Vísir - 25.01.1974, Síða 8
Knattspyrna vinsœl í háskólanum
„Mér þætti lifið illbærilegt ef ég
gæti ekki brugöið mér í knattspyrnu-
skóna og hlaupið út í góða veðrið,
eftir að námstíma lýkur i háskólan
um og iðkað knattspyrnu með
félögum mínum mér til hressingar
eftir inniveruna," sagði Róbert
Magnússon, sem numið hefur um
nokkurra ára skeið við Georgia
Institute of Technology i Atlanta, en
Róbert var á sínum menntaskólaár-
um á Akureyri mjög góður knatt-
leiksmaður. Einnig lék hann knatt-
spyrnu með liði heimabyggðar
sinnar, Viði í Garði, þegar hann gat
því við komið vegna námsins.
Róbert kom heim i jólaleyfi, en við náðum
tali af honum skömmu áður en hann hélt i
vesturveg að nýju og báðum hann að segja
okkur frá iþróttaiðkunum sinum og námi.
„Knattspyrna er mjög vinsæl i háskólanum og
er þar margt liðtækra leikmanna. Við æfum
þrisvar i viku undir leiðsögn austurrisks
þjálfara og helzti vandinn er sá hvað margir
mæta, allt að 50 manns, á æfingu. Völlurinn er
einstaklega góður, gervigras, hvergi misfella,
ég held að slikir vellir hljóti að vera framtiðin.
Við keppum alltaf einu sinni i viku að
minnsta kosti. Nýlega tókum viö þátt i tveggja
daga móti i Mobile. Leiknir voru samtals fjórir
leikir, tveir á dag, og bárum við sigur úr být-
um. Stærstan þátt i sigrinum átti mark-
vörðurinn, sannkallað tigrisdýr á milli
stanganna, enda fyrrverandi atvinnumaður
frá Equador. Allt i lagi strákar,” sagði hann,
,,ef vörnin bregst þá góma ég knöttinn’” — og
það gerði hann sannarlega. Við fengum ekkert
mark á okkur.
Áhugi fyrir knattspyrnuiþróttinni virðist
mér fara hægt og bitandi vaxandi, en hún á
langt i land með að ná sömu vinsældum og
körfuknattleikurinn og „ameriski fótboltinn.”
Háskólarnir kappkosta að fá i sinn nemenda-
hóp, sem allra snjöllustu leikmenn i þeim
greinum. Eigi að siður verða þeir að stunda
nám sitt af kostgæfni og ná lágmarkseinkunn,
til að mega stunda iþróttir i nafni skólans. T.d.
misstum við bezta tengiliðinn okkar, frábæran
Mexicana, úr liðinu, rétt fyrir jól. Við vonum
bara, að hann hafi spjarað sig i friinu.
1 háskólanum eru 8500 nemendur, þar af að-
eins 500 kvenkyns. Ég bý i húsi rétt við há-
skólann, sem ég leigi i samfélagi við Grikkja,
Bandarikjamann, Kinverja (Tævan)
Puertorikana og Argentinumann. Fæðis-
kostnaður er ódýr — við eldum til skiptis — en
fjölbreytt er mataræðið kannski ekki, nema
hjá Kinverjanum. Hann kann að útbúa
kynstrin öll af hrisgrjónaréttum i öllum regn-
bogans litum. Matseldin hefur gengið vel,
nema hjá Grikkjanum. Hann setti kjúklinga i
poka, sem hann stakk inn i ofn og fór siðan á
knattspyrnuæfingu, meðan þeir voru að
bakast, en þeir hurfu að mestu og enginn hafði
lyst á öskunni.”
Þótt iþróttir skipi verulegan sess i lifi
Róberts, er námið hans æðsta boðorð. Hann
hefur nú þegar lokið meistaragráðu i tveimur
verkfræðigreinum, orkufræði og rafeinda-
fræði, og jafnan hlotið hæstu einkum þeirra
sem þreytt hafa próf samhliða honum, eða 3,9
af 4 mögulegum. Auk þess hefur hann kennt
við skólann og þannig unnið fyrir skólagjöld-
um.
