Tíminn - 04.01.1966, Side 3

Tíminn - 04.01.1966, Side 3
ÞMÐJUDAGUR 4. janúar 1966 3 Geschichte der Papste. Höf- undar: Franz Xaver Seppelt/ George Schwaiger. Útgáfa: Kösel-Verlag, Miin- chen 1964. Verð: DM 44,- Ein var sú tíð, er Rómaborg var andlegur höfuðstaður ís- lendinga. Á þeim tímum lágu allar leiðir til Róm, hvaðan- æva úr Evrópu. Vel kristnir menn lögðu á sig mikið erf-. iði til að líta hina helgu borg, sæti Péturs postula og arf- taka hans, hina heilögu feður fulltrúa Krists hér á jörðu. Það eru skjalfestar heimildir um ferðir íslendinga suður, sem er gestabök klaustursins í Reichenau (Eynni auðgu). k þá bók eru rituð nöfn 13 fs- lendinga, bæði karla og kvenna, sem hafa gist í klaustr inu á leið til Rómar á 12. öld. Fleiri heimildir eru til um ferðir manna hérlendra til Rómar. Ágæt lýsing er til í sögu Guðmundar biskups Ara sonar áf sendiferð Ketils prests til Rómar. Ketill þessi var herbergisnautur biskups, „mikill maður vexti og sterkr, vel fallinn í lund og góðrar hlýðni, en lærður lítt á bækr.“ Þennan klerk sendi Guðmund- ur biskup með bréfum til páfa til að hann mætti freista þar nokkurrar leiðréttingar slnna málefna. Ketill prestur „leggr ei fót fyrr en hann kemr í Romam.“ Prestur hafði sár- lega afsakað sig við biskup, kvaðst ófróður og ókunnugur öllum leiðum og taldi að hon- um yrði eigi sinnt í páfans garði, fátækum og veslum, hann kvaðst hafa spumir aí því, að konungar og furstar yrðu að bíða ár eitt eða tvö áheyrnar, hvað þá hann. Bisk- up lagði allt í hendi Guðs og Ketill fór tíl Rómar. Hann varð að bíða nokkuð lengi þar til hann fær úrlausn, verður harla feginn, „leggr land und- ir fót, og hleypr svá norðr ept- ir löndurn." Ferð hans frá Róm til Rostock tók mánuð. Biskup fær páfabréf og varð harla feginn. Sá páfi, sem þá sat stól heilags Péturs, var Honorius III, sem var talinn ljúfmenni en heilsulítill. Hann hvatti mjög til krossferða, en árangur varð minni en áhugi páfa. Áhrifa páfanna gætti mis munandi mikið úti hér, þegar kirkjan var voldugust varð barátta hennar hér á landi stríðari og auk þessa gætti oft sjálfræðishneigðar hjá ís- lenzku kirkjunni. Sturla Sig- hvatsson fór til Rómar til þess að leysa mál sín og föður síns árið 1233. Þá var páfi Gregor- ius IX, sem þótti um margt minna á Innocentius III. Sú ferð Sturlu varð afdrifarík. Bar átta leikmannavaldsins og kirkjuvaldsins verður stríðust um daga Guðmundar Arasonar og svo í lok 13. aldar. Þá deila þessi öfl um stóreignir hérlendis, hin svonefndu Staða mál. Við þessar deilur að- skilja höfðingjavald og kirkju vald og lýkur þessari þróun með því, að kirkjan verður ríki í ríkinu og loks voldug- asta stofnun hérlendis. Þó ger- ast hér atburðir á 15. öldinni, sem rýra virðingu manna fyrir þessari stofnun, en í lok aldar- innar stendur kirkjan á há- tindi veldis sins. Áhrifa páf- anna gætir hér lítið á 14. öld- inni, þá sitja þeir í Avignon og eru nokkurs konar hand- bendi frönsku konunganna. 111 víg togstreíta hefst með Þeim og Rómarpáfum og gekk erfið lega að kippa þessu í lag. Með siðaskiptunum hefst hér mikil barátta kirkjunnar fyrir til- veru sinni, síðasti kaþólski bisk upinn hér ritaði Páli páfa III. bréf og baðst fyrirmæla hans um hvernig hann skyldi snúast í málum. Þetta bréf barst Páli páfa 27. ágúst 1548. Svar við þessu bréfi er dagsett 8. marz 1549, og í því þakkar páfi Jóni biskupi aðstoð og hlýðni við sig og leggur til að Róma- skatti og Pétursfé skuli skipta með fátækum. Þetta bréf varð Jóni Arasyni mikil hressing. Bein og persónuleg áhrif páfanna hérlendis eru engin, nema ef vera skyldu afskipfi páfa af málefnum Guðmundar góða og síðast nefnt bréf til Jóns biskups, en því meiri eru þessi áhríf óbein, og ef til vill eru störf og aðgjörðir páf- anna afdrifaríkust löngu fyrir byggingu