Tíminn - 01.03.1966, Blaðsíða 13
ÞREÐJUDAGUR 1. marz 1966
ÍÞRÓTTfR TÍMINN ÍÞRÓTTIR
Þarna fær Árni Samúelsson óbliðar móttökur hjá KR-vörninni. SigurSur Óskarsson, t. v. og Heinz þjarma aS
honum. Lengst ti Ivinstri gætir Hilmar Jakobs ,en fyrir utan fylgjast Reynir, KR, og Pétur, Árm., meS
(Tímamynd Bjarnleifur)
KR situr á botninum
— tapaði fyrir Ármanni 18:24. Og er nú með tvö stig.
Alf-Reykjavík, mánudag.
KR horfir fram á erfiða baráttu
til að halda sæti sínu í 1. deild
í handknattleik, eftir tap gegn
Ármanni á sunnudaginn. Það
gagnaði KR ekki, þótt liðið tjald-
aði 511u sínu bezta, ef Gísli Blön-
dal er undanskilinn, en liðið var
styrkt með þehn Hilmari Björns
syni, sem kom gagngert frá Laug-
arvatni til að taka þátt í leikn-
um, og Reyni Ólafssyni sem iklædd
ist KR-peysunni enn einu sinni.
Ármann var hin öruggi sigurveg-
ari og sigraði með 6 marka mun
24:18, og engum getur Ármann
þakkað sigurinn meira en Herði
Kristinssyni, sem sýndi afburða-
leik og skoraði 14 mörk.
KR-ingar reyndu mörg brögð
til að stöðva Hörð, en ekkert
þeirra beit á hinum hávaxna lands
liðsmanni Ármanns, ekki einu
sinni, þótt Reynir væri settur
FH hefndi nú fyrri
ófara gegn Haukum
Alf-Reykjavík, mánudag.
FH hefndi fyrri ófara gegn
Haukum með því að sigra þá i
síðari leik liðanna 23:21 í frekar
lélegum leik, einkum af hálfu
Hauka, sem léku undir getu. Mik-
il harka og stimpingar á báða
bóga einkenndu leikinn og hélt
dómarinn, Sveinn Kristjánsson,
ekki nógu vel á spöðunum.
Fíl styrkti lið sitt með Geir
Hallsteinssyni og yar verulegur
styrkur af honum, en samt var
heildarmyndin ekki nógu góð, og
FH verður enn að bæta við sig,
ef liðið ætlar að gera sér vonir
um að vinna íslandsmeistaratitil-
inn. Eini ljósi punkturinn í leik
íslandsmeistaranna að þessu sinni
var dálaglegt línuspil af og til,
en línuspil hefur ekki átt upp á
pallborðið hjá þeim til þessa.
Að sama skapi rann allt línu-
spil út í sandinn hjá Haukum.
Þeir reyndu hinar fáránlegustu
Framhald á 14. sxðu.
honum til höfuðs í siðari hálfleik
Annars sýndi Ármanns-liðið í
heild sinn bezta leik í mótinu og
virtist gera sér fulla grein fyrir
þýðingu hans.
Með úrslitum leiksins, situr KR
nú á botninum með 2 stig eftir
5 Ieiki, en Ármann er með 4 stig
eftir 7 leiki. f fljótu bragði virð-
ist staða KR ekki vera mikið verri
en Ármanns, þar sem KR hefur
leikið tveimur leikjum minna, en
þess ber að geta, að KR á erfið-
ara „prógram" eftir, 2 leiki gegn
Fram og 1 leik gegn FH, Val og
Framhald á 14. síðu.
Fram hlaut sín
fyrstu stig í
kvennaflokki
Þrír leikir í 1. deild kvenna fóru
fram á Iaugardagskvöld. Sýnt þyk-
ir, að Valur og FH muni berjast
um titilinn. Bæði liðin unnu á
laugardaginn, Valur Víking með
16:3 og FH Breiðablik með 18:9
Hafa Valur og FH nú bæði 6
stig.
