Tíminn - 25.03.1966, Blaðsíða 12
12
TÍMINN
ÍÞRÓTTIR
FOSTUUDAGUR 25 marz 1966
U1HYST A RQNGUM FORSM
Undanfama daga hefor
vinna legið niðri í íþrótta-
höllinni í Laugardal og al-
veg óvíst hvenær hún hefst
aftur. Eftir upplýsingum,
sem íþróttasíðan hefur afl-
að sér, er það vegna fjár-
skorts, sem framkvæmdir
hafa stöðvazt, en láta mun
nærri, að skuldir, sem
hvíla á íþróttahöllinni
vegna þeirra nemi nú um
5 millj. króna.
Eins og kunnugt er, standa
þrír aðilar að byggingu hallar-
innar, Reykjavíkuriborg, f-
þróttabandalag Reykjiavíkur og
sýningarsamtök atvinnuveg-
anna, Og er það einkum síðast
taldi aðilinn, sem vanrækt hef
ur að inna af hendi greiðslur
til framkvæmda.
Það vakti mikla gremju inn-
an íþróttahreyfingarinnar, þeg
ar það fréttist um áramótin,
að ekki yrði hægt að halda
neina mótaleiki í vetur í höll-
inni, (aðeins leikir gegn er-
lendum liðum), en menn sættu
sig betur við þá ákvörðun, þeg
ar fréttist, að kappkostað yrði
að ljúka öllum framkvæmdum.
En því miður hafa ekki orðið
sjáanlega miklar breytingar á
íþróttahöllinni frá áramotum
þótt ýmislegt hafi verið unnið
við 'hana, t.d. gólf salarins slíp
að upp og tvílakkað, gólf í for
dyri rybbundið og salerni lög
uð. Hefur ekki verig eins mik-
ill kraftur í framkvæmdum og
vænta mátti og stafar það ein
faldlega af fjárskorti.
Út af fyrir sig þýðir lítið að
kvarta yfir seinagangi við fram
kvæmdir vegna fjárskorts, en
það hlýtur að verða að líta á
það sem alvarleg mistök, að ís
landsmótum í handknattleik
og körfuknattleik skuli hafa
verið úthýst í vetur á röngum
forsendum. íþróttamönnum var
tjáð, að ef mótaleikir færu
fram í vetur, myndi það tefja
stórkostlega vinnu við höllina.
Nú hefur það hins vegar skeð
að lítið hefur verið unnið —
og í svipinn allar framkvæmd-
ir stöðvaðar. Og þess vegna
hefðu mótaleikir hæglega get-
að farið fracn.
Það er kaldhæðni, að á sama
tíma og íþróttahöllin stendur
lokug dag eftir dag og ekkert
unnið við hana vegna fjár-
skorts, skuli tekjuliður — eins
og mótaleikir, t.d. í handknatt-
leik, — vera útilokaður. Hefði
nú ekki verið nær að hýsa
mótaleikina í vetur og hafa af
þeim nokkrar tekjur er rynnu
til framkvæmda? Eg er viss
um, að borgaryfirvöldin eru
þessu sammála ekki síður en
íþróttahreyfingin, svo maður
tali nú ,ekki um sýningarsam-
tök atvinnuveganna, sem mið
þessu gætu tryggt sér fjár-
magn til að greiða hluta sinn
í þeirri byggingu sem þau hafa
átt svo stóran þátt í að risi
upp.
Hvað um það, það er orðið
of seint að byrja á mótaleikj-
um í íþrótta'höllinni í hálfnuð
um mótum, en íþróttasamtökin
ættu ekki að láta loka sig aft
ur úti næsta keppnistímabil,
nema hafa einhverja tryggingu
fyrir því, að unnið verði kapp
samlega að því að Ijúká fram-
kvæmdum. Þá er betra að
leika í höllinni eins og hún er
í dag en að gista í Hálogalanas
bragganum um ófyrirsjáanleg-
an tíma, —aif.
Nota hefðf mátt Laugardalshöllina betur í vetur en gert hefur verið.
Enn einu sinni varpa Hauk-
ar „sprengju“ á toppinum
— sigruðu Fram í gærkvöldi í spennnandi leik með 20:18.
