðvunum verða
að bíða fram yfir næstu
kosningar, sem fara skulu
fram i israel um áramótin,
eða svo telja sendimenn
israels, sem eru í Genf til
friðarviðræðna.
Jólatré marijúanaplanta
i Trenton í New Jersey fann lögregian þetta sakleysislega jólatré, skreytt
tiu rauðum glitkúlum. Sakleysislegt og sakleysislegt ekki. — Þetta reynd-
ist vera fjögurra feta há marijúanaplanta, sem eiturlyfjaagentar lögðu
hald á við rannsókn eiturlyfjamáls.
„OLÍUVOPNIÐ ÁVALLT
TIL TAKS," segja Arabar,
þrótt fyrir framleiðsluaukninguna
Akvörðun arabisku oliufram-
lciðslulandanna um að auka á
nýjan leik framleiðslu sina um
10% táknar ekki, að þau geti ekki
hert á oliuþvingun gegn Vestur-
löndum siðar meir, skrifar
Kairóblaðið A1 Ahram, sem er
málgagn egypzku stjórnarinnar.
„Allt veltur á skjótri lausn
deilunnar i Austurlöndum nær,
lausn sem leiðir til þess að Arab-
arnir fái aftur hernumdu svæð-
in,” skrifar blaðið um leið og það
segir oliuvopniö enn til taks.
En þar til kosningarnar eru af-
staðnar geta nefndirnar, sem
byrjaðar eru störf i Genf, litið
annað gert en skipzt á sjónarmið-
um.
Nefnd hershöfðingjanna, sem
sett var á laggirnar á fundi utan-
rikisráðherra Egyptalands, ísra-
els, Sovétrikjanna og Bandarikj-
anna i siðustu viku, átti sinn
fyrsta fund núna á jólunum.
Tahal E1 Magdoub,
hershöfðingi Egypta, og
Mordechai Gur, hershöfðingi
fsraelsmanna, sem sátu þennan
fyrsta fund, sögðu eftir hann, að
þeir hefðu rætt möguleika á þvi
aö kalla aftur heri sina frá Súez-
viglinunni. Töldu báðir, að þær
viðræður mundu siöar koma þeim
að haldi, þegar til framkvæmda
kæmi.
ísraelsk blöð, sem hafa skrifað,
að tsraelsmenn muni ekki hnika
frá kröfu sinni um, að Egyptar
verði á brott af austurbakka
Súezskurðarins með herlið sitt,
skrifuðu i morgun, að stjórn
Goldu Meir muni leggja til, að
byrjað verði með þvi að skiptast á
svæðum beggja megin viö
skurðinn. — Það er sama tillagan
og þeir lögðu fram i viðræðunum
i tjaldi gæzlusveitanna við
þjóðveginn milli Kairó og Súez.
Frá Egypta hálfu hefur heyrzt,
að ekki verði tekið til við
viðræður um pólitiska lausn þræt-
unnar, fyrr en aðilar hafa orðið
sammála um að kalla herina burt
af hernumdu svæðunum. Þessar
sömu raddir telja útilokað, að til-
laga Israfclsmanna um að hvor
fyrir sig hörfi frá Súezvig-
stöðvunum, verði tekin til greina.
Mikill öryggisbúnaöur var viöhafður IGenf vegna friöarráöstefnunnar,
og hér sést svissneskur lögregluþjónn grannskoöa jólatré til öryggis.
Ætluðu að |
myrða
Kissinger?
Arabisku hryðjuverka-
mennirnir, sem myrtu 33
manneskjur á flugvöllum
Kómar og Aþenu i vikunni fyr-
ir jól, höfðu upphaflega á
prjónunum ráðagerðir um til-
ræði við Henry Kissinger, ut-
anrikisráðherra Bandarikj-
anna.
Norska fréttastofan hefur
það eftir heimildum innan
leyniþjónustunnar i Brussel,
að það hafi verið yfirvöld i
Libýu, sem íengið hafi skæru-
liðunum það verkéfni að ráð-
asl á Kissinger.
Samkvæmt þessu átti til-
ræðið að hal'a verið skipulagt i
sambandi við opinbera heim-
sókn Kissingers, sem hann
ráðgerði i Beirut 16. des. En
öryggisvörðum i Libanon var
gert viðvart i t'æka tið, og flug-
vél Kissingers lenti á flugvelli
i norðurhluta landsins öllum
að óvörum.
Þegar þessi áætlun fór úr
skorðum, fengu skæruliðarnir
fyrirmæli um að láta til skarar
i, skriða á flugvellinum við
Kóm, segir norska fréttastof-
an.
Koníaksór
Frakkar sjá fram á, að þetla
ætli að verða ágætis koniaksár
Segja þeir.aðþaðeigi bæði við
gæðin, þvi að koniakið sé gott i
ár, og einnig hvað viðvikur
i'ramleiðslumagninu. Þeir
ætla, að 276 milljón flöskur
hafi verið framleiddar á ár-
inu.
Pílagrímar
i Um 4000 pilagrimar og
ferðamenn minntust fæðingar
l'relsarans i fæðingarbæ hans,
Betlehem, með sálmasöng og
bænagjörð á jóladag, en yfir
þeim stóðu israelskir hermenn
vörð.
Ylirvöld viðhöfðu slrangar
varúðarráðstafanir af ótta við 1
hryðjuverk Falestinuskæru-
liða. Fékk enginn að l'ara til
Betlehem öðruvisi en að fá lil
þess sérstakan passa.
Milljónir kristinna manna
1 annars staðar héldu jólin há-
/ tiðleg.
1 I jólaboðskap sinum óskaði
L Fáll páfi VI heiminum ,,bless-
i aðra jóla i sæld og l'riði
I Krists.” Orðum sinum beindi
hann til ,,ykkar, bræðra okk-
ar, sem kunna að búa við
mæðu, sorg, þjáningar eða
synd, til ykkar, þjóða alheims-
ins.”
GEIMFARAR
SKOÐUÐU
KOHOUTEK
Tveir af þrein geimförunum
uppi i geimstöðinni Skylab
fóru út úr stöðinni á jóladag til
þess að geta sem bezt virt fyr-
ir sér halastjörnuna Kohou-
tek.
Sýndist þeim, eins og reynd- í
ar hafði sézt i stjörnukikjum J
neðan af jörðu, að halastjarn- k
an væri tæpir 40 km i þvermál. I
Hiti sólarinnar, sem hala- /
stjarnan nálgast jafnt og þétt, 1
hefur leitt til uppgufunar á L
halastjörnunni, en lofttegund- /
irnar, sem þannig myndast, J
hafa lengt halann upp i 40
milljónir kilómetra.
Kohoutek er talin vera
Ígrjót, sem afgangs hafi orðið,
þegar þetta sólkerfi varð til
Þvi þykir stjarnfræðingum /
liklegt, að myndavélar Sky- \
labs gætu fundið eitthvað hjá i
Kohoutek, sem varpað gæti
frekara ljósi á uppruna sólar
og plánetanna.
Halastjarnan mun sjást
skýrast hér hjá okkur tslend-
ingum i fyrstu vikunni i janú-
ar.