Tíminn - 03.02.1966, Blaðsíða 2

Tíminn - 03.02.1966, Blaðsíða 2
TÍMINN FIMMWDAGUR 3. febníar 1966 ÁVARP TIL ÍSLENDINGA Sá geigvænlegi atburður varð 17. janúar síðastliðinn, að tvær bandarískar herflugvélar rákust á í lofti yfir suðausturhluta Spánar, og hafði önnur þeirra, þotan B-52 kjarnorkusprengjur innanborðs. Afleiðingar þessa atburðar hafa orðið hinar alvarlegustu fyrir íbúa «pænsku landsvæðanna og valdið ótta um allan heim. Menningar og friðarsamtök ís- lenzkra kvenna víll beina þeirri áskorun til íslenzku þjóðarinnar að hún hugleiði hvílíka tortíming- arhættu hið æðisgengna kapp hlaup um framleiðslu kjarnorku- og vetnisvopna kailar yfir heim- inn. Herseta í 15 ár hefur slævt svo dómgreind okkar, að fæst okkar leiða hugann að því hversdagslega að okkur sé nokkur hætta búin af völdum hennar. En þegar við fréttum af slíkum atburðum og þessum úti í heimi, hlýtur sú spurning að vakna hvort ekki sé einnig flogið yfir höfðum okkar með kjarnorkusprengjur. Atburð- ir sem þessi hlýtur að vekja okkur til vitundar um það að ekkert nema almenn og alger afvopnun og afnám allra herstöðva getur firrt heiminn þvílíkri hættu, sem yfir honum vofir af völdum þess- ara hræðilegu vopna. Við heitum á íslenzku þjóðina alla að sameinast um þá kröfu að allar herstöðvar verði lagðar niður, til að komast hjá gereyð- ingu annað hvort af völdum kjam orkustyrjaldar eða kjarnorku- slysa. Frá Menningar- og friðarsam- tökum kvenna. TJÚNK) ÆNUM LAUSLEGA METD A HALFA MILLJÚN KRONA MA-Tjaldanesi, miðvikudag. Símasamband er nú aftur kom- ið á við Saurbæinn, en þar urðu feiknamiklar skemmdir á mörgum bæjum í sveitinni. í SaUrbænum eru um 40 bæir, og fóru síma- línurnar heim að öllum bæjunum úr lagi og ekkert hefur verið hægt að tala þaðan eða þangað síðan fyrir hejgina. Verst varð veðrið aðfaranótt sunnutjagsins og á mánudag. Rafmangslína var lögð í Saur- bæinn nú fyrir skömmu, liggur FRÁ HARALDIJÓHANNSS. KUALA LUMPUR, MALAYSÍU. Stjórnmálasamband milli Malaysíu og fílippseyja Forseti Filippseyja, Ferdinand Marcos, flutti 24. janúar 1966 fyrstu yfirlitsræðuna frá embætt istöku sinni. Að sögn Daily Citi- zen í Kuala .Lumpur kvaðst Ferdi nand Marcos mundu „heflasr hafa niðri undanfarin ár, 'Samtök handa um að koma samskiþtum við Malaysiu í eðlilegt horf”. En ekki „yrði ýtt til hliðar kröfu vorri til Norður-Borneo (Sabah), eða rýrð varpað á vinsemd og vin arhug vorn til indónesísku þjóðar innar. Vér biðjum þess, að hún megi koma úr þolraun sinni styrkt í ásetningi sínum að verj- ast erlendri íhlutun og yfirráð- um”. Auk þessa sagði Marcos: “f Asíu, Afríku og Suður-Ameríku er risin upp hreyfing frá nýlendu skeiðinu til endurreisnar þjóð- vera sameiginlegan málstað vom“. Ferdinand Marcos lýsti í ræðu þessari stuðnimgi við Bandalag Suðaustur-Asíu (SEATO), og auk ,þess við tvenn sarntök, sem lcgið Suðaustur-Asíu (ASA) þ.e. menn- ingarsamtök Malaysiu, Thailands og Filippseyja; og Maphilindo, fyr irhuguð samtök Malaysiu, Filipps eyja og Indónesíu, þ.e. Malaja- þjóðanna þriggja (þótt vart blási byrlega fyrir þeim samtökum í svipinn). Umæli Ferdinand Marcos um upptöku stjórnmálasambands milli Malaysiu og Filippseyja komu ekki á óvart. Þremur dög- um áð>ur en hann flutti yfirlits ræðu þessa, þ.e. 21. janúar, birti Yfirlýsingin ei a þessa leið: „Sú stirfni, sem verið hefur i sam- skiptum Filippseyja og Malaysiu frá 1963 hefur að miklu leyti staf - að, af. kröfum Filippseyja, til Sab- ahrikis’ — Upp frá því hafa til- raunir af beggja hálfu til að leysa þetta ágreiningsmál ekki borið ávöxt. Viðleitni beggja land anna í þá átt dagaði uppi, þegar ríkisstjórn Macapagal krafðist þess, að málið yrði lagt fyrir A1 þjóðadómstólinn. Malaysia lagði til, að haldinn yrði fundur emb Pramhald á bls 12 legra og