Tíminn - 27.01.1966, Page 14
14
TÍMINN
FIMMTUDAGUR 27 janúar 1966
Þeir sem rísa
ária úr rekkju
fá nýjan fisk
SJ—Reykjavík, þriðjudiag.
Húsmæður í bænum kvarta sár
þykjast þær góðar, ef þær ná í
3.-4. flokks saltfisk til að bera á
Veröur keyptur
skuttogari í
stað Fylkis
SJ—Reykjavík, mánudag.
Eins og kunnugt er, var togar
inn Fylkir nýlega seldur úr landi
Blaðið spurðist fyrir um það í
dag hjá framkvæmdastjóra fyrir
tækisins, hvort í ráði væri að
kaupa skuttogara í stað Fylkis.
Framkvæmdastjórinn sagði, að
kaup a nýjum togara væru í at-
hugun og kæmi m.a. til greina
kaup á skuttogara, sem væri af
svipaðri stærð og stærri togararn
ir okkar, en að svo stöddu væri
ekkert frekar að segja um
málið.
Við öskur konunnar varð mann
inum svo hverft við, að hann
lagði á flótta, þaut fram úr rúm
inu og fór að klæða sig í spjar-
irnar, og komst fram að dyrum,
þar sem Iiann mætti eiginmanni
konunnar. Hann var þó svo snar
í snúningum, að hann komst und
an við svo búið, og hefur lögregl
an verið að rannsaka málið í dag
að því er blaðið frétti í kvöld.
VERKFÖLL
Framnald af bls. 1.
standið fljótt leitt til far-
sótta og annarra alvarlegra
vandaimála, sagði hann.
Það eru ekki einungis
starfsmenn í kirkjugörðum
og sorphreinsun, sem farið
hafa í verkfall. Hið sama
hafa margir skrifstofumenn
hjá bæjarfélögum gert, og
s/trætisvagnastarfsmenn í
Aþenu fara í verkfall tvisv
ar á dag á morgnana og
kvöldin, þegar umferðin er
mest. Samtals um 50.000
manns eru í verkfalli, að
hálfu eða öllu leytl
í kvöld ætluðu 15.000
starfsmenn símamálastjórn
arinnar í 48 klukkustunda
verkfall. Þeir krefjast
hærri launa. Hermenn
munu gegna þýðingarmestu
stöðunum meðan á verkfall
inu stendur: Þá hafa bakara
sveinar farið í verkfall víðs
vegar um landið, og frá því
í kvöld hafa hermenn verið
kallaðir út til starfa í bakar
íum, svo að fbúar landsins
geti fengið brauð, að því
er tilkynnt var í Aþenu í
kvöld.
ELDUR í OLÍU
Framhald af bls. 1.
í plastverksmiðjunni brunnu
um 30 rúmmetrar af plasti, 12—
15 tunnur af plasthráefni og
plastsílóin. Einhver von er til
þess að nota megi ketilinn í plast
verkcmiðjunni, en hann var í á-
fastri viðbyggingu.
Matsmenn frá viðkomandi trygg
ingarfélagi eru nú að athuga
tjónið. en þeir geta ekki gefið upp
að svo stöddu. hve tjónið er mik-
ið í krónutölu. Aftur á móti þykir
sýnt, áð vátryggingarupphæð sé
helmingi of lág. Húsakynnin voru
ekki mikils virði, en mikið tjón
varð a vélum. verkfærum og plast
birgðum.
5—6 manns missa atvinnu um
stundarsakir, en við plastfram-
leiðsluna unnu nú aðeins tveir
menn. Plastverksmiðjan mun taka
aftur til starfa eins fljótt og auð
ið er, en í vor hefði hún verið bú-
in að starfa í tvö ár.
Þessar byggingar voru staðsett
ar skammt frá húsakynnum Verzl
unarfélags Héraðsbúa, sem ekki
var í neinni hættu, þar sem vind
átt var hagstæð, sunnan suðvestan
gola.
Eigandi bifreiða og gúmmívið-
gerðar/erkstæðisins er Vignir
Brynjólfsson, en framkvæmda-
stjóri plastverksmiðjunnar er Þór
arinn Pálsson.
STUTTAR FRÉTTIR
Framhald af bls. 2
eyrar um aflabrögð togara félags-
ins á s.l. ári kemur fram, að fjór-
ir togarar hafa farið í 73 veiði-
ferðir og aflað 10.159.378.00 kg.
