Tíminn - 17.02.1966, Síða 12
(
12
FIMMTUDAGUR 17. febrúar 1966
TIL SÖLU
Mercedes-Benz, 5 tonna
vörubifreið með krana,
árgerð 1959.
Benedikt Friðbjörnsson,
Svalbarðseyri.
Bílaleigan
VAKUR
Sundlaugaveg 12
Sími 35135 og eftir lokun
símar 34936 og 36217
Daggjald kr. 300,00
og kr. 3,00 pr. km.
Dúnsængur
Vöggusængur, gæsadúnn, hálf
dúnn, fiSur, koddar, sængur,
silkidamask, lök, dúnhelt
léreft.
Pattons ullargarnið, 5 gróf-
litaúrval, prjónar og hring-
prjónar frá 15.00 kr.
Drengjajakkaföt, stakir jakk
ar, drengjabuxur, kuldaúlpur,
herrafataefni 150,00 kr. metr-
inn. Stór númer af unglingaföt
um frá 10 — 16 ára seld fyrir
bálfvirði.
Póstsendum.
Ves*urgö»o 12 Sími 13570
RYÐVÚRN
Grensásvegi <8 sími 30945
Látið eleki dragast að ryð-
veria eg hljóðeinangra bif
reiðina með
Tectyl
Lá»<? oki'ur stilla og herða
upc nýp oifreíðina Fylgrrt
vei með oífreíðinni
BÍLASKOÐUN
SkOiagö»i -32 Slmi 13-100
BOLHOLTI 6
(Hús Belgjagerðarinnar)
tijóðcD
«Wi.
I
NITTO
JAPÖNSKU NinO
HJÓLBARÐARNIR
f flestum stœrðum fyrirliggjandi
í Tollvörugcymsíu.
FUÓT AFGREIÐSLA.
DRANGAFELL H.F.
Skipholfi 35 - S(mi 30 360
VÉLAHREINGERNING
Vanir
menn.
Þægileg,
Fljótleg
vönduð
vinna.
bRIF —
sírnar 41957
og 33049
0
Ahaldaleigan
i otiltl K<< rttop •wrjial
SlMl ti 13728 * V.u,:,
ÍD lelgu ,vibratorar tyrlr
stevpu. vatnsdælur, steypu
nrærivélax. njólbörur.
ofnax o.fl Sent og sótt, el
oskað er
ÁHALDALEIGAN.
Skaftafelli við Nesveg,
Seltjarnarnesi.
Isskápa og pianóflutningar
sama stað simr 13728
EYJAFLUG
MEÐ HELGAFELLI njótið þér
ÚTSÝNIS, FLJÓTRA
OG ÁNÆGJULEGRA FLUGFERÐA.
AFGREIÐ5LURNAR
OPNAR ALLA DAGA.
REYKJAVÍKURFLUGVELLI 22120
FRÁ ALÞINGI
Framnairi af bis. 7
sterklega með því, að fylkjaskip-
un verði upp tekin, að dómi okk-
ar flutningsmanna þessarar til-
lögu, — og einkennilegt teldum
við. ef nokkur risi gegn því, að
Alþingi kveðji menn t.i; athugunar
á því sérstaklega.
_______TÍMINN___________________
f tillögum sínum gerðu fjórð-
ungsþingin ráð fyrir því, að fylk-.
isþingin kysu menn .þá, “er skipa
efri deild Alþingis, en til neðri
deildar væri kosið í einmennings-
kjördæmum, og hefði því þurft
stjórnarskrárbreytingu við lög-
töku þeirra. Þetta felst alls ekki
í tillögu okkar. Hún snertir ekki
skipun Alþingis og gæti að okkar
áliti orðið framkvæmd með ein-
földum lögum.
Við leggjum heldur ekkert til
um það, hve fylkin eigi að vera
mörg. Það er matsatriði.
Fleira var og í tillögum Fjórð-
ungssambandanna, er við tökum
ekki upp.
