Vísir - 23.03.1974, Blaðsíða 20

Vísir - 23.03.1974, Blaðsíða 20
, Ég er á móti samn- ingsdrögunum" — segir Jón Skaptason þingmaðurFramsóknar sem mœtti ekki á fund utanríkismálanefndar þegar málið var kynntþar ,, Ég er ekki samþykkur þessum samningsdrögum eins og þau voru lögð fyrir okkur á fundi þing- flokks Framsóknar- flokksins á mánudag- inn/' sagði Jón Skaptason þingmaður í viðtali við Vísi í gærkvöldi. Jón vildi ekki segja neitt frek- ar um málið og heldur ekki, hvers vegna hann mætti ekki á fundi utanrikismálanefndar Alþingis, þegar samningsdrögin voru kynnt þar. Jón Skaptason hefði að réttu átt að mæta þar i stað Þórarins Þórarinssonar, sem er fjarver- andi erlendis. Jón Skaptason er fyrsti varamaður Framsóknar- flokksins i utanrikismálanefnd, en i stað hans mætti Steingrim- ur Hermannsson, annar vara- maður Framsóknar. Einn þingmaður stjórnar- flokkanna hefur þvi lýst yfir andstöðu við samningsdrög rik- isstjórnarinnar. Auk þess eru þeir Björn Fr. Björnsson og Björn Pálsson, þingmenn Framsóknarflokksins, sagðir andvigir málsmeðferð rikis- stjórnarinnar á málinu. Það er þvi meira en vafasamt, hvort þessar tillögur rikisstjórnarinn- ar ná fram að ganga, þegar og ef málið kemur til kasta Alþingis. — ÓG Velkomin í Undraland! n „Skemmtið ykkur. Verið vel- komin til Undralands," sungu þessir kátu krakkar hástöfum, er þeir óku um miðbæinn i gær í vagni, sem dreginn var af drátt- arvél. Þetta reyndust vera nemendur gamla menntaskól- ans, sem hér voru i gagngerri auglýsingaherferð fyrir „Herranótt”. Þeir auglýstu að- göngumiða til sölu á milli þess sem þeir sungu lög úr leikritinu, sem sýnt er á herranótt, „Lfsu i llndralandi”. Að sjálfsögðu dró þessi ferð krakkanna að sér mikla athygli, og þegar stuttur stanz var gerður á Hlemmtorgi, seldust margir miðar á tvær næstu sýningar, sem verða I Austurbæjarbiói, önnur I kvöld, hin annað kvöld. —ÞJM/Ljósm.Bj.Bj. Puðað við innheimtu á stöðumœlasektum VÍSIR I.augardagur 23. marz, 1974 Þingmaður Framsóknar og Þjóð- viljinn mœla með þingrofi Ingvar Gislason, þingmaður Framsóknarflokksins, telur eðlilegast, að flokkur hans hafi frumkvæði að ákvörðun um þingrof og nýjar kosningar strax i vor eða i september. Svipaðar skoðanir komu fram i gær i leiðara Þjóðviljans. Ingvar segir i blaðinu Degi á Akureyri: „Vegna hinnar veiktu aöstöðu er óvist, hvernig takast megi að koma fram nauðsynlegum þingmálum. Af þessum sökum má enginn láta sér koma á óvart, þótt alþingis- kosningar verði á þessu ári. Ég vil einnig segja það sem mina skoðun, að eðlilegast væri, að Framsóknarmenn hefðu frum- kvæði að þvi, að stjórnarflokk- arnir sameinuðust um ákvörðun um þingrof og kosningar, sem fram færu annaðhvort strax i vor eða i septembermánuði.” 1 forystugrein Þjóðviljans i fyrradag sagði, að umræður um skattamálin hefðu sýnt, að tæpast væri starfhæfur meiri- hlutiá Alþingi, meðan . þinginu væri skipt i tvær deildir. Þvi sé „alveg augljóst” að „eðli- legustu viðbrögðin” væru „að rjúfa þing og boða til nýrra al- þingiskosninga, þegar stjórnar- flokkarnir hefðu náð samstöðu um að efna fyrirheitiö um brott- för hersins”. Svo segir Þjóð- viljinn. —HH Loðnu- mjölið hrúgast upp — en horfir dapurlega í markaðsmólunum Nú munu vera um 50.000 tonn af loönumjöli og birgðum af óbræddri loönu i landinu. Enn er engin hreyfing á loðnu- sölumálum — markaðshorfur eru óvissar, og ræðst það ástand af ýmsu, en aðallega þó ansjósu- veiðum Perúmanna. t gær voru komin á land um 440 þúsund tonn af