Mestan afla hafði Harðbakur. Tog-
arinn Hrímbakur var í hafnarlegu
allt árið, en Kaldbakur var í 16
ára flokkunarviðgerð framan af
árinu og hóf ekki veiðar fyrr en
15. apríl.
Um þriðjungur aflans var seld-
ur erlendis, en afgangurinn var
að mestu leyti losaður á Akur-
eyri.
GE-Reykjavík, fimmtudag.
Blaðinu barst í dag yfirlit um
umferð um KeflavíkurflugvöU á
síðastliðnu ári. Hefur umferðar-
aukning orðið mjög mikil frá því
sem var árið 1964, og að sögn
Péturs Guðmundssonar flugvallar-
stjóra þar syðra er búizt við tals-
verðri umferðaraukningu á þessu
ári líka.
Árið 1965 er fyrsta heila árið,
sem Loftleiðir flugu eingöngu frá
og til Keflavíkur, og mun það
vafalaust eiga drjúgan þátt í þess-
ari miklu aukningu. Á vellinum
lentu alls 2.389 farþegavélar á ár-
inu, sem leið, en 1.548 á árinu
1964. Er hér ekki um að ræða
vélar Varnarliðsins, heldur aðeins
vélar Loftleiða og annarra flug-
félaga. Um völlinn fóru alls 178.
583 farþegar, en árið áður var
farþegatalan einungis 92.834. Vöru
og póstflutningur jókst einnig
talsvert svo sem sjá má af því
að 1.590.424 kg. af vörum fóru
um völlinn á síðasta ári, en 857.
805 kg. árið 1964, og 227675 kg
af pósti fóru um völlinn í fyrra,
en 97.421 kg. árið 1964.
HEITT VATN
Framhald ai 16. síðu.
að vatnsmagnið muni aukast
nokkuð að marki við það, því
svo geti farið að vatn minnki
bara í öðrum holum.
Kristján sagði, að þegar
•þetta væri haft í huga, þá
væri sýnilegt að heita vatnið
væri ekki nóg fyrir Reykjavík,
vestan Elliðaáa. Þegar áætlun var
gerð um að leggja hitaveitu í
alla Reykjavík, en hún var
gerð 1961, þá héldu menn að
vatnið væri meira. En það hef
ur ekki þá verið búið að kanna
það nægilega vel. Þess vegna
var öllum Reykvíkingum vestan
við Elliðaár lofað hitaveitu fyr
ir áramót 1965—66. Nú blasir
i svo sú staðreynd við, að vatn
ið er ekki nóg. Það má eitthvað
bæta úr þessu á einn hátt, og
er meiningin að gera það í
framtíðinni. Það á að byggja stór
an geymi á Eskihlíðinni, sem
i r.ð ‘ ika ámótamikið vatns
magn og -ilir hinir geymarnir til
samans. Það mundi þýða að
meiri varaforði fengizt þann
ig að í stuttum irostköflum verð
ur hægt að hafa vatn lengur.
Hins vegar dugar ekkert í lang
varandi kuldum nema aukið
vatnsmagn.
Við stöndum því frammi fyr
ir því, að búið er að þenja
hitaveituna meira en vatnsmagnið
an þessa dagana yfir miklum vöru
skorti hjá fisksölum bæjarins, og
BLAÐ
LÖGMANNA
Út er komið 4. tbl. rits Lög-
mannafélags íslands, og heitir
það „Blað lögmanna” en ritstjóm
skipa þeir Egill Sigurgeirsson og
Þorvaldur Ari Arason, hæstarétt
arlögmenn. Lesmál í blaðinu er
16 síður, en auglýsingar þekja 8
kápusíður.
Mest af efninu er stuttar frétt
ir, skýrt er frá starfsemi LMFÍ
árið 1964, og aðalfundi og stjóm
arkosningum. Minningargreinar
eru um tvo látna félagsmenn, þá
Láms Fjeldsted, hrl. og Guðmund
Ásmundsson, hrl.
Þá eru skráðar embættaveiting
ar s.l. tvö ár, og einnig em tald
ir upp dómar í hæstarétti, saka-
dómi og bæjarþingi.
„Blað lögmanna" hóf göngu sína
í febrúar 1963, og kom síðan út
í ágúst 1963 og desember 1963.
Því er ætlað að vera stéttar- og
fréttabláð starfandi lögmanna,
sem birtir aðeins stuttar greinar.
Lengri greimum er ætlað rúm I
Tímariti lögfræðinga eða Úlfljóti.