Þá léku Fram og Ármann og
krækti Fram nú f sín fyrstu stig
með sigri 9:8.
2 nýliðar í
landsliðinu
Geir Hallsteinsson og Sigurður Dags-
son. Rúmenarnir væntanlegir á fimmtud.
Alf-Reykjavík, mánudag.
Tveir nýliðar eru í íslenzka lands
Iiðinu í handknattleik, sem leika
á gegn Rúmenum n.k. laugardag,
Þeir Geir Hallsteinsson, FH og Sig-
urður Dagsson, Val. Úr liðinu
hverfa frá síðasta Ieik þeir Ingólf-
ur Óskarsson, sem vegna anna sá
sér ekki fært að koma heim til
að taka þátt í leikjunum, og Birg-
ir Björnsson.
Annars er liðið þannig skipað:
Hjalti Einarsson, FH
Þorsteinn Björnsson, Fram
Gunnlaugur Hjálmarsson, Fram,
fyrirl.
Guðjón Jónsson, Fram
Sigurður Einarsson, Fram
Hermann Gunnarsson, Val
Stefán Sandholt, Val
Sigurður Dagsson, Val
Geir Hallsteinsson, FH
Hörður Kristinsson, Ármanni
Karl Jóhannsson, KR
Þess má til gamans geta hér, að
Karl Jóhannsson mun leika sinn
25. landsleik fyrir ísland á laugar-
daginn, en því marki hafa aðeins
tveir leikmenn náð áður, þeir
Gunnlaugur Hjálmarsson og Ragn-
.ar Jónsson.
Rúmenarnir eru væntanlégir
hingað til lands aðfararnótt
fimmtudags frá Osló. Þeir leika
tvo leiki hér, þann fyrri á laug-
ardag kl. 5 og síðari leikinn á
sunnudag og hefst hann á sama
tíma. ísl. landsliðið, sem gefið er
upp hér á undan, er aðeins valið
fyrir fyrri leikinn. Ef liðið stend-
ur sig illa, getur landsliðsnefnd
gert breytingar á þvi.
Heimsókn Rúmenana, heims-
meistaranna, er merkur viðburður
í ísl. íþróttasögu, því þetta er í
fyrsta skipti, sem heimsmeistarar í
flokkaíþrótt sækja okkur heim. fs-
lendingar og Rúmenar hafa einu
sinni áður leikið landsleik í hand-
knattleik, en það var árið 1958.
Framhald á 14. síðu.
Marta og Sigurður
Reykjavíkurmeistarar
Svigkeppni Skíðamóts Reykja-
víkur var háð um helgina. Keppt
var í stúlkna-, drengja- og c og
b fiokki karla á laugardag, en
í kvennaflokki og a flokki karla á
sunnudag.
Reykjavíkurmeistari í karla-
flokki varð Sigurður Einarsson,
ÍR, sem hlaut samanlagðan tíma
107,3 sek. í öðru sæti varð Bjarni
Einarsson, Ármanni, 109,8 sek .og
í 3. til 4. sæti þeir Þorbergur
Eysteinsson, ÍR og Bogi Nilsson,
KR á 111,4 sek.
f kvennaflokki varð Maxrta B.
Guðmundsdóttir Reykjavífcurmeist
ari á samanlögðum tíma 68,7 sek.
Önnur varð Hrafnhildur Helgadétt
ir, Ármanni, á 69,3 sek. _og þriðja
Jakobína Jakobsdóttir, ÍR á 7B,4
sek.
Nánar verður getið um mótið
í blaðinu á morgun. .
RUMENAR SIGRUÐU
NORÐMENN 17:12
Rúmensku heimsmeistararn-
ir í handknattleik léku fyrri
landsleik sinn gegn Norðmönn
um á sunnudaginn í Sandef jord
og sigruðu með 17:12 eftir að
hafa haft yfir í hálfleik 9:6.
