Tíminn - 17.02.1966, Page 1
Auglýsing í Tímanum
kemur daglega fyrir augu
80—100 þúsund lesenda
Gerizt askntendur að
Timanum
Hrmgið í sima 12323.
39. tbl. — Fimmtudgur 17. febrúar 1966 — 50. árg.
• •
VIGVOLLURINN
Nokkuð á þriðja þúsund bandarískra hermanna hafa verið drepnlr
í Vietnam. f síðustu viku missti 91 bandarískur hermaður lifið i
bardögum á jörðu niðri f Suður-Vietnam. Það er hærri tala en nokkra
aðra viku f sögu bandarfskrar þátttöku i styrjöldinni. 423 bandarískir
hermenn særðust, og þriggja er saknað.
Stjórnarherinn missti f síðustu viku 249 hermenn. Víet Cong
missti 624 hermenn. Allar þessar tölur eru sjálfsagt byggðar á upp-
lýsingum bandarískra og suður-vietnamískra talsmanna — aðrar heim
ildir eru ekki fyrir hendi. En þær bera vitni um sffellt meiri blóðs
úthellingar.
Myndln hér til hliðar er frá Suður-Vfetnam, nánar tiltekið i Tam
Quahn, og er gott dæmi um vfgstöðvarnar f frumskógum Suður-
Vfetnam.
Sinfóníuhliómsveitin og Sjónvarpið deila
VILJA SAMNINC
VIÐ SJÓNVARPIÐ
GÞE—Reykjavík, miíívikudag.
Skorizt hefur • odda milli Sin-
fóníurljómsveitar íslands or sjón
varpsins, og stendur deilan um
kvikmynd, sém taka átti af flutn
ingi 9 sinfóniu Beethovens. en
fórst fyrir, vegna skilyrða, sem
Sinfóníuhljómsveitin setti um
birtingu myndarinnar, en því skil
yrði töldu hlutaðeigandi aðilar sig
ekki geta gengið að.
Nánari atvik eru þau. að forráða
mönnum útvarps og sjónvarps
kom saman um, að kvikmynda
ætti flutníng þessa meistaraverks,
sem nú er flutt * fyrsta skipti hér
lendis, og birta myndina f annál
ársins, sem einn mesta merkisvið
burð f menningarlífi landsins. Rétt
12 inni-
lokaðir
í námu
NTB-Kamplintforz,
miðvikudag.
Fimm námuverkamenn
fórust og 12 lokuðust niðri
í kolanámu í Vestur-Þýzka-
landi síðdegis í dag, þegar
sprengja varð í námunni,
sem tilheyrir Krupp-auð-
hrignum og er i útjaðri
Ruhr-héraðsins.
Talsmaður námufélagsins
sagði í dag, að hugsanlegt
sé, að þessir 12 eða ein-
hverjir þeirra séu ekki á
lífi. Var því þegar hafið mik
ið björgunarstarf. Námu-
verkamennirnir munu vera
í göngum, sem eru 700
metra niðri í jörðinni, og
það mun taka um tvo sólar-
hringa að ná þeim upp, ef
,þeir eru lifandi. Þrír menn
sem einnig voru í þessum
göngum, gátu komið sér út
áður en þakið féll.
Dagskammtur fiskverzlunar í
4 rauðsprettur og
2 til 3 saltfiskar!
SJ—Reykjavík, miðvikudag.
Undanfarna morgna hafa árrisul
ar reykvískar húsmæður slcgizt
um að fá fisk i soðið og segja má
að nú sé aðalsmerki góðrar hús
móður að bera á borð nýjan fisk.
Svo rammt kveður að fiskleysinu.
að ein fiskverzlun fékk ekki nema
4 rauðsprettur og nokkra salt-
fiska f morgun.