Þorvaldur Ari Arason tjáði
blaðinu, að vonir stæðu til, að
blaðið kæmi út reglulega, en
helztu annmarkar væm frétta
skortur.
ÍSAFJARÐARAFMÆLI
Framhaid ai bis i
á fjárhagsáætlun þessa árs kr.
100 þúsund til stofnunar sjóðs, er
varið verði til verðlauna námsaf-
reka nemenda í væntanlegum
menntaskóla á ísafirði. Sjóðurinn
beri nafnið Aldarafmælissjóður
ísafjarðarkaupstaðar. Verðlaun úr
sjóðnum verði í fyrsta sinn úthlut,-
að þegar fyrstu stúdentarnir _úf-
skrifast frá menntaskóla á ísa-
firði, en fyrir þann tíma verði
sett reglugerð fyrir sjóðinn og
stjórn hans kosin. Þar til fyrsta
verðlaunaúthlutunin fer fram verð
ur sjóðurinn vaxtaður í vörslu bæj
arsjóðs ísafjarðar. Báðar þessar
tillögur voru samþykktar. í fund-
arlok söng Sunnukórinn aftur lag
Jónasar Tómassonar undir hans
stjórn í faðmi fjalla blárra og síð-
an undir stjórn Ragnars H. Ragn-
ars, Ó guð vors lands.
Gluggar verzlana eru fagurlega
skreyttir á ísafirði bæði með
myndum og málverkum frá ísa-
firði og sömuleiðis með myndum
af öllum bæjarfulltrúum frá byrj-
un. Klukkan 5 í dag hélt bæjar-
stjórnin móttöku fyrir ísfirðinga
í Sjálfst.húsinu og var þar mikið
fjölmenni.Þá fóru skátar úr bænum
undir stjórn Konráðs Jakobssonar
og Jóns Þóroddssonar í blysfór
upp á Stórurð og mynduðu þar
með blysum „100“ ár. í kvöld átti
að vera veizla bæjarstjórnar í Al-
þýðuhúsinu á ísafirði, en til henn
ar var boðið öllum helztu framá
mönnum bæjarins í félagsmálum
og öðrum málum.
Á laugardag og sunnudag \ierða
áframhaldandi hátíðahöld á fsa-
firði, meðal annars leikþættir og
skemmtun fyrir börn í Alþýðuhús-
inu.
borð handa fjölskyldunni.
Á markaðnum sést reyndar nýr
fiskur, sem hverfur svo að segja
samstundis og hann kemur í búð-
imar. Fiskhöllin fær t.d. ein 3—
4 tonn af nýjum fiski daglega,
aðallega þorski, en það magn
'hvetrfur fljótt. Gómsætir réttir
eins og hrogn og lifur eru yfir-
leitt búnir kl. 9—10 á morgnana
en Fiskhöllin opnar kl. 7.30.
Tók ókunnugan
fyrir eiginmann
FB—Reykjavík, miðvikudag.
Kona ein í Vestmannaeyjum
lagðist til svefns i gærkvöldi eins
og önnur undanfarin kvíild, og
sofnaði brátt eðlilegum svefni.
Hún átti von á bónda sínum heim
og áður en langt leið, kom maður
til hennar og liáttaði hjá henni.
Taldi hún hér vera eiginmanninn
á ferðinni, en ekki leið á löngu
þar til henni var ljóst, að hér
mundi annar vera á ferð, þótti
maðurinn eitlhvað öðruvísi en
hún átti von á, og rak upp mikið
öskur.
DAGSBRÚNARHÓF
Framhald af bls. 1.
trúar frá ýmsum öðrum launþega
félögum og samtökum í Reykja
vík og Hafnarfirði, fyrrverandi
formenn félagsins, og einn af
stofnendum Dagsbrúnar Magnús
Magnússon, var einnig viðstaddur.
í afmælishófinu var vígður nýr
félagsfáni fyrir Dagsbrún.
FRÍLISTINN
Framhald af bls. 2
í 86.2% heildarinnflutnings, eins
og hann var 1964. Meira en helm
ingur þess innflutnings, sem enn
er háður einhvers konar leyfisveit
ingu, er benzín og brennsiuolíur.
sem eingöngu eru fluttar frá Aust-
ur-Evrópulöndum en innflutning
ur þaðan er ekki takmarkaður á.
