Tíminn - 02.04.1966, Blaðsíða 16

Tíminn - 02.04.1966, Blaðsíða 16
77. tbl. — Laugardagur 2. apríl 1966 — 50. árg. MIKIÐ UM APRlLGABB isinn stytzt 15 mílur frá landi KT, Reykjavík, föstudag. Landhelgi'sgæzlan efndi í dag til ískönnunarflugs og kom í Ijós, að hafísinn hefur enn færzt nær landinu við norð- urströndina. Er ísröndin kom in hálfhring um Gríms- ey í nokkurra mílna fjarlægð frá eyjunni. Næstur er ísinn landinu við Rauðanúp á Mel- rakkasléttu, eða í 15 mílna fjarlægð. Blaðið hafði í dag samband við Höskuld Skarphéðinsson, en hann var sikipherra í þessu ískönnunarflugi. Sagði hann, að flogið hefði verið norður að Langanesi og þaðan út að ís- röndinni. Hefði henni svo verið fylgt vestur fyrir land. Komið hefði í ljós, að ísinn hef ur færzt nær landinu og var hann næst landi út af Rauða núp á Sléttu, eða í 15 mílna fjarlægð. Þá væri ísinn bominn í hálfhring um Grímsey, í nofckurri fjarlægð að visu. Vestur frá Grímsey lægi ísinn riotokuð fjær landi í sveig og væri um það bil í 32 mílna fjar lægð frá Kögri. Þegar svo vestarlega kæmi, væri ísinn miklu þéttari og mætti segja, að það færi hinn raunverulegi ís, sem mældur hefur verið undanfarið. GÞE—Reykjavík, föstudag. Leigubílstjórar fóru í dag hverja fýluferðina á fætur ann- arri, lögreglan var margsinnis göbbuð út, kennarar háðu eltinga leiki við nemendur sína, sem voru á sífeldum þeytingi milli bekkja. Krakkar kveiktu í skúr og slökkvi liðið stormaði á vettvang, kaup menn afgreiddu sendingar, sem enginn kannaðist við að hafa pant að, og allt var þetta gert í tilefni dagsins. Morgunblaðsmenn birtu nú tvær platfréttir í stað einnar, oig mun sú, sem á baiksíðunni var, hafa átt að draga úr athygli manna á forsíðufréttinni uim miðaldakortið. Annars er allur almenningur orð inn svo ringlaður á allri bessari kortaþvælu, að fréttin fór fyrir ofan garð og neðan hjá flestum. Önnur blöð birtu ekki aprilfrétt ir að sinni. Laust upp úr hádegi var slökkviliðið kvatt að vinnu skúr sfcamimt frá Kassaigerðinni, þar kxgaði glatt, en greinilegt var að fcrakkar höfðu kveikt í hon um. Slökkviliðið var annars efcki narrað út í dag, en slíkt hefur bft fcomið fyrir 1. apríl. Hins vegar var lögreglan nokkrum sinnum fcvödd út að tilefnislausu eins og yfirleitt á þessum degi. Þá voru mikil brögð að því að krakkar göbbuðu út leigu- og sendiferða- bíla, og kvað jafnvel svo rammt Framhald á 14. síðu. AKRANES Framsóknarfélag Akraness held ur skemmtisamkomu í félagsheím ili sínu Sunnubraut 21, sunnudags kvöldið 3. apríl kl. 8,30 síðdegis. Til skemmtunar Framsóknarvist og kvikmyndasýning, öllum heim ill aðgangur meðan húsrúm leyfir. Njarðvíkur Aðalfundur Framsóknarfélags Njarðvíkur verður haldinn í Stapa (suður dyr) í dag laugardag kl. 16.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðal fundarstörf. 2. Ræddur kosninga undirbúningur. 3. Önnur mál. Fé- lagar fjölmennið. Stjómin. AFLAHÆSTUBATARNIRA VER■ TÍÐINNIMEÐ UM 800 LESTIR SKARÐSVÍK 0G HELGA GUÐMUNDSDÓTTIR HAFA FENGIÐ MESTAN AFLA RIKIÐ KAUPIR TOG ARANN GYLFAFRÁ PATREKSFIRÐI SJ—Patreksfirði, föstudag. í gær var togarinn Gylfi, sem er í eigu hlutafélagsins Varðar, seldur hér á uppboði. Það var Ríkisábyrgðasjóður, sem keypti togarann fyrir hönd ríkissjóðs. Forgangskröfur námu 1.2 milljón um króna og var rjkisábyrgðasjóð ur aðalveðhafi. Ríkisábyrgðasjóð ur mun bjóða togarann til sölu, og þar sem hann er talinn í góðu ásigkomulagi, má búast við viðun andi endursölu. Gylfi var smíðaður í Englandi 1952, dieseltogari af sömu gerð og Hallveig Fróðadóttir. Hann hefur ekki verið gerður út á veiðar s.l. ár. SJ-Reykjavík, föstudag. Samkvæmt þeim upplýsingum, er Tíminn aflaði í dag, þá hefur vertíðin gengið sæmilega vel hjá bátum, er gera út frá Rifi og Pat- reksfirði. Bátar á Faxaflóasvæð- inu hafa cinkum sótt Breiðafjarð- armiðin, sem hafa verið óvenju gjöful á þessari vertíð, en aftur á móti hafa miðin á Faxaflóa og við Vestmannaeyjar brugðizt fram til þessa. Á Patreksfirði hefur tíð verið rysjótt á vertíðinni og erfitt um sjósókn. Þetta er ein erfiðasta ver- tíð í mörg ár, en aflamagn bát- anna er talsvert þrátt fyrir ógæft ir. Aflahæstu bátarnir eru: Dofri 626,6 lestir, Sæborg 445 lestir, Þrymur (nýr bátur) 257.2 lestir, Jón Þórðarson 733,9 lestir, Helga Guðmundsdóttir 775—80 lestir, Svanur (30 tonna bátur) 82 lestir, Sæborg 2. 