Vísir - 16.09.1974, Page 5

Vísir - 16.09.1974, Page 5
m i Vlsir. Mánudagur 16. september 1974. UN ÚTLÖND IMORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN Umsjón Guðmundur Pétursson Japanirnir slepptu tveim gíslanna enginn vill fljúga þeim á brott Riffilhlaupi sást bregða fyrir í glugga í franska sendiráðinu í Haag í morgun samtímis því, sem tveir gíslar japönsku hryðjuverka- mannanna gengu út úr Annar gislanna sést hér borinn á sjúkrabörum út úr bandariska sendiráðinu i morgun og inn I sjúkrahil. Þetta voru tvær ung- ar stúlkur, sem sjúkrabillinn ílutti á öruggan stað, sem lög- reglan hélt leyndum „öryggis þeirra vegna”. húsinu, yfir götuna og inn í bandaríska sendiráðið, þar sem lögreglan hefur haft bækistöðvar yfir helgina. — Enginn kom þó skothvellurinn. Japanirnir slepptu tveim gislanna, en eru þó ennþá með 9 gisla á sinu valdi, sem þeir segjast ekki láta lausa, fyrr en þeir hafi fengið flugvél undir sig og Japanann Fiuruya, sem frönsk yfirvöld hafa sleppt úr fangelsi og flogið meö til Schiphol. Þar biður hann og Boeing- þotan, sem fengin hefur verið til að fljúga Japönunum hvert sem þeir vilja. — Hins vegar vantar áhöfn á vélina, þvi að enginn fæst til að fljúga mönnunum. Franskir flugmenn neita alveg að fljúga vélinni, og hollenzkir taka það ekki i mál, nema það veröi tryggt aö Japanirnir veröi vopnlausir, þegar þeir stigi um borð. Þar við sat, þegar siöast frétt- ist. Japanirnir lögðu undir sig sendiráðið fyrir helgi og hafa haft það og franska sendi- herrann á valdi sinu siðan. — Þeir vildu þvinga frönsk yfir- völd til aö sleppa úr haldi félaga þeirra úr „Rauða hernum”. Þeir segjast munu sleppa gislum sinum i skiptum fyrir Fiuruya, en halda þó áfram sendiherranum, þar til þeir komast með Fiuruya i öruggt hæli. „Ágœtis aðstoðarmaður" skrifar Willy Brandt um njósnarann, sem varð honum að falli Willy Brandt, fyrrverandi kansiari, lýsir i nýútkominni bók sinni kommúnistanjósnaranum, Gunter Guillaume — manninum, sem var orsök þess að Brandt hvarf úr stjórnmálaiifinu — sem „ágætis aðstoðarmanni”. 1 bók þessari, sem timaritið Spiegel mun birta i framhalds- sögu, gerir Brandt grein fyrir, hvernig það bar að, að hann neyddist til að segja af sér kansl- araembættinu. Þingnefnd vinnur nú að rann- sókn á þvi, hvernig það mátti verða, að hinn 49 ára gamli njósn- ari og útsendari Austur-Þjóð- verja komst til hárra trúnaðar- starfa hjá embætti kanslarans. — Guillaume hefur verið i gæzlu- varðhaldi siðan i april. Brandt skrifar, að Guillaume hafi gengið i gegnum sérstaka rannsókn og mælt hefði verið með honum sem sérstaklega traust- verðum og öruggum manni. Kanslarinn fyrrverandi skrifar, að hann hafi látið Guillaume starfa áfram, að ráði leyniþjón- ustunnar, eftir aö grunur var fall- inn á hann. Það var til að auð- velda að finna sannanir gegn hon- um, svo að lögum yrði yfir hann komið. Gunter Guillaume, njósnarinn, sem varð Brandt að falli, hefur nú setið i gæzluvarðhaldi siðan i apríl, meöan þingnefnd rann- sakar feril hans. 'Kraftaverk, ef Nixon nœr sér' HEFTA MATAR- FLUTNING UM BORÐ - NÓG TIL JÓLA ÞÓ Læknir Richards Nixons segir, að forsetinn fyrr- verandi sé alvarlega veik- ur, ,,og þarf kraftaverk til að hann nái sér". Tímaritið Newsweek hefur það eftir dr. Walter Tkach, að blóðtappinn, sem Nixon hefur í fæti, hafi versnað. Læknirinn segir, að afsögnin hafi verið mikið andlegt áfall fyrir forsetann fyrrverandi og að ákvörðun Fords um að náða hann af öllum hugsanlegum afbrotum I Watergatemálinu hafi „ekkert hjálpað til”. Segir hann, að „heilsa Nixons sé miklu verri heldur en þegar ég sá hann fyrir tveim vikum. Hann virðist ekkert viðnám hafa leng- ur.” En blaðið hefur ennfremur eftir Kenneth Clawson, einum af tryggustu stuðningsmönnum Nixons og fyrrum starfsmanni við Hvita húsið, að Nixon hafi sýnzt leika við hvern sinn fingur, þegar Clawson heimsótti hann i siðustu viku. Hafði