Tíminn - 09.02.1966, Qupperneq 2

Tíminn - 09.02.1966, Qupperneq 2
MIÐVIKUDAGUR 9. febrúar 1966 2 ____________■ _____TÍMINN_ FÉLAG ÍSLENZKRA BOTNVÖRPU- SKIPAEIGENDA FiMMTÍU ÁRA Félag íslenzkra botnvörpuskipa- eigenda á fimmtíu ára afmæli í dag, en það var stofnað 9. febrúar 1916 og var Thor Jensen þáver- andi aðaleigandi og framkvæmd- arstjóri forgöngumaður um stofn- un félagsins. Var hann fyrsti formaður félags ins, með honum voru í stjórninni þeir Th. Thorsteinsson, varafor- maður, Ágúst Flygenring, ritari, Jes Ziemsen, gjaldkeri og Magn- ús Einarsson dýralæknir, með- stjúrnandi. Síðari formenn félags- ins voru Ólafur Thors frá 1918 til 1935, Kjartan Thors frá 193'5 til 1959 og Loftur Bjarnason frá 1959, og gegnir hann enn for- mannsstörfum. Með honum eru nú í stjórn: Jónas Jónsson, vara- formaður, Ólafur H. Jónsson, rit- ari, Ólafur Tr. Einarsson, gjald- keri. Meðstjórnendur Marteinn Jónasson, Valdimar Indriðason og Vilhelm Þorsteinsson. Núverandi framkvæmdastjóri félagsins er Sig urður H. Egilsson. Blaðinu barst úrdráttur úr sögu togaraútgerðarinnar hér á landi, sem formaður félagsins Loftur Bjarnason hefur tekið saman og fer hann hér á eftir nokkuð siytt- ur. Á níunda áratug 19. aldar hófu Englendingar botnvörpuveiðar á gufuskipum. Á þessum nýju skip- um sóttu þeir í æ rikara mæli íslenzk fiskimið. Hin gömlu fiski- skip sín, kútterana, seldu bejr öðrum fiskveiðiþjóðum. Fjöldi þessara gömlu skúta voru keypt- ar til landsins á árunum 1890 til 1905. Fyrsta tilraun til botnvörpuút- gerðar, sem íslendingar áttu hiut- deild að ásamt útlendingum, var hin svokallaða Vídalínsútgerð um síðastliðin aldamót. Var Jón Vída- lín konsúll og umboðsmaður kaup félaganna, forgöngumaður þessar- ar tilraunar, en stjórn skipanna og fjármagn, sem í hana var lagt, var í höndum útlendinga, og mis- tókst tiiraunin. Fyrsti togarinn var keyptur til landsins árið 1905, „Coot“ frá Grimsby, gamalt skip 150 smálest- ir brúttó, skipstjóri Indriði Gott- sveinsson. Stóð Einar Þorgilsson í Hafnarfirði og fleiri fyrir kaup- unum og var skipið gert út þaðan. Útgerð togarans gekk sæmilega, en skipið strandaði nokkrum ár- um síðar við Keilisnes. Þrem mánuðum síðar kom ann ar togari til Reykjavíkur, „Sea Gull,“ skipstjóri Árni Byron Eyj- ólfsson. Forustu um kaupin hafði Þorvaldur Bjarnason á Þorvalds- eyri. Skipið var rautt á lit og hlaut nafnið „Fjósarauður“ manna á milli, vegna litsins og eigandans. Skipið var gamalt, 126 lestir. Vélar skiptsins voru í ólagi ' og engin aðstaða til nauðsynlegr- ar viðgerðar í landi. Varð eigandi togarans fyrir miklu fjárhagslegu tjóni á útgerðinni. Fyrsti nýi togarinn, sem byggð- ur var fyrir íslendinga var „Jón forseti," 233 lestir, eigandi var Alliance h.f., Reykjavík, stofnað árið 1906 fyrir forgöngu Thor Jen sen og skútuskipstjóranna Hali- dórs Kr. Þorsteinssonar, Jóns Ól- afssonar, Magnúsar Magnússonar, Kolbeins Þorsteinssonar, Jafets Ó1 afssonar og Jóns Sigurðssonar. Halldór Kr. Þorsteinsson varð skipstjóri á „Jóni forseta." Hann hafði búið sig undir starfið með því að vera háseti hjá Árna Byron Eyjólfssyni. Þrír menn hafa verið gerðir heiður'fA1aoar í Félagi ísl. botn- vörpuskipaeigenda, þeir Thor Jen sen, Halldór Kr. Þorsteinsson og