Vísir - 23.03.1974, Qupperneq 3
Visir. Laugardagur 23. marz, 1974
3
Hvað segja forustumenn-
irnir um samningsdrögin?
„Þessi samkomulagsgrund-
völlur er I tveim meginatriðum.
í fyrsta lagi að varnarliðið fari f
áföngum á tveim árum og i
öðru lagi að Atlantshafsbanda-
lagi'nu verði séð fyrir aðstöðu
hér til að það geti haldið áfram
eftirliti sinu héðan”.
Þetta sagði Einar Agústsson
utanrikisráðherra i viðtali við
Visi að loknum fundi i utan-
rikismálanefnd Alþingis i gær.
En þar voru þau samningsdrög,
sem rikisstjórnin hefur
samþykkt i varnarmálum,
kynnt fyrir nefndarmönnum.
(Sjá frásögn um samnings-
drögin á forsiðu)
Einar Ágústsson sagði, að
þessi mál yrðu að lokum lögð
fyrir Alþingi til afgreiðslu
Spurður hvorthann teldi, að þau
yrðu samþykkt þar, sagðist
hann vona það og sér væri ekki
kunnugt um neina stjórnarþing-
menn, sem væru á móti til-
lögunum.
Einar Ágústsson: Verður að
lokum lagt fyrir Alþingi
Geir H a 11 g r i m s s o n :
Ófullnægjandi og ábyrgðarlaust
Geir Hallgrímsson
„Við teljum, að drög þau að
umræðugrundvelli um endur-
skoðun varnarsamnings
íslands og Bandarikjanna, sem
rikisstjórnin hefur samþykkt,
séu allsendis ófullnægjandi og
ábyrgðarlaus”, sagði Geir Hall-
grlmsson, þegar Visir leitaði-
álits hans að loknum fundi utan-
rikisnefndar Alþingis i gær. A
fundinum lagði Geir fram bókun
fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins,
þar sem umræðugrundvellinum
er mótmælt.
1 bókuninni segir, að fyrir-
komulagið, sem umræðugrund-
völlurinn gerir ráð fyrir, tryggi
engan veginn öryggi Islands.
Varnir landsins verði engar og
ekki verði unnt að fylgjast með
þvi, hverjir fara um næsta ná-
grenni þess. Þá taki tsland ekki
lengur þátt i eftirlits- og friðar-
gæzluhlutverki NATO, sem
tryggt hefur frið i okkar heims-
hluta um nær 30 ára skeið.
„Við sjálfstæðismenn gagn-
rýnum einnig alla málsmeð-
ferðina”, sagði Geir Hallgrims-
son. „Ekki var kosið um varnar-
og öryggismálin i siðustu kosn-
ingum, og nú sýnist rikisstjórn-
in ætla að taka örlagarikar á-
kvarðanir, þegar liður að lokum
kjörtimabils. En full ástæða er
til að ætla, að ekki sé þingfylgi
fyrir tillögum rikisstjórnarinn-
ar. Þá hafa 55.522 tslendingar,
eða meirihluti þeirra, sem
greiddu atkvæði i siðustu kosn-
ingum, beint áskorun til Alþing-
is og rikisstjórnar, sem er and-
stæð tillögum stjórnarinnar”.
Geir sagði, að sjálfstæðis-
menn teldu eðlilegt, að meira
samráð hefði verið haft við
NATO, nágrannariki og gagn-
aðilann, þótt Islendingar hefðu
að sjálfsögðu siðasta orðið.
Hann sagðist að lokum hafa lagt
fram til bókunar þá sjö punkta,
sem hann hefur kynnt sem á-
kjósanlega stefnu i öryggismál-
unum.
Magnús Kjartansson
,,Ég tel þetta mjög mikils-
verðan atburð og nú er náð
þeim áfanga, sem lofað var I
málefnasamningi rikis-
stjórnarinnar, það er að stefnt
skyldi að brottför hersins á
kjörtimabilinu”, sagði Magnús
Kjartansson iðnaðarráðherra.
Gylfi Þ. Gtslason: Meirihluti
þjóðarinnar er á móti þessu.
„Að visu féllumst við Alþýðu-
bandalagsmenn á, til sam-
komulags, að brottför hersins
drægist eitt ár fram yfir lok
kjörtimabilsins, en við þvi mátti
alltaf búast, þar sem ekki náðist
skilyrðislaus ákvörðun um
brottför hersins við upphaf
stjórnarsamstarfs núverandi
stjórnarflokka.
Magnús benti einnig á, að
Alþýðubandalagið hefði orðið
að sætta sig við, að ekki skyldi
stefnt að úrsögn úr Atlantshafs-
bandalaginu — sem væri þó eitt
af stefnumálum þess.
Þó hefði verið ákveðið, að
aðildin yrði bundin skilyrðinu
frá 1949 um að hér væri ekki her
á friðartimum.
Aðspurður vegna yfirlýsingar
Jóns Skaptasonar, alþingis-
Magnús Kjartansson: Anægju-
legur áfangi i uppfyllingu mál-
efnasamningsins
manns Framsóknarflokksins
um að hann væri ekki sam-
þykkur þessum samnings-
drögum, sagði, -iðnaðarráð-
herra:
„Allir þingmenn stjórnar-
flokkanna gengust undir það við
upphaf stjórnarsamstarfsins að
fylgja málefnasamningnum. Ég
trúi þvi ekki og hef ekki neina
ástæðu til að ætla að neinn þing-
maður bregðist þvtheiti og tel
það raunar drengskaparskyldu
þeirra að standa við þau fyrir-
heit, sem þeir gáfu þá”.
