Vísir - 16.09.1974, Blaðsíða 20
Mánudagur 16. september 1974.
Ráðizt á
leigubílstjóra
Sizt af öllu átti hann von á
árás, leigubllstjórinn sem á
laugardagskvöldið var að sinna
skyldustörfum sinum sem oftar.
Um klukkan 20.50 á laugar-
dagskvöldið fékk lögreglan til-
kynningu um að ráðizt hefði
verið á leigubllstjóra fyrir utan
Domus Medica. Fór lögreglan
þegar á staðinn og handtók
árásarmanninn sem var ofur-
ölvi.
Leigubill hafði verið pantaður
á staðinn og beið fyrir utan,
þegar ofurölvi manninn bar að.
Hann vatt sér að bilstjóranum,
og eitthvað hefur þeim orðið
sundurorða, þvi að bilstjórinn
fékk hnefahögg I andlitið frá
þeim ölvaða.
Bilstjórinn var fluttur á slysa-
deildina, en ekki reyndust
meiðsli hans alvarleg. Sá
drukkni mundi ekkert eftir
verknaðinum, þegar af honum
bráði. -EA
Spóluðu og stóðu upp á
anntm endann...
UM 70% IAUNÞEGA
„LÆGST LAUNAÐIR"
drif I honum, en menn létu þetta
allt litið á sig fá.
Keppni þessi var reyndar sú
fyrsta sinnar tegundar hér.
Mynduð hafði verið torfæru-
braut,rúmlega kilóipetra löng,
og var hún farin á tima, sem
aldrei hefur verið gert hér áður,
þ.e. sá sem fór hana á
skemmstum tima, sigraði.
Keppnin var haldin i Sandfelli
við Þrengslaveg og var keppnis-
brautin mjög vel útbúin og með
það fyrir augum að ekki yrðu
nein náttúruspjöll af völdum
þessa né áhorfenda.
Það kom I ljós, að staðurinn
var sérstaklega góður, og menn
þurfa vist ekki að vera hræddir
um að skemmá bila sína, þegar
aksturinn fer fram i sandi.
13 keppendur létu skrá sig til
keppninnar, en reyndar mættu
ekki nema 11. Keppendur
skemmtu sér ekki siður en
áhorfendur, en það var Bif-
reiðaklúbbur i Hafnarfirði, GÓ,
sem gekkst fyrir keppninni.
Fyrstu verðlaun voru 25 '
þúsund krónur, og féllu þau i
hlut Daniels Sigurðssonar, sem
ók Willys ’64. Onnur og þriðju
verðlaun voru 12.500 krónur.
Pétur Hjálmarsson á Willys ’67
hlaut önnur verðlaun, en
Ragnar Guðsteinsson á Willys
’67 þriðju verðlaun.
10 Wiilys jeppar voru i
keppninni, einn rússneskur
jeppi og svo Ford ’42, að visu
með 8 strokka vél. -EA.
Ölvaður bað
lögregluna að
draga í gang
Þessi fljúgandi furðuhlutur rninnir helzt á tilraunir hins bandariska Evel Knievets á dögunum. Myndin
lýsir annars mæta vel meðferöina á jeppum i torfærukeppnULjósm. Ragnar Sigurðssor.)
„Gætuð þið, hik, dregið bilinn
minn I gang, hik”, sagði maöur-
inn, sem kom inn á miðborgar-
stöð lögreglunnar um miðjan
daginn I gær.
Hann hafði veriö á heimleið er
bill hans stanzaði skyndilega i
Tryggvagötunni og fékk maður-
inn engu tauti viö hann komið. Nú
voru góð ráð dýr, en þar sem lög-
reglujeppi stóð fyrir utan lög-
reglustöðina þarna rétt hjá. datt
manninum i hug að leita eftir að-
stoð þar.
Lögreglumö.inunum þótti það
frekar maðurinn en billinn, sem
væri i óökufæru ástandi og var
mál hans tekið fyrir þarna á lög-
reglustöðinni samstundis.
Maðurinn viðurkenndi, að hann
hefði kannski fengið sér einn eða
tvosjússa, en lögreglumönnunum
þótti liklegra, að þeir hefðu verið
fleiri.
Þegar enn dýpra var grafið i
málið kom i ljós að maðurinn var
réttindalaus. Hann hafði misst
ökuleyfið nokkru áður vegna
svipaðs athæfis. —JB
Ákváðum að safna þegar Maó fór fyrir bíl“
Það gekk á ýmsu i torfæru- Jeppar sáust standa upp á
keppninni, sem haldin var í gær. endann, þeir spóluðu og næstum
þvi flugu. Einn jeppinn féll úr
keppni, þar sem það brotnaði
— efndu til hlutaveltu fyrir dýraspítalann
„Við ákváðum aö safna fyrir
dýraspitalann, þegar kötturinn
okkar sem hét Maó, fór fyrir bll
og dó”, sögðu krakkarnir fjórir,
sem heimsóttu okkur á rit-
stjórnarskrifstofurnar i morgun
með tæpar fimm þúsund krónur,
sem þau hafa safnað fyrir dýra-
spitalann með þvi að halda
hlutaveltu.
Krakkarnir eiga öll heima i
Skerjafirði eða „litla Skerjó”
eins og þau segja, og þau stóðu
reyndar sjö að hlutaveltunni.
Þrjár stúlkur komust ekki með i
morgun.
