Tíminn - 17.02.1966, Page 13

Tíminn - 17.02.1966, Page 13
ÍÞRÓTTÍR 13 FIMMTUDAGUR 17. febrúrar 1966 TÍMINN Eins og sagt hefyr veriS frá á íþróttasíSunni, iéku Danir nýlega gegn Pólverjum í Gdansk í síSari leik land- anna í heimsmeistarakeppninni í handknattleik og töpuSu Danir 14:18. I ieiSinni heimsóttu Danir A-Þýzka- land og léku landsleik gegn A-ÞjóSverjum. En ekki sóttu þeir gull í grelpar þeirra frekar en Pólverja og töpuSu leiknum 20:28. Myndin hér aS ofan er frá þoim leik og sést einn dönsku leikmannanna, G. Petersen skora af tínu. 2 Evrópubikarleikir á sunnudag Ragnar fer ekki með FH til Prag FH heldur til Prag á morgun, en Valsstúlkur til Leipzig í dag. Alf-Reykjavík. Á sunnudaginn kemur eiga ís- landsmeistararnir í handknattleik, FH í karlaflokki og Valur í kvenna flokki, erfiða Evrópubikarleiki fyr ir höndum á erlendri grund. FH mætir tékknesku meisturunum Dukla í Prag, og verður að leika án Ragnars Jónssonar, sem enn þá á við slæm meiðsli í hendi að stríða. Fer Ragnar ekki með félög- um sínum utan, en að öðru leyti teflir FH sínu sterkasta liði fram. FH-ingar halda utan á föstu- dagsmorgun. Fararstjórar verða þeir Einar Mathiesen, Árni Ágústs son og Hallsteinn Hinriksson. Eins 2 leikir í 1. deild í körfu- . bolta í kvöld Tveir leikir verða háðir í 1. deildar keppninni í körfuknatt leik .' kvöld að Hálogalandi. f fyrri leiknum mætast ÍR og fþróttafélag Keflavíkurflug- vallar, en í síðari leiknum Ár mann og fslandsmeistarar KR, en sá leikur ætti að geta orðið spennandi. Fyrri leikur hefst kl. 20.15. og kunnugt er, vann Dukla fyrri leik liðanna með fimm marka mun, 25:20, og verður því FH að sigra í síðari leiknum með sex marka mun til að komast áfram. Valsstúlkurnar halda utan í dag, fimmtudag, og leika gegn a-þýzku meisturunum í Leipzig á sunnu- daginn. Alls fara 10 stúlkur utan Framhald á bls. 12. Unglingameistara- mótið í frjálsiþr. Unglingameistaramót fslands í frjálsíþróttum innanhúss fer fram í KR-húsinu sunnudaginn ,20. febr úar 1966 og hefst kl. 13.00. Keppt verðui i venjulegum meistaramótsgreinum. sem eru: Stangarstökk Hástökk Þrístökk án atrennu Kúluvarp Hástökk án atrennu Langstökk án atrennu Jafnframt fer fram keppni f stangarstökki tilheyrandi Drengja meistaramóti fslands 1966, sem fer fram síðar. Þátttökutilkynningar berist í síðasta lagi 19. febrúar til Þórðar B. Sigurðssonar, c/o Landnám rík isins, Pósthólf 215. Hörður Gunnarsson skrifar um Skjaldarglímuna: Glímt fyrir fullu húsi í Iðnó Sigtryggur leggur Ingva GuSmundsson. (Tfmamynd GE) 54. Skjaldaglíma Ármanns var háð í samkomuhúsinu Iðnó í Reykjavík síðastliðinn sunnudag 13. apríl. Sjö keppendur voru skráðir til leiks og mættu allir en einn varð að hætta þátttöku í fjórðu glímu sinni vegna meiðsla. Mótið var hið fyrsta, sem haldið hefur verið eftir endurskoðun BREZK knattspyrna Ensku deildarmeisturun- um, Manch. Utd., gekk ekki of vel að yfirbuga Rother- ham í endurteknum leik úr 4. umferð bikarkeppninnar en liðin léku aftur saman í fyrrakvöld á velli Rother- ham Þegar venjulegum leiktíma var lokið, var stað an jöfn, 0:0, en í framleng in-gu, þegar 4 mín voru eft ir. tókst Connolly að skora eina mark leiksins og ti'yggja Manch. Utd. þar með sæti í 5. umferðinni, en í henni leikur liðið gegn Úlfunum. Leik Carlisle og Shrews oury lauk með jafntefli, 1:1 eftir framlengingu. glímulaganna. Þá voru tvær víta- byltur dæmdar í glímunni en slíkt hefur ekki átt sér stað á glímumóti um árabil. Glímustjóri var Þorsteinn Einarsson, íþrótta- fulltrúi, en yfirdómari Þorsteinn Kristjánsson. Húsið var þéttsetið áhorfendum, sem fylgdust með glímum af áhuga og skcmmtu sér hið hezta. Mótið setti Hörður Gunnarsson, formaður