Tíminn - 20.03.1966, Qupperneq 8

Tíminn - 20.03.1966, Qupperneq 8
, 93 tJ jt-J Jt. TÍMINN SUNNUDAGUR 20. marz 1966 "w V3 Vi> ’Jy'lJ' 8 Hún var meira en föðurlandsvinur Stríðshetjan — hjúkrunarkonan Edith Cavell, myndin var telcln skömmu áður en fyrri heimsstyrjöldin brauzt út, óg áður en hún fór að aðstoða neðanjarðarhreyfinguna í hinni hersetnu Brussel. Hún er mesta kvenhetja Bretlands _ úr fyrri heimstyrj- öldinni. Á Trafalgar Square hefur verið reist stytta til minn ingar um fórnir þær, er hún færði sem njósnari. Hvað Þýzka landi viðvék var dauði hennar frammi fyrir skotsveitinni mis- tök, sem keisarinn sjálfur hafði orðið til þess að gefa skipun um, að því er sagt er. í Banda- ríkjunum hafði aftaka hennar í október 1915 — aðeins fáum mánuðum eftir að 124 Banda- ríkjamenn fórust, þegar Lusit- aniu var sökkt, þau áhrif, að hlutleysisstefnan breyttist í ofsafengna andúð gegn Þjóð- verjum. James Bond hefði ekki litið tvisvar sinnum í átt til Edith Cavell hjúkrunarkonu. Hún var miðaldra, þreytuleg kona, og af útlitinu var ekki hægt að ákveða stöðu hennar í þjóðfé- Minnisvarðinn í London. í okfo- ber síðast liðnum var iialdin minningarathöfn við minnisvarð- ann, en þá voru liðln 50 ár frá aftöku Edith Cavell. laginu. Maður nokkur, sem varð vitni að síðustu stundum lífs hennar, lýsti henni á þá leið, að „hún hefði verið lítil og veikbyggð, og helzt hefði litið út fyrir að minnsti vind- blær hefði getað borið hana á brott, en hún var mjög hug- rökk.“ Við fáum svolitla inn- sýn í huga hennar með því að lesa bréf, sem hún skrifaði dag- inn áður en hún var skotin. Bréfið var skrifað til ungrar enskrar konu, sem var eitur- lyfjaneytandi og undir læknis hendi í hjúkrunarskólanum f Brussel, þar sem Cavell var for- stöðukona. Stúlkan var erfiður sjúklingur og alltaf að falla í freistni, en þrátt fyrir það, einn af fáum nánum vinum Edith Cavell. Hún virðist hafa dregizt að öllum, sem áttu bágt. „Elsku stúlkan mín,“ stend- ur í bréfinu . . . „ekkert skipt- ir máli, þegar svona er komið nema hrein samvizka gagn- vart guði, og manni finnst lífið hafa verið til einskis, fullt af misgjörðum og óframkvæmd- um hlutum . . . Ég vil að þú vitir, að ég var hvorki hrædd né óhamingjusöm, heldur full- komlega reiðubúin að fórna lífi mínu fyrir England.“ En Edith Cavell var ekki einungis föðurlandsvinur. Held ur eins og hún sagði við prest- inn, sem kom til hennar rétt áður en hún var tekin af lífi: „Þetta vil ég segja, nú þegar ég stend frammi fyrir Guði og eilífðinni: Ég geri mér fulla grein fyrir því, að föðurlands ástin er ekki nægileg. Ég má ekki bera í brjósti hatur eða biturleika gagnvart nokkrum manni.“ Hundrað ár eru liðin frá fæð- ingu hennar. Hún fæddist í þorpi í austanverðu Englandi, dóttir prests, sem þjónaði fá- tækum söfnuði. Honum tókst þó að safna saman nægilega miklum peningum til þess að geta sent hana í skóla. Þegar skólagöngunni lauk fór hún til Brussel til þess að verða barn- fóstra hjá ríkri fjölskyldu. Ár- ið 1896 sneri hún aftur til Eng- lands og hafði þá ákveðið að gerast hjúkrunarkona. Þessi ákvörðun sýnir töluvert hugrekki. Það voru aðeins 36 ár liðin frá því Florence Night- ingale hafði stofnað fyrsta hjúkrunarskólann í London, og þetta starf var hvorki þægilegt né vel borgað. Unga hjúkrun- arkonan reyndist hafa sérstaka hæfileika til að bera, og árið 1907 bað belgískur læknir hana að koma aftur til Brussel og setja þar á stofn fyrsta hj úkrunarskólann. Árið 1914 var skólinn orðinn fastur í sessi, þrátt fyrir það að lítið væri til af peningum. Hin lágværa Edith Cavell var sögð mjög fær stjórnandi. Hún var í leyfi i Englandi, þegar styrjöldin brauzt út, en sneri aftur til Brussel 3. ágúst — dag inn áður en Þjóðverjar gerðu innrás í Belgíu. Hinn 20. ágúst hófu lensuriddararnir innreið sína í borgina, og Edith Cavell hlýtur að hafa fylgzt með því, þegar 300 þúsund hermenn úr fyrsta her Kluck þrömmuðu fram hjá í þrjá daga samfleytt líkastir stórfljóti, gráir fyrir járnum, og það glamraði í stríðsvélunum, sem