Vísir - 17.09.1974, Side 8
8 Visir. Þriðjudagur 17. september 1974 Visir. Þriðjudagur 17. september 1974
Þaö var sorgarsvipur á andliti Foremans i búningsherberginu í Zaire í
gær — eftir meiðslin, sem hann hlaut á æfingunni við McMurrey. Tæp-
lega 3ja sentimetra skurður yfir hægra auganu, og slíkt er hættulegt fyr-
ir hnefaleikamann, sem er að fara í mikla keppni. Og svitadroparnir
leyna sér ekki á andliti heimsmeistarans. Símamynd AP í morgun.
Vinnur Valur klak-
liðið frá írlandi?
— Ætti að hafa möguleika í fyrri leiknum,
sem fram fer á Laugardalsvellinum í dag
Af Islenzku liðunum, sem taka
þátt i Evrópumótunum i knatt-
spyrnu i ár, er Valur liklega eina
liðið, sem hefur einhvern mögu-
leika á að komast i aðra umferð.
Vaíur er lika eina liðið, sem
fékk „viðráðanlegan” mótherja.
Það er irska liðið Portadown, sem
er að sögn kunnugra svipað og
beztu islenzku liðin — liklega þó
heldur betra, ef eitthvað er.
Portadown er eins konar „klak-
lið” fyrir önnur lið á Bretlandi,
Asíuleikunum
slitið
Sjöundu Asiuleikunum var
slitið með mikilli sýningu i Teher-
an i gær. Þar kepptu 25 þjóðir um
609 verðlaunapeninga. Japan,
sem hóf keppnina með þvi að
sigra i 22 af 25 sundgreinum,
hlaut alls 75 gullverðlaun, 49
silfur og 51 brons. tran var i öðru
sæti með gullverðlaunin eða 36 —
en kinverska iþróttafólkið hlaut
næst flesta verðlaunapeninga —
33 guil, 45 silfur og 28 brons.
Arangur var mun betri en áður —
alls féllu 24 meistaramótsmet i 35
greinum frjálsra iþrótta, og i
ellefu af 25 sundgreinum. Þrátt
fyrir pólitiskar brotalamir — og
iyfjaát nokkurra keppenda —
þóttu leikarnir hafa tekizt vel.
elur upp og þjálfar unga leik-
menn, sem siðan gera samning
við önnur stærri og rikari lið. Með
liðinu eru t.d. að þessu sinni þrir
strákar, 16 til 17 ára, og hefur
einn þeirra, sem er varamark-
Hermann Gunnarsson hefur horft
á leiki Vals gegnum rúðu á
Laugardalsvellinum að undan-
förnu — en þó komið inn I þremur
þeim siðustu I siðari hálfleik.
Hvað gerir markakóngurinn i
kvöld?
vörður liðsins, gert samning við
Manchester United og fer þangað
innan skamms.
Þá eru i liðinu fyrrverandi at-
vinnumenn, en Portadown er
hálf-atvinnumannalið, sem greiö-
ir leikmönnum fyrir æfingar og
leiki, og einnig eru I þvi menn,
sem hafa leikið með áhuga-
mannalandsliði Norður-lrlands.
Irarnir eru ekkert bangnir við
Valsmenn og segjast vera búnir
að afla sér allra upplýsinga um
þá, og gera þeir sér góðar vonir
með að sigra i báðum leikjunum.
Með þeim komu hingað um fjöru-
tiu stuðningsmenn liðsins ásamt
blaðamönnum og öðrum, og segj-
ast þessir fjörutiu ætla að hafa
hærra I stúkunni en allir Is-
lendingarnir til samans.
Til að fólki leiðist ekki I hálf-
leik, hafa Valsmenn fengið
nokkra af þekktustu skemmti-
kröftum landsins til að koma
fram og skemmta gestum með
kappakstri á hlaupahjólum, þri-
hjólum og fleiri hjólum i leikhléi.
—klp—
Aðalfundur
Aðalfundur Blakdeildar Vikings
verður haldinn i Vikingsheimilinu
þriðjudaginn 24. sept. n.k. kl. 20.
Fundarefni: Venjuleg aðalfunda-
störf.
