Vísir - 02.03.1974, Page 16
Vísir. Laugardagur 2. marz 1974.
16
l! DAG | B KVÖLD | □ □AG | □ KVÖ L □ □AG |
„The Beatles” — John Lennon, Ringo Starr, Paul MacCartney og George Harrison — frægöarferill þeirra veröur rifjaöur upp í „Ugla
sat á kvisti” i kvöld.
Sjónvarp, laugardag, klukkan 20.50:
Bítlaœðið rífíað upp
„Bitla æöiö” svokallaða
verður tekið fyrir i skemmti-
þættinum „Ugla sat á kvisti” i
kvöld.
Undanfarnir þættir Jónasar
R. Jónssonar hafa verið
helgaðir liðnum sveiflum á sviði
dægurtónlistar. Þættir hafa
verið gerðir um dixieland-
sveifluna og rokkið, og nú taka
Beatles við.
Jónas og félagar hans ætla að
rifja upp minningar frá liðnum
áratug, 1962-1970, en það var
einmitt i kringum 1962, sem
flokkur ungra og hárprúðra
manna kom fyrst fram i Liver-
pool i Bretlandi og kallaöi sig
„The Beatles”.
Á sinum tima fannst fólki allt
látæði, framkoma, klæðaburður
og tónlistarstefna þeirra hin
hneykslanlegasta, en unglingar,
einkum tilfinninganæmar
fermingarstúlkur, féllu i yfirlið,
þegar goðin, Lennon, Ringo
Starr, Georgé Harrison og Paul
MacCartney létu sjá sig á al-
mannafæri með yfirlætislegt fas
og fjarrænt blik i augum.
í „Ugla sat á kvisti” verða
þeir sýndir i sinni upprunalegu
mynd, Bitlarnir gömu. og svo fá
islenzkir fylgjendur þeirra og
aðdáendur að fljóta með:
Flowers, óðmenn, Hljómar,
Stormar og Náttúra.
-GG
Sjónvarp, sunnudag,
klukkan 16.30:
Drykkju-
konan Edna
Hún Edna, enska drykkju-
konan, og flækingurinn, sem
mynd Jeremy Sandford fjallar
um, mun væntanlega vinna sér
sess i hugum islenzkra sjón-
varpsáhorfenda, þvi nú er veriö
aö sýna myndina i annaö sinn.
Margur mun hafa séö hana i
janúar, þegar þessi mynd um
ðtótiegt iiferni drykkjukon-
unnar og flækingsins var á dag-
skrá, og hann varö lika eftir-
minnilegur, umræöuþátturinn
um áfengismál og málefni
drykkjusjúkra, sem sjónvarpaö
var á eftir myndinni þann 28.
janúar sl. En Edna kemur á
skjáinn aftur á morgun klukkan
hálffimm.
-GG
W
Utvarp, laugardag,
klukkan 19.40:
„Sköllótti
maðurinn"
„Sköilótti maðurinn heitir
smásaga eftir þann danska
Benny Andersen. Rúrik
Haraldsson les hana i útvarpið
siðdegis 1 dag.
Benny Andersen var einmitt á
ferð hér á tslandi um daginn.
Hann kom fram i Norræna
húsinu og las ljóö eftir sjálfan
sig og aðra danska höfunda —
og að sögn vakti flutningur hans
mikla athygli, m.a. var honum
útvarpaö I þættinum „A i
hljóðba-gi”.
Benny Andersen telst til
yngri skáldakynslóðar i Dan-
mörku og hefur verið atorku-
samur á ritvellinum.
Anna Maria Þórisdóttir þýddi
söguna — sem er sennilega full
af dönskum húmor.
- GG
Sjónvarp,
laugardag,
klukkan 20.25:
Syngjandi
fjölskylda
Sú söngelska fjölskylda,
Partridge kemur á skjáinn I
kvöid sem aöra laugardaga.
Myndin er af móðurinni, frú
Partridge.
Útvarp,
laugardag,
klukkan 16.15:
Viðtal við
Carpenters
„Ég tók viötal viö systkinin
tvö, sem kaila sig Carpenters.
