Vísir - 01.07.1974, Blaðsíða 17

Vísir - 01.07.1974, Blaðsíða 17
Visir. Mánudagur 1. júli 1974 17 Umsjón: KLP Herrahúsió Aðálstræti 4 , Herrabúóin vió Lækjartorg Hann veit ekki hvað er að vera lofthrœddur! Byggingaverkamaðurínn John Rukavina stendur þarna óhræddur uppi á sjónvarps- mastri á hæstu byggingu ver- aldar....Sears Tower i Chicago. Hann er þarna i 1.454 feta hæð og er myndm tekm af óriítið lofthræddum blaðaljósmynd- ara, scm var i sérstakri körfu,er lyft var upp að mastrinu frá þakinu á byggingunni. Sears Tower er 110 hæða hús en ioftnetið er á við 20 hæðir til viðbótar. Rukavina, sein hefur það sem atvinnu að gera við sjónvarps- og loftnctsmöstur, er af Indjánaættum, en Indjánar vita ekkert hvað lofthræðsla er. UNGFRU NOREGUR 1974 Þetta er ungfru Solveig Bo- berg frá Draminen I Noregi, en hún var kosin ,,Miss Norge” i fegurðarsainkeppni Norð- manna, sem haldin var i Osló á dögunum. Ungfrúin, sem vinnur á tann- iæknastofu i heimabæ sinum, er trúiofuð tannlæknanema frá Bergen, en þau eru bæði 23 ára gömul og hafa þekkzt siðan þau voru i skóla I æsku, en þá átti ungfrúin heima i Bergen. Þeir yrðu vist fljótlega teknir úr umfcrð hér þessir heiðurs- menn, cf þeir sæjust aka svona um götur Iandsins....það er að segja, ef þeir gætu það nema á einstaka stöðum fyrir holum og öðrum ójöfnum. Þetta cru fjórir Ástraliu- menn, sem kalla sig „Dauða- deildin” og hafa þeir að undan- förnu látið Evrópu- og Banda- rikjamenn svitna við að liorfa á þá leika ýmsar kúnstir á bilunum sinum. Er aiveg makalaust hvað þeir geta framkvæmt — eins og t.d. þettay sem sjá má á þessari mynd, en þá aka þeir hilunum langa vegalengd á tveim hjólum og tveir menn standa uppi á hliðargluggunum. Það er örugglega ekki hægt að bjóða öllum farþegum upp á þetta. ,Dauðadeildin' fœr Evrópubúa til að svitna

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.