menningarlegra verð-i utanríkisráðuneyti Malaysiu yfir mæta. Vér teljum þessa viðleitni I lýsingu um samskipti landanna. FRÉTTIR UR BILDUDAL GTH-Bíldudal, 23. janúar. f gær bættist nýr bátur við flota Bíldælinga. Nokkrir ungir menn hér stofnuðu hlutafélagið Steina- nes og keyptu m.b. Þórð Ólafsson SH-140, 36 tonna bát, sem byggð- ur var 1947. Báturinn er með 6 ára gamalli 220 hestafla Cumm- ings dieselvél. Skipátjóri er Guð- mundur Pétursson og fara þeir strax á línu, en síðan væntanlega á handfæri og snurvoð. Við til- komu bátsins eykst vinnan í landi og afkoma fólksins batnar, en slíkt framtak ungra manna, er einmitt það, sem styðja á og styrkja. Um s.l. áramót tók nýr skip- stjóri, Snæbjörn Árnason, við m.b. Andra, sem er á línu og fer afli heldur batnandi. Pétur Thorsteins son er væntanlegur heim innan skamms, en hann hefur verið í sildarleit. Fer hann fljótlega á netaveiðar. Bíldælingar eiga loksins von á að geta sótt kvikmyndasýningar hér á staðnum, í stað þess að þurfa að sækja þær tiJ Patreks- fjarðar. Vélar og tæki eru nú flest komin til landsins og sýn- ingar ættu að geta hafizt í febrú- ar. Hér er um að ræða mjög vönd- uð tæki og sýningarnar verða góð dægrastytting í skammdeginu. línan yfir Gilsfjörðinn, en þar sem kapallinn kemur upp úr sjón- um hafði lagzt svo mikil ísing á línuna, að 5 staurar kubbuðust nið ur og fuku úr þeim um allt. Heimtaugar heim að fjórum bæj- um slitnuðu niður. í kaupfélagi Saurbæinga á Skriðulandi brotnuðu tvær stórar tvöfaldar rúður með þeim afleið ingum að vörur kaupfélagsins reif út og fuku þær um allt, og er enn ekki vitað með vissu hve mikið tjón varð á þeim eina stað, en auk þess fór allt þakjárnið af pakkhúsi kaupfélagsins. í Stóra-Holti brotnaði hlaða og lagðist að miklu leyti niður. í Ár- múla hafði rafveitan átt þrjá vinnuskúra. Fuku tveir þeirra og spýtnabrakið lenti á íbúðarhús- inu. Einn plankinn fór inn um glugga í eldhúsiu og fram hjá húsfreyjunni og lenti síðan á kaf í þilinu fyrir aftan hana. Var mikil mildi, að ekki skyldi verða Eysteinn Jónsson talar á FUF fundi Mjólkurbúðinni hér var lokað um síðustu árámót og tekin upp sjálfsafgreiðsla í hinni nýju, mynd arlegu kjörbúð kaupfélagsins. Mæl ist þessi nýjung yfirleitt vel fyrir, enda í framfaraátt og til þæginda fyrir neytendur, í lengri afgreiðslu tíma og til hagsbóta fyrir fram- leiðendur í lækkuðum afgreiðslu- kostnaði. Nýjung hjá kaupfélag- inu er öl- og gosdrykkjakælir, sem settur hefur verið upp, en þessi tæki bæði eru liður £ aukinni áherzlu á að veita sem fullkomn- asta og bezta þjónustu. Ástandið í vegamálum hér er mjög slæmt og fer sízt batnandi enda orðið eins algengt umræðu- efni hér og veðrið. Vegirnir eru að mestu snjólausir nema smá- skaflar yfir Hálfdán, en svellbung- ur víða og uppbólgnir vegir. Eru flestar svellbungurnar aflíðandi fram af vegabrúnunum og oft hátt niður í fjörur fyrir neðan. Ekk- ert er gert til að lagfæra þessi vandræði hér í Amarfirði, en heyrzt hefur að miklu fé sé var- ið í að bera sand á svellin í Patreksfirði. Er þetta ástand stór- alvarlegt, þar sem menn neyðast til að reyna að nota vegina, en slysahættan gífurleg. Er mörgum illa við að sitja í bíl yfir bung- Framhald á bls. 12 Háskólafvrirlestur Prófessor Robert Ozanne frá Wisconsin-háskóla flytur fyrirlest ur á vegum viðskiptadeilar Há- skólans fimmtudaginn 3. febrúar kl. 5.30 í I. kennslustofu Háskól- ans. Fyrirlesturinn nefnist „Eco- nomic analysis of the impact of American trade unions on wage movements." Professor Ozanne hefur verið kennari við Wisconsin-háskóla síð an 1949, og aðalgrein hans er hag- fræði. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku, og er öllum heimill aðgang- ur. ungra 8. febrúar og hefst hann kl. 20.30 Eysteinn Jónsson formað ur Framsóknar- flokksins heldur framsöguræðu um stefnu Framsóknarflokksins. Fram sóknarfólk mætið vel og stund- víslega. "<aff i klúbburinn Kaffiklúbbur ! Framsóknarfélag- 4 anna í Reykja- vík heldur ann an fund sinn á vetrinum, að | Tjarnargötu 26 jjlaugardaginn 5. febrúar og hefst kl. 3 síðdegis. Halldór Pálsson búnaðarmálastjóri svarar spurningum um landbúnað armál. Framsóknarfólk fjölmenn- ið. stórslys af. Á prestsetrinu að Hvoli fauk meiri hluti þakjárns af húsinu. Þar á hlaðinu stóð fólks bíllinn D-81, eign kaupfélagsstjór- ans á Skriðulandi. Fauk bíllinn marga metra og skemmdist mik- ið. í Bessatungu fauk þakið af fjósinu og hlöðu og mikið af íbúðarhúsinu. Jeppinn D-31 fauk margar veltur og lenti niður £ skurði og er gjörónýtur. í Hvíta- dal eru þrjú íbúðarhús. Eitt þeirra er gamalt og var fólk flutt úr því, en þak hússins fauk gjör- samlega í burtu. Af öðru íbúðar- húsi í Hvítadal fuku 16 þakplöt- ur og pappinn með, svo fólkið horfði á eftir upp í himin gegn um götin. í Litla-Múla er nýbyggt fjós og mjólkurhús. Fauk þakir að mestu af mjólkurhúsinu og allt járn af fjósinu. í Máskeldu fauk hálft þak af nýrri hlöðu, sem byggð var í sumar, hér um bil allt af fjósinu og nokkuð af fjárhús- unum. Fyrir utan félagsheimilið í Saur bæ stóð olíutankur, sem tekur um 2000 lítra og var hann um hálfur af olíu. Rifnaði hann upp og Frmhald á bls. 12 Félag Framsóknar- manna i Reykja- vík heldur fund að Tjarnargötu 26 þrtöjudagiiin Skagafíl^Fl Fundur ungra Fram sóknarmanna í Félag ungra Framsóknarmanna i Skagafirði gengst fyrir nokkr um almennum umræðufundum næstu mánuði Sá fyrsti verður haldin í Bifröst. Sauðárkróki mánu dag 7. febr. og hefst kl. 20.30 Umr. efni verður stóriðjan og íslenzkur iðnaður Framsögu annast Stefán Guðmundsson trésmíðameistari Sauðárkróki og Magnús Gíslason bóndi Frostastöðum. Öllum er heimill aðgangur meðan husrúm leyfir, og ungt fólk sérstaklega hvatt ti! að mæta. Magnús Stefán VEGLEGT AFMÆUSHÓF HJÁ KARIAKÓR REYKJA VÍKUR HZ-Reykjavík, miðvikudag. Síðastliðið laugardagskvöld hélt Karlakór Reykjavíkur veglegt og fjölmennt afmælishóf að Hótel Borg í tilefni 40 ára afmælis kórs- ins. Vel var til hófsins vandað og fór það hið bezta fram. For- maður kórsins, Ragnar Ingólfsson, flutti setningarræðu að loknu borð haldi og síðan tóku margir til máls. Ræðu fyrir minni kórsins flutti Hallgrímur Sigtryggsson, einn af stofnendum kórsins fyrir 40 ár- um, fyrir minni söngsins hélt ræðu Sigurður Þ. Guðmundsson læknir. Síðan stigu í pontu margir gest- anna, formaður karlakórasam- bandsins, formaður Fóstbræðra, Sigurður Þórðarson fyrrv. söng- stjóri, Guðmundur Jónsson óperu- söngvari. Kjartan Guðjónsson og fleiri. Allir færðu þessir menn kórn- um gjafir, Sigurður Þórðarson og frú færðu kórnum vandað seg- ulbandstæki, eldri félagar kórsins gáfu plötuspilara með hátölurum og magnarakerfi, Fóstbræður gáfu silfurslegið horn, Gunnar Pálsson gaf stóra áletraða styttu, Karla- kórinn Þrestir í Hafnarfirði gaf áletraðan vasa með blómum og svo barst fjöldinn allur af blóma- körfum, blómum og skeytum. Þjóð ræknisfélagið í Winnepeg sendi kórnum fána sinn með langri kveðju. Að sjálfsögðu var mikið sungið í hófinu, bæði eldri og yngri félagar hver í sínu lagi og sameiginlega. Guðmundur Guð- jónsson söng einsöng, Friðbjörn G. Jónsson söng einsöng og Guð- rún Kristinsdóttir lék á píanó. Hófið hófst kl. 7 um kvöldið og stóð fram til kl. 2 um nóttina. Allir skemmtu sér skínandi vel og rómuðu hver.su vel hefði til tekizt. Stjórn Karlakór Reykjavíkur skipa: Ragnar Ingólfsson, formað- ur, Helgi Kristjánsson, Höskuldur Jónsson. Margeir Jóhannsson, An dreas Bergmann og söngstjóri er Páll Pampichler Pálsson. Félagar kórsins eru nú 46 talsins.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.