Tíminn - 20.03.1966, Blaðsíða 1
Auglýsing í Tímanum
kemur daglega fyrir augu
80—100 þúsund lesenda
Þessi mynd var tekin á Reykiavíkurflugvelli í gær við komu dönsku forsætisráðherrahjónanna. Jens Otto Krag er yzt til vinstri. Þá koma Páll
Ásg. Tryggvason, Emil Björnsson og frú, Helie Virkner Krag, Atli Steinarsson og Elín Pálmadóttir. (Tímamynd BB).
Danski forsætisráðherrann í ræðu á Pressuballinu í gærkvöldi:
íslendingar og Danir standa hvor
öirum nær en nokkru sinni fyrr
IGÞ—Reykjavík, laugardag.
Jens Otto Krag, forsætisráð-
herra Danmerkur, og kona hans,
frú Helle Virkner Krag, komu
síðdegis í dag til Reykjavíkur í
boði blaðamannafélags íslands. í
kvöld sóttu forsætisráðherrahjón
in PressubaUið, þar sem Krag
flutti ræðu. Þau hjónin eru fyrstu
gestirnir, sem koma hingað vegna
Pressuballsins.
Tíminn vill fyrir sitt leyti bjóða
forsætisráðherrahjónin kærlega
velkomin hingað til lands. Þetta
mun vera í fyrsta sinn sem for-
sætisráðherrafrúin kemur hing-
að og vonandi hefur hún ánægju
af ferðinni. Þau hjónin eru sér
staklega kærir gestir vegna gam
alla og nýrra tengsla okkar við
dönsku þjóðina.
Eins og fyrr segir, þá voru þau
hjónin gestir Blaðamannafélagsins
á Pressuballinu í kvöld, þar sem
Jens Otto Krag flutti ræðu. í ræðu
sinni sagði hann meðal annars,
að hann hyllti íslenzku þjóðina
fyrir að hafa komið á móts við
Dani og sýnt vilja á að draga fjöð
ur yfir liðna atburði og einnig fyr
ir það, hvernig íslenzku þjóðinni
hefði tekizt að byggja upp nýtt
þjóðfélag.
Þá sagði Krag I ræðu sinni, að
hann væri feginn því, að nú væri
óhætt að trúa því að eitthvert
viðkvæmasta vandamál, sem á-
greiningi hefur valdið milli ís-
lendinga og Dana, væri nú í
þann veginn að leiðast til lykta,
og átti hann þar við afhendingu
handritanna. Hann minntist síðan á
málaferlin, en sagði svo að bæði
á íslandi og í Danmörku hefðu
margir að sjáifsögðu kosið skjót
ari úrlausn, en það kynni að reyn I aði ekki á minnsta efa um lagaleg
ast vel, einnig fyrir sambúðina í ar hliðar þess. Þá ræddi Krag
framtíðinni, að mál þetta væri um hin ýmsu samskipti Norður-
þaulrannsakað ,þannig að þegar landa út á við og inn á við, en
málið væri loks til lykta leitt örl' í lok máls sins sagði hann: Á um-
brotatímum finna menn betur til
ættartengsla. Ef til vill er sann
leikurinn sá, að íslendingar og
Danir standa hvor öðrum nær en
Framhalri á 14 síðu
Niðurstöður
komnar í ís-
vandamálinu
EJ—Reykjavík, laugardag.
í gær var lögð fyrir stjórn
Landsvirkjunar ný skýrsla frá
verkfræðilegum ráðunautum
hennar, Harza Engineering
Company International, um
ísamál Búrfells. Með henni
fylgja skýrslur frá tilrauna-
stöðinni í Þrándheimi og dr.
Gunnari Sigurðssyni. f þessum
skýrslum er gerð grein fyrir
þeim ísvandamálum, sem við
er að glíma við virkjunina,
þeirri leið, sem valin hefur ver
ið til að mæta þessum vanda-
málum og þeim rannsóknum,
sem gerðar hafa ver
ið til að sannreyna þá lausn,
sem valin var — að því er seg
ir í fréttatilkynningu frá Lands
virkjun.
