Tíminn - 09.01.1966, Qupperneq 12

Tíminn - 09.01.1966, Qupperneq 12
SUNNUDAGUR 9. janúar 1906 12 HVERS VEGNA Framhald af bls. 5. vinna sigur í því að lokum, en á hinn bóginn brestur hann einmitt siðferðislegan og póli- tískan mátt og alla eiginleika til þess að heyja mjög lang- dregið stríð . . . “ JOHNSON forseti er einmitt að reyna að ráða niðurlögum þessara skoðana allra með því að fá aðrar þjóðir með í bar- áttuna fyrir samningaviðræð- ræðum. Hann gerir sér vonir um, að valdhafamir í Harfoi fari að leggja eyrun við boð- skap fleiri erlendra ríkisstjórna en stjórnarinnar í Peking og stjórnar erlendra ríkja geti þannig átt þátt í að leiða deilu- aðila að samningah«íinu. Samningaumleitanir þær, sem nú standa yfir, eru ber- sýnilega alvarlegasta tilraunin sem gerð hefur verið síðan Genfarráðstefnán var haldin. En valdhafarnir í Hanoi eru einangraðir og tortryggnir. Þeir eru beizkir í lund vegna þungbærrar reynslu á liðinni tíð og hættir til að líta á samn- ingatilboð annað hvort sem gildru eða veikleikavott af hálfu Bandaríkjanna. Norður-Vietnamar líta svo á, að þeim hafi ávallt vegnað vel þegar þeir börðust, en beðið lægri hlut í hvert sinn, sem þeir sömdu. Það er einmitt þessi sannfæring, sem vinna verður bug á. RÆÐA EINARS Framhald af 9. síðu. er hins vegar sá að þar er í flest- um tilfellum farið að fiska í land- helgi sveitarfélaganna og stórlega dregið úr aflamöguleika þeirra á sömu miðum. Glöggt dæmi um þetta eru nýju lögin um breytingu á öflun tekna til Húsnæðismála- stofnunarinnar. Til þess að standa við hluta júní-samkomulagsins þyrfti ríkissjóður að leggja fram 40 millj. kr. í því skyni var hækk- aður eignaskattur á fasteignir til ríkisins en tekjur af fasteignum eru einn af örfáum stofnum, sem ætlaðir eru sveitarfélögunum með 1. 69/1962. Þessa þróun tel ég varhugaverða og hún getur auð- veldlega leitt til þess að sveitar- félögin verði að afla því nær allra Framsóknarmenn í Kópavogi Aðalfundur fulltrúaráðs Fram sóknarfélaganna í Kópavogi. verð ur haldinn í Framsóknarhúsinu að Neðstutröð 4, mánudaginn 10. jan- úar, klukkan 9.30. sinna tekna með útsvörum vegna þess að ríkið væri búið að hremma allt annað. Þau tvö efni, sem áðurnefndar fillögur fjalla um, snerta einmitt þetta atriði. Þegar söluskatturinn 1960 var lagður á, var ákveðið að hann skildi skiptast þannig milli ríkis- og sveitarfélaga að ríkið fengi 4/5 hluta en jöfnunar- sjóður sveitarfélaga Vs hluta af þeim söluskatti, sem, innheimtur er af innlendum viðskiptum. Þá voru leidd fram þung rök því til sönnunar að sveitarfélög þyrftu mjög á þessum tekjum að halda og að sanngjarnt væri að þau fengju þær, enda var þá mikið talað um að horfið skyldi af braut hinna beinu skatta, tekju- skattur af meðaltekjum átti alveg að hverfa og útsvörin að stór- lækka! Upphaflegi söluskatturinn var 3% en síðan hefur sölu- skattur eins og kunnugt er, tví- vegis verið hækkaður, en hluti sveitarfélaganna eftir sem áður bundinn við 20 prósent af upp' haflega skattinum. Ef hinni upp- haflegu reglu hefði verið fylgt, mundi óhætt að reikna hluta Reykjavíkurborgar á næsta ári ef- laust 100% hærri en hann er nú og munar það borgina eina um 90 milljónum króna, sem hægt væri að lækka útsvörin á næsta ári. Af þessu sést að hér er um mikið nauðsynjamál að ræða og þarf tæplega að efast um að allir borgarfulltrúar í Re^'kjavík geti séð sér fært að fylgja þeirri til- lögu, sem hér er fram borin um áskorun á Alþingi að breyta þess- um ákvæðum. Að vísu er það áuðvitað öllum Ijóst að ekkert hefir orðið úr'þeirri fyrirætlan að breyta skattheimtu úr beinum sköttum í óbeina, ef það hefur þá nokkurn tíma verið annað en fyrirsláttur og skrum. Óbeinir skattar hafa að vísu verið lagðir á í stórum stíl, en bara til viðbótar hinum fyrri. Sam- kvæmt