Vísir - 23.03.1974, Síða 16
16
Visir. Laugardagur 23. marz, 1974
| í DAG | í KVÖLD | í DAB | í KVÖLD | í DAG
Sjónvarp, laugardag, klukkan 22.00:
Ást við fyrstu sýn
„Ast viö fyrstu sýn”kalla þeir
hjá sjónvarpinu Hollywood-
myndina, sem þeirsýna i kvöld.
Hún heitir reyndar „The Picn-
ic” á ameriskunni, eöa
„Skemmtiferðin”, og segir þar
frá pilti einum, sem kemur að-
fluttur til smábæjar. Þar vekur
hann almenna aðdáun manna,
en einkum þó kvenna.
Og strákur hlýtur að una sér
vel við athygli kvenpeningsins i
þorpinu, þvi leikkonurnar, sem
William Holden fær á móti sér,
eru ekki af lakara tagi, hvar
sem á þær er litið. Kim Novak
leikur eitt aöalkvenhlutverkið
en sú gamla Rosalind Russell
hitt.
Myndin var gerð árið 1955, og
var Joshua Logan leikstjóri —
og meira vitum við raunar ekki
um væntanlega kvöldskemmtun
— en þar sem likur eru á, að
þeim fari að fækka myndunum,
sem Rosalind Russell lék i og
enn fást sýndar, þá er rétt að
rifja upp minningar pabba og
mömmu og afa og ömmu um
þessa frægu leikkonu.
Hún fæddist 1912 i New York
og nam leiklist þar.
Eins og fleiri ameriskir leik-
arar brauzt hún á framavegi
lengi vel með þvi að leika i revi-
um og ferðaleikhúsum, þar til
þeir i Hollywood „uppgötvuðu”
fegurð hennar og hæfileika.
Segir sagan, að þeir hjá Uni-
versal kvikmyndafyrirtækinu
hafi orðið að borga farmiða
Rosalind Russell til kvikmynda-
borgarinnar, svo þeir gætu
komið sinum fégirugu krumlum
nærri henni.
Og siðan, þegar til Hollywood
kom, tók við langvarandi film-
stjörnuferill, og hún lék i hverri
myndinni á fætur annarri allt
fram til okkar tima, þvi þjóð-
sagan segir, að Rosalind Russ-
ell ætli sér að bitast og berjast
um i kvikmyndaiðnaðinum, þar
til þeir skenki henni Óskars-
verðlaun, en þau hefur hún enn
ekki hlotið.
Siðasta myndin, sem við höfð-
um spurnir af, að Russell léki i,
var gerð 1970 og heitir „The Un-
exspected Mrs. Pollifax”.
En i kvöld er það „Picnic”
eða „Ást við fyrstu sýn”, eins og
hún kallast hér og nú, en i þeirri
mynd leikur Rosalind Russell
gamla, pipraða frænku — vænt-
anlega frænku Kim Novak.
—GG
Sjónvarp, laugardag, klukkan 20.50:
BÍÓ, HÚS OG MÁLVERK
Vaka— listaþáttur sjónvarps-
ins — er á dagskrá i kvöld.
Andrés Indriðason dagskrár-
maður fræddi okkur á innihaldi
þáttarins i kvöld:
Þ'eir Erlendur Sveinsson og
Sigurður Sverrir Pálsson
fjalla i sameiningu um franskar
myndir, sem sýndar verða á
franskri kvikmyndaviku i
Háskólabiói á næstunni. Sýnd
verða atriði úr tveimur þessara
mynda.
Guðrún Jónsdóttir arkitekt
ætlar að fjalla um breytingar á
húsum og samræmi i þeim.
Munu verða sýnd dæmi um hús i
Reykjavik, sem breytt hefur
verið með viðbyggingum og
sýnt fram á samræmi eða
ósamræmi
ólafur Kvaranmun fjalla um
tvær málverkasýningar, sem nú
eru að Kjarvalsstöðum. Þeir
sýna þar málararnir Veturliði
Gunnarsson og Hafsteinn Aust-
mann. Munu málararnir sjálfir
fjalla um verk sin og viðhorf.