Þórarinn Olgeirsson, skipstjóri og ræðismaður í Grimsby. Næsti togari, sem íslendingar keyptu frá Englandi árið 1907 var b. v. „Marz“, eign íslands félagsins h.f. Aðalforgöngumenn þess félags voru Jes Ziemsen, kaupmaður og Hjalti Jónsson skip stjóri togarans. í kjölfar þessara nýju togara komu mörg ný skip, og stuðlaði hinn nýi hlutafjárbanki, fslands- banki, mjög að eflingu togaraút- gerðarinnar, en bankinn hafði haf ið starfsemi 1904. Með togaraút- gerðinni var véltækni nútímans fyrst tekin í þjónustu íslenzkra atvinnuvega svo nokkuð kvæði að. Togaraútgerðin kallaði á nýjar framkvæmdir og þjónustu, jók hún atvinnu og verzlun, einkum í aðalútgerðarbæjunum, Reykja- vík og Hafnarfirði. Árið 1915 voru gerðir út frá Reykjavík 17 togarar. Togaraútgerðin varð fyrir mikiu áfalli 1917, þegar banda- menn kröfðust þess að 10 togar- ar yrðu seldir Frökkum til var'n- ar gegn kafbátahættunni, sem þá var í algleymingi. í stríðslok 1918 voru aðeins 9 togarar í eigu fs- lendinga. Árin 1920 til 1922 var mikið verðfall á saltfiski og ís- fiskmarkaðurinn í Englandi var óhagstæður. Urðu þá togararnir ’jfyrir miklum töþum, en Hagur þeirra snerist mjög til þess betra 1924, þegar fundust ný, auðug fiskimið „Halamiðin," og verð á saltfiski var jafnframt mjög hag- stætt. Á árunum 1919 til 1927 voru keyptir til landsins 44 togarar. Á árinu 1928 var keyptur einn togari á strandstað, 1929 kom einn nýr togari til lansins og ann- ar 1930. Síðar kom enginn nýr togari til landsins fyrr en 17. febrúar 1947. Tveir togarar, sem verið höfðu í eigu útlendinga, ann ar franskur, en hinn enskur, voru keyptir til landsins 1936 og 1939. Af ýmsum ástæðum hafði mjög sorfið að togaraútgerðinni allar götur frá 1927 fram að síðari heimsstyrjöld. Hafði togurum far- ið fækkandi á þessum árum og voru þeir ekki nema 37 talsins þegar styrjöldin skall á 1. septem- ber 1939. Meiri hluti fiskiskipaflota lands manna var þá gamall og hrörn- andi og stórkostlegt atvinnuleysi hafði verið frá 1931, og almenn skuldaskil hjá landbúnaði 1933 og hjá bátaútvegsmönnum 1935— 1936. Það sem mest amaði að á þess- um árum, var röng gengisskrán- ing, almenn viðskiptakreppa, upp- lausnarástand og borgarastyrjöld á Spáni, sem var annað aðalmark- aðsland fyrir íslenzkan saltfisk. Tíu prósent innflutningstollur hafði verið settur á í Bretlandi eftir Ottawa ráðstefnuna 1933, og jafnframt var innflutningurinn skorinn niður á íslenzkum ísfiski til Bretlands og fór kvótinn minnkandi ár frá ári, og var svo komið í september 1939, að inn- flutningskvótinn fyrir það ár var fullnotaður. Mikil hjálp var í því á síðustu árum fyrir styrjöldina, að innflutningskvóti á ísfiski fékkst rýmkaður í Þýzkalandi fyr- ir atbeina Jóhanns Þ. Jósefssonar síðar fjármálaráðherra. Þegar stríðið hafði staðið lið- lega eitt ár, afléttu Englendingar 10% innflutningstollinum en inn- flutningshömlunum (kvótanum) á íslenzkum fiski í október 1939. í október 1939 hófu því íslenzku togararnir siglingar til Bretlands að nýju, og sigldu allt stríðið með afla til sölu á brezkum markaði, og önnur fiskiskip og flutninga- skip með ísfisk og hraðfrystan fisk, sem aflast hafði á íslenzka bátaflotann. Á vissu tímabili var talið, að 70% af neyzlufiski Breta hefði