Tíminn - 06.03.1966, Side 13
SUNNUDAGUR 6. marz 1966
13
TÍMINN
ÞÁTTUR KIRKJUNNAR
Framiiald af bls. 7
hann, um sjálfan Krist. Líklega
hefur þessum mönnum eitt-
hvað missýnzt um guðstrú sína
og guðshugmynd þá, sem krafð
ist elsku til allra, jafnvel óvina
og hatursmanna. Hroki, sjálfs-
álit, þröngsýni eru einmitt ein
kenni þeirra. sem eru lengst
frá Guði eða guðshugmynd
þeirri, sem Kristur boðaði, eins
þótt þeir væru prestar hans
í orði kveðnu, kristniboðar eða
trúboðar að nafnbót og starfi.
Trúaður kristinn maður geng
ur á vegum hins góða í lotn-
ingu og tilbeiðslu hógværðar
og auðmýktar gagnvart hinu
fagra og rétta. Að vera frels-
aður er afleiðing slíkrar trúar,
tilgangur hennar og markmið.
Og það er ekki sama og að
vera í innsta hring einhverra
játningabræðra, þótt að sjálf
sögðu geti frelsað fólk fundizt
þar, heldur er það að vera laus
úr fjötrum heimsku, haturs
og grimmdar. reiðubúinn að
fórna jafnvel lífi sínu og heiðri
öðrum til blessunar, leggja
sjálfan sig fram í trú á sigur
góðleikans.
Þar og aðeins í slíkri bar-
áttu verður líf kristins trúaðs
manns fullkomnað. Hann tel-
ur Krist sína æðstu fyrirmynd,
ekki sízt á krossinum, kvalinn,
hæddan og fyrirlitinn — en
frjálsan í himnaríki góðleikans.
Árelíus Níelsson.
FRÍMERKI
Fyrir hvert íslenzkt frí-
merki sem þér sendið mér
fáið þér 3 erlend. Sendið
minnst 36 stk.
JÓN AGNARS
P. O. Box 965.
Reykjavík.
Bjarni beinteinsson
LÖGFRÆÐINGU R
AUSTURSTRÆTI 17 (SILLI & VALDI)
SlMI 13536
ATHUGIÐ!
Búfræðingur með starfs-
reynslu óskar eftir ráðs-
mannsstöðu.
Ekki kúabú.
Upplýsingar i síma 40750.
BÍLLINN 1ÁR ER
-DODGE 1966-
Sláizt í för með öðrum ánægðum DODGE eigendum og veljið
DODGE 1966. Það er sama hvort það er DART, CORONET,
POLARA eða MONACO, þeir eru hver öðrum glæsilegri. Hinir
vandlátu velja aðeins DODGE 1966.
DODGE POLARA...
er glæsilegasti billinn frá Banda-
ríkjunum í ár. Undir vélarhlíf-
inni er hin heimsfræga DODGE
383 cub. in., V8 vél.
1966 Dodge Polara
DODGE DART GT...
er fallegur bíll með fallegum
klassískum línum. — DODGE
DART' er rúmgóður og kraft-
mikill bíll, sem gáman er að
aka. Fáanlegur með venjulegri
þriggja gíra skiptingu, sjálfskipt-
ingu eða fjögurra gíra gólfskipt-
ingu.
DODGE CORONET 500...
er, eins og allir bílar frá
DODGE, vandaður, st'erkur og
síðast en ekki sízt stórglæsilegur
með nýtízkulegum línum. —
CORONET kemur „standard"
með 145 hestafla vél, en auk þess
má velja um fjórar aðrar vélar-
stærðir.
1966 Dodge Coronet 500
^ CHRYSLER-UMBOÐIÐ VÖKULL h.f.
Hringbraut 121 — Sími 10600.
STARF RAFVEITUSTJORA
Á SIGLUFIRÐE
Samkvæmt samþykkt Rafveitunefndar og bæjar-
stjórnar Siglufjarðar, er starf rafveitustjóra á
Siglufirði hér með auglýst laust til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 15. marz. n k.
Umsóknum sé skilað til undirritað« eða Baldurs
Eiríkssonar formanns Rafveitunefndar,
Siglufirði 4. marz, 1966,
Bæjarstjórinn á Siglufirði.
SKRIFSTOFUSTARF - FRAMTIÐARSTARF
Vér viljum ráða sem fyrst skrifstofumann til ákveðins,
sjálfstæðs starfs í sambandi við innflutning.
Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjórinn.
I)/uí£i«ÁUAéiíVi' h,Æ
SUÐURLANDSBRAUT 6 — SÍMI 38540.