Vísir - 16.09.1974, Qupperneq 12
12
Vísir. Mánudagur 16. september 1974.
Gamlir meistarataktar
- síðan allt í baklás!
— og Leeds tapaði enn einu sinni — nú gegn Burnley
Enski landsliðsein-
valdurinn, Don Revie,
hélt norðurtil Lancashire
á laugardaginn, norðurtil
Burnley, og horfði á leik
hei ma liðsins gegn
meistaraliðinu, sem hann
stjórnaði þar til í sumar
— Leeds United. Annar
frægur kappi var einnig í
áhorfendastúkunni í litlu
borginni — Edward
Heath, fyrrum forsætis-
ráðherra Breta, sem nú
gerir meira af því að
sigla kringum boða og
sker á skútu sinni en
krappar öldur stjórnmál-
anna. Svo virtist sem
nærvera þessara kappa
hefði áhrif á leik Leeds-
liðsins til hins betra. Það
lék eins og meistaralið —
en aðeins i fyrri hálfleik.
Liðið, án framkvæmda-
stjóra eftir brottrekstur
Brian Clough, var ekki
hið sama eftir leikhléið
og mátti enn þola tap.
Já, Leeds sýndi gamla snilli
fyrstu 45 minúturnar, en tókst
ekki að skora nema eitt mark.
Það var á 42. min. Poul Madeley
lék þá snilldarlega á þrjá
varnarmenn Burnley — gaf sið-
an á Peter Lorimer sem skor-
aði. En á 58. min. tókst Burnley
að jafna með marki Poul
Fletcher og eftir það var leikur
Leeds ekki hinn sami og áður.
Léttleikinn hvarf — harka kom i
staðinn. Óttinn að tapa stigun-
um og Burnley náði yfirhönd-
inni. Leighton James skoraði
sigurmarkið á 69. min. úr vita-
spyrnu — en áður hafði knöttur-
inn bæði lent i þverslá og stöng
Leeds-marksins. Atök urðu á
vellinum og dómarinn rak mið-
herja Burnley, Ray Hankin, af
velli ásamt miðverði Leeds,
Gordon McQueen, á 78. min.
A sama tima léku sunnar i
Lancashire þau liðin i enskri
knattspyrnu, sem bezta knatt-
spyrnu geta sýnt, þegar sá gáll
inn er á leikmönnum þeirra,
Manchester City og Liverpool.
Það var á Maine Road i Man-
chester, sem þessi stóru Lan-
cashireíið léku — og það merki-
lega var, að það var raunveru-
lega aðeins eitt lið á vellinum.
Bikarmeistarar Liverpool voru
yfirspilaðir af Rodney Marsh,
fyrirliða City, og félögum hans
— svo mikill var sóknarþungi
Manchester-liösins, að Ray
Kennedy var oftast eini fram-
herji Liverpool i leiknum. Allir
aðrir leikmenn Liverpool urðu
að einbeita sér að vörninni og
því ekki von að bikar-
meistararnir skoruðu. Fyrsta
tap þeirra á leiktimabilinu varð
staðreynd. Strax á 3ju min.
sendi Marsh knöttinn i mark
Liverpool, en af einhverri
ástæðu var markiö dæmt af.
Asa Hartford (áður WBA), sem
átti snilldarleik hjá Manch.
City, reiddist svo mjög að
dómarinn bókaði hann. A 38.
min. skoraði Marsh og þá reidd-
ust leikmenn Liverpool. Þeir
héldu þvi fram, að Marsh hefði
lagað knöttinn fyrir sér með
hendinni áður enn hann skoraði
— en dómarinn var á annarri
skoðun og bókaði fyrirliða
Liverpool, Emlyn Hughes, og
einnig Peter Cormack. Það var
ekki fyrr en fjórum min. fyrir
leikslok, að Dennis Tueart skor-
aði annað mark Manch. City
eftir undirbúning Mike
Summerbee — en þrátt fyrir það
virtist aldrei von hjá Liverpool
að „bjarga” leiknum.