Björgvin Jónsson, eigandi Sæ-
bjargar, skýrði blaðinu svo frá,
að undanfarið hefði verið mjög
erfitt að ná f fisk, enda bæði fiski-
leysi og gæftarleysi. Einn trollbát
ur er á veiðum eingöngu fyrir
verzlunina, en gæftarleysi hamlar
mjög veiðum. Björgvin áleit, að
innan tíðar myndi berast nægur
fiskur — i fyrra hófst fiskiganga
um 20. febrúar og fiskaði báturinn
ágætlega úr því. Ýsa er keypt hjá
netabátum i. Grindavík, en veiðin
hjá þeim hefur verið svo Util, að
það hefur ekki borgað sig að sækia
aflann. Við áttum mikið magn at
heilfrystri ýsu, sagði Björgvin en
það er allt uppselt, við eigum
enn saltfisk og einnig höfum við
verið með frosin flök, sem við
höfum fengið hingað og þangað.
Við höfum tvo línubáta, en þeir
Framhald á bl 14
þótti að fá til þess samþykki
þeirra. sem að flutningi sinfóní
unnar stóðu á einn og annan hátt,
og var haft samband við dr.
Róbert Abraham Ottósson hljóm
sveitarstjóra, stjórn Söngsveitar-
innar Fílharmoníu einsöngvara svo
og Gunnar Guðmundsson fram
kvæmdastjóra Sinfóníuhljómsveit
arinnar og stjórn hennar. Veittu
allir þessir aðilar goðfúslega ieyfi
til þessarar kvikmyndatöku, en
svo sem fyrr segir setti stjórn
hljómsveitarinnar f samráði við
lögfræðing fram samning um
birtingu myndarinnar sem varð
til þess, að ekkert varð af mynda
tökunni. Blaðið hafði í dag sam-
band við formann Sinfóníuhlióm
sveitarinnar, Einar Waage, og
spurðist fyrir um málið, og veitti
hann okkur leyfi til að birta þann
samning, sem kvikmyndatakan
strandaði á.
Hljómsveitin hefur ekki með
samningi þessum selt neinn rétt
til að sjónvarpa eða hljóðvarpa i
sjónvarpi á tónflutningi hljómsveit
arinnar.
„Starfs’mannafélag Sinfóníuhljóm
sveitarinnar heimilar hér með
Ríkisútvarpinu 'Sjónvarpinu) að
taka hljóðlausa kyrrmynd eða
kvikmynd af hljómsveitinni við
flutning 9. sinfóníunnar 15. febrú
ar. Leyfi þessu fylgir ekki réttur
til birtingar myndarinnar í sjón
varpi eða á annan hátt. Skal um
það samið sérstaklega."
Sagði Einar, að þetta hefði verið
sett fram i öryggisskyni, því að
hljóm- oítin vissi ekki enn, hvern
ig hún stæði gagnvart sjónvarp
tnu. Hins vegar fæli samningurinn
Framhald á bi. 14.
fí-MBNN A THUGA Þ0TURIUSA
KT—Reykjavík, þriðjudag.
Líða tekur að þvi, að Flugfélag
íslands taki ákvörðun um, hvaða
tegund af þotum verði fyrir valinu,
er félagið eykur vélakost sinn.
Eins og fram hefur komið i frétt
um, er um að ræða sex tegundir,
sem valið verður um. Tegundirnar
eru Douglas, Boeing 727, Boeing
737, BAC-111, Trident, Caravelle.
Undanfarið hafa farið fram um-
ræður og rannsóknir hjá Flugfe-
lagi íslands um væntanleg þot.u-
kaup. Þessar athuganir hafa orðið
meiri en gert var ráð fyrir í upp
hafi. Þeir Jóhann Gíslason og Birg
ir Þorgilsson hafa nýlega verið
sendir utan til þess að skoða og
kynna sér Douglas og Boeing-
verksmiðjurnar í Bandarikjunum
og fara væntanlega þrír menn að
auki á eftir þeim, þ. á. m. Örn
Johnson, forstjóri Flugfélagsins.
Verða þessir menn nokkra daga að
kynna sér verksm. og þá væntan-
lega hina nýju þotu frá Boeing,
Boeing 737, en sú þota er sem
stendur aðeins til á teikniborðinu.
Þessar utanferðir eru, eins og áður
segir liður i hinum umfangsmiklu
athugunum sem farið hafa fram
að undanförnu.