Vaka stendur i fjörutiu
minútur i kvöld —GG
• Guðinundur Daníelsson eins
og. tciknarinn sýnir hann á
mynd, er birtist I nýjustu bók
rithöfundarins, ..Vefarar
‘ keisarans” — sú bók fjaliarV
um kúnstugt málaþras f
Guömundar vegna húsbygg- 1
ingar og blabstjórnarmála. \
Útvarp, laugardag, klukkan 19.40:
„Víso Hadríans..." og saga Guðmundar
„Visa Hadrians keisara”
heitir smásaga eftir Guðmund
Danielsson rithöfund, sem Ið-
unn, dóttir höfundarins, les i út-
varpið i kvöld.
Söguna skrifaði Guðmundur i
júli 1945, þegar hann var i New
York.
„Sagan fjallar nú ekki ein-
vörðungu um þessa visu keisar-
ans”, sagði Guðmundur, er við
ræddum viö hann um söguna og
sitthvað fleira, „en ég spurði
Stein Steinarr eitt sinn að þvi,
hvað þyrfti til að verða skáld.
Og hann svaraði: Læra latinu og
læra visu Hadrians keisara.
Nú, sagan fjallar um það,
þegar skordýr eitt útlent og of-
boðslega stórt finnst á vél á
Eyrarbakka. Ég fæ svo þetta
skordýr á heilann og æði milli
visindamanna og vil fá að vita,
hvað dýrið á að heita.
Sagan ber þess nokkur merki,
að hún er skrifuð i Ameriku —
en annars er það um hana að
segja, að hún fjallar um eftir-
sókn eftir vindi — eða það sem
gerist, þegar menn blekkja
sjálfa sig og fara að lifa eftir
lifsblekkingunni”.
Guðmundur Danielsson hefur
skrifað margar smásögur um
ævina og hefur m.a. gefið út
þrjú smásagnasöfn. Eitt þeirra
er „Vængjaðir hestar”, og er
„Visa Hadrians keisara” i
þeirri bók.
„Já, ég var i New York 1945.
Ég fékk styrk frá islenzka rik-
inu til að vera eitthvað i útlönd-
um. Ég valdi Bandarikin og var
þar i sex mánuði. Þá var strið-
inu varla lokið, þannig að ég
var i New York á sigurdaginn —
þegar Amerikanar fögnuðu
sigri yfir Japönum.
Ég held ég hafi verið mánuð i
New York. Sótti þar m.a.
enskutima hjá manni. Við lás-
um saman dagblöðin, og þar las
ég t.d. um það, þegar Amerik-
anar köstuðu kjarnorku-
. sprengju á Japan. Þá voru
menn ákaflega hræddir. Menn
óttuðust jafnvel, að nú yrði
keðjusprenging um allan heim,
þvi tilraunir með kjarnorku-
sprengjur höfðu fáar verið gerð-
ar og fólk almennt vissi ekki
neitt um þetta fyrirbæri. En
Truman fyrirskipaði, að þessu
yrði varpað niður yfir Japan.
Nú — ég var svo i löngu ferða-
lagi um Bandarikin, keypti mér
þann lengsta farmiða með Grey
hound, sem þeir höfðu selt. Það
var opinn miði, sem flutti mig
um öll Bandarikin á eins löng-
um tima og ég vildi”.
En frá ferðalaginu segir ná-
kvæmlega i bók Guðmundar, ,,A
langferðaleiðum”, sem kom út
1948. —GG
SJÓNVARP •
Laugardagur
23. mars 1974
16.30 Jóga til heilsubótar
Þáttur með kennslu i jóga-
æfingum.
Þýðandi og þulur Jón O. Ed-
wald.
