Tíminn - 31.03.1966, Page 2
TÍMINN
íþróttasjóður fjariægSst æ m®ira
að geta gegnt hlutverki sínu
Ríkisstjórnin lækkar framlög til hans, en verkefni hans og skuldafúlga vaxa jafnt og þétt
ssaáumzLi m,
*JJr,
Daníel Ágústínusson
AK-Reykjavík, miðvikudag.
Menntamálaráðherra svaraði í
dag í sameinuðu þingi eftirfar-
andi spurningum Daníels Ágústín-
ussonar:
1. Hvaða ráðstafanir hyggst rík
isstjómin gera til að greiða úr
fjárhagsvandræðum íþróttasjóðs?
2. Hvað líður störfum þeirrar
nef ndar, sem menntamálaráð-
herra skipaði í febrúar 1963 ,til
þess að endurskoða lagaákvæði um
íþróttasjóð?
Daníel Ágústínusson gerði
grein fyrir fyrirspurnum sínum og
minnti á, að íþróttalögin og
íþróttasjóður hefðu átt 25 ára af-
mæli á síðasta ári. Setning lag-
anna hefði markað tímamót í
íþróttamálum íslendinga, því að
með þeim hefði löggjafinn viður-
kennt stöðu íþróttanna í þjóðfé-
laginu og að veita bæri opinber-
um stuðning við mannvirki, sem
nauðsynleg eru til íþróttaiðkana.
Eftir gildistöku laganna hefði
verið veitt í þessu skyni ein heild-
arfjárveiting á fjárlögum, en
íþróttanefnd og íþróttafulltrúa síð
an falið að skipta. Með tæknilegri
aðstoð og f járhagslegum stuðn-
ingi hefði síðan verið byggð sam-
tals 167 íþróttamannvirki á land-
inu þennan aldafjórðung og væru
það 54 sundlaugar 68 íþróttavell-
ir og hlaupabrautir, 22 skíðamann
virki, 14 baðstofur og 9 íþrótta-
faús.
Mannvirki þessi hefðu kostað
alls 160,5 millj. kr. sagði Daníel,
Aðalfundur IðnaSarbankans
AðaLfundur Iðnaðarbands var
haldinn í samkomuhúsinu Lido
s.l. laugardag og hófst kl. 14.30.
Fundarstjóri var Gunnar Friðriks-
son formaður Félags ísl. iðnrek-
enda, en fundarritar Sigurjón
Sigurðsson, deildarstjóri.
Sveinn B. Valfells, formaður
banikaráðs, flutti skýrslu bankat
ráðs um starfsemi bankans sl.
ár. Kom fram í henni, að starf-
semi bankans er í örum vexti. í
nóv. sl. var opnað útibú á Akur-
eyri og hefur rekstur þess geng-
ið mjög vel. Þannig námu inn-
stæður þar um sl. mánaðarmót
rúml. 14 millj. kr.
Ennfremur gat formaður þess,
að bankinn hefði fyrir nokkru fest
kaup á húsnæði fyrir útibú frá
bankanum að Háaleitisbraut 58, í
Reykjavfk og væri leyfi fengið til
þess að hefja þar starfsemi, en
það yrði gert síðar á þessu ári.
Pétur Sæmundsson, bankastjóri,
lagði fram endurskoðaða reikn-
inga bankans fyrir 1965 og skýrði
þá. Aukning innstæðna í spari-
sjóði nam 95.4 millj. kr. á árinu
eða 35.98%. Hins vegar lækkuðu
hlaupareikningsinnstæður um 7,2
millj. kr. og var því heildarinn-
stæðuaukning 88,2 millj, kr. eða
um 27.4%. Útlánsaukning á sl. ári
var 58 millj. kr. eða 19,98%. Bund
in innstæða í Seðlabankanum var
í árslok 71 millj. kr. Innborgað
'hlutafé ásamt varasjóði nam 23,5
millj. kr.
Reikningur bankans voru því
næst samþykktir samhljóða.
Bragi Hannesson, bankastjóri,
skýrði frá starfsemi Iðnlánasjóðs
st sþ . ári. Veitt vorp lán á árinu
seni námu s’amtals 58^5 millj. kr.,
en útlán sjóðsins nema alis 139,6
millj. kr. Eigið fé sjóðsins óx um
24,4 millj. kr. á árinu og er þá
samtals orðnar 72 millj. kr.