FOREMAN ALI
99,7 K Woight 96,1 K
1.90 M Heíght 1.90 M
24 Age 32
109.2 CM Chest {„orrr )109,2CM
115,5 Chest íoxp )114.3
86,3 Woist 86,3
63,5 Thigh 66.0
31,7 Fist 33,0
44,4 Neck 44,4
40,6 Biceps 38,1
199.4 Reoch 203,2
Þeir George Foreman og Múhammed Ali áttu upphaflega að keppa um
heimsmeistaratitilinn i Zairc hinn 25. september — en nú verður ein-
hver bið á þvi vegna meiðsla Foreman á æfingunni I gær. A myndinni
aö ofan eru ýmsar upplýsingar um kappana. „Hotarinn” Foreman er
3,6 kilóum þyngri — aðeins yfir beztu keppnisþyngd sinni, en kapparnir
eru nákvæmlega jafnháir, 1,90 m. Ali er átta árum eldri — og þaö er
helzta hindrun hans. Hraðinn og léttleikinn er ekki hinn sami og áður.
Að öðru leyti er flest likt með köppunum — en Ali er þó talsvert arm-
lengri og kann það að koma að góðum notum. Hann ætti að geta haldi'ö
Foreman frá sér á sinn sérstæða hátt.
Ég mun krefjast þriggja
milljón dollara i skaðabætur,
ef George Foreman lætur
fresta leiknum, sagði Mu-
hammed Ali i Kinshasa i gær.
Foremann meiddist á æfingu
— fékk skurð yfir annað aug-
að. Það gæti orðið vikufrest-
un á leiknum — jafnvel mán-
uður, sagði BBC seint i gær-
kvöldi. Allt var i óvissu i
morgun — AP sagði, að erfitt
væri að gera sér grein fyrir
hve langan tima tæki að
græða skurðinn á augnabrún
Foreman — „bardaga aldar-
innar”, sem fara átti fram
25. september i Zaire verður
ef til vill frestað i 45 daga.
Split skoraði sex!
tslandsmeistarar Keflavikur i knatt-
spyrnunni héldu til Júgóslaviu i morgun
og á fimmtudaginn leika þeir fyrri leik
sinn við júgóslavneska meistaraliðið,
Iladjuk Split, i Evrópukeppni meistara-
liöa.
Það verður erfiður leikur fyrirKefl-
vikinga, þvi leikmenn Split hafa dregið
fram skotskóna á ný. t 1. deildinni júgó-
slavnesku um helgina skoraði liðið sex
mörk — vann með 6-0 — en við skulum
vona, að slikar tölur komi ekki á ljósa-
töfluna I Split á fimmtudaginn. Kefl-
vikingar leika báða leikina við Split i
Júgóslaviu.
Það voru fleiri meistaralið en Split,
sem skoruðu sex mörk I deildaleikjum
sinum um helgina. Feijenoord i HoIIandi
skoraði lika sex — svo og Bayern
Munchen — og Barcelona á Spáni vann
stórsigur. Sigraði Malaga með 5-0.
George Foreman var á æfingu I
hringnum i gær — keppti við-æfinga-
félaga sinn, Bill McMurrey, þegar hann
fékk skurð yfir hægra auga. Það var i
æfingastöð hans um 40 km frá Kins-
hasa, höfuðborg Zaire. Fyrstu viðbrögð
heimsmeistarans voru „Ö, guð — þetta
er I fyrsta skipti á ævi minni, sem slikt
kemur fyrir mig”.
Viðbrögð heimspressunnar voru mikil
— yfir 380 fréttamenn eru komnir til
Zaire eða á leið þangað, og um 80 þeirra
höfðu stutta viðkomu á Keflavíkurflug-
velli i gærmorgun. Foreman slasaður —
það var matur fyrir blaðamennina og
nær allar aðrar fréttir hurfu i skuggann.
Þjálfarar Foreman einbeittu sér strax
að skurðinum — þeir eru listamenn á þvi
sviði — og Foreman sagðist viss um að
leikurinn yrði á tilsettum tima, en eng-
inn virtist trúa honum eða fram-
kvæmdastjóra hans, Dick Saddler. Þeir,
sem lagt hafa milljónir dollara i fyrir-
tækið — bardagann og allt honum við-
komandi — skulfu af skelfingu, frestun
gat haft hroðalegar afleiðingar.