þessu er auðvitað alveg sama hvemig skattheimtunni er háttað, skipulagið er ekkert og eina reglan sem farið er eftir, er að ná sem mestu. En með því að lögfesta svo háan söluskatt sem hér er nú gert, án þess að sveit- arfélög fái nema mjög takmarkað an hluta hans til sinna þarfa, er verið að skerða tekjumöguleika þeirra, og visa þeim nánast á út- svörin ein, sem verður þó að halda innan skynsamlegra marka, ef gjaldþoli borgaranna á ekki al- veg að ofbjóða, eins og gert var 1964. Þegar árið 1960 var verið að taka hér upp nýja stjórnarhætti að því er sagt var, þá töluðu menn um það sem tvær leiðir, að inn- heimta opinberar tekjur annars vegar með beinum sköttum og þá hins vegar með óbeipum sköttum. Menn greinir ennþá á um leiðir, sumir vilja fara þessa leiðina en aðrir vilja fara hina leiðina eins og mikið hefur verið talað um að undanförnu. En engum dettur í hug að fara báðar leiðirnar sam- tímis, en það er þó það, sem gert er i innheimtu opinberra gjalda nú upp á síðkastið og blessast áreið anlega ekki til lengdar. Því skora é| á háttv. borgar- ftr. að standa saman um þá til- lögu okkar borgarftr, Framsfl., sem ég hef hér verið að mæla fyrir og geymir áskorun til Alþ. og þá þingmanna Reykjavíkur alveg sérstaklega að breyta reglunum í það horf að jöfnunarsjóður fái hluta af öllum sköluskattinum, sem inn'heimtur er af innlendum viðskiptum. Á þann hátt verður að nokkru spornað við hinni ört vaxandi ásælni ríkisvaldsins á þær tekjur, sem sveitarfélögum standa til ráð- stöfunar, en nauðsyn þess ætti a. m.k. öllum borgarfulltrúum að vera fullkomlega ljós. Sömu ásælninnar gætir í þeirri ákvörðun meirihluta Alþingis að fella út af fjárlögum þann rekstr- arstyrk, sem héraðsrafmagnsveit- ur ríkisins hafa haft-þar um langt árabil með samþykki allra flokka. Fram tii þessa hefur sá háttur verið ágreiningslaust hafður á, að ríkissjóður greiddi verulegan hluta af halla rafmagnsveitna rík- isins, enda sýnist það í alla staði eðlilegt að rafvæðing dreifbýlisins sé studd af sameiginlegum sjóði landsmanna. Nú er því hins vegar haldið fram af þeim, sem gerzt mega um bera, að hagur ríkis- sjóðs sé orðinn slíkur undir stjórn núverandi ríkisstjórnar, þrátt fyr- ir gífurlega skattheimtuaukningu á yfirstandandi Alþingi, að leysa verði ríkissjóð undan þeirri fjár- hagsbyrði, sem hann hefur borið af þessum sökum. Það sem um- rædd lagasetning raunverulega fjallar um, er því almenn skatt- heimta af rafmagnsnotendum en í þágu ríkissjóðs. Það er haft uppi sem rök hjá þeim, sem lögunum mæla bót, að með þessari skatt- heimtu sé verið að hygla raforku- notendum í dreifbýlinu og efla rafvæðingu þar, og háttv. borgar- stjóri lagði áherzlu á þennan þátt hér áðan. Þetta er þó ekki svo, þar sem. orkunotkun í dreifbýlinu og þar á meðal rafmagnsveitna ríkisins er skattlögð með sama hætti og önnur orkunotkun. Hér hefur einnig verið talað um verð- jöfnun á rafmagni, en henni er þó engan veginn til að dreifa, því að öllum rafmagnsnotendum er gert að greiða jafnháan orku- skatt, þeim sem búa við hæsta raforkuverðið jafnt og öllum hin- um. Það sem hér um ræðir er því einfaldlega ekkert annað en það, að ríkissjóður er að velta af sér byrðum yfir á rafmagnsnotend uma. Ég tel að það sé mjög óheppileg aðferð að afla ríkistekn- anna með álagi á raforkuverð, því þar er um hreinan nefskatt að ræða, sem legst á heimilin með fullum þunga án tillits til þess hverjir möguleikar þeirra eru til að mæta þeim útgjöldum. Þetta er því einhver hinn almennasti af öllum sköttum og því af þeirri gerðinni sem núverandi fjármála- ráðherra varaði alveg sérstaklega við þegar hann settist í stólinn. Hann er því óheppilegur í sjálfu sér, og þegar af þeipri ástæðu til- efni til að mótmæla, honum. En auk þessara almennu sjónarmiða hefur svo þessi