Að öðru leyti er þessi tillaga
efnislega, það sem hún nær, sams
konar tillaga og Fjórðungssam-
böndin báru fram, enda fyrri flutn
ingsmaður hennar einn þeirra, er
stóðu að tillögugerð Fjórðungs-
sambandanna. Hún er studd sömu
rökum og þeirra, að viðbættri
sterkri áherzlu frá reynslu síð-
ustu ára og líðandi stundar.
Augljóst er, að sú dreifing þjóð-
félagsvaldsins, sem hér um ræðir,
mundi, ef hún kemst í framkvæmd
skapa byggðafestu', hafa sín áhrif
á fjármagnsdreifinguna innan
þjóðfélagsins og miða að því að
tryggja not og viðhald þeirra
föstu verðmæta, sem þegar er bú-
ið að staðsetja víðs vegar um
land.
í höfuðborginni, Reykjavík, og
umhverfi hennar mun fólkinu
halda áfram að fjölga, þótt land-
inu verði skipt í fylki. Það skipu-
lag hamlar aðeins gegn ofvexti
hennar. Þjóðinni þykir vænt um
borgina fríðu við „sundin blá,“
þar sem „fornar súlur flutu á
land“ og byggð hófst á landi hér,
og vill veg hennar mikinn og
gengi hennar traust. En ofvöxtur
er höfuðborginni sjálfri ekki holl-
ur. Hann veldur því, að borgin
Vjerður ekki eins vel úr garði gerð
og verá' þyrfti, og' á þetta yfír-
leitt • við um bæi, sem við hann
eiga að stríða, hvar sem er. Ráða-
menn glíma að jafnaði við óleys-
anlegan vanda, og almenningur
sýpur af seyði.
Höfuðborgarbúum er eins og
öðrum landsmönnum bezt til far-
sældar, að byggð eflist og blómg-
ist um land allt. Þetta er líka
höfuðborgarbúum ljóst, eins og
öðrum landsmönnum. Þjóðinni í
heild er það lífsnauðsyn, að landið
allt sé byggt, þar sem búsetuhæft
er, ef. hún vill halda áfram að
vera sjálfstæð þjóð og eiga landið
með fullum rétti.
Skipting landsins í fylki mundi
tryggja sjálfstæði þjóðarinnar stór
lega.
Til frekari áherzlu því, sem áð-
ur er sagt um starfsmannahald
hlns opinbera í sambandi við
fyikjaskipunarfyrirkomulagið, skal
fram tekið, að þegar fylkin fengju
sérmál sín til meðferðar ,að
nokkru leyti, mætti ætla, að Al-
þingi þyrfti skemmri tíma en ella
til sinna starfa ár hvert og að
starfsmönnum ríkisstjórnar og
rikisstofnana þyrfti ekki að fjölga
eins og ella mundi verða, jafn-
framt því sem þjóðin og þjóðar-
búskapurinn stækkar. Verulegur
hluti af því sérmenntaða fólki,
sem ella ílendist í höfuðborginni
myndi starfa á vegum fylkisstjór-
anna og stofnana fylkjanna og
sennilega hafa þar fyllri verkefni
oft og éinatt.
Margt það, sem nú er reynt að
gera til að hamla inóti straumn-
um f byggðajafnvægismálum,
kæmi af sjálfu sér, eftir að búið
væfi að byggja upp fylkjaskipun.
Flutningsmenn leggja til. að 10
menn verði í nefndinni. sem rík-
isstjórnin skipi tii þess að athuga.
hvort ekki sé ráðlegt, að skipta
landinu í fylki, og gera síðan,
komist hún að jákvæðri niður-
stöðu tillögur tii löggjafar um
það. Níu nefndarmennirni verði
tilnefndir af öðrum, en einn —
formaður — án tilnefningar.
Fulltrúum þeim, sem þingflokk-
arnir tilnefna, er ætlað að túlka
sjónarmið Alþingis.
Aðrir fjórir skulu tilnefndir af
Fjórðungssamböndunum eða þar,
sem þau eru ekki, af þeim aðil-
um, sem kjósa fulltrúa til fjórð-
ungsþinga.
