Vísir - 16.09.1974, Síða 3
Vísir. Mánudagur 16. september 1974.
3
Tveir fyrir bíl
í einu
— og annar til
Berjast gegn dauðarefsingu
— Islandsdeild Amnesty International stofnuð hér
„ÍSAFJÖRÐUR ER DÁ
SAMLEGUR STAÐUR"
— segir Kristín Ingimundardóttir kona Matthíasar
Bjarnasonar sjóvarútvegsróðherra
,,Ég get nú eiginlega
varla sagt, að ég eigi
heima í Kópavogi, þó að
við höf um haft hér vetur-
setu undanfarin ár", seg-
ir Kristín Ingimundar-
dóttir, kona Matthíasar
Bjarnasonar sjávarút-
vegsráðherra, sem er
nýkomin heim frá því að
tína ber á ísafirði (10
potta tíndi hún á tveim
tímum). Vitanlega eru
þetta allt aðalbláber og
þau fara að mestu niður í
frystikistu fyrir gesti og
aðra til að borða í ábæti.
Þau Matthias og Kristin búa
að Skólagerði 63, en auk þess
eiga þau heimili á ísafirði, þar
sem þau hafa rekið bókabúð um
langt skeið. ,,Ég býst við.að það
verði mikil viðbrigði að fara að
stunda heimilisstörf eingöngu,
eftir að hafa afgreitt bækur og
annað tilheyrandi i svona
langan tima”, segir Kristin, en
þau hjónin hafa nú leigt bóka-
búðina út.
, ,Ég skil ekkert i fólki að vilja
endilega flytja hingað suður.
Mér finnst Isafjörður dásam-
legur staður og mikill er munur-
inn á veðrinu þar og hér”, segir
Kristin. Þau hjónin hafa mjög
mikið yndi af gönguferðum og
Kristin segir, að mikil veður-
sæld sé fyrir vestan, en hér sé
aldrei hægt að vita hvort eigi að
vera i vindþéttri kápu, með
regnhlif eða léttklæddur. Það
aftrar henni samt ekki frá þvi
að fara i gönguferðir og henni
finnst ekkert átak að ganga alla
leið niður i miðbæ, sem tekur
um 1 og 1/2 klst.
Þau hjónin eiga sumarbústað
i Trostansfirði, sem er fjöður
inn úr Arnarfirði. Trén þar eru
sum 8-10 m há, og þar eiu
Kristin og Matthias eins mikið
og þau geta, þó að litill hafi
timinn verið i sumar.
Börn þeirra eru 2, Auður, sem
starfar hjá sálfræðingi og
Hrinrik, sem starfar hjá
Samábyrgð og eitt barnabarn
eiga þau.
Sem kunnugt er þarf ekki að
fara langt til að geta rennt sér á
skiðum á tsafirði. ,,Það er nú
orðið nokkuð langt siðan ég hef
iðkað þá iþrótt. Hver veit nema
maður bregði sér i Bláfjöllin i
vetur,” segir Kristin. ,,Ég held,
að ég geri nú allt annað frekar,
jafnvel að vaska upp” bætir þá
Matthias inn i.
-EVI.
Svona var hún stór blcikjan,
sem hann Matthias litli Hinriks
son veiddi með afa sinum,
Matthiasi Bjarnasyni sjávarút-
vegsráðherra, og ömmu sinni,
Kristinu Ingimundardóttur.
— aðfaranótt
sunnudags
Tvö umferðarslys urðu á svip-
uðum tima aðfaranótt sunnudags,
eða á milli klukkan tvö og þrjú. Á
þessum tíma var skyggni nokkuð
slæmt, rigning og náttmyrkur, og
akstursskilyrði ekki góð.
Fyrra slysið varð rétt eftir
klukkan tvö á Suðurlandsbraut-
inni, rétt við Grensásveg. Þar
varð maður fyrir bifreið, sem var
ekið austur Suðurlandsbraut. Sá
slasaði var fluttur á slysadeild, en
meiðsli hans reyndust ekki alvar-
leg.