Ástæðan til þess, að ég held áfram námi er
einfaldlega sú, að mig langar til að spryeta
mig á „ljósminnisfræði”, sem er mitt áhuga-
mál. Þær greinar, sem ég hef lokið námi i, ættu
að veita mér atvinnumöguleika hér heima á
tslandi, til þess læri ég. En það, sem ég hyggst
glima við næstu tvö árin, eru tilraunir með
„lithium mobate” kristal. Reyndar er þessi
kristall notaður á mörgum sviðum, en hug-
myndin er að gefa honum aukið gildi, finna
aðferð til að geyma i honum upplýsingar, með
aðstoð „lasers.” Takist það, verður um algera
byltingu að ræða i tölvugerð. T.d. kæmist allur
fróðleikur háskólabókasafnsins i Georgiu, það
er sex hæða bygging, i kristal, sem væri 3 cm á
kant. En hvort tekst að gera slikt „ljósminnis-
kerfi” þvi sker framtiðin úr um enn”.
★ RÆTT VIÐ RÓBERT MAGNÚSSON,
★ SEM STUNDAR NÁM í ATLANTA
Vísir. Föstudagur 25. janúar 1974.
Visir. Föstudagur 25. janúar 1974.
Tékkar unnu
norska með
einu marki!
Fjögurra landa keppnin
i handknattleik milli
Vestur-Þýzkalands,
Tékkóslóvakiu/ Júgó-
slaviu og Noregs hófst í
Munchen i gær. í fyrsta
leiknum léku Tékkar við
Norðmenn og sigruðu
með eins marks mun, 17-
16/ og mátti ekki tæpara
standa fyrir tékkneska
liðiö, sem hafði um tima
sjö mörk yfir— 14-7 — en
á fjórum minútum tókst
Norðmönnum að minnka
muninn niður í tvö mörk.
Skoruðu þá sex mörk
gegn einu marki tékk-
neska liðsins. *
tslenzka landsliðið er i riðli
með Tékkum, Vestur-Þjóðverj-
um og Dönum i heimsmeistara-
keppninni i Austur-Þýzkalandi,
sem hefst eftir rúman mánuð.
Þessi úrslit Tékka og Norö-
manna i gær — svo og úrslit i
leik tslendinga og Tékka i Aust-
ur-Þýzkalandi i desember en þá
varð jafntefli, sýna vel hve mik-
ið jafnræði er með landsliðum
tslands og Tékkóslóvakiu —
silfurliðsins frá Olympiuleikun-
um i Munchen. Fyrst i haust
gerðu tsland og Noregur jafn-
tefli i Noregi.
t gær i Munchen leit lengi vel
út fyrir öruggan sigur tékk-
neksa silfurliðsins. t hálfleik
stóð 11-7 fyrir Tékka og þeir
skoruðu svo þrjú fyrstu mörkin i
siðari hálfleiknum, 14-7, já, þá
var útlitið vissulega svart fyrir
Norðmenn.
En þá fóru Norðmenn að láta
að sér kveða — vel studdir af
5200 áhorfendum áhorfendum i
Olympiuhöllinni i Munchen.
Nær allir voru á bandi Norð-
manna — og spöruðu ekki radd-
böndin. Mundurinn minnkaði —
sex mörk Norðmanna á fjórum
minútum, þegar Tékkum tókst
aðeins að skora eitt á sama tima
— gerði það að verkum, að leik-
urinn varð aftur spennandi. 15-
13 stóð þá — en norska liðinu
tókst ekki alveg að vinna upp
muninn. Eitt mark skildi i lokin,
17-16 fyrir Tékka.
Samkvæmt frásögn norsku
fréttastofunnar NTB höfðu
Tékkarnir yfir mun betri tækni
að ráða — voru öruggari með
knöttinn og meiri fjölbreytni
var i sóknarleik þeirra. I fyrstu
virtist sem Tékkar tækjuleikinn
sem hreinan æfingaleik — en
þeir fengu svo ýms vandamál
við að striða lokakafla leiksins.
Þá börðust norsku leikmennirn-
iraf miklum krafti — gáfu mót-
herjum sinum aldrei frið til að
byggja upp leik sinn með þeim
árangri, að munurinn stór-
minnkaði. Úrslit i leik Vestur-
Þjóðverja og Júgóslaviu hafa
ekki borizt.
Ertu byrjaður?
Byriaður með hvað? %0
Byrjaður
Byrjaður að spara!
Spara fyrir hverju?
Spariláni, auðvitað!
Landsbankinn gefur allar upplýsingar
um reglubundinn sparnað og sparilán.
Lesið bæklinginn um
Sparilán
Landsbankans
Heimsmeistarinn I þungavigtinni I hnefaleikum, George Foreman (til
hægri) hitti Ken Norton, þann, sem braut kjálka Muhammeö Ali f
fyrra, sl. laugardag og gengið var þá frá keppni kappanna, nema hvað
dagur var ekki ákveðinn. Myndin var tekin í Los Angeles við þaö
tækifæri af þeim. Heimssambandiö haföi tilkynnt Foreman, aö hann'.
yrði sviftur heimsmeistaratitilinum ef keppni um titilinn yröi ekki
ákveðin fyrir 21. janúar.