En úrslitin á laugardag urðu
þessi.
1. deild
Birmingham — Derby 3-2
Burnley — Leeds 2-1
NAUTASKROKKAR
Kr. kg. 390.—
Innifalið í verðí:
Útbeining. Merking. Pökkun. Kœling.
#R
M,
Pli-A
$ M MM m, 'wœFM&'
Ljtkjarveri, Laugal»k 2, almi 3 50 20
Chelsea — Arsenal 0-0
Everton — Wolves 0-0
Leicester —QPR 3-1
Luton —Ipswich 1-4
Manch. City — Liverpool 2-0
Newcastle —Carlisle 1-0
Sheff. Utd. — Middlesbro 1-0
Stoke — Coventry 2-0
Tottenham — West Ham 2-1
2. deild
Bolton —Sheff. Wed. 2-1
Bristol Rov. — Aston V. 2-0
Cardiff —BristolCity 0-1
Millvall —Oxford 0-0
Norwich — Notts Co. 3-0
Nottm.For. — Hull 4-0
Oldham — Blackpool 1-0
Orient — Fulham 0-0
Southampton — Portsmouth 2-1
WBA —Manch.Utd. 1-1
York — Sunderland 0-1
Aður en við litum nánar á
stórleikina skulum við hverfa
niður i 3. deild. Lundúnaliðið
Crystal Palace gerði sér litið
fyrir á föstudagskvöld og vann
efsta liðið i 3. deildinni Southend
United — liðið frá borginni i
mynn i Thames-árinnar,
Southend-on-Sea, með 0-1. A
laugardag var tilkynnt, að Pal-
ace hefði látið kunnasta leik-
mann sinn, Don Rogers, sem
verið hefur á varamannabekkj-
um að undanförnu, til annars
Lundúnaliðs, Queens Park
Rangers, og fengið i staðinn þá
Terry Venables og Evans. Sama
dag seldi Palace einnig Blyth til
Southampton — svo einhver
hreyfing er nú á félaginu, sem
féll niður úr 1. deild i þá 3ju á
tveimur leiktimabilum. Þá má
geta þess, að Ian St. John, fram-
kvæmdastjóri Motherwell á
Skotlandi, — hinn áður kunni
miðherji Liverpool og Skot-
lands, gerðist framkvæmda-
stjóri Portsmouth á laugardag.
Nú, en nóg um það. Ispwich-
liðið hélt hina stuttu leið til
Luton á laugardag og vann þar
stórsigur. Komst við sigurinn i
efsta sæti 1. deildar. Ipswich lék
snilldarlega. Strax á 9. min.
skoraði Brian Talbot eftir að
spyrna Suður-Afrikumannsins
Colin Viljoen hafði verið
blokkeruð. Bryan Hamilton,
irski landsliðsmaðurinn, skor-
aði annað mark Ipswich á 29.
min. —skallaði knöttinn inn eft-
ir fyrirgjöf Clive Woods — og
þannig var staðan i hálfleik.
Talbot skoraði 3ja markið úr
vitaspyrnu skömmu eftir leik-
hléið og siðan kom að Luton að
skora. Adrian Alston, sem lék i
HM-liði Astraliu, sendi knöttinn
i mark Ipswich á 67. min. —
fyrsta mark hans i ensku knatt-
spyrnunni. En Ipswich hafði
ekki sagt sitt siðasta orð — Tre-
vor Whymark skoraði fjórða
markið. Þess má geta, að Alan
Hunter, irski landsliðsmið-
vörðurinn, sem átti i útistöðum
við framkvæmdastjóra Ipswich,
Robson, gerði á föstudag nýjan
samning við Ipswich til 2ja ára.