Systkinin Sigurður Orri og
Anna Þóra Steinþórsbörn áttu
köttinn Maó. „Hann var tveggja
og hálfs árs, þegar hann fór ný-
lega fyrir bil og dó. Við náðum
ekki i neinn dýralækni fyrr en
eftir heilan dag, en kisa lifði
þangað til. Þegar dýralæknirinn
kom, varð að aflifa hana.
Þá ákváðum við að safna
handa dýraspitalanum, og við
ætlum kannski að halda aðra
hlutaveltu fyrir jólin. Kannski
höfum við svo brúðuleikhús eða
leikum leikrit eða eitthvað.”
Krakkarnir eru öll heilmiklir
dýravinir. Þau Olafur Agúst
Aðalsteinsson og Anna Maria
Ingadóttir, sem komu með syst-
kinunum i morgun, eiga lika kis-
ur, sem heita Napóleon og Danni.
Þau Sigurður Orri og Anna
Þóra kváðust ekkert vera að
hugsa um að fá sér kött aftur.
Frekar kváðust þau vilja hund.
Þær stúlkur, sem einnig stóðu að
söfnuninni, heita Elisabet Katrin
Jósepsdóttir,. Anna Bella
Jóspesdóttir og Bjarney Aðal-
steinsdóttir.
Og það er ekki að efa, að þessi
börn hlakka mikið til, þegar
dýraspitalinn er kominn upp.
-EA.
Hverjir eru „hinir
lægst launuðu” i is-
lenzku þjóðfélagi? ,,Þvi
er kannski svolitið erfitt
að svara,” sagði Björn
Jónsson, forseti ASÍ, i
viðtali við Visi i morgun.
,, En það má hugsa sér
bilið milli 40-53 þúsund,
og á þvi bili eru liklega
um 70% launþega.”
Samninganefnd ASl sat á fundi
i morgun og ræddi viðhorfin i
samningamálunum við rikis-
stjórnina. Björn sagöi, að stefnt
væri að þvi að fá botn i þetta mál i
vikunni. Hlutverk ASl væri raun-
verulega að skipta þeim skerf,
sem næðist og yröu- hinir lægst
launuöu að sitja i íyrirrúmi.
„Við höfum ekki fengið
upphæðina raunverulega gefna,”
sagði Björn. „En ekki virðist frá-
leitt, að hún verði um 4% af
heildarupphæðinni. Og það
verður mikill vandi að skipta
henni, hver sem hún verður.
Andrúmsloftiö á fundum með
rikisstjórninni hefur verið gott.
Það er það alltaf, þegar pólitik er
ekki með, og við höfum ekki efni á
að vera með pólitik i þessu máli.”
Hann sagði ennfremur, að eng-
ar uppsagnir hefðu enn borizt frá
verkalýðsfélögunum, en bjóst við,
að fundahöld myndu hefjast hjá
þeim innan tiðar.
Talsmenn rikisstjórnarinnar
töldu ekki rétt að segja neitt um
samningamálið i morgun. -SH.
„Við höldum kannski aðra hlutaveltu fyrir jólin eða þá höfum brúðu-
leikhús”, sögðu krakkarnir, sem söfnuðu tæpum 5 þúsund krónum fyrir
dýraspitalann. A myndina vantar Elisabetu, önnu Bellu og Bjargey.
En frá vinstri eru Siguröur Orri, Anna Maria, Anna Þóra og Ólafur
Agúst. Ljósm.: Bj.
KORCHNOI OG KARPOV
HEFJA EINVÍGIÐ í DAG
Viktor Korchnoi dró
hvitt og mun þvi stýra
hvitu mönnunum i
fyrstu einvigisskák
hans og Anatoli
Karpovs, sem tefld
verður i Moskvu i dag.
Sigurvegarinn úr
einvigi þeirra vinnur
réttinn til að skora á
heimsmeistarann,
Bobby Fischer, til ein-
vigis um titilinn.
En fariö gæti þó alveg eins
svo, að sá þeirra, sem vinnur
þetta einvigi, verði heims-
meistarinn I skák, án þess að
tefla frekar. Fischer hefur
hótað þvi að verja ekki titilinn.
I júni i sumar sendi Fischer
Alheimsskáksambandinu
(FIDE) simskeyti, þar sem
hann krafðist breytinga
varðandi skilyrðin fyrir þvi, hve
margar skákir þyrfti að vinna
til að heimsmeistarinn héldi titli
sinum eða hve margar áskor-
andinn þyrfti að vinna til að
hrifsa titilinn. — Þegar FIDE
hafnaði þessum kröfum, til-
kynnti Fischer, að hann afsalaði
sér titiinum og segði sig úr lög-
um við FIDE. — En honum
hefur verið settur frestur til 15.
febrúar til að skoða hug sinn á
nýjan leik til þessa.
Allt þetta eykur til muna
spennuna i einvigi þeirra
Korchnois og Karpovs. Þeir
munu tefla i mesta lagi 24 skák-
ir, en sá þeirra, sem verður
fyrstur til að vinna fimm skákir,
fer með sigur af hólmi.
Báðir hafa þeir Karpov og
Korchnoi orðið að leggja fyrr-
verandi heimsmeistara að velli
til að komast þangað, sem þeir
eru staddir núna. — Karpov
vann Spassky, meðan Korchnoi
sigraði Petrosjan. — Þykir
mjög jafnt á komið með þeim. í
innbyrðis skákum hafa báðir
unnið sinar tvær og gert eina
jafntefli. GP.