landsins. Trúboð þeirra á meginlandi Evrópu og á Englandi og írlandi, orkuðu því þaðan bárust áhrif kristninnar á Norðurlandaþjóð ir, þannig var nokkur jarðveg- ur fyrir kristni hér á landi fyrir Kristnitökuna. Með kristni hefjast bók menntastörf hérlendis og bend ir margt til þess, að íslending- ar þekki eitthvað til engil- saxneskra rita, en þar var mik- il blómstran í bókmenntum og bókagerð. Enskir dýrlingar áttu hér sína vini og Hróðólf ur i Bæ dvaldist hér 1030-1049. Hann var einn þeirra biskupa, sem Ólafur Harald9son hafði með sér frá Englandi til Nor- egs. Trúboðsáhugi Gregoríusar mikla lifði lengi í ensku kirkj- unni. Áhrifa ensku kirkjunnar hér á landi á 11. öld gætti mjög, og marka má þetta af málinu, kirkjusiðum og kirkju- lögum. Einnig berast frá Englandi þau orð, er varða bókagerð og bókmenningu, sbr bókfell, ríta, stafróf. fslending ar sniðu einnig stafróf sitt eft- ir ensku stafrófi, þ-ið er kom- ið í okkar starfróf úr forn ensku. Þessara áhrifa gætir minna síðar, þegar íslenzka kirkjan er í fyrstu lögð undir erkistólinn í Brimum Eftir miðja 11. öld hjaðnar trúboð Englendinga Viðhjálmur bast arður kemur nýrri skipan á ensku kirkjuna og þýzkra kirkjuáhrifa tekur að gæta hér lendis. Bókmenntastarf hefst hér með kristni, bókagerð og staf- róf berst hingað fyrst með enskum trúboðum. Ari fróði getur eins hins merkasta höf undar íslendinga í íslend- ingabók og hin frægu orð Ara sem oft er vitnað til ,,að hafa það heldur, er sannara reyn- ist“ eru keimlík orðum hins virðulega Bedaprests í kirkju sögu hans. Trúboðsáhuga ensku kirkj unnar má rekja til Gregoríusar mikla. Hann var sá páfi, sem hefur stundum verið nefndur fyrsti miðaldapáfinn og einn ig síðasti Rómverjinn. Hvor tveggja hefur nokkuð til sfns máls. Hann elst upp við forna rómverska arfleifð og hann stendur nær Evrópubúum en kirkjufurstar Byzaantz, sem kölluðust yfirmenn Rómarbisk- upa. Hann mótar vestrænu kirkjuálmuna og áhrifa hans gætir svo vítt, sem trúboðar hans fóru. Hann sendir heil agan Ágústínus til Englands og þaðan hefst síðar enska trúboð ið sem löngu síðar mótar frum kirkjunar hér á landi. Þannig gætir áhrifa þessa páfa hér- lendis, löngu efitr að hann var allur. Einnig gætir áhrifa frá ritum hans, „Dialogar" hans voru þýddir á íslenzku (Heil- agra manna sögur), og eru ef til vill það sem snemma var þýtt á íslenzku, auk þess setti hann saman fleiri rit og hon- um eru eignuð um 800 bréf og ræður. Dialogarnir urðu vin sælastir, sem eru uppbyggileg- ar sögur af helgu og hreinlífu fólki, sem páfi segir Pétri læri sveini sínum. Þetta var mjög vinsælt lestrarefni og ýmsir hlutar þessa rits urðu fyrir- mynd íslenzkra höfunda síðar svo sem draumur Flosa í Njálu er mótaður að fyrirmynd úr Dialogum (sagan um Anastas ius). Einnig hefur þessi bók haft áhrif í íslenzkum þjóð- sögum og fleiri ritum fslenzk bókmenntasaga verður þvi ekki skrifuð án þess að getið sé áhrifa þessa ágæta páfa, sem er talinn fæddur um 540 og deyr 12. marz 604. Hann er ágætastur þeirra páfa, sem báru nafnið Gregoríus og sá fyrsti þeirra, en þeir eru alls 16 hingað til. Hann var trúar leiðtogi, sem markaði stefnu kirkjunnar, einnig merkur stjórnmála- og samningamaður honum tókst að semja við Langbarða, sem um þetta leyti óðu um á Norður-Ítalíu, og voru heldur lítið siðaðir og ágætur guðfræðingur. Beztu menn kirkjunnar tóku hann sér til fyrírmyndar og áhrifa hans gætir enn. í þessari bók eru upptaldir þeir Rómabiskupar, sem uppi hafa verið frá öndverðu og til vorra tíma. Saga páfanna er einnig saga Evrópu og með henni er sögð saga kaþólsku kirkjunnar. Höfundar eru tveir, F.X. Seppelt og G. Schvaiger. Sá fyrri lézt fyrir átta árum, en sá hefur gefið bókina út breytta frá fimmtu útgáfunni 1949. Þessi saga páf- anna er byggð á sex binda riti (sjötta bindið ókomið) um páfana, sem er einkum ætlað fræðimönnum, þetta úrval er úr því riti. Bókin er að veru- legu leyti endurrituð af Schwei ger og er því ekki talin sjötta útgáfa. Bókin hefst með frá- sögn af Pétri postula og síðan arftaka hans, biskupa og páfa í Róm. Hér koma þeir allir í röð gegnum aldaraðirnar. fyrst ofsóttir síðar þjónustu- menn keisaranna, og þegar kemur fram á þjóðflutninga- tímana, verndarar og stjórn- endur hinnar fornu höfuð- borgar heimsins, eina vörn Rómalýðs á hættulímum Með Gregoríusi mikla kemst nokk- ur festa á embættið, en lengi vel var þetta embætti bitbein rómverska aðalsins og síðar taka keisararnir í Hinu heil- aga þýzk-rómverska ríki að hafa mikil afskipti af páfa- vali Eftir árið 1000 taka vald og áhrif páfanna að eflast, kirkjan klofnar i rómversk og grísk-kaþólska kirkju 1054 og með Gregoríusi VII hefst embættið til vegs. það svo að keisarar urðu að lúta veldi hans Vald kirkjunnar efldist svo. að páfunum tekst að vekja Evrópuþjóðir til krossferð anna, sem höfðu svo afdrifa- ríkar afleiðingar fyrir alla þró Framhald á bls 12 NYJAR ERLENDAR BÆKUR Á VÍÐAVANGI Benzínverðið og „við- • // reisn Á fyrsta degi þessa nýja árs hækkaði útsöluverð á benzíni í kr. 7,05 pr. lítra. Verð þettá á hverjum benzínlítra skiptist þannig: 1. Innnkaupsverð, flutningur til landsins, dreifingarkostnað- ur innnanlands. sölulaun og allur annar kostnaður þar til benzínið er seit, komið í benzín geymir bifreiðar kr. 2,45. 2. Tollar og opinberir skatt- ar kr. 4,60. — Samtals kr. 7,05. í árslok 1958, er vinstristjórn in fór frá völdum, var útsölu- verð á benzíni kr. 2,89 pr. lítra. Skattamir einir á hverjum benzínlítra nú eru því orðnir 60% hærri en útsöluverð í heild var á benzíni í árslok 1958. Heildarhækkunin á benzíninu á þessu tímabili, eða í tíð viðreisnar er hins vegar 144%. Gott sýnishom af við- reisnarverði þetta. Svik í kaupbæti Nú munu ýmsir segja, að bót sé í máli, að þessir miklu benzínskattar fari í bætt vega- viðhald og gerð nýrra vega, sem mikil þörf er á, og sann- gjarnt mun af mörgum talið, að tollar og gjöld af bifreiðum og skattar af umferð og akstri standi að mestu leyti undir vegagerð landsins og viðhaldi. En því er ekki að heilsa. Fram til 1958 var þetta hlutfall þó jákvætt að því leyti, að fram að þeim tíma var varið til vega og brúa eins miklu eða meira fé en fékkst í ríkissjóð sem gjöld af bilum og bcnzíni. En árið 1959 snerist þetta við, og síðan hefur ríkið tekið æ meira af bíla- og benzínsköttum til almennrar ríkiseyðslu. Á þess- um sjö ámm undir „viðreisnar" stjóm hefur ríkið tekið af bfl- unum um 2000 milljónir króna umfram ríkisframlag til vega- gerða og annarra framlaga tii vega. Fyrir þetta fé hefði verið hægt að leggja malbikaðan veg norður á Akureyri og austur að Þjórsá. í haust keyrir svo alveg um | þverbak, þegar ríkisstjómin > þverbrýtur gefin heit og sam- | komulag allra flokka á þingi um afgreiðslu vegaáætlunarinn | ar í fyrra. Þá hét hún að hafa | a. m. k. ekki minna framlag af Iríkisfé til vega en þá var eða 47 millj. kr. Nú er það framlag tekið af fjárlögum, ríkið leggur ekkert til vega en tekur i sín- Iar þarfir 500 millj. króna af bíla- og benzíngjöldum til eigin þarfa. Þetta fá bflaeigendur í kaupbæti ofan á 7 kr. benzín- verð og á meðan grotna vegir landsins sundur og engin ný átök eru gerð til varanlegrar vegagerðar. | Engin Evrópuþjóð nema ís- | lendingar mun nú hafa sam- I göngur og bifreiðar að einum ■ stærsta tekjustofni sínum til Iannarra ríkisþarfa. Flestar leggja ekki aðeins allar tekjur af bflum til vega, heldur og miklar fjárfúlgur að auki, og s þó mega íslendingar sízt allra | þjóða við þessu háttalagi, þar I sem þeir em enn að kalla vega- laus þjóð.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.