Um klukkan 2.25 var tilkynnt
um annað slys á mótum Snorra-
brautar og Laugavegs. Þar urðu
tveir menn fyrir bfl. þeir voru að
ganga yfir gangbraut á Snorra-
brautinni, og urðu fyrir bifreið
sem ekið var suður Snorrabraut-
ina. Þeir voru fluttir á slysadeild,
en meiðsli þeirra reyndust heldur
ekki alvarleg.
-EA
Asamt því fyrstnefnda, vinn-
ur Amnesty International að
þvl, að „fangar vegna sann-
færingar verði leystir úr haldi,
og veitir þeim eða fjölskyldum
þeirra aðstoð svo sem þörf kref-
ur.”
islandsdeild samtakanna Amnesty International var stofnuð I Norræna húsinu I gær, og þá tók Bragi
þessa mynd.
Komu að dyrum
sínum upp-
sprengdum
Þeint hefur sjálfsagt orðið ilia
við ibúunum, sem búa i kjallara
hússins við Bergþórugötu númer
53, þegar þeir komu að ibúð sinni
opinni á laugardagskvöld.
Það hefði kannski ekki þurft að
vera svo slæmt, þótt fbúðin væri
opin, en útidyrahurðin hafði verið
sprengd upp af einhverjum
óboðnum gesti.
Við nánari athugun kom i ljós,
að sá óboðni hafði ekki látið sér
nægja að brjótast inn, heldur
hafði hann haft með sér úr ibúð-
inni tösku og útvarpstæki.
Enginn i húsinu varð var við
innbrotið fyrr en ibúar kjallarans
komu heim. Ekki hefur náðst til
þess sem réðst inn.
Að sögn lögreglunnar virðist
vera nokkuð um það að farið sé
inn i ibúðir fólks, og er þvi full
ástæða til að hvetja það til að
skilja allt eftir lokað og læst.
-EA
Samtökin voru upphaflega
stofnuð árið 1961, og saman-
standa af landsdeildum i 31
landi og rúmlega 1100 starfs-
hópum. Senda samtökin m.a.
sendinefndir til landa, sem þau
fjalla um hverju sinni, og sendir
fulltrúa sina til að ræöa við
rikisstjórnir.
Samtökin senda einnig full-
trúa sina til að fylgjast með
réttarhöldum, þegar slikt þykir
æskilegt og mögulegt. Samtökin
koma á sambandi við fanga —
vegna sannfæringar og fjöl-
skyldur þeirra, til að veita þeim
aðstoð.
Samtökin lúta stjórn alþjóð-
legs ráðs, sem kemur saman ár-
lega.
—EA
19 teknir
grunaðir um ölvun
við akstur
Alltaf er allnokkuð um það, að
menn scu teknir grunaðir um ölv-
un við akstur, og virðast þeir
seint ætla aö láta sér segjast.
I Reykjavik voru til dæmis
teknir 19 um helgina, sem grun-
aðir voru um að aka bil sinum
undir áhrifum áfengis. Á lög-
reglustöðinni við Hlemm fengum
við upplýsingar um, að 17 hefðu
verið færðir til rannsóknar, og á
miðbæjarstöðinni var okkur sagt,
að tveir hefðu verið teknir.
Þetta var á timabilinu frá að-
faranótt föstudags til sunnudags-
ins.
-EA
indayfirlýsingarinnar”.
Þannig segir meðal annars i
tilkynningu, sem okkur barst i
tilefni af þvi, að i gær var stofn-
uð Islandsdeild i samtökunum
Amnesty International.. Var
deild þessi stofnuð i Norræna
húsinu. Amnesty International
hefur það að stefnumiði, að
hvarvetna sé framfylgt Mann-
réttindayfirlýsingu Sameinuðu
þjóðanna.
„...berst gegn dauðarefsingu,
og hvers konar pyntingum eða
slæmri meðferð á hverjum sem
fangelsaður er, hafður i haldi
eða hindraður á annan hátt I
trássi við fyrirmæli Mannrétt-
Pjbbutn pbur cinsb’ngu
úrbalðbb’rur til gjafa
TÉKK - KRISTALL \
Skólavörðustig 16 simi 131II