Tíminn - 04.01.1966, Qupperneq 2
2
TÍMINN
ÞRIÐJUDAGUR 4. janúar 1966
Kristján Eldjárn ÞjóðminjavörSur afhendir Jökli Jakobssyni verSlaunin, Agnar Þórðarson t. h. (Ljósmynd B. G)
VERÐLAUNAAFHENDING ÚR RITHÖFUNDA
OG TÓNSKÁLDASJÓÐI RÍKISÚTVARPSINS
Mánudagur 3. janúar.
NTB-Havana. — Fulltrúar frá
um 100 ríkjum í Afríku, Asíu
og Mið- og Suður-Ameríku
komu í kvöld saman til níu
daga ráðstefnu, þar sem rætt
verður, á hvern hátt berjast
skulu gegn heimsvaldastefnu,
nýlendustefnu og hinni svoköll
uðu nýlendustefnu í heiminum.
Um 500 fulltrúar frá ríkisstjórn
um, stjórnarandstöðuflokkum
og einstaka skæruliðasamtök-
um sitja ráðstefnuna.
NTB-Tasjkent. — LeiStogar
Indlands og Pakistands, með
Shastri forsætisráðherra og
Ayub Khan forseta í farar-
broddi komu í dag til Tasjkent,
höfuðborgar sovétlýðveldisins
Uzbekistan, og var vel fagn-
að. Þeir munu ræða þar um
Kashmírmálið, en Kosygin for-
sætisráðherra Sovétríkjanna,
verður sáttasemjari á fundin-
um, sem líklega stendur í eina
viku.
NTB-Stokkhólmi. — Meiri snjór
er nú í Svíþjóð en nokkru
sinni fyrr og hefur valdið mikl
um truflunum á umferð. Sama
er að segja um Danmörku og
hluta af Noregi. Þá hafa verið
flóð í Vestur-Þýzkalandi, og
skipaferðir hafa tafizt vegna
óveðurs.
NTB-Salisbury. — Ian Smith
fyfirskipaði i dag enn harðari
benzínskömmtun í Rhodesíu, og
hér eftir fá bændumir einung-
is helming þess, sem þeir
venjulega nota. Benzínskömmt-
unin nær jafnvel til erlendra
diplómata. Benzínskömmtun
var komið á fyrir vibu siðan,
og er olíubannið orsök hennar.
Olíuleiðslunni frá Beira í Moz-
ambiqur til Rhodesíu hefur
verið lokað vegna olíuleysis.
NTB-Moskvu. — Sovétstjómin
skipaði í dag vestur-þýzkum
diplómata að yfirgefa landið
Ínnan fjögurra daga. Er hér
um að ræða fyrsta sendiráðs-
ritara, Alois Mertes, sem er
ákærður fyrir ólöglega starf-
semi.
NTB-Hannover. — V-þýzkur
Iögreglumaður var handtekinn
í dag, er hann reyndi að ræna
banka í Delmenhorst í Neðra-
Saxlandi. Er talið að hann hafi
áður rænt banka og sloppið
með um 100 þúsund mörk.
Hann hafði stungið • á sig um
100 þúsund mörkum, þegar
gjaldkeri bankans afvopnaði
hann. Margt fólk var í bankan-
um, þegar lögreglumaðurinn
gerði ránstilraunina. Hann
vinnur hjá Hamborgarlögregl-
unni.
NTB-Cotonou. — Ríkisstjórnin
í Dahomey hefur ákveðið að
slíta stjórnmálasambandi við
Kínverska alþýðulýðveldið.
NTB-Lagos. — Rfkisstjóm Níg-
eríu ákvað í dag að halda hina
fyrirhuguðu ráðstefnu Samveld
isrikjanna í Lagos 11. janúar
n.k., en ráðstefnana á að ræða
Rhodesíumálið, og sitja hana
forsetar og forsætisráðherrar
viðkomandi ríkja. 22 ríki em
í Samveldinu, og er talið lík-
legt, að a.m.k. 18 muni sækja
ráðstefnuna.
FB-Reykjavík, mánudag.