Ipswich haföi samþykkt að taka
tilboði Leicester, 200 þúsund
sterlingspund, i Hunter — en
leikmaðurinn neitaði þá að
skipta um félag.
Stoke komst i 4. sæti i 1. deild
eftir öruggan sigur gegn Coven-
try, þar sem vörn Coventry
tókst að verjast áföllum, þrátt
fyrir mikla þressu Stoke, þar til
á 58. min. Þá fékk John
Mahoney lágsendingu frá
Jimmy Greenhoff og skoraði. A
80. min. skoraði John Ritchie
annað mark Stoke. Sheff. Utd.
hefur 10 stig eins og Stoke og
vann sinn fimmta sigur i röð á
laugardaginn — einn i deilda-
bikarnum. Það var á kostnað
Middlesbro og á 33. min. skoraði
Keith Eddy eina mark leiksins
úr vitaspyrnu. Sigurinn var i
minnsta lagi og greinilegt, að
United ætlar að gera það gott
undir stjórn Ken Furphy, sem
áður var með Watford.
Nýi framkvæmdastjórinn hjá
Tottenham, Terry Neil, sá lið
sitt sigra annað Lundúnalið,
West Ham, 2-1. Þar voru þó
greinilega tvö botnlið á ferð.
Mike England skoraði fyrra
mark Tottenham á 57. min. eftir
hornspyrnu Peter Knowles, en
hið siðara skoraði Martin Chiv-
ers eftir fyrirgjöf Martin Pet-
ers. Hvort tveggja skallamörk
— og Frank Lampard skoraði
mark WH. Sunnar i Lundúnum
sótti Chelsea mjög gegn Arsenal
og litlu munaði, að Charlie
Cooke, Gary Locke og John
Hollins skoruðu i fyrri hálfleik.
En inn vildi knötturinn ekki —
og undir lokin munaði sáralitlu,
að Brian Kidd „stæli” báðum
stigunum fyrir Arsenal. Skall-
knöttur frá honum gerði „allt”
nema fara i markið!! Uppi i
Newcastle sótti heimaliðið mjög
gegn Carlisle, en það var ekki
fyrr en tveimur min. fyrir leiks-
lok að sigurmarkið kom. John
Tudor skoraði.
Þeir
skora
Eftir leikina á laugardaginn
eru þessir leikmenn marka-
hæstir i deild og deildabikar á
Englandi.
1. deild:
6 — Phil Boersma, Liverpool,
Frank Worthington, Leicester.
5 — Colin Bell, Manch. City,
Brian Kidd, Arsenal, Bob
Latchford, Everton, Rodney
Marsh, Manch. City, Malcolm
McDonald, Newcastle, Trevor
Francis, Birmingham.
2. deild
5 — Viv Busby, Fuiham, Gerry
Daly, Manch. Utd. Ray
Graydon, Aston Villa, Billy
Hughes, Sunderland, Peter
Osgood, Southampton.
3. deild
6 — Bill Rafferty, Plymouth,
Alan Whittle, C. Palace.
5 — Chris Guthrie, Southend,
Melville Holden, Preston.
4. deild
6 — Robin Friday, Reading,
Dick Habbin, Reading.
5 — Alan Durban, Shrewsbury,
Bob Finney, Rotherham.
Trevor Francis var „stjarn-
an” i Birmingham-liðinu gegn
Derby. Hann gaf á Bob Hatton,
sem skoraði á 28. min. og kom
Birmingham siðan i 3-0 með
tveimur vitaspyrnum. Loka-
sprettur Derby var mikill —
Bruce Rioch og Roger Davies
skoruðu báðir siðustu sex
minúturnar og Derby-liðið var
heldur óheppið að tapa.