framkvæmd þann eiginleika að með honum er farið inn á svið sveitarfélaganna og möguleikar héraðsrafveitnanna mjög rýrðir, en flestar þeirra þurfa á eins háu raforkuverði að halda og framast er unnt að gera borgurunum að greiða. Þess vegna er eðlilegt aó rafveiturnar líti þessa breytingu Alþingis óhýru auga og hafa mótmæli borizt víða að. Má þar nefna rafveitumar á Akureyri, Hafnarfirði, Siglufirði og bæjarstjórn fsafjarðar, og e.t.'v. fleiri, sem ekki vilja una þessu aukaálagi mótmælalaust. En í Reykjavík gerist það hins vegar að sjálfur borgarstjórinn stígur fram til þess að þakka fyrir þessa sendingu. Hann um þá skoðun sína, en þetta þakkarávarp flytur hann áreiðanlega ekki í nafni hins almenna borgara. í stað þess að hneigja sig og kyssa á vöndinn væri sæmra að samþykkja mótmæli gegn þeirri ráðstöfun, sem hér um ræðir. Rafmagnsverð í Reykja- vík verður áreiðanlega nógu hátt þótt því sé hlíft við því að byrð- um ríkissjóðs sé ekki velt ofan á það. Ekki sízt verður sú raunin á hér, þegar haft er í huga að gróðasjónarmið íhaldsins hafa teygt loppu sína inn á. vettvang Landsvirkjunar, svo' sem ákveðið var með lögum frá s.l. Alþingi, en þá var sem kunnugt er feilt úr gildi það ákvæði Sogsvirkjunar- laganna að álagning hennar mátti ekki vera meira en 5% ofan á útreiknað kostnaðarverð og í stað inn sett ótakmörkuð heimild Lands virkj unars tj órnar til að ákveða raforkuvérðið í heildsölu, að vísu með samþykki ráðherra svo sem er með allar gjaldskrár þessarar tegundar. Af því, sem fram kom í máli háttv. borgarstjóra hér áðan fannst mér augljóst að við erum að verulegu leyti sammála um þessi efni. Ég tók svo eftir að hann sagði að hann hefði samúð með því að stuðningur við raf- orkuframkvæmdir í dreifbýli komi úr ríkissjóði, en U því nefndar áliti sem hann vitnaði í og ég hef undirritað er einmitt gert ráð fyrir þessu og meira að segja í ríkara mæli en gert hefur verið fram að umræddri breytingu. Sam kvæmt mínu áliti á ríkið að halda áfram að inna af hendi þann stuðning sem ég tel sjálfsagðan og borgarstjóri hefur samúð með, en leiðin til þess er ekki að velta byrðunum yfir á aðra og ganga á þann hátt inn á verksvið sveitar- félaganna. Ég vil enn vona að háttv. borgarstjóri átti sig á þess- ari hugsanavillu sinni og snúi sér að því að gæta hagsmuna borg- aranna eins og honum ber stöðu sinni samkvæmt gagnvart ásælnu og óprúttnu ríkisvaldi. í áðurgreindu nefndaráliti dags. 14. f.m. sem ég gaf út á Alþingi ásamt Skúla Guðmundssyni og hér hefur verið gert að umtalsefni er sagt, að sá verðmunur, sem er á rafmagni á hinum ýmsu stöðum á landinu, eigi að hverfa. Allir landsmenn eigi að njóta sömu við- skiptakjara hjá rafmagnsverzlun ríkisins. Og við kveðum svo fast að orði að þetta sé réttlætismál. Ég bið engrar afsökunar á því, sem í þessu nefndaráliti segir og fagna því að borgarstjóri les upp úr því hér á borgarstjórnarfundi. En sá hluti þess, sem fjallar um verðjöfnun snertir ekki það mál, sem hér um ræðir, vegna þess að engin verðjöfnunarákvæði er í lögunum að finna, gjaldið kemur jafnt á allt rafmagn. Þær upp- lýsingar, sem borgarstjóri var að fala hjá mér snerta því ekki þetta mál. Sé ég því enga ástæðu til þess að tefja tíma þessa fundar með frekari umræðum um þetta atriði. En ég get vel athugað að koma umbeðnum upplýsingum til borgarstjóra síðar, ekki sízt ef það gæti hjálpað honum til að átta sig betur á þessu máli, en á þvi tel ég óneitanlega þörf þar sem hann lýsti því hér yfir áðan að hann væri algjörlega andvígur allri verðjöfnun, heldur verði all- ir að búa við þau skilyrði til þeirra hluta, sem fyrir hendi eru hjálparlaust. Mun ég athuga þetta síðar, því óneitanlega vil ég tals- vert á mig leggja ef verða mætti til þess að fá svo góðan liðsmann við rafmagnsmálið eins