Tíminn - 16.03.1966, Side 2

Tíminn - 16.03.1966, Side 2
MIÐVIKUDAGUR 16. mtirz l»uo TÍMINN Garpar í útgerðarmálum Það mun vera sammerkt með öllum fulltrúum íhaldsins í borgarstjóm, að enginn þeirra hefur spýtt í saltan sjó nema þá í lystireisum landa í milli eða með ströndum fram. Hins vegar má ekki minnast svo á útgerð í borgarstjórn að íhaldsfulltrúar, þeir, sem mega tala í það sinnið, rísi ekki upp til að lýsa yfir þekkingu sinni á útgerðarmálum. Jafnframt láta þeir í ljós, með þeirri barnalegu drýldni, sem ein- kennir málflutning þeirra, að enginn hafi vit á útgerðarmál- um nema þeir, að enginn hafi vit á málefnum Reykjavíkur nema þeir, og séu menn á ann- ari skoðun, þá geti þeir bara farið úr borginni. Þetta kemur heim við það gamalkunna við- horf borgarstjórnarmeirihlut- ans, að borgin skiptist í raun og veru í tvennt, sanna Reyk- víkinga og aðskotafólk, ein- hverja ókennilega íslendinga, sem hafi farið að flykkjast hingað upp úr nítján hundruð og þrjátíu til að gera mönnum lífið leitt í Reykjavík. Þetta virðist vera meginsjónarmið hjá íhaldsfulltrúunum, því í hvert sinn, sem þá brestur rök, kvarta þeir undan því, að ólíft sé að verða í borginni fyrir aðskotafólki. Að þeirra áliti er Reykjavík aðeins handa þeim sjálfum, og það skýrir kannski betur en annað ýmislegt hvim- leitt í stjórnarfari borgarinnar. í augum íhaldsmeirihlutans eru þeir, sem sækja til borgarinn- ar frá sjó alveg sama aðskota- fólkið og þeir, sem koma til hennar landveginn. Það er kannski þess vegna, sem íhalds meirihlutanum þykir ekki ástæða til að sinna útgerðar- málum borgarinnar mikið, og hefur ekki svo mikið við að hafa einn fulltrúa útgerðar- manna í sínum hópi .Hins veg- ar þykjast landkrabbamir í liði íhaldsins vera miklir út- gerðargarpar, þegar mál sjó- manna ber á góma í bæjar- stjóm. Um þann garpsskap geta útgerðarmenn í Reykjavík og smábátaeigendur borið vitni. Hittir beint í forina Stundum skeður það, að hitt er beint í mark. í þetta sinn virðist Borgarbréfið hafa hitt þá hjá Morgunblaðinu beint í forina. Þegar minnzt var á það hér, að forin á sumum götum bæjarins, tvær voru teknar sem dæmi, minntu á þorpsgötúr á túndrusvæðinu, þar sem sá er þetta ritar hefur komið, fann Eykon á Morgunblaðinu ekki einungis höfund Borgarbréfs. Hann komst líka að þeirri nið- urstöðu, að verið væri að líkja Reykjavík við þorp í Síberíu. Það var ekki meiningin að Eykon þyrfti að gerast mál- svari forarinnar með þessu móti. Langt er síðan að sá, sem þetta ritar, var á ferð í Síberíu. Vel getur verið að búið sé að malbika þar allar götur síðan. Þá hefur Eykon hneykslazt til lítils. Svo vikið sé að þeim uppslætti Morgunblaðsins, að ákveðinn borgarfulltrúi hafi skrifað síðasta Borgarbréf, þá er það svona álíka gáfulegt og ef við ætluðum að fara að halda því fram, að Gísli Hall- dórsson hafi skrifað greinina um skítinn og óþverrann í Reykjavík í Morgunblaðinu, þegar mest gekk á út af hrein- lætisvikunni. Árásin á Kristján Benediktsson út af ímynduðu uppnefni á Reykjavík, er gott dæmi um það, að Morgunblað- ið er reiðubúið að gefa upp á bátinn ágætt en síðbúið fram- tak í malbikunarmálum hin síðari ár, í þeirri von að geta háð kosningabaráttu sína aust- ur í Síberíu. Verði þeim að góðu. Borgari. EKKI RITHOND EINARS BEN? GÞE-Reykjavík, þriðjudag. f dag hélt Sigurður Benedikts- son bókauppboð og var mikill hluti þeirra bóka, er boðnar voru upp, úr bókasafni Snæbjarnar Jóns sonar. Það sem