Tíminn - 31.03.1966, Page 13
>, I'. 'l 'í -í'
FIMMTtfDAGUR 31. marz 1966
ÍÞRÓTTIR TÍMINN
13
Cassius Clay vann
Chuvalo á stigum
- hafði yfirburði í 13 lotum af 15.
Cassius Clay sigraði Kanada-
manninn George Chuvalo örugg-
lega í fyrrinótt, þegar þeir leiddu
saman hesta sína í Toronto í ein
Cassius Ciay.
vígi um heimsmeistaratitilinn.
Leikurinn var 15 lotur og að þeim
loknum voru báðir kapparnir
uppistandandi en mjög dregið af
Chuvalo, sem vann tæplega eina
einustu lotu .
Clay hafði mikla yfirburði og
vann örugglega 13 lotur, en dóm-
nefndin var ekki sammála um
tvær, 1. og 3. lotu, en í þeim stóð
Kanadamaðurinn sig bezt.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
tókst Clay aldrei að gefa Chuv-
alo rothögg. Kanadamaðurinn er
frægur fyrir seiglu sína í hringn-
um og þol en er ekki álitinn nema
meðalgóður hnefalei-kamaður. Er
skemmst að minnast þess, að
Patterson vann hann örugglega í
New York í fyrra. Óg vegna þess
hefur þetta einvígi ekki verið eins
mikið í sviðsljósinu og fyrri ein
vígi um heimsmeistaratitilinn.
Fyrir einvígið sagði Clay, að hann
mundi leggja hanzkana á hilluna,
tapaði hann fyrir Chuvalo. En
þrátt fyrir allt er leikur þeirra
Clay og Chuvalo í fyrrakvöld álit
inn góður einhver sá bezti £ hnefa
leikasögunni hin síðari ár. Er
tækni Cassiusar Clay sérstaklega
rómuð. Má geta þess, að þetta er
23. sigurleikur Cassiusar Clay, eft
ir að hann gerðist atvinnumaður.
Áður hefur hann sigrað Sonny
Liston og Floyd Patterson í ein
vígi um heimsmeistaratitilinn.
Strax eftir að einvíginu í fyrri
nótt var lokið, ti’lkynnti Clay, að
hann myndi * verja titilinn innan
fárra mánaða, og næsta fórnar-
lamb sitt yrði Bretinn Henry
Cooper. Enn er ekki ákveðinn
staður eða stund fyrir það ein-
vígi.
Manch. Utd. sló Preston ót
London, miðvikudag.
Manchester Utd. sigraði Prest-
on í gærkvöldi í sjöttu umferð
ensku bikarkeppninnar 3:1 og er
því komið í undanúrslit í keppn-
inni - í fimmta sinn á fimm árum.
Liðið leikur annað hvort við Ever
ton eða Manch. City í undanúr-
slitunum, og verður sá leikur háð
ur á Burden Park í Bolton, borg
skammt frá Manchester. Þá fór
fram landsleikur í gær í Cardiff
milli Wales og Norður-frlands,
og áigruðu írarnir með 44:1. Sheff
ield W. — sem einnig er komið í
undanúrslit í bikarnum — vann
Stoke í 1. deild með 4:1. f skozku
keppninni sigraði Dundee Utd.
St. Johnstone með 2:1 á útivelli.
Sundmót ÍR
háð í kvöld
í kvöld, fimmtudagskvöld held-
ur ÍR sundmót í Sundhöll Reykja-
víkur og hefst það klukkan 20.30.
Þáttaka í mótinu er mjög góð, en
skráðir þáttakendur eru 110 tals-
ins. Er þetta því fjölmennasta (
sundmótið hér, ef undanskilin eru
skólamótin.
Keppnisgreinar verða þesar:
Konur: 100 m baksund, 100 m
flugsund, 100 m bringusund og
4x50 m fjórsund.
Karlagreinar: 200 m skriðsund,
100 m bringusund, Í0 m fktgsund
Framhald á bls. 15.
Aðalfundur Fram
haldinn 13. apríl
Aðalfundur Knattspymufélags-
ins Fram verður haldinn mið-
vikudaginn 13. apríl í félagsheim
ilinu og hefst stundvíslega klukk
an 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Sigrún Guðmundsdóttir, Val, í leik gegn Dönum. Á morgun leikur hún
með unglingalandsliðinu gegn dönsku stúlkunum.
Bæði unglingalandsliðin ut-
an með sömu flugvél í dag
— taka þátt í NM í Helsinki og Gautaborg um helgina.
Alf—Reykjavík.
Bæði unglingalandsliðin í hand
knattleik, þ.e. stúlkna og pilta,
halda utan í dag til þáttöku í
Norðurlandamótum, sem háð
verða um helgina i Svíþjóð og
Finnlandi. Fara liðin með sömu
flugvélinni, sem verður frá Loft
leiðum, og verður hún því með
dýrmætan „handknattleiksfarm”
innanborðs.
Áður hefur verið skýrt frá vali
beggja liða, en þetta er í fyrsta
skipti, sem ísland teflir fram ung
lingalandsliði kvenna. Norður-
landamót stúlknanna verður háð
í Svíþjóð í nágrenni Gautaborgar
og leika þær þrjá leiki á þremur
Eslandsmótið í bridge
verður háð um páskana
íslandsmótið í bridge árið 1966
verður háð í Reykjavík um pásk-
ana eins og undanfarin ár. fslands
ARSHATIÐ
VÍKINGS
Knattspyrnufélagið Víkingur
heldur árshátíð sína næstkomandi
laugardag 2. apríl í Sigtúni. Fjöl
breytt skemmtiatriði verða. Von
azt er eftir, að eldri sem yngri
félagsmenn mæti þar með gesti
sína. Aðgöngumiða er að fá hjá
Óla Birni Kærnested, í Soebechs-
verzlun, Háaleitisbraut 58-60,
sjmi 38844, og hjá Sigurði Gísla-
syni hjá A. Jóhannsson & Smith,
Brautarholti 4, sími 24244.
mótið hefst á tvímenningskeppni
n.k. laugardag kl. 13.30 í Lídó.