Fjórði sigur Önnu
Maríu er í höfn!
— Hefur nú hlotið 223 stig eða 100 stigum meira
en nœsti keppandi í keppninni um heimsbikarinn
Skíðadrottning þeirra
Áusturrikismanna,
Anna Maria Pröll-Moser
hefur nú svo gott sem
tryggt sér sigur i
keppninni um heims-
bikarinn fjórða árið i
röð. í gær varð hún i
sjötta sæti i svigi i
Badgastein i Austurriki
og hefur 223 stig i
keppninni — 100 meira
en Maria Theresa
Hún er i sérflokki — Anna
Maria Pröll-Moser, þegar
hún sigraöi i brun-
keppninni i Badgastein I
Austurriki núna á
miðvikudaginn og var þar
i algjörum sérflokki. Það
var siöasta brunkeppnin
fyrir HM i St. Moritz I
næsta mánuöi.
Nadig, Sviss.sem er i
öðru sæti.
Sá möguleiki— reyndar aðeins
á pappirnum — er fyrir hendi, að
ef Anna Maria fær ekki stig í
þeim fimm mótum, sem eftir eru
I keppninni um heimsbikarinn, en
svissneska stúlkan sigri i fjórum
af þeim, að hún komist upp fyrir
önnu Mariu i stigakeppninni — og
þá þarf hún einnig að hljóta stig i
þvi fimmta!
Keppnin var afar erfið i
Badgastein i gær. Aðeins 24
keppendur — af 67, sem byrjuðu
— luku keppni. Litla Christa
Zechmeister frá Vestur-Þýzka-
landi sigraði örugglega — fjórði
sigur hennar i röð f svig-
keppninni. Hún var næstum
sekúndu á undan þeirri, sem varð
I öðru sæti. Anna Maria varð i
sjötta sæti — en fátitt er, að hún
hljóti stig I svigkeppni. Með þess-
um sigri i gær hefur hin 16 ára
Zechmeister sannað svo ekki
verður um villzt, að hún er lang-
fremsta og öruggasta svigkona
heims.
Úrslit i keppninni urðu þessi -
en meðal þeirra, sem féllu úr var
Maria Theresa Nadig og allar
norsku stúlkurnar, fjórar að tölu.
1. Zechmeister, V-Þ 72.46
2. F. Serrat, Frakkl. 73.41
3. M. Kaserer, Aust. 73.63
4. R. Mittermaier, V.-Þ 74.34
5. B. Cochran, USA. 74.70
6. Pröll-Moser, Aust. 74.91
7. S. Patterson, USA. 75.76
8. B. Clifford, Kanada, 75.83
9.I.Epple, V-Þýzk. 77.94
10. L. Kreiner, Kanada, 78.46
Brautin var afar erfið — Isi lögð
— og ýmsar misfellur, sem gerðu
keppendum erfitt fyrir.
Hinar efstu i stigakeppninni eru
nú:
1. Moser-Pröll, Aust. 223
2. M.T. Nadig, Sviss 123
3. Zechmeister, V-Þ. 122
4. H. Wenzel, Lichtenst. 112
5. M. Kaserer, Aust. 104
6. F. Serrat, Frakkl. 91
7. W. Drexel, Aust. 70
7. K. Kreiner, Kanada, 70
9.1. Lukasser, Aust. 54
Hin 16 ára Christa Zechmeister er svigdrottning I keppninni um heimsbikarinn. t gær sigraði hún i
fjóröa skipti Irööisviginu. Myndin var tekin, þegar hún sigraöi I svigi I Les Diablerets íSviss 16. janúar
Toppur gegn botni!
— Tveir leikir fyrirhugaðir í Hafnarfirði í kvöld
Efsta liðið i 1. deild-
inni i handboltanum,
FH, ætti að bæta við
tveimur stigum i stiga-
safnið mikla, þegar það
mætir botnliðinu, Þór, i
Hafnarfirði i kvöld. Það
verður siðari leikurinn i
kvöld.
Kl. 8.15 leika Haukar og 1R og
ætti það að geta orðið skemmtileg
viðureign. Leikur FH og Þórs var
færður aftur fyrir þennan leik svo
áhorfendur þurfi ekki að biða ef
Þór getur ekki mætt til leiks.
Nokkrar breytingar hafa verið
gerðar á leikjaskrá i næstu viku.