Ótti þeirra var ekki ástæðulaus. 1
morgun tilkynnti Henry Schwartz, einn
af frammámönnum fyrirtækis þess,
sem sjónvarpar leiknum, að leiknum
yrði frestað „i viku til 45 daga eftir þvi
hve meiðslin reynast erfið”.
Video-fyrirtækið hefur einkarétt á sjón
varpssendingum á þessum multi-milljói
dollara bardaga, þar sem hvor keppandi
fær fimm milljónir dollara i hlut.
En það eru ekki allir á þvi að fresta
leiknum, þrátt fyrir meiðsli Foremans.
Framkvæmdaaðilarnir I Zaire segja, að
ekkert slikt komi til mála — leikurinn
verði á tilsettum tima, en sennilega
hlustar enginn á þá. Þeir verða að
beygja sig eins og aðrir ef skurðurinn
grær ekki strax.
Atvikið átti sér stað i sjöttu lotu þeirra
Foreman og McMurrey — og það er
greinilegt, að kapparnir hafa ekki dreg-
ið af sér á æfingunni. Æfingin var strax
stöðvuð — og æfingadagskrá heims-
meistarans felld niður. Óvissan er mikil
i Kinshasa — en i Lundúnum eru veð-
mangarar á einu máli. Foreman er sá
sigurstranglegi, 5-2, þrátt fyrir skurð-
inn. —hsim.
Ástœðan var önnur!
Við sögðum frá þvi I blaðinu i gær,
að það hefði sett heldur leiðinlegan
svip á verðlaunaafhendinguna i
bikarkeppninni á laugardaginn,
þegar einn leikmanna Akranesiiðs-
ins hljóp snúðugur inn I búnings-
klefa, áður en afhendingin fór fram.
Flestir áhorfendur tóku eftir þessu
og þótti öllum framkoma ieikmanns-
ins óíþröttamannsleg og stinga mjög
i stúf við framkomu annarra leik-
manna Akranesliðsins, sem öll var
til mikillar fyrirmyndar.
En málið var ekki eins og það kom
fyrir augu blaðamanna og áhorfenda
úr stúkunni séð. Leikmaöurinn, sem
viö nafngreindum ekki i greininni, en
teljum rétt að gera það nú — Bene-
dikt Valtýsson — hljóp ekki út af
vellinum i vonzku, þótt það liti þann-
ig út.
. Nokkurra mánaða gamall sonur
lians hafði verið fluttur fárveikur á
sjúkrahús hér i Reykjavik nokkru
fyrir leikinn, og var Benedikt að
flýta sér að komast til hans, en ekki
að forðast að óska sigurvegurunum
til hamingju, eins og allir héldu i
fyrstu. .fclp-
-----------------------------------------
Eftir tiu minutur j Hvernig tekst án
hefst leikurinn T— Bomma
Bomma.....við
verðum að reyna ..
1973 World righli reierved
A meðan
&OSZ uns
5AUNAS.
4-6
Enn íslands-
met Ingunnar
í Stokkhólmi
Manchester Utd.
eykur forustuna
— Þetta gekk bara vel i Svi-
| þjóð og ég er ánægð með förina.
Á fimmtudaginn keppti ég á
| inóti i Stokkhólmi og setti þá
nýtt islandsmet i 400 metra
| lilaupi. Hljóp á 58.0 sek. og
bætti eldra met mitt um tvö
[sekúndubrot, sagði Ingunn
Einarsdóttir, hlaupadrottningin
I okkar, við Visi i morgun, en hún
kom heim úr keppnisförinni til
iSviþjóðar i gær. Hún setti is-
landsmet i 100 m á móti i Lundi
I eins og við höfum áður sagt frá.