loðnu. Kringum 20.000 tonn þessa magns hafa far- iö i frystingu, en hitt allt i bræðslu. Sveinn Björnsson i viðskipta- ráðuneytinu áætlaði lauslega, að heildarmagn bræddrar loðnu og óbræddrar, sem á land væri kom- in, væri kringum 50.000 tonn. Af þessu magni voru 18.000 tonn seld fyrirfram. Sagði Sveinn, að mestum hluta þessa selda mjöls hefði verið skipað út — en „það horfir óneitanlega dapurlega aö vera með svo mikið magn óselt i landinu,” sagði Sveinn. —GG „Mál af þessu tagi hlaðast held- ur mikiö upp hjá okkur. Þess vegna eru allir fulltrúarnir hjá Sakadómi í þvi aö kalla menn fyrir vegna umferöarlagabrota til aö niöurstaða fáist,” sagði Hall- dór Þorbjörnsson yfirsakadómari við Sakadóm Reykjavikur f viö- tali viö Visi. Það sem veldur Sakadómi önn- um þessa daga, likt og aðra daga, eru umferðarlagabrot og þá sér- staklega stöðumælasektir. „Ég mundi ekki segja, að við værum með neina sérstaka her- ferð vegna stöðumælasekta. En þaö er mjög mikið um kærur vegna slikra brota á umferðar- lögunum. Það þarf talsverðan mannskap til að sinna þeim,” sagði Halldór ennfremur. Hann sagði, aðef dómssátt yrði I sikum málum, með þvi að við- komandi játaði sök sina og greiddi sekt, þá væri afbrotið skráð á sakaskrá. Halldór sagði, að það væri mis- munandi, hversu háar sektirnar væru, ef dómssátt yrði. Það kemur einnig oft fyrir, að bileigendur neita sök, og er þá tekin ákvörðun um, hvort höfða skuli mál á hendur honum. Oft er tekin ákvörðun um að höfða ekki mál, þar sem erfitt er að sanna nokkuð i málum sem þessum. Þó er það ekki óalgengt að mál sé höfðaö, þótt sannanir séu ekki fyrir hendi. „Það hrúgast upp hérna til- kynningar um umferðarlaga- brot,” sagði starfsmaður hjá sakaskrá rikisins i viðtali við VIsi. „Brot af þvi tagi eru langal- gengust innan veggja hér,” sagði hann. „Við strikum brotið svo út af sakaskrá viðkomandi þremur ár- um eftir að það er skráð. Þá er það fyrnt. En refsidómar standa hinsvegar ævilangt,” sagði starfsmaðurinn að lokum____óh. Hert að dópsölum I — eiga allt að 10 ára fangelsi á hœttu „Meiningin meö þessu er sú, aö þegar um meiriháttar brot er aö ræða.þá falliþaöbeint undir hegningarlögin. Og þaö, sem fellur undir hegningarlögin, er alltaf litiö alvarlegri augum en önnur lagabrot.” Þetta sagöi Arnar Guðmunds- son, fulltrúi i ávana- og fikniefnadómstólnum i viötali við Visi i gær. Hegningarlaganefnd hefur samiö frumvarp til laga, um að þeir, sem standi fyrir sölu eða dreifingu á ávana- og fikniefn- um til margra manna, gegn verulegu gjaldi, skuli sæta fangelsi allt að 10 árum. „Samkvæmt ópiumlögunum, þá varöar slikt brot mest allt að 6 ára fangelsi,” hélt Arnar áfram. „En ef þetta lagafrum- varp fer i gegn, þá þýðir veruleg dreifing eða sala á fikniefnum það, að viðkomandi getur hlotið allt að 10 ára fang- elsi.” Þaö á samt ekki að taka þannig eingöngu á sölu- og dreifingaraðilum. Þeir sem búa til, flytja inn, flytja út, kaupa, láta af hendi, taka við eða hafa i vörzlum sinum ávana- og fikni- efni i sama skyni — þ.e. mikil sala til margra — eiga sömu refsingu yfir höfði sér. Arnar sagði, að þessi hertu viðurlög ættu m.a. að virka letj- andi á menn að hætta sér út á þann hála is að standa fyrir sölu eða dreifingu ávana- og fikni- efna. Arnar sagði, að þar sem verið væri að semja nýtt lagafrum- varp um ávana- og fikniefni, mætti alveg eins búast við þvi, að efnum yrði bætt á listann, og þá ef til vill lækningaefnum. — ÓH

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.