Tíminn - 16.03.1966, Blaðsíða 1

Tíminn - 16.03.1966, Blaðsíða 1
Auglýsing í Tímaimm temur daglega fyrir augu 80—100 þúsund lesenda Gerizt áskrifendur að Tímanum. HringiS 1 síma 12323. 62. tbi. — Miðvikudagur 16. marz 1966 — 50. árg. V ' 'V.' ' Bandarísku geimfararnir Neil Armstrong, t. h., og Davfd Scott í stjórnklefa Gemini-8 geimfarsins, sem hefja á geímfer8~Sfna í dag. — FARA UPP I DAG NTB—Kennedy-höfSa, þriðjudag. Áætlað er að skjóta Gemini-8 geimfarinu á Ioft kl. 15.40 á morg Kostnaður við ferm- ingu fisks 70-80 þús. AS—Ólafsvík, þriðjudag. Eftir ag samningar milli Eim skip og Sölumiðstöðvarinnar um flutning á freðfiski tókust, hefur öllum freðfiski frá Snæfellsnesi verið ekið til Grundarfjarðar, þar sem Eimskip vill ekki láta frysti skip sín koma á aðrar hafnir á Snæfellsnesi. Þetta hefur haft í för með sér gífurlegan aukakostn að vegna flutninganna, til dæmis voru flutt «m 150 tonn af freð fiski frá Ólafsvík til Grundarfjarð ar í gær j Goðafoss. Þessir flutn- ingar stóðu yfir í um 15 klukku stundir, og er talið, að bílakostn aðurinn einn hafi verið um 70— 80 þúsund krónur í þetta eina sinn. Er ennfremur farið að flytja Framhald á bt. 14. un, miðvikudag, að íslenzkum tíma, að því er upplýst var á Kennedyhöfða í dag. Talsmaður bandarísku geimvísindastofnunar- innar, NASA, benti aftur á móti á, að stuttur tími væri til undir- búnings, og væri því hugsanlegt að fresta þyrfti skotinu að nýju. Eins og kunnugt er, var upphaf- lega áætlað að skjóta Gemini-8 með þeim Neil Armstrong og Dav id Scott innanborðs, upp í morg- un, en geimskotinu var frestað vegna leka i súrefnisgeymi í stjórnklefa geimfarsins. Ferð Gemini-8 á að standa yfir í 70 klukkustundir, og geimfaram ir eiga að festa geimfarið við gervihnött af Agena-gerð, sem skotið verður á loft 100 mínútum fyrr en Gemini-8. David Scott á einnig að fara út úr geimfarinu og vera utan þess í um tvær klukkustundir. Geimvjsindamenn leggja mikla áherzlu á, að tilraunin með að festa saman Gemini-8 og Agena- gervihnöttinn sé mjög þýðingar- mikil. Er sú tækni mjög þýðingar mikil í sambandi við fyrirhugaða tunglferð bandarískra geimfara. Er ætlunin að aðalgeimfarið fari á braut umhverfis tunglið en geim fararair fari síðan í minna geim fari niður á yfirborð tunglsins, og fari síðan upp aft- ur og inn í aðalgeimfarið. Er því nauðsynlegt, að hægt sé að tengja saman tvö geimför. í kvöld var allt útlit fyrir, að hægt væri að skjóta Gerpini-8 upp samkvæmt áætlun. Búnaðarþing um frumvarp um Bjargráðasjóð Bætur, fari hey- öflun 20% undir meðallag 3 ára HZ—Reykjavík, þriðjudag. Búnaðarþing samþykkti í dag svo til óbreytt frumvarp um Bjargráðasjóð, sem nú liggur fyr- ir Alþingi. Fjórar breytingar voru þó gerðar, og merkasta breytingin sem Búnaðarþing ályktaði var um 12. grein, sem fjallar um skilyrði fyrir lánum eða framlagi úr af- urðatjónadeild Bjargráðasjóðs. Ályktun Búnaðarþings um hana er svohljóðandi: Greiða skal bætur eða veita lán: a) Ef heyfengur bónda af völd- um kals, óþurrka eða af öðrum sambærilegum ástæðum verður 20% eða meira undir meðallagi þriggja undanfarinna ára, miðað við heyfeng af hektara ræktaðs lands, skal veita lán eða bætur eða hvort tveggja. Upphæð bóta eða láns skal miðast við meðal- gangverð á heyi árinu fyrr. Bjarg ráðastjórn metur, hvort veita skuli lán eða greiða bætur. b) Bætur skal greiða vegna af urðatjóns af nautgripum og sauð fé af völdum sjúkdóma, svo sem lambaláts, veiruskitu