í niðurstöðum ráðunautanna
segir m.a., að fyrirhugaðar
framkvæmdir til að minnka
kæliflöt Þjórsár á fyrsta virkj
unarstigi, muni draga úr is-
magninu. Miðað við þær að-
stæður, sem eru í ánni í dag,
er hægt að fleyta öllum ís,
sem berst niður ána yfir stifl
ur og áfram niður í Þjórsá. Þá
segir einnig, að lítið rennsli í
Þjórsá, samfara miklu ísmagni
og þörf á vatni til útskolunar
á ísnum leiðir óhjákvæmilega
af sér, að draga verður stöku
sinnum úr afköstum Búrfells
virkjunar. Útreikningar sýna,
að orkuskortur 105 MW Búr
fellsvirkjunar með orkusölu til
álbræðslu og án miðlunar eða
Framhald á 14. síðu.
Er komið að undirritun
samninga um kísilgúr?
IGÞ—Reykjavík, laugardag.
Blaðamaður Tímans í Lon-
don símaði í morgun að heyrzt
hefði, að ríkisstjórnin hefði
samþykkt s.l. fimmtudag að
ganga að samningum um kísil-
gúrvinnsluna við bandaríska
aðilann Johns Manville. Jafn
framt skýrði blaðamaðurinn
frá því, að Pétur Pétursson,
framkvæmdastjóri Innkaupa-
stofnunar ríkisins, væri nú í
London, á leið til New York
til viðræðna við fyrirtækið
Johns Manville. Hefur Pétur
fengið ársfrí frá störfum til að
sinna þessu máli. í London hef-
ur Pétur verið að kaupa hús
og annað til verksmiðjunnar,
en hann fer á miðvikudag til
New York. Er álitið, að stutt
sé í undirritun samninga við
Johns Manville.
í dag sneri Tíminn sér til
Magnúsar Jónssonar, fjármála
ráðherra, sem sagði, að samið
mundi verða við Johns Man
ville um eigin aðild að fyrir-
tækinu og sölu á framleiðsl-
unni. Eins og áður hefur kom-
ið fram mun ríkið eiga 51%
hlutafjár. Varðandi 49% hluta
fjárins sagði Magnús, að sveit
arfélögum á Norðurlandi væri
gefinn kostur á að gerast hlut
hafar ef þau vilja. Hlutafjár-
upphæðin í heild verður 50—
60 milljónir. Magnús sagði, að
einn hreppur hefði lýst sig fús
an til að kaupa hlutabréf fyrir
tíu þúsund krónur, og Húsavík
urkaupstaður vildi kaupa 100
þús. króna hlut. Magnús sagði
að hlutafjárupphæð Johns Man
ville yrði bundin við 39% og
með því mundi fást svigrúm
til að ráðstafa 10% af hluta-
fénu til sveitarfélaganna.
Þá sagði Magnús, að við
samningana yrði gengið svo
frá, að sölufélagið, sem seldi
kísilgúrinn, yrði staðsett í land
inu. Johns Manville starfrækir
þetta sölufélag, en líklega mun
einn fulltrúi ríkisins sitja í
stjórn þess.
Magnús sagði að lokum, að
höfuðatriðið fyrir okkur væri
að fá markað fyrir kísilgúrinn.
Það væri miklum erfiðleikum
bundið, og kosta yrði sérfræð
inga um alla Evrópu, sem
segðu til um notkun hans, eins
og þeir verða að gera, sem nú
selja þetta efni. Þar er fyrir-
tækið Johns Manville fremst í
flokki og með virtustu fyrir-
tækjum, sem selja á þessum
markaði. Með því að sanna
þeim, að hér er fáanlegur eins
góður kísilgúr og þeir hafa yf-
ir að ráða, hafa þeir léð máls
á því að rýma til á þeim mark
aði, sem þeir hafa, til að koma
okkar efni á framfæri. Kísil-
gúrinn er notaður sem síunar-
efni, m.a. fyrir bjór og sykur.
Það þekkist hvergi nema hér,
að gúrinn sé unninn úr vatni,
og hafa við það komið upp
tæknileg vandamál, bæði hvað
snertir að ná vatninu úr gúrn-
um og eyða járni úr honum,
og eru miklar líkur á því, að
tekizt hafi að ráða til fulln-
ustu fram úr þeim vanda. 31að
ið spurði fjármálaráðherra
ekki um ferðir Péturs Péturs-
sonar.
Áætlað er að reisa kísilgúr-
verksmiðjuna í sumar, en í
vetur hefur verið byggt skrif-
stofuhúsnæði. Þá kemur það
heim við húsa- og vélakaupin
í London, að allar vélar verða
innfluttar og einnig tilbúnar
skemmur, þannig að bygging
arframkvæmdir á staðnum
verða að miklu leyti fólgnar :
því að reisa þessar skemmur
---------