Tíminn - 03.02.1966, Síða 12

Tíminn - 03.02.1966, Síða 12
12 TÍMINN FIMMTUDAGUR 3. febrúar 1966 Áheit á Kálfa- tjarnarkirkju Á árinu 1965 var kirkjunni gefinn hátíðahökull, hinn vandað asti og fullkomnasti, sem völ er á. Gefandinn, sem ekki vill láta nafns síns getið er kaupmaður í Reykjavík, og gjöfina gefur hann tn minmingar um konu sína sem dáin er fyrir nokkrum árum og ættuð var úr Kálfatjarnarsókn. Hökullinn var vígður á síðastliðn um pásfeum af sóknarprestinum séra Garðari Þorsteinssyni prófasti með ræðu frá altari kirkjunnar, skrýddist hinum fallega hökli, skírði tvö böm og flutti páskapre dikun, var kirkjuathöfnin öll hin hátíðlegasta og var kirkjan þétt skipuð. Á síðastliðnu hausti var gjafar þessarar getið í Morgunblaðinu, en átti að koma á síðastliðnu vori eða rétt eftir páskana, en varð svona vegna mistaka en hér með endurnýjum við þakklaeti okkar til gefandans fyrir hina fögru og höfðinglegu gjöf. Þá hafa kirkjunni borizt á árinu áheit frá konu sem ekki vill láta nafns síns getið en er ættuð úr Kálfatjamarsókn kr. 1000,00. Eitt þúsund krónur. Frá Guðrúnu Þor valdsdóttur 50 krónur. Fyrir hönd Kálfatjarnarkirkju og safnaðar, færum við gefendum hugheilar þakkir og óskum þeirn góðs og gleðilegs árs og fram- tíðar. Sóknamefnd, Kálf atj amarsóknar. TJÓNIÐ í SAURBÆ Framhald af bls. 2 slitnaði frá ölluim leiðslum. Laus lega áætlað er talið, að tjón af völdum þessa óveðurs sé ekki inn- an við hálfa milljón króna, en fyrir utan þessi stærri fok, fauk mikið af alls konar lausum hlut- um, og auk þess nokkuð af heyi, sem menn telja vart lengur til tíðindi, eftir þessi ólæti. Nokkuð var til af efni á flestum bæjum í sveitinni, og er því langt komið að gera við mestu skemmdirnar. Lá*l8 okkur stilla og herða upo nýju blfreiSina. Fylgírt vel með bífreiðinnl BÍLASKOÐUN 1 Skúlagötu 32 Sfml 13-100 : EYJAFLUG m. MED HELGAFELLI NJÓTIÐ ÞÉR ÚTSÝNIS, FUÓTRA OG ÁNÆGJULEGRA FLUGFERÐA. AFGREIÐSLURNAR OPNAR ALLA DAGA. REYKJAVÍKURFLUGVELLI 22120 ST JÓRNMÁL AS AMB AND Framhaid af bls. 2 ættismanna, áður en ákvörðun yrði tekin um málsmeðferð við lausn deilunnar í samræmi við Manila-samkomulagið. — Næg góðvild og góður ásetningur eru nú auðsjáanlega til staðar bæði á Filippseyjum og í Malaysiu og (horfur á, að senn verði að ftullu upp tekið stjómmálasamband milli þessara tveggja landa, svo að von er til að þetta óleysta á- greiningsmál verði að lokum leyst í vinsemd og í anda Manila-sam komulagsins. — Þessar tvær þjóð ir og rikisstjórnir geta þá aftur tekið höndum saman til að ná því sameiginlega marki að koma á friði, velmegun og stöðugleika á þessu svæði Suðaustur-Asíu.” Viðræður milli Malaysiu og Fil ippseyja um upptöku stjómmála sambands hafa farið fram frá des emberbyrjiun. Það mun hafa verið í Manila 1. desember á ráðstefnu um efnahagssamvinnu í Asíu, að Ferdinand Marcos, þá nýkjörinn forseti, ræddi um upptöku stjóm málasambands milli landanna við San Siew Sin, fjármálaráðherra Malaysín, á öðram fundi þeirra. Ferdinand Marcos sendi konungi Malaysiu boð um a ðvera viðstadd ur embættistöku sína en það mun vera í fyrsta sinn, að Filippseyjar hafa boðið erlendum þjóðhöfð- ingja að vera viðstaddur embætt- istöku forseta. Ennfremur bauð Ferdinand Marcos Abdul