Gylfi Þ. Gíslason
„Ég harma það mjög, að
rikisstjórnin skuli hafa orðið
sammála um þau sjónarmið,
sem móta umræðugrundvöll-
inn”, sagði Gylfi Þ. Gislason
formaður Alþýðuflokksins.
Hann sagði, að i_peim væri
hvorki,ga?tt öryggis tslendinga
sjálfra éða nágrannaþjóða
okkar. , **
„Ég er sannfærður um, að
mikill meirihluti þjóðarinnar er
á móti þessum tillögum”,
sagði Gylfi ennfremur.
„Eitt er þó merkilegt i
þessum tillögum rikisstjórnar-
innar, að ekki er gert ráð fyrir
uppsögn varnarsamningsins,
heldur verði gerður nýr
samningur á grundvelli hans.
Þetta er meira en trúað hefði
verið að ráðherrar Alþýðú-
bandalagsins mundu sam-
þykkja að óreyndu.
Varnarsamningurinn gildir
þvi áfram, þótt það sé sett á
blað, að varnarliðið fari, en úr
þvi verður vafalaust ekki”.
ÓG/BB
Varnarmóladeild lögð niður
— málefni Keflavíkurflugvallar falin öðrum ráðuneytum
Þjóðhðtiðarnefnd Akureyrar og
Eyjafjarðarsýslu hefur látið
gera sérstakt héraðsmerki I
tilefni þjóðhátiðarinnar, sem
notað verður við ýmis tækifæri.
Merkið táknar siglingu Helga
magra inn Eyjafjörð. Kornaxið
á skildinum táknar Akureyri.
Fjallið Súlur eru tákn Eyja-
fjarðarsýslu. Seglið, stafsegl,
táknar 1100 ár frá upphafi
byggðar á islandi.
ÞJÓÐ-
HÁTÍÐ
í KJARNA-
SKÓGI!
- Þjóðhátíðarnefnd
Akureyrar og
Eyjafjarðarsýslu
undirbýr hátíð
20. - 21. júlí
Þeir á Akureyri og i Eyja-
fjarðarsýslu hafð nú ákveðið, að
aðalþjóðhátiðarhald þeirra fari
fram i Kjarnaskógi helgina 20-21.
júli I sumar, eða einni viku áður
en landshátiðin verður að Þing-
völlum. Er unnið að undirbúningi
af fullum krafti.
Skógræktarmenn lögðust ekki
gegn þvi, að hátiðin yrði haldin á
skógræktarsvæðinu i Kjarna-
landi, en það er alveg við Akur-
eyri og i eigu bæjarins. Hefur
bæjarstjórn samþykkt aðleggja i
nauðsynlegan kostnað við
frágang á skógræktarsvæðinu
sem fólkvangi, svo unnt verði að
halda hátiðina þar. A fjárhags-
áætlun þessa árs voru áætlaðar 7
milljónir til framkvæmda á
svæðinu.
Þjóðhátiðarnefndir Akureyrar
og Eyjafjarðarsýslu hafa látið
gera sérstakt héraðsmerki I
tilefni þjóðhátiðarinnar. Verður
það m.a. notað á sérstaka þjóð-
hátiðarfána, en einnig ýmsa
minjagripi, sem ýmist er þegar
búið að gera eða unnið er að
framleiðslu á.
Um svipað leyti og aðalhátiðin
verður er reiknað með þvi, að
ýmsar listsýningar hefjist á
Akureyri og e.t.v. viðar um
héraðið. Einnig hefur verið rætt
um sýningar frá atvinnulifinu, en
enn er ekkert ákveðið i þeim
efnum.
Nefndarmenn hafa mikinn
áhuga á, að almenningur noti
þjóðhátiðarárið til gagngerrar
hreingerningar og útlitsfegrunar
eigna sinna, svo og að hvetja til
fegrunar landsins. Þá hafa þeir
stungið upp á að almenningur
komi upp fánastöngum við hús sin
og að islenzki fáninn verði meira
notaður en gert hefur verið.
—EA/AE
,,Ríkisstjórnin hefur
ákveðið, að málefni
Keflavikurvallar verði
meðhöndluð eins og
mál annarra svæða á
íslandi,” sagði Magnús
Kjartansson iðnaðar-
ráðherra i viðtali við
Visi i gærkvöldi.
verði þeirri skipan, sem hingað
til hefur gilt, að öll málefni
Keflavikurflugvallarsvæðisins
heyri undir varnarmáladeild ut-
anrikisráðuneytisins, en ekki
undir viðkomandi ráðuneyti,
sem fara með hina ýmsu mála-
flokka,” sagði Magnús Kjárt-
ansson ennfremur.
Þá mundu til dæmis sam-
göngumál á Keflavikurvelli
heyra undir samgönguráðu-
neytið og iðnaðarmál undir iön-
aðarráðuneytið. — ÓG
„Það er að segja, að hætt
Keflavíkursjónvarpinu lokað á
miðju nœsta árí
— ákvörðun ríkisstjórnarinnar
— takmarkast við völlinn strax
Keflavikursjónvarpinu verð-
ur algjörlega lokað á miðju
næsta sumri, þegar hclmingur
bandarisku hermannanna verð-
ur farinn — ef fer eftir þeim
samkomulagsdrögum, sem
rikisstjórnin ætlar að leggja
fyrir Bandarikjastjórn.
„Kikisstjórnin tók þessa á-
kvörðun jafnhliða sfðustu á-
kvörðunum i varnarntálum og
ákvað þá einnig, aö sjónvarpið
verði strax algjörlega takmark-
að viö Keflavlkurflugvöll,"
sagði Magnús Kjartansson. iðn-
aðarráöherra i viðtali við Visi i
gærkvöldi. —ÓG