í kúm og sölubanns afurða vegna sóttvarna ráðstafana. Bótafjárhæð skal mið uð við, að sá, sem fyrir afurða- tjóni verður, fái að fullu bætt það tjón, sem verður fram yfir 8% af ársafurðum bóndans árið á und an, miðað við sama gripafjölda, enda leggi hann fram óyggjandi sannanir um magn búsafurða það ár. Ella verði miðað við meðalaf urðir af grip í þeirri sýslu, er tjón varð í. c) Bæta skal tjón vegna dauða nautgripa og sauðfjár af völdum sjúkdóma eða eitrunar, ef tjónið hefur numið 12% eða meira af bústofni, enda hafi ekki verið vá tryggt fyrir tjóninu, eða það bætt skv. öðrum lögum. Upphæð bóta skal vera skattmatsverð. Heimilt er Bjargráðastjórn að veita lán, þótt tjón nemi minna en 12%, ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi að mati sjóðsstjómarinnar. Bóta- HANDTEKINN EFTIR VIÐ- TAL VIÐ K0NU DJILAS NTB—Stokkhólmi, þriðjudag. Fréttamaður sænska útvarpsins í Rómaborg, Gunnar Kumlien, var s.I. laugardag handtekinn í Bel- grad eftir að hafa tekið sjónvarips viðtal við eiginkonu júgóslav- neska rithöfundarins Milovan Djil as, sem nú situr í fangelsi. Það var öryggislögregla Júgóslavíu, sem framkvæmdi handtökuna. Kumlien segir sjálfur frá þessu i fréttaþætti í sænska útvarpinu í dag. Hann sagði, að hann og ít- öisku myndatökumennirnir, sem með honum voru, hafi verið hand teknir á götunni, er þeir komu frá því að hafa viðtalið við frú Djilas. Þeir voru fyrst fluttir til aðal stöðva öryggislögreglunnar og yf- irheyrðir þar í margar klukku- stundir. — Er okkur var sleppt um miðnættið, var ég án sænska vegabréfsins míns, sagði Kumlien. Á sunnudagsmorgun voru öll myndatökutæki og segulbönd sem voru í fbúð frú Djilas, fjarlægð og i farið með þau á lögreglustöðina, þar sem tækin voru rannsökuð. Síð an voru útvarpsmennirnir yfir- heyrðir að nýju. Var framburður þeirra skrifaður niður og yfiriýs- ingar hvers um sig bornar saman. Því næst var þeim vísað úr landi. Þeir fengu 17 klukkustunda frest til þess að hverfa úr landi Milovan Djilas hefur setið í fang elsi í 9 ár fyrir bók sína „Hin nýja stétt“, þar sem hann lýsir hinn nýju yfirstétt í kommúnista- ‘ ríkjunum. greiðslur skv. b- og c-lið skulu miðast við hvora búgrein fyrir sig nautgripi og sauðfé. Þrjár breytingatillögur við frum varpið um Bjargráðasjóð bárust og voru þær felldar. Þær fólu í sér breytingu á tekjum sjóðsins. Búnaðarþing mælir einnig með samþykkt frumvarps til laga um búfjártryggingar, er stjórnskipuð nefnd hefur samið, með nokkrum minni háttar breytingum. Þingið telur rétt að leita umsagnar hreppabúnaðarfélaganna um frum varpið, áður en það verður lagt fyrir Alþingi. Framhald á 14. síðu. Bændahöllin til umræðu á Búnaðarþingi HZ-Reykjavík, þriðjudag. Á Búnaðarþingi í dag urðu allhvassar umræður, þegar lagt var til að framlengt skyldu til fjögurra ára lán, sem tekið var við byggingu Bændahallarinn- ar. Ýmsir þingfulltrúar tóku til máls. Einn þingfulltrúa benti á, að ekki væri búið að leggja fram reikninga fyrir rekstri Bændahallarinnar s. 1. ár og því væri ekki unnt að gera sér grein fyrir því á þessu stigi málsins, hvort nauðsyn bæri til þessarar framlengingar. Þetta mikla bákn við Hagatorg væri að vísu að flestra áliti þokkaleg bygging og nauðsyn- teg fyrir starfsemi Búnaðarfé- lags íslands og Stéttarsambands oænda, en hann áleit ekki hið sama um hótelið. Það mætti vel Framhald á 14. síðu. Milovan Djilas

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.