Clawson ekki markað nein veikindi á yfirboð- ara sinum fyrrverandi. Spyr timaritið Newsweek siðan, hvort Nixon hafi virkilega verið hættulega veikur eða hvort fjölskylda hans og vinir hafi viljað útmála veikindi hans til að fá fremur talið Ford forseta á að náða hann? Eða til að mýkri höndum yrði farið um hann i réttarhöldum? — Nixon hefur verið kvaddur til sem vitni fyrir rétt I máli fyrrverandi starfs- manna hans. Menn hafa viljað skýra náðun Fords á forvera sinum á þá lund, að það hafi verið af njannúðar- ástæðum gert og ennfremur vegna þess að Ford hafi viljað forða þjóð sinni frá þvi að horfa upp á fyrrverandi forseta sinn falla saman. Nixon vissi Newsweek hefur nú bætt oliu á andúðina á náðuninni með þvi að skýra frá þvi, að það hafi öruggar heimildir fyrir nýjum upplýsing- um um aðild Nixons að Water- gatemálinu. Segir blaðið að Leon Jaworski saksóknari hafi undir höndum hljóðritanir, sem sanni, aö Nixon hafi verið kunnugt um Watergateinnbrotið, áður en það var framið. Skiptast á Griskir og tyrkneskir Kýpurbú- ar munu skiptast i dag á 200 særð- um og sjúkum föngum. Eru það fyrstu meiriháttar fangaskiptin, siðan Tyrkir gerðu innrásina 20. júli. Friðargæzlusveitir S.Þ. munu hafa eftirlit með þvi að fanga- skiptin fari fram samkvæmt samningum. Hefur ekki verið lát- HAIG Þessu er varpað fram rétt i sömu mund, sem terHorst fyrrum blaðafulltrúi Fords forseta hefur upplýst, að það hafi raunverulega verið Alexander Haig, hershöfð- ingi, starfsmannastjóri Hvita hússins, sem öllu hafi stjórnað siðasta árið fyrir Nixon forseta. —- Segir terHorst, sem sagði af sér, þegar Ford náðaði Nixon, að Haig hafi neyðzt til að axla æ meira af starfi forsetans, þegai Nixon einangraði sigsmámsaman frá forsetastörfunum eftir þvi sem leið á Watergatemálið. Kvisazt hefur, að Haig hers- höfðingi sé i þann veginn að hætta störfum i Hvita húsinu til að hverfa aftur I þjónustu hersins. Hefur flogið fyrir, að hann yrði settur hæstráöandi i herafla NATO i Evrópu. sjúkum og ið uppi, hvar fangaskiptin muni fara fram, en þó mun það vera einhversstaðar nærri höfuðborg- inni, Nikosiu. Fangaskiptin eru árangur við- ræðna Cleridesar forseta Kýpur - Grikkja og Denktash leiðtoga Kýpur-Tyrkja. Er gert ráð fyrir þvi, að innan skamms verði skipzt á öðrum 600 föngum til við- bótar. Þar verður þá um að ræða Sjómenn, sem starfa á þeim 400 skipum, er franski verzlunarflot- inn hefur á höfunum, eiga að hefja 2ja sólarhringa verkfall sitt I dag til að mótmæla þeirri ákvöröun stjórnvalda að ætla aö leggja lúxusfarþegaskipinu „France”, sem nú liggur við akk- eri I innsiglingu Le Havre. 990 manna áhöfn skipsins, sem gerði uppreisn um borð og hertók það úti fyrir strönd Frakklands, sœrðum fólk undir 18 ára aldri, eða yfir fimmtugt. Seint i nótt byrjaði fólk að tinast aftur til Nikosiu, eftir að bilar og flutningatæki, hlaðin búslóðum, höföu streymt út úr borginni I gær. Hafði fólkið verið slegið þeim ótta, að Tyrkir hefðu i hyggju nýja árás og að þessu sinni á Nikosiu. Höfðu tyrkneskar þotur sézt mikið á sveimi i gær. hefur skipið enn á sinu valdi, en rúmir 5 dagar eru liðnir, siðan uppreisnin var gerð. Yfirmenn á fragtskipaflotanum hafa ekki boðað verkfall, en látiö i ljós stuðning við verkíallið. Ahöfn „France” hefur neitað að hreyfa skipið úr lægi sinu, en þar er það fyrir stórskipum, sem ætla inn eða út úr höfnninni i Le Havre. Hafnarlögreglan og yfir- völd hafa látið umkringja skipið til að hindra að matvæli verði flutt um borð. Sjómannasamtökin segja, að áhöfnin eigi nægar birgðir um borð, birgðir, sem gætu enzt til jóla, nema þá helzt grænmeti. Þó hefur verið tekin upp skömmtun á rauðvini um borð. — A hinn bóginn er skipið að verða oliu- laust. Eru eftir aðeins 9 daga birgðir af oliu um borð, miðað við að vélarnar séu látnar ganga stanzlaust, eins og nauðsyn þykir krefja.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.