einna mesta at- hygli vakti á uppboði þessu, var það, að eiginhandrit Einars Bene- diktssonar skálds af frumortu brúð kaupskvæði, er auglýst hafði verið til uppboðs, var ekki boðið upp, SÆLUVIKA SKAGFIRÐINGA I NÆSTU VIKU GÓ, Sauðárkróki, þriðjudag. I haldin í næstu viku og verður hún Sæluvika Skagfirðinga verðurlmjög fjölbreytt að vanda. Sýnd UNDIRSKRIFTASÖFNUN AÐ UÚKA Tímanum barst í gær eftirfar- andi frétt um sjónvarpsundirskrift ir frá Félagi sjónvarpsáhuga- manna. Undirskriftasöfnun- þeirri, sem félag sjónvarpsáhugamanna hefur staðið fyrir að undanförnu, gegn hvers konar takmörkunum á mótt- töku sjónvarpsefnis, er nú senn að ljúka. Hefur söfnunin gengið xnjög vel, og eru undirskriftir nú rúmlega helmingi fleiri orðnar en ætlunin var að safna í upphafi. f upphafi var stefnt að því að safna 6000 undirskriftum, en list- ar voru sendir félagsmönnum og ýmsum öðrum, auk þess, sem þeir lágu frammi í nokkrum verzlun- um hér í bæ og nágrenninu. Alls hafa nú safnazt á 14. þús- und undirskrifta, og er árang- urinn rúmlega helmingi betri en stefnt var að í upphafi, þótt félag- ið hafi ekki beitt sér fyrir því, að gengið væri með lista í hús. Stjórn félagsins gat þess, að þeir, sem enn kynnu að hafa lista í fórum sínum, geti enn skilað þeim í P.O. Box 1049. verða tvö leikrit, þrír karlakórar skemmta kvikmyndasýningar verða daglega og dansleikir verða haldnir fimm kvöld vikunnar. Skemmtiskrá Sæluvikunnar verð ur á þann veg, að Leikfélag Sauð- árkróks sýnir leikritið Skálholt eftir Guðmund Kamban og er leik stjóri Kári Jónsson. Verkakvenna- félagið Aldan gengst fyrir sýn- ingum á leikritinu Græna lyftan undir stjórn Ragnhildar Stein- grímsdóttur frá Akureyri. Þrír karlakórar koma fram á Sæluvikunni, en það eru Karla- kórinn Heimir og Karlakór Ból- staðarhlíðarhrepps, sem halda sam söng undir stjórn þeirra Jóns Björnssonar og Jóns Tryggvason- ar. Þá kemur fram Karlakórinn Framhald á 14. síðu. EFTA-RAÐSTEFNA Á FIMMTUDAG Þegar starfsáætlun VARÐ- BERGS fyrir veturinn 1965—1966 var samin s.l. haust, var m.a. ákveð ið að efna til ráðstefnu um EFTA friverzlunarsvæði Evrópu. í fram haldi af því hefur nú verið afráð- ið að umrædd ráðstefna verði fimmtudaginn 17. marz í Sigtúni og hefjist kl. 18.00 síðdegis. Á ráðstefnunni verður fjallað um starfsemi EFTA almennt, en einnig vikið sérstaklega að þeim þáttum, sem máli skipta fyrir hugs anlega aðild íslands að fríverzl- unarsamtökum þessum. Fyrst flytja erindi þeir Þórhall- ur Ásgeirsson, _ ráðuneytisstjóri, sem ræðir um „ísland og EFTA“ og Björgvin Guðmundsson, deildar stjóri, er fjallar um „Þróun EFTA og framtíðarhorfur." Þá munu þeir Guðmundur H. Garðarsson, viðskiptafræðingur, Gunnar Frið- riksson, form. Félags ísl. iðnrek- enda og Hilmar Fenger, form. Fé- Framhald á 14. síðu. FORSETINN FARINN TIL ÍSRAEL Forseti íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson, fór í dag áleiðis til ísrael, þar sem hann verður í op- inberri heimsókn síðar í þessum mánuði. Að heimsókninni lokinni mun forsetinn dveljast í einkaer- indum erlendis. í forsætisráðuneytinu, 14. marz 1966. Leiksýning í Iðnó til heiðurs Regínu Þórðardóttur leikkonu GB-Reykjavik, þriðjudag. Leikfélag Reykjavíkur hefur hátíðarsýningu á „Húsi Bern- örðu Alba“ n.k. laugardags- kvöld til heiðurs Regínu Þórð- ardóttur leikkonu, sem leikur aðalhlutverkið í tilefni þess, að f vor eru liðin þrjátíu ár síðan Regína lék fyrsta hlut- verkið á vegum L.R. i Iðnó, hlutverk