Tíminn - 17.02.1966, Blaðsíða 14
14
TÍSVðlNN
FIMMTUDAGUR 17. febrúar 19GG
STEIKARPÖNNUR
Framhald aí 16 siðu
köku en síðan var blýmagnið rann
sakað I matnum. Hið sama var
gert með pönnum með óverulegu
blýinnihaldi.
Ekki fannst vottur af blýi í
matnum af síðarnefndu pönnun
um, en í mat er lilreiddur hafði
verig á pönnu með 29% blýi
I.
ÞAKKARAVÖ
Öllum þeim, sem glöddu mig með gjöfum, heimsókn-
um og skeytum á sextugsafmæli mínu, þakka ég hjart-
anlega.
Lifið heil.
Valgeir Elíasson, Miklaholti.
Hjartans þakkir fyrir vináttu, sem mér var sýnd á
75 ára afmæli mínu.
Helgi Ágústsson.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og
jarðarför, eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
Björns Benediktssonar
Krossholti,
Ingibjörg Ólafsdóttir,
Kristín Björnsdóttir, Ingibjörg Björnsdóttir,
Valgerður Björnsdóttir, Eiríkur Brynjólfsson,
og barnabörn.
Jarðarför eiginmanns míns og föður okkar,
Guðna Þorfinnssonar
Álfheimum 50,
fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 18. febr. kl. 13.30
Steingerður Þorsteinsdóttir,
Sigríður Guðnadóttir,
Þorfinnur Guðnason,
Þorsteinn Guðnason,
Gerður Guðnadóttir,
Steinunn Guðnadóttir.
Við færum hjartans þakkir öllum þeim er sýndu samúð og hlut-
tekningu við andlát og jarðarför, sonar okkar og bróður,
Haraldar Ásgeirs
Guð blessi ykkur öll.
Halldóra V. Elíasdóttir
Ásmundur U. Guðmundsson og
og systklni.
1
Jarðarför
Árna Kristjánssonar
bónda, Kistufelli, Lundarreykjadal
fer fram frá Lundi, laugardaginn 19. þ. m. kl. 14. e. h. Bilferð frá
Búnaðarfélagshúsinu Lækjargötu kl. 10. f. h.
Eiginkona og börn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda hluttekningu við andlát og jarð-
arför móður okkar, tengdamóður og ömmu
Sigríðar Tómasdóttur
frá Kollabæ.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Hjartanlega þökkum við öllum þelm, sem sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og jarðarför sonar okkar bróður og mágs
Sveins Grétars Jónssonar
Efri-Ey Meðallandi
Sérstaklega þökkum við læknum og hjúkrunarliði Landsspítalans
fyrir frábæra alúð og hjúkrun í hans löngu veikindum; öðrum
þeim, sem léttu honum erfiðar stundir með heimsóknum oq gjöf-
um, sendum við kærar þakkir.
Guð blessi ykkur öll.
Ingibjörg Ingimundardóttir, Jón Árnason,
Ómar Jónsson,
Eygló Jónsdóttir, Svavar Jónsson,
Árni Jónsson, Sunneva Jónsdóttir,
Halla Jónsdóttir, Magnús Emilsson.
Innilegar þakktr færum við öllum þeim, naer og fjær, sem
sýndu okkur samúð og vinarhug vegna veikinda, fráfalls og
arfarar elsku litla drengsins okkar,
Bjarnþórs
Guð blessi ykkur öll,
Bergljót Friðþjófsdóttir,
Guðjón Torfason.
í tinhúðuninni komust 2.2 milli-
grömm i pönnukökuna og 2.5 mgr
í eggið og svínsfleskið. í mat af
pönnu meg 41% blýi komust 5.9
mgr í pönnukökuna og 4.1 mgr
í hitt. Er þetta meira blýmagn en
talið er óhætt að neyta daglega.
Blý safnast fyrii í líkamanum og
getur að lokum orðið of mikið og
þá um leið skaðlegt. Matvæla-
nefnd heilbrigðismálaráðuneytis-
ins brezka áætlaði hámark hættu
lauss daglegs magns 1—2 mgr ár
ið 1954. en nýjar rannsóknir'
benda til, að blý sé enn hættu-
legra en áður var talið, sérstak-
lega fyrir böm. Auk hinna skað
legu áhrifa á líkamann geti of
mikið blýmagn i blóði tafið og
truflað andlegan þroska barna.
Vegna hins sérstaka eðlis þesa
máls segir í tilkynningu Neytenda
samtakanna þykir rétt að nefna
tegundarheiti panná þeirra. sem
höfðu ískyggilega mikið blý í tin
húðuninni, og eru þau eins og
fyrr segir Judge, Jury, Thistle og
Victorpan, en ekki hafa Neytenda
sámtökin fengið vitneskju um,
hvort þessar tegundir hafi verið
hér í verzlunum eða ekki. Með
birtingu nafnanna er verið að
vekja athygli seljenda, innflytj-
enda og neytenda á því, að allrar
varúðar er þörf í þessu efni, og
er því þýðingarmikið að gseta allt
af vel að öllum vörumerkjum, og
sýnir þetta dæmi Ijóslega, hve
mikla þýðingu góð vörumerking
getur haft.
nuö-
jarS-
LAFUR THORS
Framhald af 16. síðu.
bankastjóri og Andrés Björns
son lektor lagt síðustu hönd á
verkið. og tekið endanlega á-
kvörðun um það, hvað tekið
yrði inn á plötuna.
