Tíminn - 27.01.1966, Blaðsíða 3

Tíminn - 27.01.1966, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 27. janúar 1966 TÍMINN 3 :.' . -..:: :x ::.■ •. ■ W'V'/^/'.'/////.'f'?.'".'&"'".'"?.".'*ft W0: ,.. - ■%■/','/■ " '■'/ " "" /'■?■/■■ '■■■■■'//':■/■■'/: '■:■ ■ ■■■■:':' AtriSi f sjónleiknum „Narfa leikendur frá vinstri: Valdemar Helgason, M argrét Guðmundsdóttir, Anna Guðmundsdóttir og Árni Tryggvason, Tímamynd—GE Isl. sjónleikur og pólskur í Lindurbæ í kvöld frumsýnir Þjóð- leikihúsið tvö leikrit í Lindarbæ. Leikritin eru Hrólfur og Á rúm- sjó. Hrólfur er eftir Sigurð Péturs- son sýslumann, sem var fæddur 1759, en dáinn 1827. Þetta mun vera eitt fyrsta leikritið, sem skrif Sigurður Pétursson höfundur „Narfa" að hefur verið á íslenzka tungu. Það er samið fyrir skólasveina í Hólavallaskóla og fyrst sýnt þar í skólanum árið 1796 og léku skólapiltar að sjálfsögðu öll hlut- verkin. Næsta leikrit Sigurðar Pét ursison, Narfi, er frumflutt í Hólavallaskóla þremur árum siðar eða nánar tiltekið 28. jan. 1799. Bæði þessi leikrit Sigurðar urðu mjög vinsæl hjá alþýðu manna á sínum tíma, og voru sýnd um allt land við miklar vinsældir alla nítjándu öldina. Á þessari öld munu þau sjaldan hafa verið synd á leiksviði, en bæði voru þau flutt í Útvarpinu fyrir nokkru. Það má segja að leikrit Siguið- ar Péturssonar séu börn sins tíma Þau eru samin fyrir nemendur i Hólavallaskóla og allur útbúnaður í leiknum hafður í samræmi við þær aðstæður, sem skólasvemar áttu við að búa. En með því að í einbeita athyglisgáfunni að persónusköpun höfundarins og skapa sem sannasta umgjörð hvað snertir allan útbúnað á leiksviði fæst áreiðanlega skemimtileg og sönn aldarfarslýsing og Hrólfur hefur jafnan verið mjög þakklátt Framhald t Dls IZ Atrlði í leiknum „Á rúmsjó", leikendur: Valdemar Helgason (standandi), Árni Tryggvason og Bessi Bjarnason. Samstillt átak í baráttu gegn umferöarslysum Ráðstefnuna um umferðaröryggi í landinu, sem háð var um s.l. helgi, setti Jón Rafn Guðmunds- son, deildarstjóri hjá Samvinnu- tryggingum. Honum mæltist á þessa Ieið: „Hæstvirtur dómsmálaráðherra, góðir fulltrúar og gestir! Til þessarar ráðstefnu er stofn- að fyrir forgöngu átta trygginga- félaga, eins og fram hefur komið í fundarboði og fréttum. Auk fundarboðenda, sitja ráðstefnuna fulltrúar fyrir eftirtalda aðila: Ábyrgð h.f., Bifreiðastjórafélag ið Frama, Bindindisfélag öku- manna, Félag íslenzkra bifreiða eigenda, Félag sérleyfishafa, Hag- trygging h.f., Klúbbana „Öruggur akstur,“ Kvenfélagasamband ís- lands, Landssamband íslenzkra barnakennara, Landssamband vörubifreiðastjóra, Læknafélag ís lands, Lögfræðingafélag íslands, Prestafélag íslands, Rauða kross íslands, Reykjavíkurborg, Sam- band íslenzkra sveitarfélaga, Slysa varnafélag fslands, Trausta, félag sendibílastjóra, Tryggingamiðstöð in h.f., Vörubílstjórafélagið Þrótt, Æskulýðssamband íslands og Öku- kennarafélag Reykjavikur. Verkefni ráðstefnunnar er fyrst og fremst að stofna til víðtækra samtaka, sem staðið geti fyrir sam hæfðum aðgerðum til að draga úr hinum tíðu og hörmulegu um- ferðarslysum, en þau eru nú talin kosta þjóðina, bæði beint og óbeint, hátt á 3. hundrað milljón- ir króna á ári. Um nauðsyn þessa þarf ekki að