dregnar voru yfir steinlagðar göturn- ar. Hún hlýtur að hafa heyrt um ógnarverk Þjóðverja: 150 borgarar teknir af lífi í Aer- schot, 664 í Dinant, Louvain brennd. í öllum þessum tilfell- um var hinn meinti glæpur njósnir. Samt tók skólinn henn ar jafnt á móti særðum Þjóð- verjum sem bandamönnum, þar til þýzku hjúkrunarkonurn ar komu á vettvang. Þegar árið 1915 gekk í garð, hafði margra ára strit og slæmt mataræði gert Edith gamla fyr- ir aldur fram. Hún hefði frem- ur getað verið 65 ára en 49 eins og hún raunverulega var. Það er nokk- urn veginn öruggt, að hún hafði að minnsta kosti einu einni fengið aðkenningu að slagi — enda þótt hún viður- kenndi það aldrei — og að- stoðarskólastýra hennar var viss um, að hún óttaðist að annað væri í vændum. Edith virtist finna, að farið var að halla undan fæti. Ákveðið hafði verið, að skólinn flyttist í nýja byggingu, og samstarfsfólk hennar tók eftir því, að hún var farin að tala um hvað „þið“ munið gera þar, en ekki hvað „hún“ mundi gera þar. Þetta var svo manneskjan, sem nokkrir fulltrúar belgísku neðanj arðarhreyfingarinnar sneru sér til 1915. Mennirnir voru að skipuleggja flótta franskra og belgískra her- manna, sem höfðu orðið við- Skila við heri sína, og ætlunin var að koma nú aftur um Hol- land til réttra herbúða. Á sama hátt átti einnig að senda belg íska pilta, sem dæmdir höfðu verið til hegningarvinnu fyrir Þjóðverja. Mundi ungfrú Cav- ell gefa leyfi til þess að skól- inn yrði notaður sem bæki- stöð fyrir þessa neðanjarðar- starfsemi? Hún gerði það. Það skipti ekki máli, þótt Þjóðverjar myndu að sjálfsögðu hafa auga með enskri konu í Belgíu, skól- inn yrði notaður sem felustað- ur fyrir þá, sem þurftu þess með. Þar gátu þeir fengið lækn isaðstoð og beðið þar til leið- sögumenn gætu farið með þeim til hollenzku landamæranna. Fyrstu tveir flóttamennirnir voru brezkur ofursti og lið- þjálfi. Ungu hjúkrunarkonurn- ar skríktu og horfðu á þá stór- um augum. Svo hurfu þeir. Öryggisráðstafanir neðan- jarðarhreyfingarinnar voru tak markaðar, jafnvel þótt tillit sé tekið til þess, hve langt er lið- ið síðan þetta var. Þýzkir njósn arar heimsóttu skólann klæddir borgaralegum fötum, og höfðu margt að yfirskini. Hjúkrunar- konurnar þekktu þá auðveid- lega á þýzku hermannastígvél- unum, en í einni slíkri heim- sókn hafði brezk liðsforingja- húfa orðið eftir, og lá fyrir allra augum í einu þvottaher- berginu. Viðbrögð eins Belg- ans voru slík, að jafnvel hjúkr- unarnemarnir héldu, að hann væri þýzkur leyniþjónustumað- ur. Brátt var svo komið að heil- brigð skynsemi sagði, að flytja yrði bækistöðina, en ungfrú Cavell mun hafa verið mikið á móti því að dylja starfsemi sína. Nær allir í skólanum munu hafa verið vissir um, að áður en lyki myndi þýzka ieyniþjón- ustan hafa náð þeim, og þeir hljóta líka að hafa vitað, að Þjóðverjar víluðu ekki fyrir sér að skjóta fanga, þótt um konur væri að ræða. Samt sem áður hélt starfsemin áfram. Svo var það 5. ágúst, að til skarar var látið skríða — Edith Cavell og aðstoðarkona hennar Elizabeth Wilkins voru fluttar í St. Gilles fangelsið í Brussel. Ungfrú Wilkins neitaði öllu, og hélt fast við fram-burð sinn, og var sleppt mjög fljótlega. Þótt ótrúlegt megi virðast ját- aði Edith Cavell öllu — að hún hefði aðstoðað um 200 menn við að komast til Hollands, að hún hefði fengið bréf frá nokkr um, sem komizt höfðu alla leið til Englands. Síðari játningin var nóg til þess að hún hlyti þungan dóm. Hermenn, sem komizt höfðu undan tii Hol- lands, voru ekki gersamlega glataðir, og myndi vera haldið þar óákveðinn tíma og því starf aði Þjóðverjum ekki veruleg hætta af þeim. En hermenn, sem komust undan til Eng- lands, yrðu fljótlega komnir af stað aftur og farnir að skjóta á Þjóðverja. Játningin hefur aldrei kom- izt í hámæli. En samkvæmt frá- sögn Edith sjálfrar, var hún Sigurvegarar___Þýzkir hermenn í Brussel. „Allir virtust hafa vitað, að fyrr eða síðar kæmist upp um starfsemi skólans."

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.