aflazt á íslenzk fiskiskip. Siglingarnar til Bretlands á stríðs árunum og fyrstu árin eftir stríð- ið bættu mjög afkomu íslenzka sjávarútvegsins og þjóðarinnar í heild. Hin mikla gjaldeyriseign fslendinga í stríðslok, hafði fyrst og fremst komið frá sjávarútveg- inum. En þessar siglingar höfðu í för með sér mikla hættu fyrir áhafnir og skip. Samkvæmt upplýsingum Slysavarnafélags fslands, er talið að í síðari heimstyrjöldinni 1939 — 1945 hafi 10 íslenzk skip farizt. af styrjaldarástæðum. Með þessum skipum fórust 163 íslendingar, auk þess sem 5 sjómenn biðu bana er þýzkur kafbátur réðst með skot hríð á íslenzkari línuveiðara. Af þessum 10 skipum voru 5 togarar og með þeim fórust 99 íslending- ar. f stríðinu hafði verið heimilað að safna fé í nýbyggingarsjóði hjá útgerðar- og skipafélögum. Kom þptta fé 1 góðar þarfir í s&íðslókin, því að auk skipatjóns- ins voru þau skip, sem enn yoru við líði, flest 30 ára eða eldri, orðin úrelt og ekki til frambúðar. þrátt fyrir það, að þeim hafði ver- ið vel við haldið síðustu árin. Ríkisstjórn Ólafs Thors, nýsköp unarstjórnin, hófst handa um ný- sköpun togaraflotans. Samið var um smíði á 30 togurum í Bret- landi árið 1945, og tveim til við- bótar 1946. Árið 1948 samdi stjórn Stefáns Jóh. Stefánssonar um smíði á 10 togurum, af þessum 42 togurum voru 4 dieseltogarar, 2 af þeim fyrstu 30 og 2 af þeim 10 síðustu. Mjög hagstæð kjör fengust um smíði og afgreiðslu fyrstu 32 togaranna, sökum þess að enskir útgerðarmenn höfðu þá ekki gert upp við sig, hvort þeir ættu að smíða svo dýra og stóra togara að þeirra áliti. Er óhætt að fullyrða, að nýsköpunar- togararnir hafi verið beztu togar- arnir, sem nokkurs staðar höfðu verið smíðaðir fram til þess tíma. Það er fyrst nú síðustu árin, að rætt er um að ný gerð togara taki nýsköpunartogurunum að sumu leyti fram, enda eru þessi nýju skip margfalt dýrari í stofn- kostnaði en nýsköpunartogararn- ir voru. Hinn 1. september 1946 var 10% innfiutningstollurinn á ís- fiski látinn taka gildi að nýju í Bretlandi. Fiskmarkaðurinn þrengdist og verðið fór lækkandi eftir því, sem fleiri skip tóku þátt í veiðunum og meira barst að af fiski. Þegar þannig kreppti að á aðalmarkaðinum, hafði það ómet- anlega þýðingu fyrir togaraútgerð ina að semja tókst um miidar landanir í Þýzkalandi fyrir fast og hagstætt verð við Bandaríkja- menn og Breta fyrir árið 1948 og 1949. Tókust þessir samningar fyrir atbeina Bjarna Benediktsson ar, þáverandi utanríkismálaráð- herra. Einnig hafði það mikla þýð ingu fyrir sjávarútveginn í heild, að það tókst að vinna upp mjög stóran markað fyrir hraðfrystan fisk í Bandaríkjunum undir for- Framhald á bls. 15. FARNIR AÐ SKiPU- LEGGJA HERSTÖÐV- AR A TUNGLINU? NTB—Genf, þriðjudlag. aðaryfirvöld ynnu nú þegar að rannsókn á tunglinu með það Hermálayfirvöld eru þegar fyrir augum, að koma á fót farjn að skipuleggja herstöðv herstöðvum þar. Hann út- ar á tunglinu, fullyrti fasta- skýrði ekki nánar hvað hann fulltrúi Sovéríkjanna á afvopn ætti við með „hemaðaryfir- unarráðstefnunni í Genf, Semj völd“. on Zarapkin, i dag. Þetta ætti Zarapkin sagði einnig, að að leggja enn meira að full- Evrópa sæti á kjamorku-eld trúunum á þessari ráðstefnu, fjalli vegna Bandaríkjanna og að