fjölyrða. Eflaust er þessi hug- mynd ekki ný. Fyrir ellefu árum síðan gat einn af forystumönn um bifreiðaeigenda þess í blaða grein, að hér skorti forystu um aðgerðir í umferðarmálunum og sú forysta ætti að koma frá bif- reiðatryggingafélögunum Um svipað leyti segir í rit- stjórnargrein einni um þessi mál „að margir menn hafi látið í ljósi þá skoðun sína að hægt sé að draga úr slysum og margvíslegu Framhaio a bis 12. Jón Rafn Guðmundsson setur ráðstefnuna. svrr™:;- • •< * •• Á VÍÐAVANGI Þarf nýtt form Morgunblaðið segir m. a. svo í leiðara um úthlutun lista- mannalauna: „Kjarni málsins er, að finna þarf nýtt form fyrir úthlutun listamannalauna. Nauðsynlegt er að setja löggjöf, sem fái fastri stofnun, nokkurs konar akadcmíu, það starf sem út- hlutunarnefndin nú annast. Ennfremur ber brýna nauð- syn til þess að hækka veru- lega framlögin í þessu skyni, þannig að unnt sé að styðja listamennina myndarlegar en nú er gert. Þess ber þó að geta að undanfarin ár hafa lista- mannalaun verið hækkuð mjög verulega." Um þetta er ekki nema gott að segja og vel, að nokkur vilji kemur fram um breyting ar til batnaðar. Hitt er ekki rétt, að listamannalaun hafi verið hækkuð „mjög verulega" síðustu ár. Þau hafa einmitt lækkað mjög illilega í hlut falli við dýrtíð, almenna launa þróun og heiidarupphæð fjár laga. Ekki feimnir við fals- anir Vísir er ekki feiminn við falsanir. Um það ber eftir- farandi klausa í forystugrein í gær ljóst vitni: „Allir vita að Framsóknar- menn drógu eins lengi og þeir gátu, að taka afstöðu til Búr felisvirkjunarinnar. Þeir töl- uðu og skrifuðu langan tíma á þann veg, að engin Ieið var að botna í hvað þeir vildu. En loks kom þar, að þeir töldu heppilegra fyrir flokkinn að vera á móti málinu. Allt mið ast auðvitað við hag flokks ins, en ekki þjóðarhag!" Allir «em nokkuð hafa fylgzt með þessum málum og skrir um um þau, vita gerla, að það eru staðlausir stafir hjá Vísi, að Framsóknarmenn eða Tím- inn hafi „dregið eins lengi og þeir gátu að taka afstöðu til Búrfellsvirkjunar“, eða að þeir hafi nokkurn tíma „verið á móti málinu", eins og Vísir segir. Allir vita, að Framsókn armenn og Tíminn hafa hik- laust og ætíð verið mjög fylgjandi Búrfellsvirkjun, mælt með henni og hvatt til hennar. Þeir hafa aðeins ekki talið neina þörf á að tengja hana við stóriðju. Hér er um tvö sjálfstæð mál að ræða — Búrfellsvirkjun og stóriðju og ber að meta hvort um sig. Framsóknarmenr hafa einmitt bent á, að Búrfells virkjun getum við gert með erlendri lántöku. án þess að | ganga að nokkrum afarkost- | um um erlenda stóriðju f i landinu. Jafnvel ríkisstjórn I in sjálf játaði það í greinar | gerð fyrir frumvarpinu um | landsvirkjun. að fyrsti á- fansi Búrfellsvirkjunar væri engu meira átak nú en fyrsta virkjun Sogsins á sínum tíma. Stórhugur þessara manna 1 er hins vegar ekki meiri en ■J svo, ið þeir geta alls ekki I hugsað sér að gera annað eins átak nú og sjá enga leið j aðra heldur en ieita hjálpar ’ útlendra stóriðjumanna og , gera við þá ókjarasamninga, Ísem þjóðinni stafar háski af, gegn því að beir hjálpi til að koma orkuverinu upp, Íog þeir hirða ekki um það, þótt ‘jvo virðist í pottinn bú- Framhald á bls. 12

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.