4ndrés Bjömsson les stutt
an formála og kynnir ræður
forsætisráðherrans, en dr.
Bjarni Benediktsson, forsætis
ráðiherra, hefur skrifað um-
sögn um Ólaf Thors á bakhlið
plöíuumslagsins, Framhliðin
er ceiknuð af Hafsteini Guð-
mundssyni, forstjóra í Hóla-
prenti. Platan er framleidd
hjá His Master’s Voice í Bret
landi og verður sett á sölu-
markað eriendis og þá sérstak
lega í Ameríku.
ÉG GAFST UPP
Framhald af 16. síðu.
inn. Samt ber minna á truflunum
í upplestri.
Eg á nýtt Telefunkentæki. sem
er eitt aí dýrustu og beztu tækj
um, sem hér em fáanleg svo að
ekki er hægt að kenna tækinu
um. Eg hlusta á BBC t.d. og em
sendingarnar frá þeirri stöð trafl
unarlausar.
Þetta er i stuttu máli ófært á-
stand. Eg hef talað við framá-
menn hér að undanförnu með
ósk usn. að þeii komi fram al
mennri kvörtun. og yrði kannski
tekið eithvert mark á því frem
ur en að einn og einn maður sé
að kvarta.
4 RAUÐSPRETTUR
Framhald af bls. 1
öfluðu svo illa að það borgaði ekki
einu sinni beituna.
Björgvin sagði að lokum, að í
morgun hefði Sæbjörg fengið dá-
lítið magn af fiski og áttu af
greiðslumenn þá - vandræðum með
að hemja kaupendur
SINFÓNÍ AN
Framhair aí bu i
ekki í sér neina greiðslukröfu
eins og margir virtust ætla og
iafnvel hafði verið slegið fram i
einu dagblaðanna tlann sagði og,
að þó að Ríkisútvarpið annaðist
re.kstur Sinfóníuhljómsveitarinnar
os hefði rétt til Ses.‘ að hlióðrlta
hveria t.ónleika lerinai væri aíis
ekki sama máli að gegna um
sjónvarpið íslenzka.
9. sinfónían verður flutt annað j
kvöld í fimmta skipti, og verður j
það væntanlega í síðasta skiptið. ;
Vonandi verður komizt að sam-!
komulagi um töku þessarar frétta
myndar fyrir þann tíma, því að
flestir eru sammála um, að flutn
ingur 9. sinfóníunnar hér á iandi,
sé atburður, sem vert er að kvik
mynda.
35 þús. sígarettu-
oakkar seldir á
Hverium deei
Aðalfundur Krabbameinsfélags
Reykjavíkur var haldinn h. 31. jan
sl. að Suðurgötu 22.
Formaður félagsins, Bjarni
Bjarnason læknir, setti fundinn
og bauð fundarmenn velkomna. Til
nefndi hann Baldur Johnson
lækni sem fundarstjóra og Hall-
dóru Thoroddsen fundarritara.
Áður en gengið var til dagskrár,
minntist fundarstjóri prófessors
Níelsar Dungal og bað viðstadda
að heiðra minningu hans með því
að rísa úr sætum.
Formaður flutti skýrslu félags-
stjórnar fyrir árið 1965. Aðaivið-
fangsefni félagsins r fjáröflun til
starfsemi krabbameinsfélaganna
og almenn fræðsla um krabba-
mein og skaðsemi tóbaksreykinga.
Skipulagðir voru 23 fræðslufundir
hjá félagasamtökum, aðallega
kvenfélögum og skólum. Fræðslu-
ritum um sjálfskönnun brjósta og
varnir gegn legkrabbameini var
dreift mjög víða meðal kvenna.
Farið var í 33 barna- og ungl-
ingaskóla og dreift bæklingnum
„Tóbaksnautn," sýndar voru
fræðslukvikmyndir um skaðsemi
tóbaksreykinga í mörgum þessara
skóla. Samt kom fram í skýrslu
formanns, að þrátt fyrir áróður-
inn gegn tóbaksreykingum, væri
ástandið hörmulegt í þessum efn-
um. Skv. upplýsingum Tóbaks-
einaksölunnar eru daglega' seldir
35 þús. sígarettupakkar. Kvað for-
maður helzt á stefnuskrá félags-
ins, að ná unga fólkinu áður en
það byrjaði að reykja og gera því
skiljanlegt hversu skaðlegar reyk-
ingar eru.
Tvö happdrætti voru haldin á
árinu og eru allir vinningar gengn
ir út. Jón Oddgeir Jónsson hefur
haft framkvæmdastörf á hendi,
einnig hefur hann skipulagt
fræðslufund í samráði við héraðs-
lækna og félagasamtök.