Jim Pearson, sem Everton
keypti nýlega frá St. Johnstone
á Skotlandi fyrir 100 þúsund
pund, kom inn á 20 min. fyrir
leikslok gegn Úlfunum. Risinn i
Úlfa-markinu, Phil Parkes,
sýndi mikla dirfsku og hindraði
Pearson i að skora með þvl að
kasta sér fyrir fætur hans. Mið-
herji Englands, Frank
Worthington, skoraði tvivegis
gegn QPR i 3-1 sigri Leicester.
Hið fyrra á 29. min. Gerry
Francis jafnaði fyrir QPR á 64.
min. Endasprettur Leicester
var mikill — Len Glover skoraði
á 79. min. og Worthington 3ja
markið á 89. min.
í 2. deild sýndu WBA og
Manch. Utd. snilldarknatt-
spyrnu — Merrick skoraði fyrir
WBA á 6. min. en eftir að Stuart
Pearson, sem lék nú með að
nýju eftir meiðsli, jafnaði fyrir
Manch. Utd. voru rauðar peysur
alls staðar, en ekki tókst United
að knýja fram sigur. Norwich er
með 10 stig eins og Manch. Utd.
og skoruðu þeir Sullivan, Mc-
Dougall og Boyer mörk Norwich
gegn Notts County. Sunderland
sigraði i Jórvik — Vic Halom
skoraði eina mark leiksins.
Tony Knapp leitar nú að leik-
mönnum fyrir Sheff. Wed., sem
er á botni 2. deildar. Ekki vitum
við hvort það var fyrir tilmæli
islenzka landsliðsþjálfarans að
Sheff. Wed. keypti Colin Har-
way frá Everton fyrir 70 þúsund
pund i vikunni. En hvað um það
— Sheffield-liðið tapaði enn, nú i
Bolton.
A Skotlandi léku erki-
fjendurnir Celtic og Rangers á
leikvelli Celtic i Glasgow,
Parkhead. Celtic skoraði fyrsta
mark leiksins — en Rangers
sigraði 2-1. Brogan, Celtic, og
Jardine, Rangers, voru reknir
af leikvelli —■ Brogan talsvert
fyrr I siðari hálfleiknum. A
meðan vann Hibernian stórsig-
ur gegn Partic Thistle og það i
Glasgow. Úrslit 1-5. Mansfield i
4. deild gerði jafntefli á laugar-
dag 0-0 við Crewe og hafa þá öll
liðin i deildunum ensku tapað
stigum i keppninni.
Staðan i 1. deild er nú þannig:
Ipswich 7 6 0 1 13-4 12
Liverpool 7 5 11 14-6 11
Manch. City 7 5 11 13-8 11
Stoke City 7 4 2 1 11-4 10
Sheff.Utd. 7 4 2 1 11-8 10
Everton 7 3 3 1 8-6 9
Wolves 7 2 4 1 8-7 8
Newcastle 7 3 2 2 13-12 8
Carlisle 7 3 13 6-5 7
Middlesbro 7 2 3 2 7-6 7,
Burnley 7 3 13 11-10 7'
Leicester 7 2 3 2 11-10 7
Chelsea 7 2 3 2 9-11 7
Derby 7 14 2 8-9 6
Birmingham 7 2 2 3 9-12 6
Arsenal 7 2 14 6-7 5
Q.P.R. 7 13 3 5-8 5
Tottenham 7 2 0 5 7-11 4
Leeds 7 12 4 5-10 4
Luton 7 0 4 3 5-11 4
Coventry 7 0 3 4 7-15 3
West Ham 7 115 6-13 3
Staða efstu liða i 2. deild er
þannig:
Manch. Utd. 6 4 2 0 12-4 10
Norwich 7 3 4 0 9-4 10
Sunderland 5 4 0 1 13-4 8
Oxford 5 3 2 0 7-3 8
Fulham 7 3 2 2 9-5 8
—hsim.
Meðan þú sefur ætla ég að
hlusta á lýsinguna!
-1 búningsherbergjunum — j
HpfllrhönM^^
Hann heldur að ég hafi rotazt.
Nú er mitt tækifæri!