Samkvæmt þvi, sem norska
fréttastofan NTB segir, áttu
Norðmenn góðan kafla í síðari
hálfleik og voru um tíma
tveimur mörkum undir 12:14
og gerðu þá oftar en einu.
sinni harða hríð að rúmenska
markinu. Leit svo út sem Norð
menn ætluðu að jafna stöðuna,
en frábær leikur Ioan Moser
í rúmenska liðinu gerði það að
verkum, að Rúmenar náðu sér
aftur á strik og sigruðu með
5 marka mun sem fyrr segir,
17:12. Siðari leik sinn leika
Norðmenn og Rúmenar í Osló
í dag.
Loksins tapaði Liverpool í deildinni
Ensk knattspyrna er óútreikn-
anleg, það er margsannað og er
sífellt að sannast, sbr. úrslitin í
Ieik Liverpool og Fulham í 1. deild
s.l. laugardag, en þann leik vann
Fulham á heimavelli 2:0. Liverpool,
langefsta Iiðið í deildinni og hafði
ekki tapað leik í keppninni frá
því á annan í jólum, tapar fyrir
neðsta liðinu, sem hefur verið í
miklum öldudal.
Miki harka var i leiknum, sér-
staklega undir lokin, og þá var
Skotanum St. John í Liverpool vís
að af leikvelli. Þrátt fyrir tapið
hefur Liverpool 8 stiga forskot,
en hefur leikið 2 leikjum meira
en næsta lið, Manchester Utd. og
4 leikjum meira en Leeds, sem er
með 9 stigum minna.
Fyrir helgina keypti Notting-
ham Forest Baker frá Arsenal fyr
ir 60 þús. sterlingspund. Ekki gat
Baker leikið með hinu nýja fé-
lagi sínu á laugardaginn, því leikn
um Nottingh. F. og Sheffield W.
var frestað. Eins og kunnugt er,
var Baker á sölulistanum hjá
Arsenal fyrir nokkrum vikum og
voi*u allar líkur á því, að Chelsea
keypti hann fyrir 70 þús. pund,
en á síðustu Stundu fóru þau kaup
út um þúfur.
Hér koma úrslitin á laugardag:
Arsenal—Tottenham (frestað)
Blackbum—Sunderiand 2Æ
Blackpool—Aston Villa
Everton—Chelsea
Fulham—Liver-pool
Leicester—West Ham
Manchester Utd.—Bumley 4:2
Newcastle—Stoke 3:1
Nottingham F.—Sheff. W. (frest.)
Sheff. Utd.—Leeds 1:1
WBA—Nothampton 0:
Staða efstu og neðstu liða í 1.
deild er nú þessi:
1. Liverpool 32 21 5 6 67:28 47
2. Maneh. Utd. 30 14 9 5 61:40 39
3. Leeds 28 15 8 5 54:23 38
4. Burnley 30 16 6 8 62:39 38
5. Tottenham 29 14 8 7 61:43 36
w* — —--------—
18. Sheff. W. 28 9 5 14 34:46 23
19. Blackpool 28 7 7 14 37:48 21
20. Notthamt. 316 9 16 39:74 21
21. Blackburn 29 7 4 18 47:61 18
22. Fulham 30 6 5 19 40:67 17
2. deild.
Birmingham—Plymouth 1:0
Bolton—Bury 2:1
Cardiff—Roterham 0:0
14 Carlisle—Manch. C. 1:2
Coventry—Bristol C. 2-2
Derby—Wolves 2:2
Huddersf.—Crystal P. 11
Ipswich—Portsmouth 1:0
Leyton O.—Charlton 1:2
Middelsbro—Preston 2:1
Southampton—Norwich 2:2
Staðan í 2. deild er nú sú, að
Manchester City er efst með 42
stig. Huddersfield er í öðru sæti
með 40 stig. Coventry í þriðja
sæti með 38 stig. Úlfarnir eru í
4. sæti með 37 stig og Southamp-
ton og Bristol City eru með 36
stig.
Skotland.
Aberdeen—Hearts 0:1
Framhald á 14. síðu.