Þar munu spila 56 pör um titilinn
íslandsmeistarar í tvímennings-
keppni 1966. Meðal keppenda eru
meistarar síðastliðins árs þeir
Hilmar Guðmundsson og Jakob
Bjarnason, auk margra annarra á
gætra spilara. Tvímenningskeppn-
inni verður haldið áfram á sunnu
dagseftirmiðdag og lýkur á sunnu
dagskvöld.
Sveitakeppnin hefst á mánudags
kvöldið 4. apríl kl. 20.00 að Hót-
el Sögu. Þar munu keppa 6 sveit
ir í meistaraflokki og 16 sveitir i
1. flokki, en 1. flokkur verður
spilaður í tveimur riðlum. Sveita
keppninni verður síðan haldið á-
fram á þriðjudagskvöld að Hótel
Sögu á miðvikudagskvöld verður
spilað í Sjómannaskólanum og
hefst þá keppnin í meistaraflokki
kl. 19.00 og í 1. flokki kl. 20.00
Á fimmtudag verður spilað að Hót
el Sögu kl. 14.00 og kl. 20.00 og
lýkur þá mótinu.
í meistaraflokki eru meðal ann
arra sveit Gunnars Guðmundsson-
ar, sem varð íslandsmeistari árið
sem leið. Auk þeirrar sveitar eru
4 sveitir frá Reykjavík og sveit
frá Akranesi, þar sem sveit Akur
eyringa sá sér ekki fært að koma
að þessu sinni. 1 1. flokki verða
sveitir frá Hafnarfirði, Keflavík,
Kópavogi og Selfossi, auk sveit
anna frá Reykjavík.
Sýningartaflan verður í notkun
á mótinu. Verða sýndir á henni
helztu leikir mótsins. Veitir það
áhorfendum miklu betra tækifæri
til að fylgjast með leikjunum.
Nú eru ekki nema tveir mánuð
Lr þangað til Norræna bridgemótið
Framhald á bls. 15.
dögurn. Sá fyrsti verður annað
kvöld, föstudagskvöld, og mæta
ísl. stúlkurnar þá Dönum, sem fyr
irfram er reiknað með, að eigi
sterkasta liðinu á að skipa. Á
laugardaginn leika ísl. stúlkumar
svo gegn Svíþjóð, — og á sunnu
daginn mæta þær Noregi í sið-
asta leik. Finnar eru ekki með í
mótinu.
Á þessu stigi málsins er ekki
gott að segja um styrkleika ísl.
liðsins miðað við hinar þjóðirnar
þar sem þetta er í fyrsta skipti,
sem ísl. unglingalandslið kvenna
keppir, en vonandi standa stúlk-
urnar sig vel. Alls fara 15 stúlk-
ur utan, auk tveggja fararstjóra,
þeirra Hauks Bjamasonar og Við
ars Símonarsonar, sem þjálfað
hefur stúlkurnar.
Piltamir keppa í Helsinki og
er þetta í fyrsta skipti, sem Norð
urlandamót í handknattleik fer
fram í Finnlandi. Fyrsti leikur
ísl. liðsins verður annað kvöld og
mætir það þá Dönum. Á laugar
daginn leikur liðig tvo leiki. í
fyrri leiknum mætir það Norð-
mönraum en j þeim síðari Svíum.
Rvíkurúrval
vann 75:51
í fyrrakvöld léku að Háloga-
landi Rvíkurúrval i körfuknattleik
og úrvalslið varnarliðsmanna af
Keflavíkurflugvelli. Leikurinn var
liður i hinni árlegu keppni lið-
anna. Svo fóru leikar, að Rvíkur-
úrvalið vann með 75:51 eftir að
hafa haft yfir í hálfleik 36:21 —
Beztu menn liðsins voru Birgir B.
Agnar og Einar M.
Og á sunnudaginn mæta ísl. pilt
arnir Finnum. Til gamaras má
geta þess, að 6 piltar I liðiniu nú
léku með unglingalandsliðinu í
fyrra. Alls fara 14 piltar utan og
2 fararstjórar, þeir Rúraar Bjarna
son og Hjörleifur Þórðarson.
Íþróttasíða Tímans óskar báð-
um flokunum góðrar ferðar og
góðs gengis í leikjunum.
Rangers í
úrslitum
gegn Celtic
f fyrrakvöld léku Glas-
gow Rangers og Aberdeen
í annað skipti í undanúrslit
um í skozku bikarkeppninni
en fyrri leiknum lauk 0:0 og
urðu liðin því að leika að
nýju. í leiknum í fyrra-
kvöld sigraði Rangers með
2:1 og er með því komið í
úrslit, þar sem liðið mætir
nágrannaliði sínu, Celtic.
í fyrrakvöld mættust Ev-
erton og Manchester City i
endurteknum leik i ensku
bikarkeppninni. Og aftur
varð jafntefli 0:0 eftir fram
lengingu. Verða liðin nú að
leika í þriðja sinn og fer
leikurinn þá fram á hlutlaus
um velli.
f fyrrakvöld sigraði Celt-
ic Kilmarnock í 1. deild á
Skotlandi með 2:0, og sama
dag sigraði Blackpool Leeds
á Englandi með 1:0. f 2.
deild gerði Leyton O. og
Norwich jafntefli 0:0.