Tíminn - 01.03.1966, Blaðsíða 16
49. tbl. — Þriðjudagur 1. marz 1966 — 50. árg.
TVÖ DAUÐASL YS
í gær varð það slys á Stafholts
tungnavegi í Borgarfirði, að bif
reið fór út af veginum og lézt
ökumaðurinn, Birgir Vestmann
Bjarnason, en einn farþeganna,
Barði Erling Guðmundsson slasað
ist hættulega.
Silysið átti sér stað með þeim
hætti, að bifreiðinni, sem var af
gerðinni Ford, var ekið austur
Stafholtstungnaveg í átt að
Norðurárbrú, er hún rann út
af veginum á beygju nálægt oæn
um Haugum. Rann bifreiðin út af
veginum vinstra megin, en síðan
inn á veginn aftur, þar
sem hún snerist og rann síðan
út af veginum hægra megin. Við
þetta köstuðust fimm af sex
farþegum bifreiðarinnar út úr
henni. Lézt ökumaðurinn Birgir
Vestmann Bjarnason á staðnum.
Einn farþeganna. Barði Erling
Guðmundsson, slasaðist svo
hættulega, að flytja varð hann
í flugvél til Reykjavíkur. Var
hann talinn höfuðkúpubrotinn og
lært>einsíbrotin n.
Tveir aðrir farþegar, þeir Þór
ir Sigurðsson og Steinar Skarp
héðinsson skárust illa og hlaut
annar þeirra hnjask á hrygg.
Slysið átti sér stað um kl.
16.30 í gærdag.
f gærdag féU kona niður af
svölum hússins að Sólheimum 23
og lézt þegar. Féll hún af
svölum sjöundu hæðar og mun
Há degisklú bbu rin n
kemur saman á morgun, miðviku-
dag, á venjulegum stað og tíma.
VINIÐ
HÆKKAR
SJ-Reykjavík, mánudag.
f dag hækkuðu nokkrar
víntegundir um 10 kr. flask
an. Brennivín kostar nú kr.
280, genever 415, Viskí 410,
Gordon gin 380. Koníak,
létt vín og líkjör hækka
ekki.
fallið hafa verið nálægt 20 metra
hátt. Slysið átti sér stað á ní-
unda tímanum í gærkvöldi.
LITIL TELPA
FYRIR BÍL
KT-Reykjavík, mánudag.
Á laugardag varð það slys
í Álfheimum, að lítil telpa varð
fyrir bfl og slasaðist nokkuð.
Telpan heitir Oddný Inga
Drake og býr að Álfheimum 21.
Var hún á leið út á götuna milli
tveggja bíla, sem stóðu við eystri
gangstéttarbrún og lenti þá fyrir
fólksbifreið, sem kom suður göt
una. Ökumaður hemlaði þegar,
en náði þó ekki að stöðva bílinn
í tæka tíð. Lenti telpan á vinstra
framhorni bílsins og kastaðist á
götuna. Reyndist hún hafa lær-
brotnað við höggið og var flutt
á Landakotsspítala.
í sambandi við þetta slys er j
það brýnt fyrir þeim, sem koma
að þar sem slys hefur orðið, að'
hlúa að þeim, sem verður fyrir 1
slysi og hreyfa hann ekki, Að
sögn lögreglunnar hafði velviljað
ur ökumaður borið Oddnýju inn
í bifreið sína eftir slysið, og ekki
gert sér grein fyrir því, að slíkt
getur haft alvarlegar afleiðingar.
Þriggja daga
lokun hjá mat-
vörubúðum?
EJ-Reykjavík, mánudag
Eins og frá hefur verið sagt f
Tímanum, hafa verzlunarmenn
boðað verkfall í þrjá daga í
þessari viku — fimmtudag. föstu
dag og laugardag — hjá matvöru
verzlunum í Reykjavík, og mun
það koma til framkvæmda, ef
ekki semst fyrir þann tíma. Af
þessum sökum ákvað Félag mat-
vörukaupmanna og kjötverzlana í
dag að loka öllum nýlenduvöru-
og kjötverzlunum í Reykjavik
þessa daga, ef til verkfallsins
kemur.