Þá fór fram kjör bankaráðs fyr-
ir næsta starfsár og voru eftir-
taldir menn kosnir: Sveinn B .Val
fells, forstjóri, Sveinn Guðmunds-
son, forstjóri og Vigfús Sigurðs-
son, húsasm.m. Iðnaðarmálaráð-
herra skipaði í bankaráð þá Ein-
ar Gíslason, márarameistari og Guð
mund R. Oddsson, framkvstj. End
urskoðendur voru kosnir I>orvarð-
ur Alfonsson og Otto Schopka.
Aðalfundinn sóttu um 250 hlut-
hafar.
og framkvæmdir þessar og fyrir-
heit ríkisins um fjárhagslegan
stuðning hefðu leyst úr læðingi
mikið starf, og einstaklingar, fé-
lög og bæjar- og sveitarfélög lagt
af mörkum mikið fé til þeirra.
Væri vafasamt, að svo mikið hefði
verið lagt af mörkum, ef íþrótta-
lögin hefðu ekki komið til.
Úr íþróttasjóði hafa verið
greiddar í þessu skyni 23,6 millj.,
og er það samkv. úthlutunarregl-
um sjóðsins 40% til sundlauga,
baðstofa, íþróttahúsa og héraðs-
íþróttavalla, 30% til íþróttavalla
félaga og 20% til skíðamann-
virkja. Nokkur fjárhæð hefði á
hverju ári gengið til sérfræðiað-
stoðar og teikninga, sem íþrótta-
sjóður skal greiða að fullu samkv.
íþróttalögunum og mun það gert
til þess að tryggja nægt eftirlit
með vöndun mannvirkja, og
nokkru fé hefur verið varið til
stuðnings frjálsi íþróttastarf-
semi.
Þegar lokið var úthlutun 1965,
sagði Daníel, átti íþróttasjóð-
ur eftir að greiða 26,4 millj. af
skuldbindingum sínum til margra
mannvirkja. Fjárveiting Alþingis
er hins vegar ekki nema 3,4 millj.
nú, var 4 millj. en var lækkuð í
fyrra og hefur ekki verið hækkuð
aftur. Með sömu fjárveitingu væri
íþróttasjóður 10—11 ár að greiða
þær skuldir, sem nú hvíla á sjóðn-
Framhald a 14. siðu
FIMRK'UDAGUR 31. marz 1966
Árshækur hins
ísienzka bók-
menntafélags
Hið íslenzka bókmenntafélag
sendir frá sér þessa dagana árs-
bækur sínar fyrir árið 1965. Eru
það Skírnir, tímarit Hins fslenzka
bókmenntafélags, og bókin Ritun-
artími íslendingasagiy, rök ^g
rannsóknaraðferð eftir Einar Ól.
Sveinsson.
Er þetta 139. ár Skírnir, sem
nú er undir ritstjóm Halldórs
Halldórssonar, prófessors. Er efni
hans fjölbreytt, og af efni eftir
íslenzka höfunda má nefna: Hand
ritamálið á lokastigi, eftir ritstjór
ann, greinarnar Upphaf íslands-
byggðar og Fyrsta málfræðiritgerð
in og upphaf íslenzkrar sagnrit-
unar eftir Hermann Pálsson, lekt
or í Edinborg. Bjarni Guðnason,
prófessor skrifar þanka um sið-
fræði íslendingasagna, Ólafur Hall
dórsson, cand.mag. greinina Úr
bréfum Fjölnismanna, Finnbogi
Guðmundsson, landsbókavörður
um eina jarlsvísu og konungsbréf,
Sveinn Einarsson, leikhússtjóri
greinina Helgileikir og herranæt-
ur, Selma Jónsdóttir, listfræðing-
ur um gamla krossfestingarmynd
og Aðalgeir Kristjánsson, cand.
mag. um Gísla sögu og samtíð
höfundar. Er þetta Skírnishefti
219 bls.