A þriðjudag 29. janúar leika KR-
FH, Fram-Valur i 1. deild kvenna
i Laugardalshöll — en þessum
leikjum var frestað 16. desember
sl. Fyrri leikurinn hefst kl. 7.30.
Að kvennaleikjunum loknum
leika KR-Breiðablik á 2. deild
karla. Á fimmtudag, 31. janúar,
kl. 8.15 leika Þróttur-Grótta i 2.
deild karla og siðan Armann-Þór i
1. deild karla.
Umsjón: Haílur Símonarson
TALE OF THE TAPE
FRAZIER . ALI
30 age 32
5 n’j HEIGHT 6 3
205* WEIGHT 215
17'2 neck !7L
42 CHEST 42
15 BICEPS 15
73’2 REACH 80
13 f'ST 13
.26 THIGH 25
13 CALF 17
IVeðmálin standa
Muhammeð Ali og Joe Frazier keppa
í Las Vegas aðfaranótt nk. þriðjudags
Kapparnir kunnu.
Muhammeð Ali og Joe Frazier,
fyrrum heimsmeistarar í
þungavigt í hnefaleikum, mæt-
ast í hringum í Las Vegas
aðfaranótt næstkomandi þriðju-
dags. Ali er talinn mun sigur-
stranglegri — veðmálin standa
honum nú 9-5 í hag — í tólf lotu
leik þeirra. Hins vegar má geta
þess/ að það var hann einnig,
þegar hann keppti við Joe
Frazier 1971 og tapaði á stigum í
15 lotu leik. Það var fyrsta tap
Ali — og Joe hélt heims-
meistaratitlinum.
Köppunum lenti illa saman i sjón-
varpsupptöku — eins og við sýndum
mynd af i gær — og það upphófust
slagsmál, þegar Ali kallaði Joe fávita. t
gærræddust þeir einnig við — og stór orð
féllu þá einnig — en nú gátu þeir ekki
tekizt á, þvi mikil virgirðing hafði verið
sett upp á milli þeira. En „hatrið”
leiftraði úr augum beggja.
Eins og flest annað nú á timum er
leikurinn kallaður i Bandarikjunum,
„bardagi aldarinnar” og áhugi er gifur-
legur á honum. Ekki aöeins I Banda-
rikjunum — heldur flestum löndum
heims. Blaðamenn úr nær öllum heims-
hornum flykkjast til Las Vegas til að
skýra lesendum sinum frá þvi, sem þar
er að gerast — og þeir hafa fengið nóg af
fréttum, þegar kapparnir hafa hitzt.
Leikurinn er afar þýðingarmikill fyrir
kappana. Joe Frazier tapaði sem
kunnugt er heimsmeistaratitlinum,
þegar Joe Foreman lék sér að honum.
Foreman hefur ákveðið að keppa við
Ken Norton, sennilega i marz, en hann
hefur verið afar tregur til að leggja titil
sinn að veði. Ekki gefið Ali eða Frazier
tækifæri — en verið með stór orð eins
þeir, og sagt þá allt of lélega til að mæta
sér i hringnum. Ef Foreman sigrar
Norton — Ali vann hann nýlega, en i
fyrrdvor kjálkabraut Norton Ali og vann
hannþáá stigum—verður hann keppa
við sigurvegarann i leiknum i Las
Vegas. Nú er stóra spurningin. Fær
Muhammeð Ali aftur tækifæri á að næla
sér i heimsmeistaratitilinn — eða verð-
ur það JoeFrazier, sem mætir Foreman
ööru sinni i hringnum? Ali hefur aldrei
keppt við Foreman.
Breiðholtshlaup ÍR
1. Breiðholtshlaup 1R 1974, það
er fara átti fram sl. sunnudag, en
fresta varð vegna færðar, svell-
bunka og foræðis á hlaupabraut-
inni, mun fara fram, ef færð leyf-
ir, sunnudaginn 27. jan. og hefst
það kl. 14.00. Skrásetning hefst kl.
13.30.
Ákveðið hefur verið að koma á
keppni i hlaupinu milli bekkjar-
deilda skólanna i Breiðholts-
hverfi. Sigurvegari i þeirri keppni
verður sú bekkjardeild, sem fær
bezta þátttökuhlutfall miðað við
stærð deildarinnar.
En auk þessa verður keppnin
eins og undanfarin ár einstaklings-
keppni, opin öllum, sem vildu
reyna sig, þar sem allir hljóta
viðurkenningu eða verðlaun, sem
ljúka 4 hlaupum af sex hlaupum
vetrarins.