komast að jákvæðri niður herforingjanna í NATO. Hann stöðu, sagði hann. minnti á, að bandarísk flugvél Zarapkin sagði þetta, þegar með kjarnorkusprengjur inn- honum var óskað til hamingju anborðs hefði nýlega hrapað með það afrek Sovétríkjanna, yfjr Suður-Spáni, og hefði ein að láta Lúnu-9 lenda mjúkt á ungis tilviijun komið í veg fyr tunglinu. Hann sagði, að hern ir hroðalegan atburð þar. SKÝRSLA UM BRUNAÚTKÖLL Nýlega hefur verið gefin út skýrsla Slökkvistöðvarinnar í Reykjavík um útköll og elds- voða í Reykjavík árið 1965. í þessari skýrslu er að finna margs konar upplýsingar um fjölda kvaðninga, á hvaða tíma sólar- hrings o , m. fl. Það kemur t. d. fram i áður nefndri skýrslu að á árinu hafa verið flest útköll frá hádegi til kvölds og á þeim tíma flest á tímabilinu frá kl. 15—18. Flest urðu útköll í janúarmánuðj, 68, en fæst í september eða 27 talsins. Út- köU urðu á árinu 534 að töliu, en í 167 tilfellum var ekki um eld að ræða. Samkvæmt skýrslu Slökvistöðv arinnar hefur íkveikja verið FANNST MEÐ PÖSTTÖSKUNA Á ÖXLINNI FB—Reykjavík, þriðjudag. Líkið af Auðunni Eiríkssyni póst manni frá Raufarhöfn. sem týnd ist. fyrir hálfum mánuði, er hann var á leið til Raufarhafnar, frá Krossavík fannst í gær. Auðunn hafði þá verið kominn langleiðjna til Raufarhafnar, en eins og skýrt var frá i fréttum hafði hann yfir gefið jeppa sinn, þegar hann var kominn upp á Ytri Háls. Bóndinn á Sveinólfsvik var á leið hejm til sin í gær, þegar hann sá lík Auðuns rétt fyrir utan veginn um það bil 2—3 kíló metra frá Ormarslóni, en það er skammt frá Raufarhöfn. Hafði Auðunn greinilega sezt niður und ir barði, við veginn og var hann með pósttöskuna á öxlinni. Er talið fullvíst, að þegar hafj fennt yfir Auðunn, eftir að hann settist niður því nákvæmlega hafði ver ið leitað á þessum slóðum, en síðan hafi skafið ofan af honum afur, þegar vindátt breyttist. Auðunn var maður um fimm- tugt, hann var ókvæntur. helzta orsök eldsvoða á árinu, en í 124 tilvikum af 367 er hægt að tala um íkveikju með fullri vissu. Þá hafa sjúkrabifreiðamar haft nóg að gera á árinu en þær hafa farið 19.73 ferðir til jafnaðar á sólarhring, þar af 14,93 innambæj ar. ALDREI EINS ÍIT- FLUTNINGUR OG í DESEMBER SJ—Reykjavík, þriðjudag. Vöruskiptajöfnuður í des. var hagstæður um rúml. 103 milljón ir króna. í þeim mánuði voru fluttar út vörur fyrir 835,4 millj- ónir króna, og hefur aldrei áð- ur verið flutt út eins mikið vöru magn í einum mánuði. Innflutningurinn nam 616,4 milljónum króna, að frádregnum skipum og flugvélum og er þar einnig um að ræða mesta inn flutning. sem orðið hefur í mán uði. Vöruskiptajöfnuðurinn jan. — des. 1965 var óhagstæður um 342, 2 mjllj. kr. Féll fyrir borð við Siglunes BJ—Siglufirði, þriðjudag. Á laugardagskvöld, er vélbátur inn Orri frá Akureyri var á leið frá Akui'eyri til Siglufjarðar féll maður útbyrðis og drukknaði. Átti slysið sér stað á móts við Reyðará á Siglunesi. Tildrögin að slysinu voru þau, að hinn látni, Adolf Einarsson var á leið út úr brú bátsins, er hann hrökk fyrir borð. Leitað var að honum, en hann fannst ekkj. Adolf var búsettur á Siglufirði, kvæntur og átti tvö uppkomin böm. Hann vai nær fimmtugur að aldri.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.