Félaginu barst rausnarleg gjöf
frá Oddfellowstúkunni „Þorkeli
Mána,“ að upphæð 100 þús. krón-
ur til kaupa á rannsóknatækjum.
Keyptar voru tvær smásjár fyrir
þessa upphæð og Leitarstöð
Krabbameinsfélags íslands gefnar
smásjárnar, en leitarstöðina vant-
aði þær tilfinnanlega. Sá, sem
vann hjólhýsið í vorhappdrætti
félagsins, gaf félaginu aftur þenn-
an vinning og seldi félagið síðan
hjólhýsið. Gefandi lét ekki nafns
síns getið. Margar aðrar minni
gjafir bárust félaginu.
Að lokum skýrði Bjarni Bjarna-
son iæknir frá því, að hann
hefði ákveðið að segja af sér for-
mennsku Krabbameinsfélags
Reykjavíkur og gengi þar með úr
stjórninni. Þakkaði hann sam-
starfsfólki sínu sérstaklega góða
samvinnu.
Dr. Ólafur Bjarnason dósent,
gjaldkeri félagsins, lagði fram end
urskoðaða reikninga félagsins sem
voru samþykktir.
lamkvæmt uppástungu fráfar-
andi formanns. var dr. Gunnlaug-
ur Snædal læk’ kosinn einróma
formaður félagsr.s.
Hinn nvkiörni formaður kvaddi
ser hlióðc o- bakkaði Biarna
Bjarnasym stari hans i þágu
Krabbameinsfél. -ivíkur.
OLAFUR TH0RDARS0N
AFTUR TEKINN VI9 I
FRÍHÖFNINNI í KVÍK
EJ—Reykjavík, miðvikudag.
Ólafur Thordarson tók í gær á
ný við störfum framkvæmdastjóra
Fríhafnarinnar á Keflavíkurflug-
velli. Eins og kunnugt er gegndi
Jóhannes Sölvason, starfsmaður í
Varnarmáladeild, því starfi til
bráðabirgða undanfarna mánuðina.
Þá fékk blaðið þær upplýsingar
hjá skrifstofu saksóknara ríkisins,
að rýrnunarmál það, sem tekið var
til rannsóknar á síðasta ári í Frí
höfnini, hafi verið fellt niður, þar
sem rannsóknin leiddi ekkert mis
ferli í ljós.
Meimssýning I Asíu
haldin í Bangkok
Þegar er hafinn víðtækur
undirbúningur undir fyrstu
heimssýningu Asíu, sem haldin
verður í Bangkok 17. nóvember
í ár. Það er Efnahagsnefnd Sam
einuðu þjóðanna fyrir Asíu
(ECAFE) sem á frumkvæðiö að
sýningunni — The First Inter
national Trade Fair — sem á
að örva til aukinnar fjárfest
ingar og ýta undir efnahags-
vöxtinn í Asíu. Thailand hefur
á hendi skipulagningu sýningar
innar og mun að öllum líkind
um verja um 3 milljónum doll
ara (um 130 milljónum tsl.
króna) til undirbúningsins.
Um það voru lengi skiptar
skoðanir hvar halda skyldl
þessa fyrstu heimssýningu Asíu,
en nú hefur sem sé Bangkok
orðið hinnar miklu sæmdar að-
njótandi. Sýningin verður sú
stærsta sinnar tegundar sem
nokkru sinni hefur verið hald
in í Asíu og stendur vfir í
mánuð. frá miðjum nóvember
til jafnlengdar í desember.
6.000 fermetrar.
í aðalbyggingum sýningarinn
ar hafa þeir sem sýna vilja
um 600 fermetra t.ii amráða.
, en þar er líka reiknað með skrif
stofum, samkomusölum, kvik
myndasölum og veitingasölum
Undirbúningurinn snertir
samt margt fleira en sjálfa sýn
inguna. Stjórnin i Thailandi
verður nú að leggja nýja ^egi
koma upp stórum bílastæðurn
og sjá sýningarsvæðinu fyrir
vatni og rafmagni. Fyrsti hyrn
ingarsteinninn var nýlega lagð
ur af forsætisráðherra Thai-
lands. Thanom Kittikachorn.
Búist er við að flest ríki
Evrópu taki þátt í heimssýn
ingunni. Ennfreipur munu
Bandaríkin, Kanada og allmörg
ríki Asíu sýna þar, og sumir
láta sér jafnvel detta í hug að
einhver ríki í Afríku og Suð-.
ur-Ameríku komi til leiks.
Heimssýningin er einn vottur
um vaxandi áhuga Asíubúa á
að örva efnahagsvöxtinn, en á
honum fór fyrst að bera fyrir
alvöru á árinu 1965 þegar end-
anlega var ákveðið að koma
upp þróunarbanka fyrir Asíu.
Höfuðstóll bankans, sem verður
staðsettur í Manilla, á að vera
1 milljarður dollara (43 milljarð
ar ísl. króna). Sennilega getur
bankinn tekið til starfa á hausti
komanda, en þá er gert ráð
fyrir að 15 ríki verði búin að
samþykkja og staðfesta sáttmál
ann um hann.