, Það var ekki um neina keppni
að ræða i 400 m i Stokkhólmi,
,hélt Ingunn áfram. Sú, sem varð
i öðru sæti, hljóp á 60.5 sek. og
,Lilja Guðmundsdóttir, 1R, varð
þriðja á 61,2 sek. Hún hafði þá
.nýlokið við að hlaupa 800 m og
sigraði á 2:16.0 min.
Ingunn keppti einnig i 100 m
hlaupi i Stokkhólmi og varð önn-
ur á 12.3 sek. Þá tóku sig upp
gömul meiðsli i hné og háði það
henni, sem eftir var i keppni i
Sviþjóð.
Ingunn og Lilja kepptu á móti
á Gotlandi um helgina. Ingunn
hljóp þá 100 m á sama tima og i
Stokkhólmi, 12.3 sek. á lélegri
braut og hljóp 100 m grinda-
hlaup á 14.6 sek. Lilja sigraði i
800 m á 2:19.0 min.
— Ég keppi kannski hér
heima — ef meiðslin i hnénu
lagast — I haust, jafnvel i 800 m
.... á vellinum -
Jæja strákar. Timinn
Herðið hugann og
VINNIÐ!! —
Komiö! 1 dag
missum við
af titlinum!
Á sunnudag verður mótinu
haldið áfram og leika þá KR og
Vikingur og 1R mætir Þrótti. A
miðvikudag og fimmtudag i
næstu viku verður einnig leikið og
svo um helgina þar á eftir, en
mótinu lýkur með úrslitaleikjum,
sem fram fara 1. og 2. október.
Manch. Utd. tryggði stöðu
sina á toppi ensku 2. deildar-
innar, þegar liðið vann Millvall i
Lundúnum með 1-0 i gærkvöldi.
Þar með hefur Manch. Utd.
sigrað Millvall i báðum leikjum
liðanna — hefur nú 12 stig i
deiidinni eða tveimur meira en
Norwich.
Sigurmarkið fyrir United
skoraði Gerry Daly úr vita-
spyrnu á 49.min. — það er vist
fimmta vitið, sem hann skorar
úr frá þvi leiktimabilið hófst.
Markvörður Millvall Bryan
King, sá snjalli kappi, felldi Lou
Macari, miðherja Manch. Utd.
úti á vitateigslinunni og vitið
var dæmt.
Lundúnaliðið reyndi mjög að
jafna i lokin, en markvörður -
Manch. Utd. — Alex Stepney —
sem leikið hefur i enska lands-
liðinu, varði þá tvivegis hreint
snilldarlega. Fyrst frá David
Donaldson, siðan Gordon Hill.
Úrslit i öðrum leikjum i gær
urðu þau, að efsta liðið i 3.
deild, Southend,vann Walsall 3-0
i Southend, og i 4. deild tapaði
Leikið er i tveim riðlum og er
liðunum raðað niður i riðla eftir
árangri i mótinu i fyrra. t öðrum
riðlinum eru t.d. liðin sem urðu i
Brentford heima fyrir Rother-
ham 3-4, og Darlington fyrir
Rochdale 1-2.
Enski landsliðsþjálfarinn
Harold Shepherdson, sem verið
hefur þjálfari liðsins um langt
árabil — meðal annars i heims
meistarakeppninni 1966 — fékk i
gær tilkynningu frá enska
knattspyrnusambandinu, þar
sem honum var skýrt frá þvi, að
ekki væri iengur óskað eftir
störfum hans fyrir enska lands-
liðið. Hunum var þakkað langt
og merkt starf. Les Carter verð-
ur þjálfari liðsins — Revie
landsliðseinvaldur. Þá tilkynnti
Johnny Giles i gær, að hann
vildi ekki taka að sér stöðu
framkvæmdastjóra Leeds.
Hann leikur með liðinu og þegar
Don Revie hætti i sumar mælti
hann með Giles sem eftirmanni
sinum. Frank O’Farrell, sem
áður var framkvæmdastjóri
Leicester, Manch. Utd. og Car-
diff, er nú landsliðseinvaldur i
Iran. Lið hans sigraði á Asiu-
leikunum og Frank er nú þjóð-
hetja i tran. -hsim.