Aðrir vöruflokkar, sem enn eru
háðir leyfum, eru m.a. sykur, kaffi,
kvensokkar, krossviður og hús-
gögn. En allar þessar vörur er
frjálst að flytja inn án nokkurra
takmarkana frá jafnkeypislöndun-
um. Innflutningur erlendrar land-
búnaðarvöru, sem keppa mundi
i við innlenda landbúnaðarfram-
leiðslu, er hins vegar bannaður.
FJÖLSKYLDA í VANDA
Framhald af bls. 2
stunda skólanám. Fjölskyldan
mátti ekki við tjóninu.
Þess vegna er það, sem blöðin
hafa lofað að taka á móti fram-
lögum þeirra, er til finna með
þessari illa stöddu fjölskyldu og
vilja létta eitthvað undir með
þeim. Þarf heldur ekki að efast
um það, að margir munu vilja
sýna með einhverri gjöf, að þeir
kunna sjálfir að meta betra hlut-
skipti og mildari örlög. Undir-
ritaður mun einnig taka á móti
gjöfum til fjölskyldunnar að Mel-
gerði 23.
Ólafur Skúlason,
prestur, Bústaðaprestakalli.
þolir, og það er því ekkert að
gera nema drífa Nesjavallaveitu
sem fyrst í gagnið, enda er fyr
irsjáanlegt, að ástandið eins
og það er, getur ekki varað
svona til lengdar. Allir geta séð
í hvern voða þessi mál stefna, ef
hér yrði harður vetur.
Fólkið í gömlu bæjarhlutun
um, gamla Austurbænum og
gamla Vesturbænum, er eðli
lega orðið ákaflega langþreytt
á þessu ástandi, enda illt fyr
ir fólk í þessum húsum að
bjarga málinu, þar sem engin
önnur kynditæki eru til en
hitaveitan, enda var fólki
sagt, að kynditæki til vara væru
alveg óþörf, þótt nú sé farið
að hvetja þá sem hafa kyndi
tæki með hitaveitunni, að
nota þau geri frost.
HOLDANAUTARÆKT
Framhald af 16. síðu.
holti. Ein kýrin, sú elzta, set
ur sig ætíð í varnarstöðu ef
komið er i námunda við
hana.
— Hvað eru margar kýr
í þessum hóp?
— Það er aðeins einn tarf
ur í þessum hóp — þessi
þarna— hann er ekki nema
hálfs annars veturs gamall.
Kýrnar eru allar ungar, frá
veturgömlu til fjögurra
vetra. Samt eiga þær víst all
ar að vera með kálfi.
— Verða þær inni í allan
vetur?
— Já, það er engin að-
staða komin ennþá til þess
að hafa þær úti, það þarf
að setja upp girðingar fyrir
holdanautin —og það öflug
ar. Þetta eru miklu harð
skeyttari skepnur en venju
legir nautgripir og þær eiga
það til að gera allt — frek
ar en að láta ná sér.
— Eru holdanaut víða
ræktuð á íslandi?
— Þau eru fyrst og
fremst ræktuð í Gunnars-
holti en ennfremur eru
nokkur holdanaut á Egils-
stöðum og í Laugardælum.
— Hvernig stóð á því að
hafin skyldi holdanautarækt
héma?
— Þegar mjólkurfram-
leiðslan var lögð niður í
fyrasumar og nautgripirnir
seldir, var ákveðið að koma
upp holdanautabúi í staðinn,
og þessi tuttugu eru víst
bara byrjunin, því ráðgert
er að fjölga þeim.
FÆRÐ VERSNAR
Framhald af 16. síðu.
er fært frá Reykjavík á
Snæfellsnes, til Stykkis-
nólms og á Fróðárfheiði. Þó
mun vera þungfært á norð
vestanverðu nesinu. Þá er
færð á Vestfjörðum versn-
andi. og mun vart vera um
umferð þangað að ræða. Á
ætlunarbifreið tókst að kom
ast til Króksfjarðamess í
dag en við illan leik.
Á Austfjörðum er færð
svipuð og í gær, en þar eru
allir fjallvegir lokaðir,
nema Fagridalur. Verður
hafizt handa Um að ryðja
einhverja fjallvegi þar,
þegar tíð batnar.
Fréttaritari Tímans á Ak
ureyri sagði í dag, að allir
vegir þar um slóðir væru
greiðfærir flestum bílum,
og leiðin Reykjavík-Akur-
eyri einmg. Þó væru hættu
legir sveilbunkar í Norður
árdal og undir Silfrastaða-
fjalli. Þá hefði Vegagerðin
aðstoðað bíla á aðalleiðum
a þrið.iudögum og föstudög
um í vetur.