Á gamlársdag vom veitt verð-
laxm úr rithöfunda- og tónskálda-
sjóði Ríkisútvarpsins. Að þessu
sinni hlutu rithöfundaverðlaunin
þeir Agnar Þórðarson og Jökull
Jakobsson og tónskáldaverðlaunin
hlutq þeir Kart.O-, JtuúóTfsson, og
Þórarinn Jónsson. Veittar voru 100
þúsund krónur í allt, eða 25 þús-
und til hvers verðlaunahafa.
Viðstaddir veitinguna voru Gylfi
Þ. Gíslason menntamálaráðherra,
Helgi Sæmundsson formaður
menntamálaráðs og Vilhjálmur Þ.
Gíslason útvarpsstjóri.
Formaður rithöfundarsjóðs Rík-
isútvarpsins, Kristján Eldjárn þjóð
minjavörður afhenti verðlaunin úr
NTB-Stokkhólmi, mánudag.
í þessari viku munu forsetar
Norðurlandaráðs og ýmsar norræn
ar nefndir halda fundi til undir-
búnings 14. fundi ráðsins, sem
hefst í Kaupmannahöfn í lok mán-
aðarins. Um 30 mál verða á dag-
skrá fundarins, allt frá hinni um-
deildu tillögu um aukið efnahags-
legt og viðskiptalegt samstarf Norð
urlanda til tillagna um nýjar regl-
FRÚ EL0ISE
STOVER LÁTIN
FB-reykjavík, mánudag.
í gær andaðist í Washington
frú Eloise Stover, kona Raymond
Stovers, sem starfaði um nokkurra
ára bíl við upplýsingaþjónustu
Bandaríkjanna hér á landi. Síðan
Stover fór héðan hefur hann starf-
að sem yfirmaður Evrópudeilar
fréttastofu Voice of America —
útvarpsstöðvarinnar Frú Eloise
Stover hafði verið lengi veik, áður
en hún lézt.
rithöfundasjóðnum, og sagði m.a.
við það tækifæri, að þetta væri í
tíunda sinn, sem styrkurinn er
veittur úr sjóðnum, og með þeim
ur í sambandi við kaup á skatt-
frjálsum vörum á ferðum milli
Norðurlandanna.
Forsetar Norðurlandaráðs koma
saman til fundar í Stokkhólmi á
morgun, þriðjudag, og ræða m.a.
um aukið norrænt efnahagssam-
starf, en er talið, að þetta verði
eitt aðalmálið á fundinum í Kaup-
mannahöfn. Það er einkum Sví-
þjóð, sem hefur áhuga á auknu
samstarfi á þessu sviði, en Dan-
mörk og Noregur hafa takmark-
aðan áhuga sem stendur. Þetta
verður rætt nánar á fundi Efna-
hagsnefndarinnar, sem kemur sam-
an 21. janúar — viku fyrir 14
fundinn.
Félagsmálanefndin kemur sam-
an til fundar á miðvikudag og um-
ferðamálanefndin á föstudag. Mun
sú nefnd m.a. ræða um fyrirhugaða
brú yfir Eyrasund sem er umdeild,
og eins hugmyndina um norrænan
stórflugvöll á Saltholmi
Á sunnudag og mánudag heldur
menningarmálanefnd ráðsins
tveggja daga fund og mun m.a
ræða nánara samstarf Norðurlanda
á sviði sjónvarpsmála.
höfundum, sem nú hlutu verðlaun-
in, hefðu 19 höfundar hlotið þau.
Vilhjálmur Þ .Gíslason útvarps-
stjóri afhenti tónskáldaverðlaunin.
Litlu jólin í
Tónskólanum
„Litlu jól Tónskólans," — nem-
endatónleikar, sem haldnir eru
um jólaleytið, fóru fram í Haga-
skólanum sunnudaginn 19. desem-
ber. Þar léku rúmlega hundrað
nemendur á hljóðfæri sín einleik
tvíleik eða í flokkum.
Húsið var þéttskipað áheyrend-
um, sem fögnuðu vel hinum ungu
hljóðfseraleikurum.