Rahman fursta til „Golfleika áhugamanna í Suðaustur-Asíu“ í Manila í des ember, en þeir era báðir áhuga- menn um golf. Furstinn gat þó ekki þekkzt boðið. En í viðtali við Manila Times 21. janúar sagði furstinn, að Malaysia mundi hafa forgöngu um upptöku stjórnmála sambands miRi landanria. " Þá mun undirjjúningijr „hafinn undir ráðstefnu utanríkisráðherra Malaysíu, Thailands og Filipps- eyja tii að endurvekja Samtök Suðiaustur-Asíu (ASA) sem var komið á fót árið 1963, en urðu ó- virk 16. september það ár, er Mal- aysía var stofnuð. Utanríkisráð herra Thailands. Tun Thanat Khoman, lýsti 3. janúar Thailand reiðuhúið til að endurvekja sam tökin. Meðal þeirra mála, sem ASA lét sig varða, voru: skipa- ferðir, stofnun sameiginlegs flug félags aðildariandanna þriggja, viðskipti, ferðamenn og menníng arsamskipti. Kuaia Lumpur 26. janúar 1966 Haraldur Jóhannsson. BÍLDUDALSBRÉF Framhald af bls. 2 urnar og kjósa frekar að ganga. Það er margendurtekin saga hér á landi að lagfæra ekki ýmsar vegatálmanir fyrr en valdið hefur alvarlegum slysum, einu eða fleir- um og vona allir auðvitað að slíkt hendi ekki hér, en það hlýt- ur að hvííla þungt á forráðamönn um þessara mála, að bera ábyrgð á þessu ástandi, án þess að úr- bætur séu reyndar. Fyrirtæki eitt hér, sem sækja þyrfti hráefni til vínnslu til Patreksfjarðar, fékk þau svör, að sjálfsagt væri að VÉLAHREINGERNING Vanir v menn. Þægileg, Fljótleg vönduS vinna. bRIF — símar 4195/ og 33049 halda veginum opnum, ef fyrir- tækið vildi greiða helming kostn- aðarins. Þar sem sá kostnaður er of mikill auk flutningskostnaðar- ins verður ekkert úr framleiðsl- unni og margur verður af vinnu. Menn hér grunar að morgum fyrirtækjum sunnanlands brygði í brún, ef þau ættu að fara að greiða helming kostnaðar við að halda vegum opnum þar. Gömul saga segir frá hvernig söfnunar- æði getur gripið fólk, að einn safnarinn fékk þá dellu, að safna holum og eftir stuttan tíma var hans sveit orðin holulaus, en það er gamanlaust og sorglegt til þess að vita, að efcM fæst meiri né betri árangur út úr viðræðum við fulltrúa vegartiála hér, en þó reynt væri að auglýsa eftir manni, sem safnaði svellbungum. ÍÞRÓTTIR Framhald af bls. 13 sambandsins og kom þá í ljós, að nýr varamaður hafði verið skip- aður í nefndina, Hreiðar Ársæls- son, sem hefur landsdómararétt- indi. Annars ern nefndir KSÍ þannig skipaðar: Mótanefnd: Jón Magnússon Sveinn Zöega Ingvar N. Pálsson Landsliðsnefnd: Sæmundur Gíslason Haraldur Gíslason Helgi Eysteinsson Hafsteinn Guðmundsson Magnús Kristjánsson Unglinganefnd. Alfreð Þorsteinsson Guðjón Einarsson Jón B. Pétursson Dómaranefnd: Halldór Sigurðsson Guðmundur' Guðmundsson Magnús Pétursson Varámenn: Carl Bermann Hreiðar Ársælsson Tækninefnd Karl Guðmundsson Óli B. Jónsson Reynir Karlsson ÍÞRÓTTIR Framhald af bls. 13 af báðum liðum. Leikurinn var kvikmyndaður frá fyrstu mínútu til hinnar síðustu, og er áreiðan- legt, að fsl. knattspyrnuunnendur munu njóta myndarinnar vel. Blaðamönnum gafst í gær tæki- færi til að sjá síðari hluta mynd- arinnar, síðari hálfleikinn, en þá voru bæði mörk leiksins skoruð. Sá, sem þetta ritar, hefur séð fyrri hlutann og er hann ekki síð- ur skemmtilegur. — Til stóð, að hefja sýningar á myndinni