Glímudeildar Ármanns, með stuttri ræðu. Gat hann til- draga þess, að Skjaldarglíman færi fram að þessu sinni í Iðnó en nú munu vera 23 ár frá því hún var háð þar síðast. Hann rakti sögu glímunnar og hvar efnt hefur verið til hennar allt frá upphafi, árið 1908. Þá minnt- ist hann gildis drengskapar og háttprýði glímumanna í leik og samskiptum við glímubræður sína og aðra. Áður en gengið var til glímna i sjálfri Skjaldaglímunni sýndu 24 drengir úr Glímudeild Ár- manns undir stjórn kennara síns Harðar Gunnarss. nokkur glímu- brögð og glímdu léttilega. Vakti sýningin athygli áhorfenda og var vel tekið. Um Skjaldaglímuna sjálfa má það segja, að heldur fór hún í betra lagi fram, glímur yfirleitt ekki mjög Ijótar, og dómarar ákveðnari en allajafna áður, að minnsta kosti hin síðari ár, því tvíræð úrslit glímna fengu síður náð fyrir þeirra augum en fyrr. Má þakka ákveðnari dómum meðal annars skýrari fyrirmælum um starfssvið þeirra í hinum endur- skoðuðu glímulögum, og þó öllu fremur hinu, að dómararnir virt- ust gera sér Ijóst þegar í upphafi, hver ábyrgð var lögð þeim á herð- ar til þess að skapa þá virðingu og tilfinningu fyrir starfi glímu- dómara, sem þeim ber. Mistækist þeim starfið nú, þegar glímt er í fyrsta sinni eftir endurskoðuð- um glímulögum, er óvíst um, hvern ig framhaldið hefði getað orðið á komandi glímumótum. Dómararn- ir komust nokkuð vel frá starfa sínum yfirleitt, en þó verður að segja, að enn eimir eftir af gömlu hræðslunni við það, að einbeitni í dómum á glímuvelli geti orðið þeim að aldurtila utan hans, svo ekki má dæma einn vegna brots án þess að dæmt sé á annan í leiðinni. Væntanlega verður það svo, að í glímudómum í framtíð- inni verði hverjum ætlað sitt en einn þurfi ekki að axla annars byrðar. Ef ræða skal einstakar glímur manna ber fyrstan að nefna sig- urvegarann Sigtrygg Sigurðsson, KR, sem vann nú Ármannsskjöld- inn í annað sinn. Hiaut hann 4 vinninga ög 1 víti. Sigtryggur hef ur oft áður glímt betur og hefði hann nú í þessari Skjaldarglímu mátt sýna skemmtiiegri glímur ekki sízt við Guðmuud Frey Hall- dórsson, Á. og Ingva Guðmunds- son, UV, þótt þeirra hlutur hafi verið lítið betri í þeim glímum. Sigtryggur hlaut vítabyltu í glímu smni við Guðmund Frey, sem einnig var dæmd vítabylta. Mun sá dómur hafa komið til af því, að Sigtryggur virtist hafa ýtt með vinstri hendi læri og mjöðm Guð- mundar í glímuvöll eftir að hann hafði komizt í handvörn úr snið- glímu á lofti hjá Sigtryggi. Voru þeir þá látnir glíma áfram en dómari gaf viðvörun. Nokkru síðar, eftir Ijóta glímu, sem dómari hafði stöðvað minnst tví- vegis, nær Sigtryggur réttu klof- bragði en fylgir fast eftir alveg niður í gólf, svo hinn kom engri vörn við. Dómarar þinguðu lengi um málið en kváðu síðan upp þann úrskurð, að báðum skyldi dæmast vítabylta, og munu þá sennilega hafa haft í huga glímu- lag þeirra allt, en ekki brotið eitt. Þá var glíma þeirra Ingva Guð- mundssonar ekki fögur en stutt. Sigtryggur átti í nokkrum erfið- leikum með léttasta mann móts- ins, Valgeir Halldórsson, Á, sem tvívegis lét Skjaldarhafann verj- ast við gólf. Telja verður að hefði Sigtryggur glímt léttar og yfirvegað meira glímur sínar og glímulag myndi hann hafa sigrað auðveldlegar og með meiri glæsi- brag en raun varð á. Bæti hann glímulag sitt og hemji skapið meir, er ekki að efa, að hann Framhald á bls. 12. Sexþraut KR: Ólafur Guðm. sigraði í grindahlaupi Næstsíðasta greinin, sem keppt var í á vegum KR-inga í sexþraut- inni nLmtoguðu, var ekki síður nýstárleg en fjórða greinin, 25 m hlaupið. Miðvikudaginn 9 febrúai fór fram keppni í 65 m grinda- Framhald á bls. 12.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.