Með þessum tónleikum lauk fyrra
námstímabili skólans i vetur. í
skólanum voru alls 211 nemendur
og fullskipað í nokkrum náms-
greinum. Mest hafði nemendum
fjölgað á harmoníum. harmoniku.
píanó og gítar
Nú er kennsla að hefjast í síð-
ara námstímabilinu sem stendur
til aprílloka og er nú hægt að veita
viðtöku örfáum nýjum nemendum
í öðrum námsgreinum en .gitar og
rafbassa. Þær námsgreinar eru nú
fullskipaðar.
Innritun fer fram kl. 8—10 síð-
degis í síma 19246 til næstu helgar.
Spánverji slas-
ast alvarlega
í Hafnarfirði
HZ-Reykjavík, mánudag.
Alvarlegt bílslys varð á gaml-
árskvöld í Hafnarfirði en þar
lenti spánskur sjómaður fyrir bif-
reið með þeim afleiðingum að
hann stórslasaðist.
í Hafnarfjarðarhöfn hefur legið
norskt lýsisflutningaskip að und-
anförnu. Á gamlárskvöld lögðu
tveir spánskir hásetar leið sína upp
í bæ og er þeir voru að fara yfir
Strandgötuna á móts við skipa-
smíðastöðina Dröfn kom þar Volks
wagenbifreið akandi og annar há-
setanna Ale Jandro Pervchena
lenti fyrir henni. Kastaðist hann
upp í loftið og skall síðan harka-
lega niður á bifreiðina aftur og
svo í götuna er bifreiðin hemlaði.
Lögreglan og sjúkralið var þeg-
ar kvatt á vettvang og hinn slas-
aði var fluttur á Slysavarðstofuna
og þaðan á Landspítalann þar sem
hann liggur nú.
í ljós kom að Ale Jandro hafði
fótbrotnað á báðum fótum, kjálka-
brotnað og kinnbeinsbrotnað og
höfuðkúbubrotnað auk annarra
minniháttar áverka.
Blaðið hringdi í Landspdtalann
og spurðist fyrir um líðan Spán-
verjans. Árni Bjömsson læknir
tjáði blaðinu að líðan hans væri
góð eftir atvikum og búið væri
að gera að meiðslunum.
Gáfu út tímarit
og hlutu fang-
elsisvist fyrir
NTB-Moskvu, mánudag.
Hópur ungs fólks var i
nóvember s.l. dæmdur til
fangelsisvistar fyrir að hafa
gefið út tvö eintök af leyni-
legu „frjálslyndu" tímariti,
að því er áreiðanlegar heim-
ildir í Moskvu sögðu í dag.
Leiðtogi unga fólksins var
dæmdur í sjö ára fanglesi.
Átta aðrir úr hópnum, þar
á meðal tvær ungar' konur,
fengu 2—5 ára fangelsis-
dóma.
f tímaritinu kemur fram,
að unga fólkið er ekki á
móti grundvallarkenningum
kommúnismans, heldur er
það á móti þeirri tegund
kommúnisma, sem ríkir í
Sovétríkjunum í dag. Vill,
unga fólkið fá meiri hugs-
ana- og málfrelsi.
Braut 21 rúðu í
Þjóðleikhúsinu
KJ-Reykjavík, mánudag.
Síðastliðna nótt braut maður
nokkur 21 rúðu í Þjóðleikhúsinu,
og var all mjög æstur. Taldi hann
sig hafa verið sviðsettan í Þjóð-
leikhúsinu, og sömuleiðis í útvarps
leikriti, og því ætlaði hann að
hefna sín á þessum menningar-
stofnunum með því að brjóta rúð
ur í húsakynnum þeirra. Maður
þessi er talinn vera geðtruflaður,
og er nú í rannsókn hjá geðlækni.
f"■■■■'■ .......................—
Blaðburðarfólk
óskast í eftjrtalin hverfi:
Grettlsgötu
NJálsgötu
Skólavörðustíg
Barónsstíg
Leifsgötu
Lindargötu
í Upplýsingar eru gefnar á afgreiðslu blaðsins í Bankastræti
\ 7, sími 1-23-23.
Undirbúningur að 14. fundi
Horðuriandarúðs að hefjast