n. k. laugardag, en KSÍ tók það ráð að fresta sýningunni um viku vegna þess, að landsliðið í hand- knattleik leikur gegn Dukla Prag á laugardaginn. En sem sé, mynd- in verður sýnd annan laugardag í Gamla Bíói. PELSAR Framhald af 8. síðu. oft sMptir verðið engu máli. Framleiðendur pelsa hafa fylgst það vel með þróuninni, að pelsinn heldur sínu gildi. Þeir eru farnir að þynna húð ina svo að pelsinn verður ekki eins þungur og áður var. og síðu axlabreiðu pelsarnir eru úr sögunni. nú eru þeir klipptir og skornir samkvæmt tízkunni og litaðir í bleikum og bláum litum. Fleiri og fleiri skinnteg undir eril teknar i pelsasaum og má þar til dæmií nefna is- lenzku gráu gærurnar. Sú sem kaupir pels þarf að hugsa vel um hann. Pelsinn má ekki hanga f heitri for- stofu, hann þarf að ’hanga á köldum stað, því að hann þolir ekki hita. Þegar pelsinn er ekki notaður á að geyma hann í pappírspoka en ekM plastpoka því að skinnið þarf að anda. Á VÍDAVANG Framhald af bls. 3 þessara skflyrða né mörgum öSrum yrði fullnægt. því var afstaða flokksins ráðin á móti þessari stóriðju nú og undir þessum kringumstæðum. Ef sú afstaða hefði ekki verið tekin hefði flokkurinn genigið gegn skýlausum samþykktum flokks þinga og miðstjómarfunda, og þá hefði verið hægt að segja, að hann hefði alveg snúizt í málinu. Það er þvi alveg út í hött, þegar Morgunblaðið er að tína til gamlar tilvitnanir eftir Fram sóknarmenn, sem hafa lýst á- huga sínnm á stóriðju. Það hafa flokksþing hvað eftir ann að gert með ófrávíkjanlegum, íslenzkum skilyrðum, og það eru þau, scm úrslitum ráða um það, hver afstaða flokksins til slíkra einstakra mála er hverju sinni. BÚRFELLSVIRKJUN Framhald af bls. 5. unnar á þeim grundvelli að það væri skynsamlegri virkjunarkost urinn fyrir okkur sjálfa. Sú af- staða kemur glöggt fram í þing- skjölum um Landsvirkjunarlög- in. Við skulum hefjast handa um Búrfellsvirkjun án tafar með til- liti til þarfa okkar sjálfra. Alu- mínbræðsla getur beðið síns tíma. Síðar má alltaf auka hrað- ann í rafvirkjunarframkvæmdum til þess að skapa orkugrundvöll fyrir stóriðju, ef eða þegar hún yrði talin æskileg. H. B. FERÐAMENN Framhald af 9. síðu. Samanburður á gjaldeyristekjum af erlendum ferðamönnum aftur í tímann er tilgangslaus ef rétt mynd á að fást, þar sem erlendur gjaldeyrir var hér svartamarkaðs vara allt til ársins 1960, er gengi íslenzku krónunnar var rétt skráð. Hins vegar má gera ráð fyrir, að eðlilegt ástand um meðferð er- lends gjaldeyris sé orðið að veru leika 1962, en það ár kaupa bank amir erlendan ferðagjaldeyri fyr ir kr. 42.500.000,00. Það ár koma til landsins 17.249 ferðacnenn en eyðsla á hvem ferðamann nemur kr. 2.464.00. Eins og að framan segir var eyðsla á hvem erlendan ferðamann að meðaltali á árinu 1964 kr. 3.557,00. Þannig nemur hækikun á meSaltalseyðs'lu er- lendra ferðamanna 44.4% á tíma- bilinu 1962-1964. Þessi mikla hækkun stafar að einhverju leyti af betri sMlum á erlendum gjald- eyri til bankanna. Hins vegar má ekki loka augunum fyrir þeirri staðreynd, sem er aðalatriði í þessu máli, að hin síaukna dýrtíð innanlands gerir það að verkum fyrr eða seinna, að erlendir ferða menn faar hér hiá garði, ef ekki tekst a? halda verðbólgunni í skefjum. Þrátt fyrir