17.00 Þingvikan
Þáttur um störf Alþingis.
Umsjónarmenn Björn Teits-
son og Björn Þorsteinsson.
17.30 íþróttir
Meðal efnis verða innlendar
og erlendar iþróttafréttir og
mynd úr ensku knattspyrn-
unni.
Umsjónarmaður Ómar
Ragnarsson.
Hlé
20.00 Fréttir
20.20 Vcður og auglýsingar
20.25 Söngelska fjölskyldan
Bandariskur söngva- og
gamanmyndaflokkur.
Þýðandi Heba Júliusdóttir.
20.50 Vaka
Dagskrá um bókmenntir og
listir.
21.30 Kegnskógurinn
Fræðslumynd frá Time-Life
um vistfræðirannsóknir i
hitabeltisskógum Mið-
Amerikurikisins Panama.
Þýðandi og þulur Gisli Sig-
urkarlsson.
22.00 Ast við fyrstu sýn (The
Picnic)
Bandarisk biómynd frá ár-
inu 1955, byggð á leikriti
eftir William Inge.
Leikstjóri Joshua Logan.
Aðalhlutverk William
Holden, Kim Novak, Rosa-
lind Russel og Cliff Ro-
bertson.
Þýðandi Heba Júliusdóttir.
Aðalpersóna myndarinnar
er piltur, sem kemur i stutta
heimsókn til smábæjar, og
vekur strax athygli og aðdá-
un bæjarmanna og
kvenna.
23.40 Dagskiárlok
ÚTVARP •
Laugardagur
23. marz.
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7,00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.20
Fréttir kl. 7,30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.) 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Gisli J. Astþórsson
heldur áfram lestri sögu
sinnar „Isafold fer i sild”
(2). Morgunleikfimikl. 9.20.
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög á milli atr. Morgun-
kaffiðkl. 10.25: Páll Heiðar
Jónsson og gestir hans ræða
um útvarpsdagskrána. Auk
þess sagt frá veðri og
vegum.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Óskalög sjúklinga
Kristin Sveinbjörnsdóttir
kynnir.
14.30 iþróttir Umsjónar-
maður: Jón Asgeirsson.
15.00 islenzkt mál Ásgeir
Blöndal Magnússon
cand.mag. talar
15.20 Framhaldsleikrit barna
ogunglinga: „i sporunum,
þar sem grasið grær” eftir
Guðmund L. Friðfinnsson
Fimmti og siðasti þáttur.
Leikstjóri og sögumaður:
Steindór H jörleifsson.
Persónur og leikendur:
Jónsi, Éinar Sveinn Þórðar-
son. Stella, Hrafnhildur
Guðmundsdóttir. Þorleifur,*
Sigurður Karlsson. Hús-
freyja, Margrét ólafsdóttir.
Guðriður, Þórunn
Sveinsdóttir. Sigurjón, Jón
Hjartarson. Thompson,
Guðmundur Pálsson.
15.45 Barnalög
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir. Tiu á
toppnum örn Petersen sér
um dægurlagaþátt.
17.20 F’ramburðarkennsla i
þýzku
17.30 islandsmótið i körfu-
knattleik. Magnús Þ.
Þórðarson lýsir.
17.50 Frá Sviþjóð Sigmar B.
Hauksson talar.
18.10 Tónleikar. Til-
kynningar.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 Fréttaspegill
19.40 „Vísa Hadrians
keisara”, smásaga eftir
Guðmund Danielssonlðunn
Guðmundsdóttir les.
20.05 Hljómsveit Georges
Martins leikur létta tónlist.
20.35 F’ramhaldsleikritið:
„Hans hágöfgi” eftir Sigurð
Itóbertsson Annar þáttur:
21.1521.15 Hljómplöturabb
Þorsteinn Hannesson
bregður plötum á fóninn.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir Lestur
Passiusálma (36).
22.25 Útvarpsdans undir
góulok.