Alf-Reykjavík. — Það er engu
líkara en sprengju hafi verið
varpað á stigatöfluna í 1. deildar
keppninni í handknattleik siðustu
dagana. Nú er svo komið, að Fram
liðið, sem hafði forystu langt fram
eftir móti, er komið í annað sæti,
tveimur stigum á eftir FH, en í
gær tapaði Fram í annað skipti í
röð.
Og enn voru það Haukar, sem
vörpuðu sprengju. Þeir byrjuðu
í mótinu á því að sigra FH, en
gekk svo illa í næstu leikjum, en í
gærkvöldi unnu þeir verðskuldaðan
sigur gegn Fram 20-18. Þeir höfðu
frá upphafi forustu — Fram komst
aðeins einu sinni yfir, 17:16, en
Haukar voru skjótir að jafna og
unnu á góðum endaspretti.
Staðan á Engiandi og
landi í deildakeppninni:
Skot-
Fulham 32 8 5 19 48 69 21
Blackbum 31 7 4 20 50 68 18
Manch C
Huddersf.
Coventry
Southampt
Wolves
Bristol City 33
Crystal
Palace 33
deild
17 11 4 59 34 45
17 10 6 53 25 44
15 11 6 56 38 41
16 6 10 69 47 38
15 8 10 72 50 38
12 14 7 48 42 38
11 12 10 38 43 34
1. deild Derby C. 33 13 7 13 53 52 33
Liverpool 34 22 6 6 68 28 50 Rotherham 31 12 9 10 59 59 33
Leeds 31 17 9 6 61 29 42 Plymouth 33 11 10 12 47 51 32 Staðan í 1. deild í Skotlandi:
Bumley 33 18 6 9 65 41 42 Birmingham 32 12 7 13 47 54 31 Celtic 27 21 2 4 91 29 44
Manch. U 32 15 11 6 63 43 41 Norwich 29 9 12 8 39 35 30 Rangers 27 18 5 4 74 25 41
Chelsea 31 17 6 8 48 38 40 Bolton 32 12 6 14 42 45 30 Kilmarn. 28 17 3 8 65 39 37
Tottenham 32 14 10 8 67 50 38 Preston 32 9 12 11 44 49 30 Dunferml. 26 15 5 6 72 42 35
Everton 35 14 9 12 53 50 37 Ipswich 32 11 7 14 40 47 29 Dundee Un 27 16 3 8 64 37 35
W. Bromw. 32 13 9 10 67 54 35 Cardiff 31 10 8 13 58 62 28 Hearts 26 12 9 5 46 34 33
Leicester 31 14 6 11 59 52 34 Carlisle 31 12 3 16 44 48 27 Hibernian 27 14 4 9 66 41 32
Stoke 32 11 11 10 55 52 33 Portsm. 33 10 7 16 54 69 27 Aberdeen 27 12 6 9 51 42 30
Shefíield U 32 11 11 10 42 48 33 Charlton 30 8 10 12 44 55 26 Dundee 25 11 4 10 48 48 26
Arsenal 32 10 10 12 51 55 30 Middlesbr. 32 7 12 13 45 60 26 Falkirk 25 11 1 13 37 54 23
West Ham 33 11 8 14 54 66 30 Bury 32 9 7 16 50 62 25 Clyde 26 9 4 13 48 50 22
Aston Villa 33 12 5 16 59 63 29 Leyton Morton 28 8 5 15 35 62 21
Nottm For. 32 11 7 14 44 55 29 Orient 31 4 9 18 26 60 17 St. Mirren 28 9 2 17 41 69 20
Sheffield W. 30 10 6 14 39 49 26 Motherw. 27 8 3 16 40 63 19
Newcastle 32 10 6 16 39 52 26 3. deild (Efstu og neðstu félög- Stirling Al. 27 7 5 15 29 56 19
Sunderland 33 10 6 1,7 39 64 26 in). Partick TH 25 6 7 12 36 47 19
Blackpool 31 8 8 15 40 51 24 Hull 34 22 6 6 82 48 50 St. Johnst. 24 6 5 13 38 63 17
Northampt. 34 7 10 17 45 80 24 Millwall 34 20 9 5 60 30 49 Hamilton 26 1 1 24 19 98 3
QJ’.R. 30 16 7 7 62 44 39
Swindon 32 15 7 10 58 36 37
Exeter 31 8 8 15 37 54 24
Brentford 31 7 8 16 37 41 22
Oldham 30 6 8 16 36 63 20
York 33 6 6 21 41 80 18
í fjórðu deild eru efst Colchester
og Tranmere með 46 stig hvort.