Ég hitti þau úti I Kaupmanna-
höfn um daginn, og I dag veröur
viðtaiið flutt,” sagði örn Peter-
sen, umsjónarmaöur þáttarins
„10 á toppnum”, en þessi
vinsældalista-þáttur veröur aö
venju fluttur siödegis I dag.
Orn var I Kaupmannahöfn og
hitti þar þau merku systkin,
Richard Carpenter og Karen
Carpenter, sem nú hafa um tiu
ára skeiö haldiö umtalsveröum
vinsældum meðal bandariskra
og evrópskra poppara.
Yfirleitt leikur örn lögin á
vinsældalistanum og lætur þar
við sitja, en nú bregður hann út
af venjunni, og hann reiknar
meö þvi, að hann reyni að hafa
fleiri viðtöl við merka poppara
á næstunni.
SJÚNVARP •
Laugardagu> 1
16.30 Jóga til heilsubótar
Bandariskur myndaflokkur
með kennslu i jógaæfingum.
Þýðandi og þulur Jón O. Ed-
wald.
17.00 iþróttir Umsjónarmaður
Ómar Ragnarsson.
19.15 Þingvikan
19.45 lllé
20.00 Fréttir
20.20 Veður og auglýsingar
20.25 Söngelska fjölskyldan
20.50 Ugla sat á kvisti „Bitla-
æðið”. 1 þessum' þætti eru
rifjaðar upp minningar frá
árunum 1962-70, en einmitt á
þeim árum kom fram i Eng-
landi hljómsveitin The
Beatles.eða „Bitlarnir”, og
verður hér fjallað um áhrif
þeirra á islenskt músiklif á
þessum tima.
Umsjónarmaður Jónas R.
Jónsson.
21.35 Keikistjörnurnar Banda-
risk fræðslumynd um
stjörnufræði og vaxandi
þekkingu manna á reiki-
stjörnum þeim, sem næstar
eru jörðu. Þýðandi og þulur
Guðrún Jörundsdóttir.
22.05 Frið þeim, sem inn
gengur Sovésk biómynd.
Þýðandi Lena Bergmann.
Myndin gerist i Þýskalandi
á siðasta degi heims-
styrjaldarinnar siðari og
lýsir hörmungum striðsins
og samskiptum einstaklinga
úr hinum striðandi herjum.
23.30 Dagskrárlok
IÍTVARP •
Laugardagur
12.00 Dagskráin. Tónleikar
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Óskalög sjúklinga
Kristin Sveinbjörnsdóttir
kynnir.
15.00 íslenskt mál.Jón Aðal-
steinn Jónsson cand mag.
talar.
15.20 Framhaldsleikrit barna
og unglinga:
15.50 Barnalög.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir. TIu á
toppnum. örn Petersen sér
um dægurlagaþátt.
17.20 Framburðarkennsla I
þýsku.
17.30 Tónleikar.
17.50 Frá Bretlandi. Agúst
Guðmundsson talar.
18.15 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 Fréttaspegill.
19.40 „Sköllótti maðurinn”,
smásaga eftir Benny And-
ersen. Anna Maria
Þórisdóttir islenskaði.
Rúrik Haraldsson leikari
les.
19.55 Frá útvarpinu i israel.
Sinfóniuhljómsveitin i Isra-
el leikur; Ezra Rachlin stj.
a. „ítalska stúlkan i
Algier”, forleikur eftir
Rossini. b. Pavane eftir
Faure.' c. Galanta-dansar
eftir Kodály.
20.25 Framhaldsleikritið:
„Sherlock Holmes”eftir Sir
Arthur Conan Doyle og
Michael Hardwick (áður
útv. 1963) Tiundi þáttur:
Skollafótur. Þýðandi
Brynjólfur Ingvarsson.
Leikstjóri: Flosi Ólafsson.
Persónur og leikendur:
Holmes: Baldvin Halldórs-
son, WatsonjRúrik Haralds-
son, Porter:Hildur Kalman,
Tregennis:Ævar R. Kvaran,
Roundhay.-Haraldur Björns-
son, Sterndale:Róbert Arn-
finnsson.
21.15 Illjómplöturabb. Þor-
steinn Hannesson bregður
plötum á fóninn.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir, Lestur
Passiusálma (18).
22.25 Dansiög.
23.55 Fréttir i stuttu máli.
I