Tíminn - 14.01.1966, Blaðsíða 3

Tíminn - 14.01.1966, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 14. janúar 1966 TÍMINN f SPEGLITÍMANS Hér sjáum við Ginu Lollo- brigidu í nokkuð óvenjulegu hlutverki — hún er sem sagt að taka ljósmyndir sjálf — og Tony Curtis, sem hefur kynnt sér listasögu og laert að mála í nokkur ár, langaði til að fara í lista- skóla. Hann fann sér góðan kennara, og sagðist langa til þess að koma í skólann og vonaðist til þess að hann þekkt ist ekki. Kennarinn fullvissaði hann um það að honum yrði ekki veitt nein athygli. Það voru aðeins fimm aðrir nem- endur í bekknum og svo fyrir sætan, svo Tony setti upp mál- aragrindina og byrjaði að mála. Hinir málararnir litu á hann, en eftir fimm mínútur tók fyr- irsætan eftir honum, stóð upp og spurði: Get ég fengið eig- inhandaráritun þína Tony? Allir hrópuðu upp, og þetta var endirinn á skólagöngu Tonys í það sinn. þó. Hún er þarna i hlutverki tízkuljósmyndara í kvikmynd- inni „Sultan,“ sem stjórnað er af Jean Delannoy. Fyrir nokkrum dögum siðan var frumsýnd í London nýjasta James Bond kvikmyndin, Thunderball, og það var eins og véra ber mikill fagnaður í kringum þessa frumsýningu. Það vakti mikla athygli þá, að það var ekki tekin ein einasta mynd af James með öllum þeim fegurðardísum, sem sí- fellt eru í kringum hann. Það kom þá í ljós, að þær vilja, alls ekki láta taka mynd af sér með honum, því þær segja, að hann sé svo vinsæll og aðlað- andi að hann steli myndinni jafnvel frá fegurstu konu. ★ Þegar The Beatles voru í Bandarikjunum hittu þeir Dean Martin. Dean ætlaði að leika svolítið á þá og kynnti sig fyrir þeim sem Perry Como. Bítlarnir létu sér hvergi bregða heilsuðu ósköp virðulega og aumingja Dean sat eftir með sárt ennið, því hann hafði ekki hugmynd um það, hvort þeir vissu hver hann var í raun og veru eða ekki ★ Margaret Bretaprinsessa og eiginmaður hennar Snowdon lávarður eru sífellt gagnrýnd fyrir mikla eyðslusemi og er skemmst að minnast þeirrar gagnrýni, sem upp kom eftir Ameríkuför þeirra, en sagt er að tuttugu daga ferð þeirra hafi kostað sem samsvarar ca. fjórum millj. ísl. króna. í tilefni þessa rifjuðust ýms- ar sögur af Margaretu og þá aðallega í sambandi við fram komu hennar við stóru systur Elízabetu, m. a. þessar. . Þegar Margarét var níu ára gerði hún hina þrettán ára gömul systur sína mjög reiða, þegar hún kastaði uppáhalds- hundinum hennar út í vatn. Síðan dró hún hann upp úr aftur og sagði eins og ekkert hefði í skorizt: Ég bjargaði lífi hans! Tuttugu og sex árum síðar kom svipað atvik fyrir. Marga- ret fór að læra á sjóskíðum á vatninu við Windsor kastala. Konungsfjölskyldan stóð og horfði á og gat ekki varizt brosi, þegar hún sá hæfni Margaretu, en hún var nú ekki sérlega mikil. Þegar Margareta var komin á þurrt land aftur, þreif hún uppáhaldshund Elíza- betar og kastaði honum í bræði - út í vatnið. Eitt sinn voru þær systur í sjóferð á HMS Vanguard og spurði þá Elízabet systur sína hvort hún vildi ekki dansa. „Stjórnaðu þínu heimsveldi, — ég stjórna sjálf mínu lífi.“ í nágrenni Frankfurt í Vest- ur-Þýzkalandi er nú hafinn und irbúningur að byggingu stór- kostlegs „ibúðar-turns,“ sem á að verða þrisvar sinnum hærri en núverandi hæsta bygging í heimi, Empire State Building í New York. Byggingin er teiknuð af Robert Gabriel, arki tekt í Vestur-Berlín, og sýnir myndin líkan af byggingunni, sem mun gnæfa um 1200 metra frá jörðu, 356 hæðir, en auk 7 þess verða 16 hæðir neðanjarð- ar. í byggingunni verða 8000 íbúðir (100 ferm. að stærð), og er áætlað að íbúar verði um 25 þúsund, og það verður kom ið fyrir vinnustofum, skrifstof- um, skólum, kirkjum, gæzlu- völlum, sjúkrastofum og veit- ingasölum, og þar verða einn- ig