og hátt- virtan borgarstjóra. En það vil ég segja, að ef menn á annað borð meina eitthvað með því tali, sem gerist æ almennara, að byggð þurfi að dreifa um landið, þá koma vissulega rafmagnsmálin einna fyrst upp í hngann því. tómt mál er um að tala að fólk geri sér að góðu búsetu á þeim stöðum sem ekki bjóða upp- á þæg- indi rafmagnsins. Vegna ummæla Óskacs HaH- grímssonar hér áðan vil ég aðeáns segja þetta: Það er ekki rétt að rafmagns- notendur í dreifbýli eigi að búa við bætt kjör hvað verð snertir, eftir þá lagabreytingu, sem gerð var hinn 17. des. s.l. Þar er ekki um neina nýja aðstoð við þá að ræða heldur aðeins það, að aðstoð sem áður var veitt samkvæmt fjár lögum er nú tekin af rafmagns- notendum sjálfum, þar með því fólki, sem nú býr við hæsta raf- orkuverðið. Þess vegna verka lög- in til hækkunar á rafmagnsverði þessa fólks en ekki lækkunar og allt tal borgarfulltrúans um þetta efni því úr lausu lofti gripið. Þetta veit jafnglöggur maður og Ó.H. auðvitað mæta vel, þótt hann telji sér ekki fært af öðrum ástæð- um að vera með tillögu okkar bftr. Framsfl., sem mótmæli þess- um flutningi byrðanna af ríkis- sjóði yfir á hinn almenna neyt- anda. Ég hef þá gert grein fyrir þess- um tveim tillögum, er við flytjum borgarfulltrúar Framsóknarfl. og skal ekki fjölyrða frekar um þær. Áður en ég fer héðan úr ræðu- stólnum langar mig til þess að víkja örfáum orðum að tillögu frá bfh. Óskari Hallgrímssypi. Tillag- an byrjar á því að lýsa því yfir, að Borgarstjórn Reykjavíkur sé ljóst gildi þess að fylgt sé fyrir- framgerðum áætlunum um allar meiri háttar framkvæmdir borgar- iniiar og stofnana hennar. Þetta hljótum við allir að taka undir svo augljóst og sjálfsagt sem þetta er. Þó er það staðreynd, sem er okkur hér til vansa, að mörg und- anfarin ár hafa sams konar tillög- ur verið bornar fram hér í borg- astjórn, eins og t.d. af K.B. i fyrra, án þess að þær hafi verið samþykktar og án þess að nokkuð hafi komið fram sem geri slíka samþykkt óþarfa. Auðvitað þarf að vera fyrir hendi framkvæmda- áætlun, sem taki til allra meiri háttar framkvæmda á vegum borg arinnar og stofnana hennar svo sem fbúðabygginga, byggingar skóla, dag- og vistheimila, leik- skóla og leikvalla, útivistarsvæða, gatnagerðar, hafnargerðar, raf-, vatns- og varmavirkjana og fram- kvæmda vegna skipulags, eins og tillagan segir. Heildarsýn yfir all- ar framkvæmdir borgarinnar er auðvitað algjör nauðsyn, sem ekki þarf um að deila. Slíkar áætlan- ir eru auðvitað sjálfsagðar og skylt að fara eftir þeim eftir því, sem frekast er kostur, og algjör óskapnaður að viðhafa annan hátt. Þess vegna er ég því sammála, sem tillagan fjallar um, og myndi ekki hafa talið ástæðu til að gera hana að umtalsefni af því einu. En einu atriði tillögunnar er ég ekki sammála og skal ég víkja að því. Ég tel hæpið, þrátt fyrir augljósa þörf framkvænidaáætlun- ar, að sú borgarstjórn er nú situr og aðeins á eftir nokkra mánuði af kjörtímabilinu, fari nú að gera áætlun, sem gildi í næstu 4 ár, eða því sem næst allt kjörtíma bil næstu borgarstjórnar. Varhuga vert er að binda hendur næstu borg arstjórnar á þennan hátt og skýt því fram til athugunar hvort ekki megi í staðinn samþykkja almenns skyldu borgarstjómar til að geri framkvæmdaáætlun t. d. í upphaf hvers kjörtímabils. HÚSNÆÐI 70 ferm. húsnæði á jarðhæð til leigu, hentugt fyrir skrifstofur, læknastofur, snyrtistofu eða léttan iðnað. Tilboð sendist Tímanum, merkt „Húsnæði'. Búnaðarfélag Islands óskar eftir að ráða stúlku til skrifstofustarfa, þarf að vera vön vélritun og íslenzku, ensku og skandi- naviskum málum. Ráðning hálfan daginn getur I komið til greina. Upplýsingar á skrifstofu Búnað- arfélags íslands, Bændahöllinni, sími 19 200.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.