Vísir


Vísir - 25.01.1974, Qupperneq 3

Vísir - 25.01.1974, Qupperneq 3
Vísir. Föstudagur 25. janúar 1974. 3 Svono œtla þeir að byggja í Eyjum — Hœgt að komast að verzlunum og leiksvœðum ón þess að fara yfir umferðargötur Allar götur i nýja hverfinu i Vestmannaeyjum hafa nú verið undirbyggðar og lóðir settar i þá hæö, sem gert er ráð fyrir i skipu- lagi. A meðfylgjandi mynd er hverfið eins og það er ráðgert, en undirbúningur að byggingu þessa hverfis hefur staðið í nokkur ár, og var áætlað, að byggingafram- kvæmdir gætu hafizt þar nú siðastliðið sumar, en öðruvisi fór en ætlað var. Ýmsu hefur þurft að breyta, en þegar hreinsun kaupstaðarins hófst i sumar, var byrjað að aka fyllingarefni í götustæðin og á byggingarlóðir á svæðinu. Stefnt er að þvi að byggja 350 ibúðir i mismunandi húsagerðum, og á hverfið að risa á næstu tveimur til þremur árum á þvi gamla hrauni sem er rétt við Herjólfsdal. Þegar hverfið er fullbyggt, er gert ráð fyrir að þar verði rúm- lega 600 ibúðir. Um 280 þeirra verða i 2ja og 3ja hæða sambýlis- húsum, um 200 i 1 og 2ja hæða rað- og keðjuhúsum og ca. 150 ibúðir i stakstæðum einbýlishúsum. Ekk- ert hús verður hærra en þrjár hæðir. Gert er ráð fyrir leiksvæðum i miðju hverfinu, og verða þau tengd byggðinni með gangstig- um. Auk þess eru nærliggjandi iþrótta- og útivistarsvæðin við Hástein, Herjólfsdalur og golt völlurinnsem áformað er að stækka og bæta verulega frá þvi sem nú er. Ein verzlunar- og þjónustumiðstöð verður i hverfinu, og er gert ráð fyrir, að þar verði hægt að verzla með allar daglegar nauðsynjavörur. Einnig er gert ráð fyrir barna- heimili og húsnæði fyrir tómstunda- og félagsstarf. Frá flestum húsum á svæðinu er unnt að komast að verzlunr- miðstöðinni eftir gangstigum, án þess að þurfa að fara yfir um- ferðargötu, en gangfjarlægð frá ibúð til verzlúnar er mest um 400 metrar. Þegar hverfið er svo fullbyggt, eða nálgast það, er gert ráð fyrir að þar verði reistur barnaskóli. Reyna þarf að hraða uppbyggingu ibúðarhverfa sem mest, þvi að skortur á ibúðarhús- næði er einn örðugasti tálminn i vegi margra þeirra, sem vilja drifa sig heim á ný. -EA. STYRKIR GREIDDIR TIL LOÐNUFLUTNINGA — en brœla á miðunum og aðeins fjórir fengu loðnu í nótt þrœr yfirleitt kjaftfullar Bræla er nú á miöuni loðnubátanna og fengu fáir afla i nótt. Þrær eru yfirleitt fullar eða að fyllast i höfnum á Austurlandi. Fjórir bátar fengu þó sæmilegan afla i gærkvöldi og nótt, og stima þeir með hann á Austfjarða- hafnir, þar eð í gær var hafið að greiða flutningastyrki úr loðnu- flutningasjóðnum. Gisli Arni fór með 500 tonn á Seyðisfjörð. Albert fór með 180 tonn, Hrafn Sveinbjarnarson með 180 tonn— þessir þrir allir á Seyðisfjörð, en Faxi GK og Haf- berg fóru til Eskifjarðar. Faxi er með 170 tonn og Hafberg 80 tonn. Hjá Loðnulöndunarnefnd fékk Visir þær upplýsingar i morgun, að þróarrými væri alls staðar tak markað, einna helzt að pláss sé á Seyðisfirði. Hafsild þar hefur rými fyrir 3500 tonn og S.R. rými fyrir 6000 tonn. A