verzlanir, svo íbúarnir þurfa ekki að fara út í rigningu, storm, kulda eða snjó til að verzla. Þar verður einnig leik- hús, kvikmyndahús og stjón- varpsver. í byggingunni verða 72 lyftur, þar á meðal hrað- lyftur, sem stanza á 20 hæða millibili, og öll umferð við bygg ingu verður neðanjarðar. Talið er, að það muni taka 10 ár að fullgera hana og verð er áætlað um 625 millj. dollara. Fimmtíu ungir negrar á aldi inum 13 til 19 ára komu ný lega til Kastrup á leið til Stokkhólms, þar sem þeir ætla að vera í hálfan mánuð. Ferð þessa skipulagði sænsk kona flugfreyja af nafni Ingrid Kosl rubala, sem nú er gift þekki um sálfræðingi. Hún hefur kynnzt hinum slæmu aðstæð um og kjörum negrabarna og ungra svertingja i fátækrahveri um Chicago. Frú Kostrubala hefur nú með hjálp sænsks dag blaðs og eins af bandarísku t'lugfélögunum skipulagt dvöl þessara fimmtíu unglinga í Svíþjóð Hér á myndinni sjást svo unglingarnir þegar þeir komu til Kastrup. Á VÍÐAVANGI „Að fæðast tvítugur7' Fyrri leiðari Alþýðublaðsins í gær heitir þessu nafni og hefst svo: „Páll Sigurðsson, trygginga- yfirlæknir gagnrýndi harðlega seinagang í byggingu borgar- sjúkrahússins, er hann ræddi heilbrigðismál höfuðborgarinn ar í ræðu í fulltrúaráði Alþýðu flokksins í fyrrakvöld. Borgarsjúkrahúsið verður væntanlega teklð í notkun smám saman á þessu ári, tveim árum síðar en lofað var fyrir bæjarstjórnarkosningarnar ‘62 Hefur byggingin þá verið á annan áratug í smíðum. Páll sagði, að hið nýja sjúkra hús mundi að mörgu leyti verða vel úr garði gert. En það mun ekki verða samkvæmt nýj ustu kröfum og tækni, bætti Iæknirinn við. Það er ómögu- legt um sjúkrahús, sem var hugsað fyrir 20 árum“. Það er ánægjulegt, að til skuli vera málsvarar Alþýðu- flokksins, sem hafa uppi rétt mæta gagnrýni á íhaldsóstjórn ina í Reykjavík, þó að skemmti legra væri, að hún væri harðari á borgarstjórnarfundum en í fuUtrúaráði Alþýðuflokksins. Hér talar líka Iæknir, sem veit vel, hvað hann er að segja. Fjölgun í borgar- stjórn. Þá getur Alþýðublaðið þess einnig, að Óskar HaUgrímsson hafi hreyft því í fuUtrúaráði Alþýðuflokksins, að sjálfsagt væri að fjölga fuUtrúum í borg arstjórn, sem hafa verið 15 í marga áratugi, þótt borgin hafi vaxið upp úr öllum öðrum fötum og lög leyfi, að borgar- fulltrúar í Reykjavík séu 15— 27. Þetta er eðlileg tUlaga og henni hefur oft verið hreyft, en íhaldið stendur gegn henni, af því að það veit, að eins og nú er fellur meira af dauðum atkvæðum af listum minni- hlutaflokkanna við kosningar, heldur en ef fuUtrúar væru fleiri, og meirihluti íhaldsina er öruggari eins og nú er. En þessari tiUögu ætti Ósk ar að hreyfa í borgarstjórn. Það er sem sagt öUu æskilegar, að Oskar i borgarstjórn væri öllu skeleggari heldur en Óskar í fulltrúaráði Alþýðuflokksins. Þeim ferst f sjö ár hefur íhaldið sung ið þann söng í Mbl. að þegar vinstri stjórnin fór frá völdum í des. 1958 hafi verðbólgan ætt yfir landið, Iánstraust horf ið og sem sagt allt þjóðarbúið verið komið fram á hengiflug. Þetta fagnaðarerindi hefur Mbl. prentað upp eflaust 100 sinnum í leiðara sínum og staksteinum og síðan hefur VísL gólað með. En lítum nú á verðbólguna þá og nú í ársbyrjun 1966. — Raunverulegt meðalgengi pundsins var þá kr. 65 — fjár- lög ríkisins voru þá ca. 800 milljónir. Nú ræðir íhaldið ekki um hengiflug eða verðbólgu æði„ krónan sé verðlaus. En nvað hefur gerzt á þessum 7 árum! Kronan hefur rýrnað um helm ing er nú ki. 120 pundið. Fjár lög hafa fimmfaldazt eru nú 4000 milljónir. Þó er vegaféð tekið út úr fjárlögum. Verð á íbúðum hefur FJÓRFALDAZT. Moggi segir stjórnina standa vörð um krónuna, ekki kann ast Sparifjáreigendur við þá Framhald á 14. síðu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.