Þá eigi höfuðborgin sinn full-
trúa í nefndinni og ríkisstjórn-
in einnig. sinn fulltrúa, er fari
með verkstjórn í nefndinni.
Virðist með þessari skipu séð
eðlilega fyrir því, að í nefndinni
komi fram viðhorf þeirra, er stend
ur næst að leita úrræðanna.
NÁKVÆMNISVERK
Framhaid aí 9 siðu
ír, en það er talsvert seinlegra
en margir munu ætla. Hrein
teikningarnar þurfti ég þó
ekki að gera sjálf fyrir þessa
bók, þær gerði danskur teikn
ari. Svo var að ganga frá for-
mála og skýringum og hugsa
upp ög sauma hentugar fyrir-
myndir til birtingar aftan á
bókarkápuna og innan á henni
til þess að gefa kaupendum
hugmyndir um. hvernig hægt
væri að nota munstrin. Þótt
ekki sé um stóra muni að
ræða fóru flestar frístundir
mínar undanfarið ár í að
sauma fyrirmyndir, og ég
verð að segja, að ég er í aðra
röndina fegin að vera búin að
ljúka þessu. — Svona bók er
auðvitað ekki bein rannsókn á
gömlum munum, en mér
fannst að ég þyrfti að fást við
annag en rannsóknir. Eg hafði
gaman af að ver^ tómstundum
mínum í að setja hana saman,
og ennþá skemmtilegra þætti
mér ef hún mætti verða hann
• yrðakonum, innlendum sem
erlendum, til gagns og
ánægju.
Ekki efa ég að svo verði.
Og hver veit nema ungar kon
ur á íslandi fari að gera sér
það til gamans, að rekja ættir
sínar til kunnra hannyrða-
kvenna, sem munir hafa
geymst eftir á safninu, og
styðjast við munstur og saum
gerðir frá þeim, er þær taka
* sér nál og þráð í hönd til að
gera muni til prýði á heimil
um tuttugustu aldarinnar.
Sigríður Thorlacius.
ÍÞROTTIR
Framhald af bls. 13
mun á komandi glímumótum geta
unnið glæsta sigra.
Ingvi Guðmundsson, Ungmenna
félaginu Víkverja, hlaut 3 vinn-
inga og varð annar. Hann glímdi
nokkuð vel nema í glímunum við
Sigtrygg Sigurðsson og Guðmund
Frey Halldórsson. Þá lá hann fyrir
Valgeiri Halldórssyni, Á. Ingvi er
vel að manni en mistækur og fær
því alloft minna út úr glímum
sínum en ella, ef miðað er við
þann árafjölda, sem hann hefur
æft. Væntanlega tekst honum ,að
laga þær misfellur sem á glímu-
lagi hans er, svo árangur verði
meiri.
Guðmundur Freyr Halldórsson,
Á, hlaut 3. verðlaun, með 3 vinn-
inga og 1 víti. Hann glímdi vel
að vanda nema það, sem áður er
fram tekið um glímur hans við Sig
trygg Sigurðsson og Ingva Guð-
mundsson, í þeim glímum sýndi
hann ijótleika, sem ætla verður
að ekki sé honum eiginlegur. Víta
byltan var nokkuð harður dómur
miðað við glímulag hans. en sjálf-
sasl réttlætanlegur af hálfu dóm-
ara. ei miðað- er við þá einu
glímu *Taka má einnig viðmiðun
af því sem áður er sagt um þann
atbiirð Vonandi sýnir Guðmund-
ui Freyr hið skemmtilega glímu-
laa sitt eingöngu i framtíðinni én
reymr ekki að takast á við sér
s+erkari og burðarmeiri menn.
Hannes Þorkelsson, UV, varð í
4—5. sæti með 2 vinninga. Hann
glímdi allvel og betur en oft áður,
þótt ekki hlyti hann fleiri vinn-
inga.