Veru Berridge í Ieik- ritinu „Æska og ástir“, sem L.R. sýndi vorið 1936. En alls hefur Regína leikið um hálft hundrað hlutverka hjá L.R. og álíka mörg í Þjóðleikhúsinu,' þar sem hún var fastráðin leik- kona fyrstu tíu ár þess. Raunar er lengra síðan Reg- ína fór fyrst að leika fyrir Leikfélag Reykjavíkur, það var vorið 1932, er L.R. fór í ltik- för til Akureyrar með „Jósa- fat“ eftir Einar H. Kvaran, þá tók hún að sér hlutverk frú Finndal, sem Arndís Björns- dóttir átti að leika, en forfall- aðist. Næst var hún ráðin hjá Leikfélagi Akureyrar til að leika í „Fröken Júlíu“ eftir Strindberg ,og fleiri hlutverk lék Regína hjá því félagi, unz hún sigldi til Kaupmannahafn- ar og stundaði leiklistarnám í skóla Konunglega leikhússins. Hún kom heim vorið 1936 og lék fyrst á sviðinu f Iðnó, starf- aði hér að leiklist til 1939, er hún hélt aftur til Hafnar og lauk námi í Konunglega leik- listarskólanum, komst heim aft ur með síðustu skipsferðinni eftir að stríðið brauzt út, Pets- amo-ferð Esju. Þá hélt hún áfram að leika hjá Leikfélagi Reykjavíkur til ársins 1950, er Þjóðleikhúsið tók til starfa og hún var fastráðin leikkona þar, en 1960 lét hún af starfi þar og hefur síðan leikið hjá L.R. Á fundi með fréttamönnum í dag lét Sveinn Einarsson þess getið, að meðal kunnustu hlutverka Regínu á sviðinu í Iðnó mætti telja Jómfrú Ragn heiði í Skálholti eftir Guð- mund Kamban, Steinunni í „Galdra-Lofti“ eftir Jóhann Sigurjónsson, og seinni árin aðalhlutverkin í leikritum eftir Friedrich Ðiirrenmatt, „Eðlis- fræðingunum" og „Sú gamla kemur í heimsókn" og loks nú hlutverk Bernörðu Alba. Frá starfsárum hennar í Þjóðleik- húsinu væru líklega minnis- stæðust aðalhlutverk í þremReSína ÞórSardóttir í hlotverki Bern leikritum eftir Arthur Miller örðu Alba. „Sölumaður deyr“, „Horft af brúnni og „í deiglunni," svo og hlutverk hennar í „Edvard sonur minn.“ Sveinn sagði, að áformað hafi verið að „Hús Bernörðu Alba“ yrði sýnt í síð- asta sinn n.k. laugardag, en vegna mikillar aðsóknar yrði líklega bætt við fáeinum sýn- ingum. Leikfélag Reykjavíkur er nú að æfa tvö leikrit, „Þjófar, lík og falar konur,“ sem sýnt var á síðasta leikári og nú á ný með dálítið breyttri hlutverkaskip- an, og „Dúfanveizlan“ eftir Halldór Laxness, en það leik- rit verður frumsýnt í næsta mánuði. og mun ástæ'ðan fyrir því vera sú, að kunnáttumenn vefengja, að hér sé um rithönd skáldsins að ræða. í gær voru þær bækur, sem boðnar skyldu upp í dag til sýnis almenningi. Ýmsir fræðimenn svo og menn, sem kunnugir voru skáld inu persónulega og þekktu rithönd hönd hans, munu hafa rannsakað umrætt handrit af mikilli kost- gæfni og verið afar efins um, að þetta gæti verið rithönd skáldsins. Þetta varð til þess, að farið var með handritið upp á Þjóðskjala- safn, þar sem það var svo borið Framhald á 14. síðu. Tónleikar í kvöld og annað kvöld Austurríski píanóleikarinn, Al- fred Brendel, sem er hér í boði Tónlistarfélagsins, heldur píanó- tónleika í Austurbæjarbíói í kvöld og annað kvöld. Á efnisskránni eru verk eftir Beethoven og Schu- bert. Framsóknar félögin á Akureyri Stjórnmálafuno halda Fram- sóknarfelögin á Akureyri á Hótel KEA iaugardaginn 19. þessa mán aðar kI 3.30 síðdegis. Frummæl endur alþingismennirnir Einar Ágústsson og Ingvar Gíslason. Allt stoðningsfólk flokksins vel- komið. Framsóknarfélögin, Akureyri. ii i, i , l , , ; ' V \V V\ VV A' ” - v

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.