53,2 lestir. Patreksfjarðarbátar afla nú mun minna en í fyrra, þegar heildar- afli hæsta báts var um 1400 tonn. Jón Þórðarson hefur fengið ágætis afla tvo síðustu dagana, um 40 tonn í hvorri ferð. Bátarn- ir sækja misjafnlega langt suður á Breiðafjörð. Allur flotinn hefur verið á þessu svæði — frá Bjarg- töngum og suður undir Jökul. Þeg ar ásóknin var mest, var talið að rúmlega þúsund trossur hefðu leg ið í sjó í einu, og ef reiknað er út samanlögð lengd trossanna er hún 530—40 mílur! Togaraflotinn var á þessum tíma að veiðum við mörkin og togaði óslitið að heita má alla leið norð ur í Djúp. Menn ræða það sán á milli að slík áníðsla eins og hefur verið á Breiðafjarðarmiðum geti ekki gengið til lengdar. Hjá bátum, sem leggja upp á Rifi, hefur aflinn verið nokkuð góður, en heldur hefur dregið úr veiðinni að undanförnu. Á land eru komnar 3520 lestir í 368 sjó- ferðum. Fiskurinn er nú genginn á grynnri mið og hafa minni bát- arnir fengið betri afla að undan- förnu. Skarðsvíkin er aflahæst með 787 lestir í 44 veiðiferðum og er með langmestan afla þeirra báta, er leggja upp á Rifi. Skarðsvík, sem er 150 lestir rær ekki nema út þennan mánuð, því að senda á bát inn til Noregs, þar sem hann verð ur lengdur í 200 lesta stærð. Skarðsvík fékk á einni viku 231 lest, meðan aflahrotan stóð sem hæst. Hér er geysilega mikil vinna í landi og hefur orðið að flytja hluta af aflanum til Stykkishólms. Á Rifi eru tvær verkunarstöðv- ar og á Hellissandi aðrar tvær. Sigurður Magnússon, sem hafði út- gerðina á Víði frá Eskifirði með höndum, ætlar að reisa hér mikla verkunarstöð. Meginhluti af verkuninni er Framhald á 14. sfðu. Unglingar í kröfu- "öngu heimtuðu LIDO aftur GB—Reykjavík, föstudag. Sjðdegis í dag stofnuðu ungling ar til kröfugöngu í borginni, fóru fylfctu liði um miðbæinn 30—40 talsins, klæddir sumir eins og trúðar, báru kröfuspjöld áletruð og heimtuðu Lídó aftur. Tilefnið hefur að sjálfisögðu verið það, sem ölium er bunnugt að hætt hefur verið við að hafa veitingastaðinn Lídó opinn áfeng islausan skemmtistað fyrir ung- linga. Var þessi staður oðrinn mjög vinsæll meðal unglinga, sem fjölmenntu þar á dansskemmtun- um. En forráðamenn veitingastað arins töldu sér ekki fært að reka staðinn áfram með þessu sniði, og er hann því ekki lengur slíkur griðastaður, sem hann áður var. Síðasti unglingadansleikurinn í Lídó verður annað kvöld, laugar- dagskvöld. Hauksstaðir á Jökuldal brenna HA—Egilsstöðum, föstudag. Snemma [ morgun kom up<p eldur í ibúðarhúsinu ag Hauks stöðum í Jökuldal. Magnaðist eldurinn á mjög skömmum trma og hafði heimilisfólkið nauman tíma til að bjarga sjálfu sér, en komst þó allt út en fáklætt. Brann á skömmum tíma allt, sem brunnið gat í í- búðarhúsinu, svo og hlaða og fjós ,sem voru byggð vi® hús- ið. Brunnu nokkrar skepnur inni í fjósinu. Það var , á sjöunda tíman- um í morgun, að heimilisfólkið á Hauksstöðum varð vart við, að eldur hafði kviknað í hús inu. Húsið er tvílyft og var fólkið j svefnherbergjum á efri hæðinni. Var farið að loga við stigann, þar sem geng ið er niður. Ætlaði bóndinn, Óli Sigurðsson, að reyna að bjarga einhverju, en eldurinn var þegar orðinn svo magnað- ur, að hann varð að snúa sér að því að bjarga heimilisfólk- inu út. Komst fólkið út um glugga út á skúrbyggingu, sem var áföst húsinu og forðaði sér þaðan í fjárhús, sem er þarna nærri. Hafði fæstum unnizt ráðrúm til að klæða sig að öðru leyti en að smeygja sér í buxur eða þess háttar. Á heimilinu bjuggu átta manneskjur. Voru það hjónin Óli Sigurðsson og Guðný Guð mundsdóttir og fimm börn þeirra á aldrinum 5 mánaða til 8 ára. Þá bjó einnig á bænum faðir Guðnýjar, Guðmundur Guðmundsson, 73 ára að aldri. og blindur. Síðast komst út húsmóðirin, en hún hafði farið í síma og reynt að koma boðum áleiðis um, að eldur hefði komið upp. Þegar hún ætlaði að komast út, var leiðin út á skúrþakið orðin lokuð af eldi, svo að hún varð að fleygja sér út um glugga niður á steinstétt fyrir utan og var það um þriggja Framhalr) 3 14 dðu

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.