Valgeir Halldórsson, Á, glímdi
vel og sótti sig er á leið mót-
ið. Hann velgdi Skjaldarhafanum
undir uggum og lagði Ingva eftir
allskemmtilega glímu fallega. Val-
geir er augljóslega vaxandi glímu-
maður, sem væntá má nokkurs af
er stundir líða.
Ágúst Bjarnason, UV, tók nú
þátt í sínu fyrsta opinbera glímu-
móti. Ekki verður annað sagt en
hann hafi glímt vel miðað við að-
stæður og komst einna bezt frá
glímum sinum ásamt Valg. Hall-
dórssyni. Er augljóst að töluvert
glímumannsefni er þarna á ferð
og glímulag hans nokkuð gott, þó
vinningafár yrði hann nú.
Garðar Erlendsson, KR, varð að
hætta þátttöku vegna tognunar, er
hann varð fyrir í glímunni við
Sigtrygg. Garðar hafði þá sýnt
allgóðar glímur og útlit fyrir, að
hann myndi ef vel tækist verða
vinningamargur.
Gunnar Eggertsson, formaður
Glímufélagsins Ármanns, afhenti
sigurvegaranum Ármannsskjöld-
inn og verðlaunapeninga hlutu 3
efstu menn. Gunnar, sleit síðan
mótinu með stuttri ræðu.
Fjöldi áhorfenda sýndi, að ReyJc
víkingar kunnu vel að meta það,
að Ármenningar endurvöktu nú
hinn gamla sið, að heyja Skjaldar-
glímuna í Iðnó, þar sem glímt
var á árunum 1908—1943. Von-
andi verður unnt í framtíðinni að
halda uppteknum hætti og glíma
á fjölum hins aldna samkomuhúss,
þar sem mörg frægustu glímumót
fyrri ára fóru fram.
ÍÞRÓTTIR
Framhald af bls 13
og tveir fararstjórar, þeir Þórar-
inn Eyþjórsson og Barði Áma-
son. Allar sterkustu liðskonur
Vals fara utan, nema þær Vigdís
Pálsdóttir og . Katrín Hermanns-
dóttir, markvörður. Leipzig vann
fyrri leikinn 19:7.
• Íþróttasíðan óskar báðum flokk-
unum góðs gengis í leikjunum,
sem framundan eru.
ÍÞRÖTTIR
Framhald af bls. 13
Maupi. Hlaupið var eftir U-laga
braut með tveimur grindum á
hvorri langMiðinni, samtals fjór-
um. Beygjan var mjög kröpp, enda
kom á daginn, að hún varð erfið-
ust viðfangs og réði e.t.v. úrslit-
unum að mestu leyti.
Sigurvegari varð Ólafur Guð-
mundsson með nokkrum yfirburð-
um. Þetta er fyrsta grein þraut-
arinnar, sem hann hlýtur sigur í,
en síðasta grein þarutarinnar mun
verða 300 m hlaup. Sennilega hef-
ur aldrei verið keppt í svo löngu
hlaupi innanhúss hér á landi og
verður fróðlegt að sjá hvernig
slíkt tekst í framkvæmd. Kannski
fá íslenzkir frjálsíþróttamenn bráð
lega tækifæri til að reyna sig í
hinni nýju og glæsilegu íþrótta-
höll í Laugardal og e.t.v. reynist
kleift að keppa í stuttum hlaup-
um þar, jafnvel millivegalengdum.
Úrslit í 65 m grindahlaupi:
sek.
1. Ólafur Guðmundsson 10.0
2. Björn Sigurðsson 10.4
3. Sigurður Björnsson 10.5
4. Úlfar Teitsson 10.6
5. Valbjörn Þorláksson 10.6
6. Einar Frímannsson 10.6
7. Trausti Sveinbjörnsson 10.7
8. Ólafur Sigurðsson 11.0
9. Nils Zimsen 11.8
10. Róbert Þorláksson 11.9
Stigakeppnin , fyrir síðustu
grein:
1. Valbjörn Þorláksson 10.
2. Ólafur Guðmundsson 21
3. Björn Sigurðsson 25.5
4. Nils Zimsen 35
i