þá staðreynd að verðbólga er' ekM fyrirbæri sem við fslendingar eigum einir ' höggi við. þá er verðbólga hér á landi mun mein en hjá frændum vorum á Norðurlöndum. Þó kvarta þeir, sem að ferðamálum vinna á hinum Norðurlöndunum yfir sí- hækkandi • verðlagi á allri þjón- ustu. jnda “r ospart látin í ljós ótti við að ferðamenn gisti ekki löndin ef svo heldur fram. sem horfir Tekjui aí erlendum ferðamönn um á íslandi eru enn sem komið er ekki áberandi liður í gjaldeyr isöflun þjóðarinnar. Samkvæmt upplýsingirm The Organisation for Economic Co-operation and Developmemt, voru tekjur af er- lendum ferðamönnum 0.8% af heildartekjum íslendinga af vör- um og þjónustu árið 1962. Voru íslendingar um þessi efni neðstir á blaði landa innan OECD. Næst kemur TyrMand með 1.5%. Sam- bærilegur hundraðshluti hjá Dön um var 6%, en Spánverjar eru hæstir þjóðanna með 31.3%. Uni on of Official Travel Organisation telur, að á árinu 1964 hafi saman lagður fjöldi ferðamanna um alla heimsbyggðina verið 105 milljón ir. Ferðamönnum fjölgar stöðugt þannig er fjöldinn 1964 15% meiri en 1963, en fjöigun frá 1962 —1963 er 12% ”. SMURT BRAUÐ Framhald af 8. s«M. steinselju, dilli eða kapersfeorn um. Einnig má saxa í einu eggja rauður og hvítur og blanda þeim saman við ansjósurnar bæta síðan út í nokkruim dropum af ansjósu sósu. Brauðsneiðarnar eru þá smurðar með þessari blöndu og fínsöxuðiu dilli eða kapers stráð yfir, eða skreytt með tómatsneið. Smurt brauð með reyktu svína- kjöti og eplum. Rúg- eða hveitibrauð smjör eða sinnepssmjör soðið, reykt svínakjöt (sMnka) epli, vínber eða hlauð. Eplið er afhýtt, skorið í jafnar sneiðar, sett í dauft sykurvatn og suðan látin koma upp. Sneiðarnar teknar upp og vatnið látið renna af þeim. Kjarnahúsið skorið burt, þannig að eftir er lítið kringlótt gat. Kringlóttar brauðsneiðarnar smurðar með smjöri eða sinneps smjöri. Hver brauðsneið er þakin imeð sneið af reyktu svinakjöti. Eplasneið lögð þar ofan á og hol an fyllt með vínberi eða einhverju góðu hlaupi. Skreyta má brauð sneiðarnar frekar með því að strá fínt saxaðri gúrku hringinn í kring um eplasneiðina. Sinnepssmjör: 3 msk. smjör í skál og hrærið það til það er hvítt. Sé smjörið mjög hart má setja það yfir hita. Setjið síðan sinnepið í. Látið smjörið harðna og búið til úr því kúlur með smjörspöðum. Á þfennan hátt má búa til tómat smjör, piparrótarsmjör o. fl. með mismunandi bragðefnum. Smurt brauð með osti, rækjum og olíusósu. Hveitibrauð smjör rækjur oliusósa steinselja Osturinn skorinn í jafnar fer hyrndar lengjur. Brauðsneiðarnar (ferhyradar) srmurðar. Olíusósunni er sprautað í stóran topp á miðja sneiðina. Ostlengjunum er stungið í toppinn. Rækjunum stungið í olíusósuna milli ostlenganna, þannig að þær myndi krans. Horn in á sneiðinni skreytt með stein selju. Smurt brauð með osti, hnetum og hlaupi. Hveitibrauð smjör hesli- eða valhnetukjamar hlaup vínber. Hnetukjaraarnir saxaðir og ost urinn skorinn í litla, þrfhymda bita. Brauðsneiðarnar (kringlóttar) smurðai 3—4 ostbitar settir á helming hverrar brauðsneiðar. Á milli þeirra er skreytt með t. d. eplahlaupi. Hnetunum stráð yfir hinn helming sneiðarinnar og skreytt með vínberi.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.