Vísir - 16.09.1974, Blaðsíða 2

Vísir - 16.09.1974, Blaðsíða 2
2 Vísir. Mánudagur 16. september 1974. risBsm: Hvaö ferðu oft til tannlæknis? Hrönn Guðmundsdóttir, nem- andi,— Ja, einu sinni eða tvisvar á ári. Það er bara til að athuga tennurnar og halda þeim við. Yfirleitt er fyllt i eina tönn. Guðmunda Valdim arsdóttir, nemandi.— Tvisvar á ári. Manni er sagt, að það sé bezt. Það er voðalega misjafnt, hvað gera þarf mikið við tennurnar. Siðast þegar ég for var gert við tvær. ”£g hef lofað syni minum að endurnýja skirteinið á 30 ára flugafmælinu minu”. — Valgerður starfar nú i aðalbanka Landsbankans. Hlif Guðmundsdóttir, nemandi: — Ég fer tvisvar á ári, svona um hálf þrjú leytið vanalega. Ekki á neinum sérstökum árstima heldur bara eftir þvi hvernig liggur á manni. Já, ég hef tvisvar fengið tannpinu, einu sinni mikla. Aðaisteinn H a llgrím sson, nemandi: — Ég fer fremur sjaldan, svona einu sinni á ári til endurskoðunar. Nei, það hefur ekki þurft að gera við mikið, enda borða ég litið af gotterii. Jú, ég bursta tennurnar alltaf á morgn- ana á kvöldin. Salvör Olgeirsdóttir, nemandi? — Ég fer einu sinni á ári. Siðast þegar ég fór þurftu tvær tennur smá lagfæringa við. Það var ekkert þægilegt aðláta spóla i þær en þó ekki svo sárt. Ég hef nokkr- um sinnum fengið tannpinu. Þá verður bara að setja spritt á tönn- ina, þangað til maður kemst til tannlæknis. Jú, ég bursta tennurnar á morgnana og á kvöldin. Björn Stefánsson, nemandi: — Maður er alltaf hjá þessum tannlæknum. Ég á t.d. að fara núna i dag. Maður borðar svo mikið nammi og þá fara tennurnar svona. Það er allt i lagi, kannski verra, ef maður fær tannpinu, Jú.ég bursta tennurnar á hverju kvöldi, en ég nenni þvi ekki á morgnana. „Þeir vildu alls ekki kvenfólk" „kvenfólk ó að vera heima og passa börn og bú", var fyrstu íslenzku flugkonunni Valgerði Þorsteinsd. m.a. svarað, þegar hún hugðist gera flugið að atvinnu. ,,Ég fór i þetta, vegna þess að ég hafði flugiö i huga sem atvinnu”. — Valgerður Þorsteinsdóttir, þegar hún tók sólóprófið 17 ára á Tiger Mouth árið 1946. „Ég fór upphaflega i flugið vegna þess að ég hafði það i huga sem atvinnu. Ég var mjög hrifin af islenzkum flugmönnum, þótti þeir dugmiklir og kjark- góðir og hafði ekki á móti þvi að feta i fót- spor þeirra.” Þetta sagði fyrsta konan sem tók flugpróf á Islandi, Valgerður Þorsteinsdóttir, þegar við röbbuðum við hana, en Valgerður tók sóló-próf árið 1946, þá 17 ára gömul. En þóað Valgerður hafi nú lagt flugið til hliöar, þá er ekki þar með sagt aðhún hafi gleymt þvi. Hún hef- ur meira að segja gefið syni sin- um það loforð, að hún endurnýi sklrteinið sitt, þegar hún á 30 ára flugafmæli. Og það er farið að styttast i það. „Sigurður Jónsson, sem var prófdómari þá, sagði strax að kvenfólk fengi aldrei vinnu við flugið, og það hefur staðizt hjá honum hingað til”, segir Valgerður. ,,En ég sótti um að komast að i tveggja ára flug- nám i Oklahoma, þar sem flestir Islendingar lærðu þá. Ég fékk pláss, og sneri mér þvi að þvi að tala um fasta atvinnu hér heima. En ég fékk þau svör að kvenfólk ætti að vera heima og passa börn og bú. Mér var gerð grein fyrir þvi að það kæmi ekki til mála að ég fengi nokkurn tima vinnu við að fljúga. Þeir vildu alls ekki kvenfólk.” ,,Ég hætti þvi við námið,og það varð ekki úr að ég tæki fleiri próf en sólóprófið. En ef ég væri ung I dag, þá myndi ég sjálfsagt fara i meira nám og reyna að fá atvinnu við að fljúga.” — Hvernig leizt fólki á að kvenmaður tæki flugpróf i þá daga? „Sumum fannst þetta kjark- mikið, en ég leit aldrei á þetta sem miklu meiri hlut en að keyra bil. Fólki þótti þetta lika óvenjulegt.” „Annars gæti ég trúað þvi að karlmenn hefðu ekki mikla trú á kvenfólkinu i þessu. En það hefur bara aldrei fengið að reyna neitt á þetta hér á landi.” „Ég hef alltaf haft mjög mik- inn áhuga fyrir flugi og hef það enn. Það er eitt af þvi dásam- legasta sem ég veit að fljúga. Annars hef ég ekki séð neinn tilgang i þvi að halda við skir- teininu minu. Ég hef ekki flug- vél sjálf, og gæti þvi litið flog- ið.” „En ég er búin að lofa 16 ára syni minum að endurnýja skir- teinið á 30 ára flugafmælinu. Hann er sjálfur að læra, en hefur ekki tekið sóló-prófið, þvi hann er ekki orðinn 17 ára. En hann ætlar að reyna að fá að taka það á afmælisdaginn sinn.” „Þegar ég finn hvað hann er áhugasamur, þá lifna ég við. Kannski hann vinni i happdrætti og eignist flugvél, þá fer ég að fljúga með. Annars verð ég bara aö sjá mina drauma rætast i honum”. Valgerður segir okkur að enn i dag muni fólk eftir þvi þegar hún fóraðlæra að fljúga, og hún segist meira að segja oft hafa notið þess, og jafnvel fengið fyrirgreiðslu hjá ýmsum. Einn af kennurum hennar i fluginu var Jóhannes Snorra- son. Meðan hann var enn að læra á striðsárunum, þá hafði hann kvenmann fyrir kennara. Það var að visu erlendis, en þá fengu konur að starfa við þetta. Rétt á eftir Valgerði, eða sumarið 1948 tók svo Erna Hjaltalin sólópróf. Hún komst langt I náminu, en aldrei hefur hún fengið atvinnu heldur. En þess væri óskandi að konur fengju tækifæri til þess að sýna, að þær gefa kárlmönnunum ekkerteftir i fluginu. Fleiri hafa svo tekið próf, en það má geta þess að þær flugkonur sem við birtum mynd af um daginn, eru þær sem hafa réttindi til þess að fljúga nú. —EA

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.