Ritunartími fslendingasagna eft
ir Einar Ól. Sveinsson, prófessor
er íslenzk útgáfa á bók er höf-
undur gaf út um þetta efni í
Lundúnum 1958 og nefndist Dat-
Framhald á 14. síðu.
. . ..v., - . , Va ,, ,v, , —*,,„1
Myndin er frá aðalfundi Iðnaðar bankans.
(Tímamynd Bj. Bj.)
Hvammsf jörður
lagður
SÞ-Búðardal, miðvikudag.
Hvammsfjörður er nú lagð-
ur lengra en augað eygir og
hefur verið það á annan mán-
uð. Eru menn smeykir um að
ísinn skapi hér talsverðan
kulda, ef gólu leggur af firð-
inum. Það er annars mjög
sjaldgæft, að fjörðinn leggi í
svo langan tíma.
Færð er sæmileg um hérað-
ið og Brattabrekka hefur næst-
um alltaf verið opin. Hins veg-
ar hefur Svínadalur oft lokazt
í vetur. Hafa mjólkurflutning-
ar þá farið um Strandirnar, en
það ermiklu lengri leið.
Hættulegur ís á Poll-
Inum
HS-Akureyri, miðvikudag.
Laust fyrir hádegi í dag fóru,
fimm börn á aldrinum 4—5
ára út á ísinn hér á Pollin-
um, en ísinn er ákaflega þunn
ur og veikur. Fór eitt barnið
niður um ísinn með annan fót-
inn. k
Er þetta skeði, bar að manh,
sem kallaði á börnin og sagði
þeim að koma í land aftur og
komust þau það klakklaust.
Urðu þau hins vegar að skilja
eftir sleða og skíði úti á ísn-
um. Sótti lögreglan síðan skíð-
in og sleðann eftir hádegið, og
varð að nota til þess stiga.
Skildi eftir net
MS-Reyðarfirði, miðvikudag.
Hér er mikill snjór um
þessar mundir og víðast hvar
ófært. Snjóbflar fara milli Eg-
ilsstaða og Reyðarfjarðar.
Gunnar kom hér inn í gær
með 40 tonn af fiski, en hann
hafði hreppt vont veður og
ekki getað dregið í þrjá daga.
Varð hann þvi að skilja mikið
eftir af netum sínum í sjó, en
báturinn hefur stundað veiðar
við Ingólfshöfða.
Veiði skánar
BB-Grafarnesi, miðvikudag.
Veiði hefur verið heldur treg
upp á víðkastið en virðist nú
vera að skána. Hafa bátarnir
komið með 7—18 tonn undan-
farna daga.
Vegir eru sæmilegir á þess-
um slóðum, en lélegir milli
Stykkishólms og Grundarfjarð-
ar. Þá er slæmur vegurinn um
Búlandshöfða vegna íss.
Talsvert er unnið hér í höfn
inni og er verið að sprengja
upp botninn á milli bryggj
anna, en eins og kunnugt er,
var ný bryggja tekin í notk-
un hér fyrir skemmstu.
Vatnslítið í Vatnsdal
FS-Bárðardal, miðvikudag.
Mjög er að verða vatnslítið
hér um slóðir og hefur aldrei
verið jafn lítið vatn í lækjum
og nú. Er þetta mjög bagalegt,
því margir bæir hafa sínar
eigin rafstöðvar og er því raf-
magn víða af mjög skornum
skammti og er rafmagnslaust
á nokkrum stöðum.
Allt er hér ófært öðru en
stórum trukkum og jarðýtum
og hefur mjólk verið flutt á
slíkum farartækjum. Þó hefur
mjólk ekki verið sótt langt
inn í Bárðardalinn síðan um
áramót.
Goðafoss er nú hulinn ís-
hellu og hefur ekki sézt síð-
an í janúar og er það eins-
dæmi.
Rafmagnslítið vegna
vatnsskorts
GJ-Vatnsdal, miðvikudag.
Hér er hálf kuldalegt þessa
daga, en ágætis færð. Má heiita,
að autt sé í lágsveitum.
Vegna kulda er víða lítið um
vatn og á fjölda bæja verður
að sækja hvern vatnsdropa, oft
langar leiðir. Segja má, að
Framhald á 14. síðu.
1