Neskaupstað var rými fyrir 1200 tonn og á Eskifirði þróar- rými fyrir 100 tonn. A Hornafirði geta þeir tekið við 2500 tonnum, en þar biða reyndar 1250 tonn. Enginn bátur hefur farið með loðnu til Vestmannaeyja, nema Harpan i fyrradag. Hún var með 100 tonn. Spáð er stormi á miðunum við Suður-og Suðvesturland, þannig að væntanlega verður áfram bræla á miðum loðnubátanna, en þeir halda sig langflestir eða allir við Hrollaugseyjar. Þar hefur loðnan yfirleitt fengizt siðustu tvo sólarhringa og er hún þar á grunnu vatni. 132 loðnubátar höfðu tilkynnt að þeir ætluðu að stunda loðnuveiði i vetur, en aðeins munu um 60 vera komnir til veiða ennþá. Væntanlega hækkar sú tala nú kringum helgina. -GG. Það myndu vfst lika fæstir fúlsa við þessu glæsilega trogi hans Ib Wessmanns, sem boðið er upp á f Naustinu þessa daga, en f dag hófst þorrinn. Síld og þorramatur ó Esju og Naustinu i Naustinu standa barmafuli trog af þorramat og á Hótel Esju hlaðiðborð af fjölbreyttum sildarréttum. Það ætti þvi að vera hverjum manni hægðar- leikur að verða scr úti um smá tilbreytingu frá sinu vcnjulega mataræði. Það er i annað skipti, sem Esja fer af stað með sildarborð- ið, en hótelið hefur i starfi fær- eyska smurbrauðsdömu, Sylviu Jóhannesdóttur, sem var i fjög- ur ár að læra sitt fag i Dan- mörku, en þar eru sildarveizlur á borð við þær sem nú eru á hverjum virkum degi á Esju, sérstakt fag. „Við ætlum að vera með sildarborðið i hádeginu hvern virkan dag fram til vorsins og verður sildarmatseðillinn mis- munandi frá degi til dags,” upp- lýsti veitingastjórinn, Pétur Sturluson. Kvað hann vera átta til tiu tegundir á hverju borði, en þar mætti telja tii nýjunga færeyska sild, hvannarótar- sild og norskt sildarsalat. — ÞJM. Þorrinn í Nausti Það væri gaman að sjá Ásatrúarmenn blóta þorrann, en hvað um það, nógu vel tekst þeim til á Naustinu að uppi- halda þessum heiðna sið. Þetta er i 17. sinn sem Naustið bvður mönnum upp á þorramat, og þó að útlendingar séu ekki beint hrifnir af sviðahausunum og þvi sem tilheyrir, þá kunna lands- menn þeim mun betur að meta matinn. Og fyrst það er nú þjóðhátiðarár, þá er kannski mun skemmtilegra að geta fengið að finna næstum þvi upp- runalegt bragð þessa matar. 1 haust verður gestgjafinn, þ.e. Naustið, 20 ára. — EA. Hver fær ekki vatn i munninn þegar hann litur þetta giæsilega sildarborð, sem Esja býður hádegisveröargestum sínum uppá? Verð: 550 krónur fyrir manninn.... r r EIGNARDOMSMALIÐ AÐ ÁKVÖRDUN LÖGMANNSINS í grein um Mývatnsmálið i blaðinu i gær, kom fram.að setu- dómurinn i málinu hefði gert það að tillögu sinni að máiið yrði gert að eignardómsmáli. Páll S. Pálsson, lögfræðingur hafði samband við blaðið, og sagði að það hefði verið hann en ekki setudómurinn sem tók þessa ákvörðun. Hann gerði það á eigin ákvörðun og á eigin ábvrgð. Þegar ákvörðun var tekin um að gera málið að eignardóms- máli, var aðeins búið að skipa setudómara i ináiið, en ekki með- dómendur hans. — ÓH.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.