Doncaster og Torquay hafa 44 stig
hvort og Chester 43.
Leikurinn var allan tímann frek
ar jafn og hörkuspennandi. Fram-
liðið fór illa af stað og átti hvað
eftir annað stangarskot, og það
var mesta mildi fyrir Fram, að
Haukar náðu ekki yfirburðastöðu,
en Þorsteinn í markinu varði oft
frábærlega vel. Haukar komust í
4:1 og 8:4, en Fram minnkaði bilið
fyrir hié niður í eitt mark, 9:10.
f síðari hálfleik mætti Fram
ákveðnara til leiks og náði að
jafna í fyrsta skipti á 10. mín,
12:12. En Haukar náðu aftur for-
ustu. Fram jafnaði 16:16 og komst
í 17:16. Og Framleikmennirnir
höfðu upplagt tækifæri til að leika
upp á 18. markið, en þá missti
Gunnlaugur Hjálmarsson, bezti
maður Fram, knöttinn í hendur
Ásgeirs hjá Haukum, sem skoraði
óhindrað 17:17. Og þetta var upp-
hafið að góðum lokakafla Hafnar-
fjarðarliðsins. Matthias skoraði 18
:17, en Sigurður E. jafnaði fyrir
Fram, 18:18. Stefán skoraði lag-
lega fyrir Hauka, 19:18, og þá voru
2% mín. eftir. Þegar hér var kóm
ið, lék Fram illa af sér, tók að
leika maður á mann, en sú leik-
aðferð misheppnaðist algerlega
enda var óðagotið mikið. Og upp
úr því skora Haukar 20. og síðasta
mark leiksins.
Hauka-liðið var gott í þessum
leik og hætti sér aldrei út á þann
hála ís, að reyna tvíræð markskot.
Línuspilið var afar gott og gekk
Fram illa að verjast því. Beztir
Hauka voru Ásgeir, Viðar og Matt
hías, — og ekki má gleyiha stór-
Ungllngamói
á Akureyri
HS-Akureyri, miðvikudag.
Um næstu helgi verður háð hér
á Akureyri skíðamót íslands fyrir
unglinga, sem er hið fyrsta í röð-
inni. Verða þátttakendur 49 að
tölu frá sjö héraðssamböndum, þar
af 21 frá Akureyri.
Keppt verður í svigi, stórsvigi,
göngu og .stökki. Keppni í alpa-
greinum fer fram við Strompinn
og sunnan hans í stökki við Ás-
garð, en gangan fer fram við skíða
hótelið. Hefst mótið kl. 2 á laugar
dag með keppni í stórsvigi stúlkna.
Síðan verður keppt í stórsvigi
drengja og þá ganga, en á sunnu-
dag verður keppt í svigi og stökki.
Verðlaunaafhending fer fram á
mótsstað að lokinni hverri grein.
Veitingasala verður við Stromp-
inn. Skíðaráð Akureyrar sér um
mótið, en mótsstjóri er Guðmund-
ur Tulinius.
Körfubolti í kvöld
f kvöld leika að Hálogalandi í
1. deild íslandsmótsins í körfu-
knattleik KR—Ármann og ÍR—
ÍKF.
VALUR VANN
KR 25-21
í gærkveldi léku Valur og KR
í 1. deild íslandsmótsins í hand-
knattleik. Leiknum Iauk 25-21 fyr-
ir Val. I hálfleik var staðan 17-13
fyrir Val. Sigur Vals var verð-
skuldaður.
góðum leik Stefáns á línunni. Þá
var Logi í markinu góður.
Fram-liðið lék vægast sagt illa,
og er kannski ekki óeðlilegt, þegar
tillit er tekið til þess, að langt er
síðan að landsliðsmenn þess hafa
sézt á félagsæfingu. Þannig vill
það oft verða, að það sj félagið
sem flesta menn á í landsliði, geld
Framhald á 14. síðu.