Blaðinu barzt i dag frétta-
tilkynning um þetta mál frá
Félagi matvörukaupmanna og
kjötverzlana, og er hún svo
hljóðandi:
— „Vegna boðaðs verkfalls
Verzlunarmannafélag Reykjavík
ur fimmtudag til laugardags í
þessari viku, verða verzlanir fé-
lagsmanna vorra lokaðar frama
greindra daga komi til verk-
fallsins. Þeim tilmælum er því
beint til neytenda, að þeir geri
innkaup sín á þriðjudag og mið
vikudag í þessari viku.“
Eins og kunnugt er hefur sam
komulag ekki náðst í þessari kjara
deilu vegna þess, að verzlunar
Framhald á 14. síðu.
Ella heldur aukatónleika;
miiaveriii lækkar / kr. 300
SJ—Reykjavík, mánudag.
Ella Fitzgerald kemur fram í
fimmta skipti á aukatónleikum í
Háskólabíói annað kvöld, þriðju
dagskvöld kl. 11.15.
I Verð aðgöngumiða verður
53 VIRKFRÆÐINCAR AF
378 DVELJA NÚ ERLENDIS
VFÍ hyggst halda ráðstefnu um vinnslu sjávarafurða
SJ-Reykjavík, mánudag.
f fréttatilkynningu frá Verk
fræðingafélagi íslands er skýrt
frá því að félagsmenn séu nú
378, en voru í byrjun starfsárs
342. Erlendis dvelja nú 53 verk-
fræðingar, eða 11 fleiri en í
byrjun starfsárs.
Félagsmenn flokkast þannig
eftir starfsgreiijum, tölur í svig
um eru frá fyrra ári:
Byggingarvérkfræðingar 154
(134), erl. 24 (18).
Efnaverkfr. og efnafr. 60 (55),
erl. 9(8). Rafmagnsverkfr. 64(62)
erl. 6 (7).
Skipa- og vélaverkfr. 65 (60), erl.
11 (7).
Ýmsir verkfr. 35 (31), erl 3 (2).
í félaginu starfa ýmsar nefndir,
m. a. gjaldskrárnefnd, sem leið-
beinir um notkun spjaldskrár
verkfræðinga og sker úr ágrein
ingi um túlkun ákvæða hennar.
Þá er starfandi nefnd til undir
búnings ráðstefnu VFÍ um
Framhald á 14. síðu.
lægra en á fyrri skemmtunum —
kr. 300,00. og sagði Baldur
Guðjónsson, er veitir hljómleik
unum forstöðu, að hann vonaðist
til að miðaverðið aftraði fól'ki
ekki að hlusta á þessa heimsfrægu
söngkonu, sem hefur verið
mjög vel fagnað á undanfarandi
hljómleikum.
Ella skoðaði borgina í dag og
var hún hrifin af því hvað hún
væri hreinleg og loftið ferskt.
Einnig hældi hún matnum og
allri aðbúð á Hótel Sögu.
Ella fer héðan á fimmtudag
til Kaliforníu, en þar ætlar hún
að hvíla sig í hálfan mánuð eftir
hljómleikaferðina.
NÝ KVIKMYND FRÁ
GEYSISMYNDUM
EJ—Reykjavík. mánudag.
Blaðamönnum og eigendum
kvikmyndahúsa var í dag boðið að
sjá kvikmyndina „Grænlandsflug”
sem Geysimyndir h.f. hafa fram-
leitt. Er hér um að ræða 15
mínútna svart- hvíta mynd. Kvik-
myndun annaðist Þorgeir Þor-
Framhald á 14. síðu.
Sjótrygging
Fyrsti aðalfundur hjá
Sambandi íslenzkra sjó-
tryggjenda var haldinn í
dag að Hótel Sögu. Sam-
band þetta er nýstofnað og
eru öll tryggingafélög lands
ins aðilar að því, formaður
er Ágúst Bjarnason. f ráði
er að félagið taki að sér
ýmis verkefni, m. a. mun
það sjá um fræðslu um
sjótryggingar. Myndin hér
að ofan er frá aðalfundin-
um. (Tímamynd-GE).
J
y