Vertíðin í handboltanum
hefst um nœstu helgi
Ingunn Einarsdóttir
og 400 m grindahlaupi, sagði I
Ingunn að lokum, en hún ætti vel
að ráða við íslandsmetin i þeim
greinum. Islandsmet hennar
eru orðin mörg i sumar — tugur I
eða meir. -hsim.,
Keppnin i riðlunum verður
lokið 29. september. Þann 1. októ-
ber hefst úrslitakeppnin og þá
leikið um 7. og 8. sætið og 3. og 4.
sætið. Daginn eftir eða-2. október
verður leikið um 5. og 6. sætið og
1. og 2. sætið.
-klp-
Fyrstu leikirnir i Reykjavikur-
mótinu i handknattleik verða
leiknir i Laugardalshöllinni um
næstu helgi. Eru það leikir i
meistaraflokki karla, en þar
keppa lið frá átta félögum.
Keppnin hefst á laugardaginn
og verður fyrsti leikur mótsins á
milli Fram og Armanns, en að
honum loknum leika Valur og
Fylkir.
1. 3. 5. og 7. sæti og í hinum liðin
sem urðu i 2. 4. 6. og 8. sætinu.
Eða nánar eins og hér segir:
A-riðill
Fram
Ármann
KR
Vikingur
B-riðiIl
Valur
Fylkir
1R
Þróttur
Sænski Evrópumetmafinn I 3000 m hindrunarhlaupinu, Anders Gærderud, varð fyrir miklum vonbrigð-
um, þegar honum tókst ekki að sigra í greininni á EM i Róm á dögunum. En hann átti við veikindi að
striða i Róm —og Pólverjinn Malinowski varð rétt á undan honum í mark I úrslitahiaupinu. Pólverjinn
er nr. 728 á myndinni, en Anders 937. Ef við athugum myndina nánar, sést Finninn Kantanen vera að
falla i vatnsgryfjuna.
Leikmenn Real Madrid
horfa á leikinn í dag
Hinir heimsfrægu leikmenn
Real Madrid frá Spáni eru
væntanlegir hingað til lands í dag,
en á fimmtudaginn mæta þeir
leikmönnum Fram á Laugardals-
vellinum i Evrópukeppni bikar-
meistara.
Spánverjarnir, sem margir
hverjir koma nú hingað i annað
sinn á þrem árum, eiga að koma
til Keflavikurflugvallar klukkan
þrjú i dag. Þaðan verður þeim ek-
ið til Reykjavikur en margir
þeirra munu ætla að sjá leik Vals
og Portadown, sem hefst kl. 17,30
i dag.
Real Madrid kemur hingað með
sitt sterkasta lið m.a. heims-
meistarana Netzer og Breitner,
og verður liðið á æfingu á Fram-
vellinum á morgun, en Laugar-
dalsvöllurinn er það slæmur um
þessar mundir, að ekki er talið
ráðlegt að hleypa liðum inn á
hann nema rétt til að leika. — klp
Real Madrid er aðal-
keppinautur Liverpool
— segir fréttastofa AP um leikina
í Evrópukeppni bikarhafa
Aðalkeppinautur Liverpool i
Evrópukeppni bikarhafa virðist
vera Real Madrid, sem leikur
við FC Reykjavík (Fram) i
fyrstu umferðinni, segir frétta-
stofa AP i sambandi við
Evrópuleikina i knattspyrnu.
Fyrsta umferðin hefst nú I vik-
unni með leik Vals og Porta-
down á Laugardalsvellinum.
En, bætir fréttastofan við, Ein
tracht Frankfurt, sem leikur við
franska liðið Monaco i fyrstu
umferð, og PSV Eindhoven,
Hollandi, eru einnig likieg lið til
árangurs i keppni bikarhafa.
Eindhoven leikur við norður-
irska liðið Ards i 1. umferð.
Erfiðara verðu hjá Carl Zeiss
Jena, Austur-Þýzkalandi I
fyrstu umferðinni gegn Siavia
Prag. Þar er erfitt að spá um
úrslit — en þó Liverpool verði án
Kevin Keegan gegn norska lið-
inu Strömgodset ætti það að
vinna án erfiðleika — og svo
getur Keegan leikið siðari leik-
inn gegn norska liðinu.